Morgunblaðið - 04.02.2020, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 29. tölublað 108. árgangur
FLÚR OG FJÖR
Á TÓNLEIKUM
Í HAFNARBORG
FLEIRI TÆKI-
FÆRI TIL NÁMS
ERLENDIS
HLÍFÐARGRÍMUR,
HERBÚÐIR OG
MARKAÐSHRUN
NÝ SKÝRSLA 14 KÓRÓNUVEIRA 4 OG 13HERDÍS ANNA 28
Verkfall Eflingar
» Alls leggja um 1.850 starfs-
menn Reykjavíkurborgar niður
störf á hádegi.
» Verkfallið nær til 63 leik-
skóla og um 3.500 leikskóla-
barna.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við reynum að stíga þennan dans
með þeim leikreglum sem gilda,“ seg-
ir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla-
og frístundasviðs Reykjavíkurborg-
ar.
Verkfallsaðgerðir sem Efling hef-
ur boðað vegna kjaradeilu 1.850
starfsmanna félagsins hjá Reykjavík-
urborg hefjast klukkan 12.30 í dag og
standa til miðnættis. Þetta varð ljóst
eftir að sáttafundur í gærmorgun
skilaði engum árangri.
Um eitt þúsund félagar í Eflingu
starfa í skólum í Reykjavík. Munu að-
gerðirnar bitna á 63 leikskólum. „Við
vitum að þetta er rúmur helmingur
barna sem verða án þjónustu eftir há-
degi,“ segir Helgi. Alls eru um 5.100
börn í leikskólum Reykjavíkurborgar
en upplýsingar sem skrifstofan fékk
frá leikskólunum benda til að aðgerð-
irnar nái til um 3.500 barna.
Mismunandi er eftir borgarhlutum
hversu mikil áhrifin verða. Þannig
segir Helgi að þjónustuskerðingin
verði mest í Breiðholti – þar sé hæsta
hlutfall Eflingarstarfsfólks – en mun
minni til að mynda í Laugardalnum.
Verkfallið nær til 3.500 barna
Enginn árangur náðist á sáttafundi Eflingar og Reykjavíkurborgar Víðtæk
áhrif verkfalls sem hefst á hádegi Ástandið verst í leikskólunum í Breiðholti
MVerkfall Eflingar hefst »4
Snjómuggan sem var í lofti í gær fær ekki að
loða lengi við dráttarvélarnar í Grindavík. Veð-
urstofan spáir vaxandi sunnanátt í dag og að
henni fylgi rigning. Áfram verður súld eða rign-
ing næstu daga sunnanlands og vestan. Aftur á
móti er búist við snjókomu í kvöld á Norðaust-
urlandi en að þar verði úrkomulítið næstu daga.
Menn geta svo aftur farið að taka fram skíðin
fyrir helgina, ef langtímaspáin gengur eftir.
Rigning í kortunum sunnanlands og vestan
Morgunblaðið/RAX
Snjómuggan setti sinn svip á rauðar dráttarvélar
Þrívíddarprentari sem leysti
eldri prentara af hólmi á Heilbrigð-
istæknisetrinu fyrir tveimur árum
hefur reynst vel. Með nýju tækninni
hefur tekist að bjarga mannslífum.
Tæknin er nýtt í um það bil 20-25
aðgerðum á ári, mest í flóknum
hjarta- og höfuðkúpuaðgerðum. Út-
búnar eru eftirlíkingar af líffærum
sjúklinga til að læknar geti æft
flóknar skurðaðgerðir. Hægt er að
stytta aðgerðartímann um allt að
fjórðung. »4
Þrívíddarprentari
bjargar mannslífum
Plasthjarta Læknar geta æft sig.
Morgunblaðið/Eggert
Vegagerðin áformar að breikka
Suðurlandsveg frá nýju hringtorgi
sem útbúið verður á vegamótunum
við Biskupstungnabraut og að
Gljúfurholtsá við Kotstrand-
arkirkju. Er þetta liðlega 7 kíló-
metra kafli og telst annar áfangi
breikkunar Suðurlandsvegar á
milli Hveragerðis og Selfoss.
