Morgunblaðið - 04.02.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020
Fagleg þjónusta fyrir fólk í framkvæmdum
flugger.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum unnið markvisst að því
að auka þekkingu á tækninni hér í
Háskólanum í Reykjavík og það hef-
ur ýmislegt áunnist á þessum tveim-
ur árum,“ segir Paolo Gargiulo, for-
stöðumaður Heilbrigðistækniseturs
HR og LSH.
Nýr og fullkominn þrívíddar-
prentari var tekinn í notkun á Heil-
brigðistæknisetrinu fyrir tveimur
árum. Prentarinn leysti eldri gerð af
hólmi en með þessari tækni hefur
reynst unnt að bjarga nokkrum
mannslífum. Nýi prentarinn hefur
það fram yfir þann eldri að geta
prentað út nákvæmari líffæri úr fjöl-
breyttara efni. Til að mynda er nú
hægt að blanda saman litum og
hörðu og mjúku efni.
Paolo sagði í samtali við Morg-
unblaðið fyrir tveimur árum að
prentarinn kæmi að góðum notum í
um það bil 15 aðgerðum á ári. Hann
væri notaður í flóknar hjarta- og
höfuðkúpuaðgerðir, í bæklunar-
lækningum og taugaskurðlækn-
ingum. Smíðaðar séu eftirlíkingar af
líffærum sjúklinga sem gefi læknum
tækifæri til að æfa flóknar aðgerðir.
Paolo segir nú að tæknin sé nýtt í
um það bil 20-25 aðgerðum ár hvert.
Í hverju tilviki sé hægt að stytta að-
gerðartímann um allt að fjórðung.
Auðveldara sé því fyrir lækna að
halda einbeitingu við skurðaðgerðir.
Læknar geta nú lagt fram formlega
beiðni um þrívíddarprentun á líf-
færum, rétt eins og þeir óska eftir
annarri þjónustu. Ljóst virðist að
ánægja sé með þessa viðbót og
stefnt er að því að byggja frekar of-
an á þjónustuna. Enn sem komið er
takmarkast hún af afköstum Paolo.
Þessi tækni sem nýtt er á Heil-
brigðistæknisetrinu, Landspítala,
HÍ og í Össuri hefur vakið athygli út
fyrir landsteinana. Þannig hafa há-
skólar bæði í Englandi og Ítalíu leit-
að til Paolo og fengið að kynna sér
starfið sem hér hefur verið unnið.
„Þetta er í Birmingham og nálægt
Bologna. Þeir vilja koma á fót sams-
konar hátæknisetrum og hér. Það á
eftir að ganga frá formlegum sam-
starfssamningum en þetta er mjög
spennandi,“ segir Paolo Gargiulo.
Horfa til reynslunnar frá Íslandi
Þrívíddarprentari reynist vel við
skurðaðgerðir Samið við háskóla ytra
Morgunblaðið/Eggert
Tækni Góð reynsla hefur verið af þrívíddarprentun í Heilbrigðistæknisetr-
inu. Paolo Gargiulo, fyrir miðju, er ánægður með nýtingu tækninnar.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við viljum eðlilega að það sé friður
um starfsemina, við viljum ekki
skapa ófrið, en auðvitað geta alltaf
komið upp aðstæður sem varða ein-
staklinga, sem við höfum ekki séð
fyrir,“ segir Helgi Grímsson, sviðs-
stjóri skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar.
Verkfallsaðgerðir sem Efling hef-
ur boðað vegna kjaradeilu starfs-
manna félagsins hjá Reykjavíkur-
borg hefjast á hádegi í dag. Þetta
varð ljóst eftir að sáttafundur í gær-
morgun skilaði engum árangri. „Það
bara gekk ekki neitt,“ sagði Sólveig
Anna Jónsdóttir, formaður Efling-
ar, við mbl.is eftir fundinn í gær.
Helgi segir að rúmur helmingur
barna í leikskólum Reykjavíkur-
borgar verði án þjónustu þegar að-
gerðirnar hefjast. Það eru um eða
yfir 3.500 börn.
Helgi segir að foreldrar eigi að
hafa fengið upplýsingar frá viðkom-
andi leikskólastjórum um það
hvernig þjónustu verði háttað í dag.
Mismunandi sé eftir hverfum og
einstaka skólum hvernig það verð-
ur.
Þar sem deildarstjóri er félagi í
Eflingu verður engin þjónusta við
börn á deildinni og aðrir starfsmenn
fá ekki að hreyfa sig milli deilda. Á
öðrum deildum þar sem deildar-
stjórar eru til að mynda leikskóla-
kennarar verður unnið eftir svoköll-
uðu fáliðunarferli að sögn Helga.
