Morgunblaðið - 04.02.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vaka hf. hefur lýst yfir áhuga á að
reisa nýjar höfuðstöðvar á Tungu-
melum í Mosfellsbæ. Þær yrðu stein-
snar frá höfuð-
stöðvum Ístaks.
Samhliða flutn-
ingi Vöku úr Vog-
unum í Reykjavík
hefur félagið komið
fyrir bílflökum á
athafnasvæði sínu
við hlið Ístaks.
Haraldur Sverr-
isson, bæjarstjóri
Mosfellsbæjar,
segir Vöku hafa keypt heilmikið land
á Tungumelum á sínum tíma af
Landsbankanum sem áður hafi verið
í eigu Ístaks. Vaka geymi bílana á
svæði sem bærinn samdi við Ístak á
sínum tíma um að yrði tímabundið
geymslusvæði. Jafnframt hafi Vaka
óskað eftir því að aðalskipulagi á
landinu í eigu félagsins á Tungumel-
um verði breytt í atvinnusvæði. Vaka
vilji reisa byggingar í tengslum við
sína starfsemi á svæðinu.
„Umsókn um tímabundið
geymslusvæði var tekin fyrir í
bæjarráði í byrjun árs og samþykkt
að fela lögmanni og framkvæmda-
stjóra umhverfissviðs að gera drög
að samningi við Vöku og leggja fyrir
bæjarráð,“ segir Haraldur.
Haraldur segir tækifæri á Tungu-
melum. „Það er eftirspurn eftir lóð-
um undir athafnastarfsemi og léttan
iðnað. Á Tungumelum er þegar í
gildi deiliskipulag fyrir slíka starf-
semi á hluta svæðisins. Í skoðun er
að breyta aðalskipulagi bæjarins og
stækka þetta svæði. Reykjavíkur-
borg er að breyta sínu skipulagi en
því getur fylgt að slík starfsemi þurfi
að víkja,“ segir Haraldur. Hugsan-
legt sé að Tungumelarnir geti með
tímanum orðið eitt af svæðum höfuð-
borgarsvæðisins þar sem slík starf-
semi geti verið.
Vaka var með höfuðstöðvar í
Skútuvogi 8. Reitir áttu húsnæðið en
félagið áformaði að reisa þar vöru-
hús. Fallið var frá því og húsið selt til
Bílaleigu Akureyrar. Vaka býður
upp á dráttarbílaþjónustu, bílavið-
gerðir, dekkjaskipti og er umsvifa-
mikið í bílapartasölu.
Vaka hf. flytur bílaparta-
sölu sína að Esjurótum
Haraldur
Sverrisson Morgunblaðið/Baldur
Við Esjuna Vaka hefur komið fyrir bílflökum á Tungumelum. Athafnasvæðið er steinsnar frá Ístaki.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir Tungumela henta vel undir iðnað og fyrirtæki
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina
Umhverfissjóður sjókvíaelds auglýsir til umsóknar
styrki til rannsóknir vegna burðarþolsmats,
vöktunar o. fl., samkvæmt reglugerð nr. 874/2019.
Markmið sjóðsins er að lágmarka umhverfisáhrif af völdum sjókvíaeldis.
Sjóðurinn greiðir m.a. kostnað við rannsóknir vegna burðarþolsmats,
vöktunar og annarra verkefna sem stjórn sjóðsins ákveður.
Við mat á umsóknum við úthlutun árið 2020 munu framhaldsverkefni sem
þegar eru hafin njóta forgangs.
Stofnanir, fiskeldisfyrirtæki, einstaklingar og lögaðilar geta sótt um styrki
til sjóðsins.
Á vefslóð sjóðsins (www.umsj.is) er að finna umsóknareyðublöð ásamt
leiðbeiningum til umsækjenda, m.a. um hvaða gögn skuli leggja fram með
umsókn.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið postur@anr.is eigi síðar en 2.
mars 2020.
Frekari upplýsingar veitir Ása María H. Guðmundsdóttir í gegnum
netfangið asa.maria@anr.is
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Þetta er spenn-
andi verkefni.
Svolítið óvenju-
legt en við
byggðum fyrsta
áfanga Bláa lóns-
ins á sínum tíma
og þessu svipar
svolítið til þess
verkefnis,“ segir
Sigurður R.
Ragnarsson, for-
stjóri ÍAV hf. sem tekið hefur að sér
uppbyggingu baðlóns fyrir Nature
Resort ehf. á Kársnesi í Kópavogi.
Stefnt er að því að opna baðlónið vor-
ið 2021.
Nature Resort ehf. vinnur að verk-
efninu í samvinnu við kanadíska
fyrirtækið Pursuit sem mun reka
baðlónið.
Verkefni ÍAV er að stýra uppbygg-
ingu á baðlóni við sjóinn, kaldri laug
og gufuböðum. Byggingin verður á
tveimur hæðum og mun meðal ann-
ars hýsa móttöku, búningsklefa, veit-
ingasölu og verslun.
Jarðvinna hófst fyrir áramót á veg-
um verkkaupans og ÍAV er byrjað að
koma sér fyrir á verkstað. „Þetta fer
bratt af stað og verður strembið allan
tímann. Við megum engan tíma
missa,“ segir Sigurður. helgi@mbl.is
„Megum
engan tíma
missa“
ÍAV byggir bað-
lónið á Kársnesi
Baðlón Uppbygg-
ing er hafin.
