Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020 LÍFSSTÍLL Marta og Gísli keyptu 129fermetra íbúð með bíl-skúr í Hafnarfirði í sept- ember árið 2018. Parið flutti loksins inn ásamt dóttur sinni Hrafntinnu og labradorhundinum Bronco í jan- úar árið 2019 en þau tóku sér góðan tíma í að taka íbúðina í gegn. Marta segir að þau Gísli hafi gert mestmegnis allt sjálf með góðri hjálp frá fjölskyldunni. Þar sem Gísli er á sjó annan hvern mánuð þá töfðust framkvæmdirnar aðeins. „Við tókum niður allt loft og sett- um innfellda lýsingu, nýtt parket og hurðir og nýja eldhúsinnréttingu og fataskápa. Það eina sem við breytt- um ekki var baðið. Við tókum niður vegg á milli eldhúss og stofu til að opna rýmið og færðum þvotta- húsdyrnar úr eldhúsi inn á svefn- herbergisgang til að fá stærra eld- hús. Það var einnig lítil geymsla inn af forstofunni sem við breyttum í fataherbergi fyrir yfirhafnir,“ segir Marta um þær breytingar sem þau gerðu. Íbúðin varð bjartari Marta segir að breytingarnar hafi gert það að verkum að íbúðin stækk- aði mjög mikið auk þess sem hún varð bjartari. Þau fengu mun stærra eldhús, gerðu eyju og flæðið varð betra í íbúðinni. Þau Marta og Gísli keyptu íbúðina með það í huga að breyta henni. „Okkur langaði að opna íbúðina og gera hana bjarta og sáum mikla möguleika. Hún er svo vel skipulögð þrátt fyrir að vera bara um 100 fer- metrar að stærð. Það var alltaf plan- ið að finna eldri eign og gera hana að okkar og fá að innrétta hana eftir okkar höfði.“ Vildu hvorki svart né hvítt „Við keyptum eldhúsið okkar frá HTH og erum mjög ánægð með það. Okkur langaði ekki í hvíta né svarta innréttingu og við fundum frábæra innréttingu sem er dökkbrún. Við settum Mortex á eldhúsið sem er með sömu áferð og steinn en kostar margfalt minna. Fataskápana keyptum við svo alla í Ikea. Parket og hurðir keyptum við í Birgisson.“ Marta segist elska að sitja uppi í sófa og njóta þess að horfa á fallega heimilið sitt frá öllum áttum og hafa það notalegt. „Ég elska borðstofuborðið mitt frá NORR11. Svo þykir mér líka mjög vænt um hluti sem hafa tilfinn- ingalegt gildi eins og málverk frá ömmu minni og afa og vasa frá ömmu minni sem er látin.“ Vön framkvæmdum „Framkvæmdir taka alltaf lengri tíma en maður heldur. Við ætluðum ekki að gera svona margt í upphafi en svo vindur það upp á sig. Það tek- ur vel á að vera í framkvæmdum en maður er alltaf svo ánægður eftir á. Við gerðum einnig upp okkar fyrstu íbúð fyrir rétt rúmum þremur árum svo við erum orðin smá vön og margt sem við lærðum og gerðum betur í þessari framkvæmd. Eins og núna tæpu ári eftir að við fluttum inn erum við nýbúin að klára litlu hlutina sem maður nennir hreinlega ekki að gera þegar maður er fluttur inn.“ Það mætti segja að þau Marta og Gísli séu orðin nokkuð vön því að taka íbúðir í gegn og býr Marta yfir nokkrum góðum ráðum. „Þetta mun alltaf taka lengri tíma en maður gerir ráð fyrir og kostar meira. Við höfum núna gert þetta tvisvar og við munum pottþétt gera þetta aftur seinna meir, en núna ætl- um við að njóta í einhvern tíma hér. Maður uppsker eins og maður sáir og gleðin er mikil þegar verkinu lýk- ur,“ segir Marta ánægð með íbúðina. Marta nýtur þess að sitja í sófanum og hafa það notalegt. „Breytingar taka alltaf lengri tíma en gert er ráð fyrir“ Marta Magnúsdóttir og kærasti hennar, Gísli Laufdal Stefánsson, búa í fallegri íbúð í Hafnarfirði sem þau gerðu mestmegnis upp sjálf með aðstoð fjölskyldunnar. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is Marta Magnúsdóttir tók íbúð í Hafnarfirði í gegn ásamt kærasta sínum. Hjónaherbergið kemur skemmtilega út með sömu málningu í loftinu og á veggjum. Innréttingin er frá HTH og er dökkbrún.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.