Þar ræðst barnafjöldi af fjölda
þeirra starfsmanna sem eru skráðir
í vinnu.
Á þeim leikskólum þar sem fé-
lagar í Eflingu sjá um matargerð
geta foreldrar valið um að hafa börn
annaðhvort fyrir hádegi eða eftir
hádegi í skólunum. Einnig geta þeir
sjálfir sótt börnin í hádeginu og gef-
ið þeim að borða heima.
„Það óskar þess enginn að þetta
dragist á langinn. Hvorki starfsfólk,
foreldrar né börnin,“ segir Helgi.
„Við vitum að í leikskólaumhverfinu
eru starfsstéttir sem hafa bent á sitt
kjaraumhverfi og við höfum heyrt
að hugur annarra sé með Eflingar-
fólkinu. Ég þekki það sjálfur hvað
það getur verið napurlegt á vinnu-
stað þegar hann er margskiptur,
sumir í verkfalli og aðrir ekki.“
Alls fara um 1.850 félagar í Efl-
ingu sem starfa hjá Reykjavíkur-
borg í verkfall. Verkfallið stendur til
miðnættis. Auk leikskóla mun verk-
fallið hafa áhrif á mötuneyti hjúkr-
unarheimila og þjónustuíbúða borg-
arinnar, sem og ræstingu, sorphirðu
og snjó- og hálkuvarnir.
Aðgerðirnar í dag hefjast með
baráttufundi í Iðnó klukkan 12.30.
Hefur Efling boðað til verkfallsað-
gerða á sex dögum, í um 95 klukku-
stundir alls, ýmist frá hádegi til
miðnættis eða í heilan sólarhring.
Náist ekki samningar fyrir 17. febr-
úar leggja félagsmenn niður störf
sama dag og ótímabundið eftir það.
Verkfall Eflingar hefst á hádegi
1.850 starfsmenn borgarinnar leggja niður störf „Óskar þess enginn að þetta dragist á langinn“
Morgunblaðið/Eggert
Fundað Enginn árangur varð af sáttafundi Eflingar og borgarinnar í gær.
Vegna kórónuveirunnar er hlífðar-
búnaður, plastgallar, grímur og fleira
slíkt nú tiltækt á öllum heilsugæslu-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Þeim skilaboðum er beint til sjúk-
linga að koma
ekki á stöðvarnar
nema gera boð á
undan sér telji
þeir sig bera veir-
una, en það er
hægt með því að
hringja í 1700 eða
á heilsugæslu-
stöð.
„Við eigum að
vera vel í stakk
búin til að mæta
þessu,“ segir Sigríður Dóra Magnús-
dóttir, framkvæmdastjóri lækninga
hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis-
ins og yfirlæknir sóttvarna á höfuð-
borgarsvæðisins.
Reynt er að undirbúa og samræma
öll viðbrögð á heilsugæslustöðvum og
fær starfsfólk upplýsingar um gang
mála. Læknavaktin er einnig mikil-
væg og margir hringja í símanúmerið
1700 en þar eru veittar upplýsingar.
Staðfest var í gær að 17.383 manns
hefðu greinst með kórónuveiruna og
362 eru látnir vegna lungnabólgunn-
ar sem veiran veldur, allir í Kína utan
einn. 503 hafa náð sér eftir veikindin
en veiran hefur breitt úr sér síðustu
sólarhringa. Um helgina greindist
fyrsta tilvikið í Svíþjóð.
Samfélagið allt sé virkjað
„Nauðsynlegt er að samfélagið allt
sé virkjað í aðstæðum sem þessum,
atvinnulíf og stofnanir uppfæri sínar
viðbragðsáætlanir og séu viðbúnar ef
veiran berst hingað til lands með
margvíslegum afleiðingum,“ segir í
stöðuskýrslu sem almannavarnir
sendu út í gær.
Þar er hvatt til margvíslegs við-
búnaðar, svo sem að fólk fari ekki til
Kína nema brýna nauðsyn beri til.
Vakt er í samhæfingarstöð almanna-
varna og sóttvarnalæknir fundar
daglega með lykilfólki í heilbrigðis-
þjónustu og fleirum. Þá hefur sótt-
varnalæknir gefið út þær leiðbeining-
ar að sjúklingar verði ekki teknir í
próf vegna kórónuveirunnar nema
grunur sé um slík veikindi, það er ef
fólk er nýkomið frá Kína og veikt.
„Sýnataka af einkennalausu fólki er
marklaus og skapar falskt öryggi,“
segir Sigríður Dóra. sbs@mbl.is
Tilbúin fyrir
kórónuveiru
Hlífðarbúnaður á heilsugæslunni
Sigríður Dóra
Magnúsdóttir