Verkið hefur verið boðið út á Evr-
ópska efnahagssvæðinu og á því
að vera að fullu lokið í lok sept-
ember 2023.
Vegurinn verður að mestu
breikkaður í núverandi vegstæði
en þó verður tekinn af hlykkur
sem nú er á veginum austan við
Kotstrandarkirkju og verður veg-
urinn þar lagður í nýtt vegstæði.
Gera þarf nýja hliðarvegi og heim-
reiðar, nokkur vegamót, steyptar
brýr og reiðgöng.
Á þessu ári var lokið fyrsta
áfanga þessarar leiðar, breikkun
frá Varmá við Hveragerði að Kot-
strandarkirkju. Eftir er að leggja
nýjan veg hjá Hveragerði og veg
og brú á nýjum stað á Ölfusá.
Reiknað er með því að brúin verði
samvinnuverkefni ríkis og einka-
aðila og hefur framkvæmdin ekki
verið tímasett. »9
Ljúka breikkun veg-
arins haustið 2023
Fjarskiptafélagið Síminn hefur
ákveðið að falla frá fyrirhuguðum
áætlunum um byggingu tíu þúsund
fermetra, 10 MW gagnavers á nýju
athafnasvæði á Hólmsheiði.
Gunnar Fjalar Helgason, yfir-
maður stefnumótunar hjá Síman-
um, segir í samtali við Morgun-
blaðið að ákvörðunin um að reisa
ekki eigið gagnaver sé ekki ný af
nálinni. Hinsvegar hafi menn beðið
eins lengi og hægt var með að láta
frá sér lóðirnar. „Við veltum því
fyrir okkur í mörg ár hvort við ætt-
um að byggja okkar eigin gagnaver
eða ekki. Niðurstaðan var sú að
semja frekar við gagnaver Verne
Global á Ásbrú.“ »12
Morgunblaðið/Hari
Tækni Öflun viðskiptavina í gagnaver er
ekki hluti af kjarnastarfsemi Símans.
Hættur við gagna-
ver á Hólmsheiði
Norska sjónvarpsþáttaröðin Exit,
sem fjallar um úrkynjaðan og sið-
spilltan lífsstíl manna úr fjármála-
heiminum, eins og það er orðað á vef
RÚV, er opin öllum í spilara RÚV,
bæði á netinu og í sjónvarpinu, þó
svo að þáttaröðin sé rauðmerkt og
því stranglega bönnuð börnum.
Í kæru Símans til Fjölmiðlanefnd-
ar vegna málsins, sem Morgunblað-
ið hefur undir höndum, er bent á að
engar aðgangsstýringar séu á spil-
ara Ríkisútvarpsins til að verja börn
og ungmenni fyrir grófu myndefni.
Jafnframt er athygli nefndarinnar
vakin á að þarna sé á ferðinni ein-
staklega gróft efni sem bannað sé
börnum 16 ára og yngri.
Í 28. grein laga um fjölmiðla frá
árinu 2011 segir orðrétt í efnislið C:
„Heimilt er að miðla hljóð- og
myndmiðlunarefni eftir pöntun sem
ekki er talið við hæfi barna að því
tilskildu að tryggt sé með viðeigandi
tæknilegum ráðstöfunum að börn
hafi ekki aðgang að því.“
Á vef og Facebook-síðu RÚV er
efnið kynnt rækilega og sagt að
kvörtunum góðborgara hafi rignt
yfir Norska ríkissjónvarpið NRK
frá frumsýningu þáttanna síðasta
haust.
Bannað efni opið á RÚV
Kæra send Fjölmiðlanefnd Kynntu efnið á Facebook
Skjáskot/NRK
Bannað Siðspilltir norskir útrás-
arvíkingar ráða ráðum sínum.