Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.01.2020, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.1. 2020
LÍFSSTÍLL
Marta og Gísli keyptu 129fermetra íbúð með bíl-skúr í Hafnarfirði í sept-
ember árið 2018. Parið flutti loksins
inn ásamt dóttur sinni Hrafntinnu
og labradorhundinum Bronco í jan-
úar árið 2019 en þau tóku sér góðan
tíma í að taka íbúðina í gegn.
Marta segir að þau Gísli hafi gert
mestmegnis allt sjálf með góðri
hjálp frá fjölskyldunni. Þar sem
Gísli er á sjó annan hvern mánuð þá
töfðust framkvæmdirnar aðeins.
„Við tókum niður allt loft og sett-
um innfellda lýsingu, nýtt parket og
hurðir og nýja eldhúsinnréttingu og
fataskápa. Það eina sem við breytt-
um ekki var baðið. Við tókum niður
vegg á milli eldhúss og stofu til að
opna rýmið og færðum þvotta-
húsdyrnar úr eldhúsi inn á svefn-
herbergisgang til að fá stærra eld-
hús. Það var einnig lítil geymsla inn
af forstofunni sem við breyttum í
fataherbergi fyrir yfirhafnir,“ segir
Marta um þær breytingar sem þau
gerðu.
Íbúðin varð bjartari
Marta segir að breytingarnar hafi
gert það að verkum að íbúðin stækk-
aði mjög mikið auk þess sem hún
varð bjartari. Þau fengu mun stærra
eldhús, gerðu eyju og flæðið varð
betra í íbúðinni.
Þau Marta og Gísli keyptu íbúðina
með það í huga að breyta henni.
„Okkur langaði að opna íbúðina og
gera hana bjarta og sáum mikla
möguleika. Hún er svo vel skipulögð
þrátt fyrir að vera bara um 100 fer-
metrar að stærð. Það var alltaf plan-
ið að finna eldri eign og gera hana að
okkar og fá að innrétta hana eftir
okkar höfði.“
Vildu hvorki svart né hvítt
„Við keyptum eldhúsið okkar frá
HTH og erum mjög ánægð með það.
Okkur langaði ekki í hvíta né svarta
innréttingu og við fundum frábæra
innréttingu sem er dökkbrún. Við
settum Mortex á eldhúsið sem er
með sömu áferð og steinn en kostar
margfalt minna. Fataskápana
keyptum við svo alla í Ikea. Parket
og hurðir keyptum við í Birgisson.“
Marta segist elska að sitja uppi í
sófa og njóta þess að horfa á fallega
heimilið sitt frá öllum áttum og hafa
það notalegt.
„Ég elska borðstofuborðið mitt
frá NORR11. Svo þykir mér líka
mjög vænt um hluti sem hafa tilfinn-
ingalegt gildi eins og málverk frá
ömmu minni og afa og vasa frá
ömmu minni sem er látin.“
Vön framkvæmdum
„Framkvæmdir taka alltaf lengri
tíma en maður heldur. Við ætluðum
ekki að gera svona margt í upphafi
en svo vindur það upp á sig. Það tek-
ur vel á að vera í framkvæmdum en
maður er alltaf svo ánægður eftir á.
Við gerðum einnig upp okkar fyrstu
íbúð fyrir rétt rúmum þremur árum
svo við erum orðin smá vön og
margt sem við lærðum og gerðum
betur í þessari framkvæmd. Eins og
núna tæpu ári eftir að við fluttum
inn erum við nýbúin að klára litlu
hlutina sem maður nennir hreinlega
ekki að gera þegar maður er fluttur
inn.“
Það mætti segja að þau Marta og
Gísli séu orðin nokkuð vön því að
taka íbúðir í gegn og býr Marta yfir
nokkrum góðum ráðum.
„Þetta mun alltaf taka lengri tíma
en maður gerir ráð fyrir og kostar
meira. Við höfum núna gert þetta
tvisvar og við munum pottþétt gera
þetta aftur seinna meir, en núna ætl-
um við að njóta í einhvern tíma hér.
Maður uppsker eins og maður sáir
og gleðin er mikil þegar verkinu lýk-
ur,“ segir Marta ánægð með íbúðina.
Marta nýtur þess að
sitja í sófanum og
hafa það notalegt.
„Breytingar taka alltaf lengri
tíma en gert er ráð fyrir“
Marta Magnúsdóttir og kærasti hennar, Gísli Laufdal Stefánsson, búa í fallegri íbúð í
Hafnarfirði sem þau gerðu mestmegnis upp sjálf með aðstoð fjölskyldunnar.
Guðrún Selma Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is
Marta Magnúsdóttir tók
íbúð í Hafnarfirði í gegn
ásamt kærasta sínum.
Hjónaherbergið kemur
skemmtilega út með sömu
málningu í loftinu og á veggjum.
Innréttingin er frá HTH
og er dökkbrún.