Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 5. JANÚAR 2020 FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 STILLANLEG RÚM • HEILSURÚMOG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL. 60%AFSLÁTTUR ALLT AÐ ÚTSALA VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN Í framhaldsþáttum Lifum lengur í Sjónvarpi Símans Premium verður fjallað um langlífi í þremur löndum af fimm sem skilgreind hafa verið af erlendum rannsak- endum sem þau svæði heims þar sem fólk nær hæstum aldri eða „The Blue Zones“. Svæðin sem verða heimsótt eru Loma Linda í Kali- forníu, gríska eyjan Íkaría og ítalska eyjan Sardinía. Á þessum stöðum lifir fólk að meðaltali um sjö til tíu árum lengur en fólk annars staðar. Í fjórða þættinum verður fjallað um langlífi á Íslandi sem er töluvert. Helga Arnardóttir, umsjónarmaður þáttanna, ræðir við ýmsa sérfræðinga og fólk sem er um og yfir hundrað ára og spyr það spjörunum úr um lífsstíl þess og viðhorf. Skoðað verður í hverju landi fyrir sig hvað skýrir langlífi fólks sem er samspil margra þátta; mataræðis, hreyf- ingar, trúarlífs, lífsviðhorfs, streituleysis, lífsgleði og áhuga fyrir lífinu. Helga Arnardóttir kynnti sér langlífi í Kaliforníu, Íkaríu og Sardiníu. Hvar lifir fólk lengst? Önnur sería þáttanna Lifum lengur kemur í heild inn í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudaginn. Umsjón hefur sem fyrr Helga Arnardóttir. Í Morgunblaðinu hinn 3. janúar, 1960, fyrir sextíu árum, er sagt frá því að hafmeyjan á Tjörninni hafi verið sprengd í loft upp og eyðilögð. Þar stendur: „Ekki hefur lögregl- unni enn tekizt að hafa hendur í hári afbrotamannsins. Hafmeyjan í Tjörninni er eftir Nínu Sæmunds- son myndhöggvara. Ekki er blaðinu kunnugt um hvað hafmeyjan kost- aði, en að fróðra manna viti, hefir hún ekki kostað minna en fjórðung milljónar. Enn er óráðið hvort ný hafmeyja verður steypt í kopar og sett upp í Tjörninni, en einn af fulltrúum listaverkanefndar skýrði blaðinu frá því í gær, að sér þætti ólíklegt að svo yrði. Þegar fréttamaður Morgun- blaðsins skrapp niður á Tjörn í gærmorgun að athuga verks- ummerki, sást ekki annað af lista- verkinu en stöpullinn og bolt- arnir, sem hafmeyjan var fest niður með. Nokkrir menn stóðu við stöpulinn og ræddu sín á milli um það, sem gerzt hafði. Vel þekktur borgari sagði við fréttamann Morgunblaðsins: „Þetta er ágætt, við þurftum að losna við hana, en það hefði mátt gera það á kristilegri hátt.““ GAMLA FRÉTTIN Hafmeyjan sprengd í loft upp Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Hafmeyjan var sprengd í loft upp á nýársnótt 1960. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Jim Carrey leikari Ari Eldjárn uppistandari Peter Krause leikari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.