Lögreglan á Suðurlandi hefur feng-
ið allmargar tilkynningar um þjófn-
aði hjá ferðamönnum við Geysi og
víðar. Oddur Árnason yfirlög-
regluþjónn segir að slík mál hafi
komið upp af og til allt síðasta ár.
Þótt eftirlit hafi verið aukið hafi
lögreglan ekki náð þjófunum.
Oddur segir að vísbendingar séu
um að farið hafi verið inn í hóp-
ferðabíla og í dót hjá fólki á meðan
það er að skoða sig um. Einnig sé
eitthvað um vasaþjófnaði, líkt og í
Barselóna og á mörgum fleiri
ferðamannastöðum. Í facebook-
hópnum Bakland ferðaþjónust-
unnar sagði leiðsögumaður frá því
að í gær hefði 20 þúsund krónum
verið stolið frá farþega á meðan
hann var að taka mynd við Geysi.
Oddur kannast við slíkar lýsingar
og hvetur fólk til að gæta að verð-
mætum og fylgjast hvað með öðru.
Peningum stolið af
ferðafólki við Geysi
Helgi Bjarnason
Hallur Már Hallsson
„Það er gagnrýnivert. Í þessu tilviki
varpaði umræðan ljósi á það hve
nokkur mál taka enn langan tíma,“
segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdótt-
ir dómsmálaráðherra þegar hún er
spurð hvort ekki sé óheppilegt að
breyta leikreglum í meðferð um-
sókna um vernd í mikilli samfélags-
umræðu um tiltekið mál eins og
gerðist um helgina.
Áslaug Arna segir að það sé skýr
vilji löggjafans að taka sérstakt tillit
til barna. „Við erum alltaf að bæta
kerfið okkar en höfum átt fullt í
fangi með að taka við þessum fjölda
umsækjenda,“ segir hún og bætir
við að eðli mála-
flokksins kalli á
stöðuga endur-
skoðun fyrir-
komulagsins.
Skoða kerfið
„Við höfum
verið að setja
ákveðin mál í for-
gang og auka
fjármuni til Út-
lendingastofnunar til að takast
hraðar á við málin. Einnig er verið
að skoða kerfið. Meta hvaða mál
geti gengið hraðar fyrir sig með því
að greina á milli þeirra sem þurfa
vernd og þeirra sem þurfa ekki
vernd,“ segir Áslaug þegar hún er
spurð hvernig ætlunin sé að hraða
málsmeðferð hjá fjölskyldum þar
sem börn eiga í hlut eins og hún
hefur boðað.
Hún tekur fram að fá mál fari yf-
ir þann átján mánaða tímaramma
sem nú er. Hefur ráðherrann í
hyggju að ræða við Útlendinga-
stofnun um forgangsröðun og óska
jafnframt eftir auknum fjármunum
til stofnunarinnar. Þá sé ætlunin að
skoða lögin með það í huga hvort
hægt sé að flýta málsmeðferð enn
frekar.
Besta afmælisgjöfin
„Við erum íslensku þjóðinni afar
þakklát,“ segir Faisal Khan, faðir
hins sjö ára gamla Muhammeds.
Fjölskyldan naut mikils stuðnings í
baráttu sinni, ekki síst frá foreldr-
um og börnum Vesturbæjarskóla
þar sem Muhammed er nemandi.
Faisal segir að ákvörðun ráðherra
hafi verið besta afmælisgjöfin sem
þau hefðu getað hugsað sér en Mu-
hammed átti einmitt afmæli um
helgina.
Fjölskyldan er frá Pakistan. Fai-
sal og Niha, foreldrar Muhammeds,
segjast hafa heyrt tíðindin fyrst í
fjölmiðlum. Þau sögðust vera
ánægð með þá ákvörðun stjórn-
valda að skoða þeirra mál betur og
þakklát fyrir þann mikla stuðning
sem þau nutu. Þau höfðu í gær ekk-
ert heyrt frá yfirvöldum og bíða
nánari upplýsinga um framhaldið.
„Það er gagnrýnivert“
Dómsmálaráðherra tekur undir að óheppilegt sé að breyta reglum í mikilli sam-
félagsumræðu Ræðir forgangsröðun við Útlendingastofnun og vill auka fjármuni
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Áframhaldandi jarðskjálftavirkni
mældist í grennd við Grindavík í
gær. Var þó dagurinn nokkuð tíð-
indalítill samkvæmt tilkynningu á
vef Veðurstofu Íslands er birtist um
miðjan dag. Samkvæmt mælingum
Veðurstofunnar voru þó jarð-
skjálftar tíðir á svæðinu í gær, en
flestir þeirra voru undir 2 að stærð.
Í tilkynningu Veðurstofunnar
kemur fram að landris hefur haldið
áfram á svæðinu vestan við Þor-
björn, og í heildina hefur land risið
um fimm cm frá 20. janúar sl. Gervi-
tunglamyndir sýni sömu þróun. Þá
segir að með landrisi megi búast við
áframhaldandi jarðskjálftavirkni,
og að líklegasta skýring hennar sé
kvikuinnskot á 3-9 kílómetra dýpi
rétt vestan við Þorbjörn. Líklegast
er að virkninni muni ljúka án elds-
umbrota.
Næsti fundur vísindaráðs al-
mannavarna verður haldinn næsta
fimmtudag, 6. febrúar, þar sem farið
verður yfir stöðuna við Grindavík.
Enn landris
og jarðskjálftar
við Þorbjörn