Morgunblaðið - 04.02.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 04.02.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020 Pantaðu borð í síma 483 4700 | hverrestaurant.is HVER TEKUR VEL Á MÓTI ÞÉR OPIÐ 11:30–22:00 ALLA DAGA Ljúffengur matur, góð þjónusta og hlýlegt andrúmsloft. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þrátt fyrir niðursveifluna hélt að- flutningur erlendra ríkisborgara áfram á fjórða fjórðungi í fyrra. Þó dró úr aðflutningnum milli annars og þriðja ársfjórðungs. Alls fluttust rúmlega 5.000 fleiri erlendir ríkisborgarar til landsins í fyrra en fluttu þá frá landinu. Með því er árið 2020 í fimmta sæti í þessu efni eins og lesa má úr stærra graf- inu hér fyrir ofan. Súluritið sýnir vel hversu mikið aðflutningurinn hefur aukist á síðustu árum. Með því hafa um 26.500 fleiri erlendir ríkisborg- arar flutt til landsins en frá landinu frá ársbyrjun 2015. Frá aldamótum hafa 49.200 fleiri erlendir ríkisborg- arar flust til landsins en frá því. Það er á við samanlagðan íbúafjölda Kópavogs og Mosfellsbæjar. Hægir á aðflutningi Þá má nefna að aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta voru alls 6.684 tímabilið 1961-1999. Aðflutningur erlendra ríkisborg- ara á fjórða ársfjórðungi var heldur minni en á þriðja fjórðungi. Þannig fluttust hingað 3.050 erlendir ríkis- borgarar á þriðja fjórðungi en 2.040 á fjórða fjórðungi. Álíka margir er- lendir ríkisborgarar fluttust héðan á þriðja og fjórða fjórðungi, eða 1.280 og 1.200 sitthvorn fjórðunginn. Á hinn bóginn var aðflutningurinn á fjórða fjórðungi álíka mikill og á fyrsta og öðrum fjórðungi, eins og lesa má úr grafinu hér fyrir ofan. Það vekur athygli í ljósi þess að niðursveiflan í ferðaþjónustu hófst fyrir alvöru á öðrum fjórðungi. Kann þetta að gefa til kynna að sú spá Karls Sigurðssonar, sérfræðings hjá Vinnumálastofnun, sé að rætast að fjölskyldur erlendra ríkisborgara myndu sameinast, eftir að fyrirvinn- an hefði skotið rótum á Íslandi. Má minna á að brottflutningur hefur jafnan aukist í niðursveiflum. Sé litið til íslenskra ríkisborgara er niðurstaðan sú að 180 fleiri fluttu frá landinu en til þess í fyrra. Með því hefur flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara aðeins verið jákvæður þrjú ár á þessari öld. Aðflutningurinn á þátt í því að landsmönnum fer fjölgandi. Nú búa rúmlega 364 þúsund manns á land- inu, eða um 26 þúsund fleiri en í árs- byrjun 2017. Það á verulegan þátt í þessari fjölgun að árin 2017-19 fluttu ríflega 19.500 fleiri erlendir ríkis- borgarar til landsins en frá því. Aldamótaárið bjuggu um 279 þús- und manns á Íslandi og hefur því fjölgað um 85 þúsund á öldinni. Búferlafl utningar frá Íslandi 2000 til 2019 Aðfl uttir umfram brottfl utta Íslenskir Erlendir 2000 62 1.652 2001 -472 1.440 2002 -1.020 745 2003 -613 480 2004 -438 968 2005 118 3.742 2006 -280 5.535 2007 -167 5.299 2008 -477 1.621 2009 -2.466 -2.369 2010 -1.703 -431 2011 -1.311 -93 2012 -936 617 2013 -36 1.634 2014 -760 1.873 2015 -1.265 2.716 2016 -146 4.215 2017 352 7.888 2018 -65 6.621 2019 -180 5.020 +6 +5 +4 +3 +2 +1 0 -1 -2 -3 -4 .000 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 Samtals Íslenskir Erlendir 2000-2019 -11.803 49.173 2005-2008 -806 16.197 2009-2011 -5.480 -2.893 2012-2019 -3.036 30.584 2015-2019 -1.304 26.460 Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar 8.240 Heimild: Hagstofa Íslands Áfram aðflutningur til Íslands  Rúmlega fimm þúsund fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu til landsins í fyrra en fluttu þá frá landinu  Fimmti mesti aðflutningur til landsins á lýðveldistímanum  Á þátt í mikilli fjölgun íbúa á Íslandi Íslenskir ríkisborgarar: Aðfl uttir Brottfl uttir Erlendir ríkisborgarar: Aðfl uttir Brottfl uttir Aðfl uttir umfram brottfl utta á árinu 2019 Fjöldi aðfl uttra og brottfl uttra eftir ríkisfangi og ársfjórðungum 1. ársfj. 2. ársfj. 3. ársfj. 4. ársfj. Innlendir Erlendir Aðfl . Brottfl . Aðfl . Brottfl . 1. ársfj. 470 600 2.330 940 2. ársfj. 490 400 2.070 1.050 3. ársfj. 950 1.150 3.050 1.280 4. ársfj 520 460 2.040 1.200 Alls 2.430 2.610 9.490 4.470 Aðfl uttir umfram brottfl utta: -180 5.020 Heimild: Hagstofa Íslands Búferlaflutningar til og frá Norðurlöndunum Fjöldi aðfluttra og brottfluttra íslenskra ríkisborgara eftir ársfjórðungum Aðfluttir Brottfluttir Svíþjóð Danmörk Noregur Alls 1. ársfj. 80 170 70 320 310 2. ársfj. 80 140 90 310 220 3. ársfj. 210 310 140 670 880 4. ársfj. 100 180 90 370 250 Alls 470 800 390 1.670 1.660 Aðfluttir umfram brottflutta: 10 Allar tölur eru rúnnaðar í næsta heila tugHeimild: Hagstofa ÍslandsMorgunblaðið/Kristinn Magnússon Á Laugavegi Vegna aðflutnings eru íbúar landsins orðnir um 364 þúsund. Bráðabirgðamat liggur nú fyrir frá mælingum á stærð loðnustofnsins í janúar. Stærð hrygningarstofnsins samkvæmt þeim mælingum var um 64 þúsund tonn. Er það langt undir mörkum í gildandi aflareglu sem þarf að ná svo Hafrannsóknastofnun geti ráðlagt veiðar. Samkvæmt upp- lýsingum frá stofnuninni hefði magnið þurft að vera, gróflega áætl- að, að minnsta kosti 6-8-falt meira til að gefinn hefði verið út loðnukvóti. Matið byggist á mælingum þriggja skipa, RS Árna Friðriksson- ar, ásamt loðnuskipunum Hákoni EA-148 og Polar Amaroq. Tvö önnur veiðiskip komu einnig að verkefninu. „Þrátt fyrir erfiðar veðuraðstæður náðist með samstilltu átaki þriggja mæliskipa og tveggja leitarskipa, heildaryfirferð frá Hvalbakshalla fyrir suðaustan land og þaðan norð- ur um og suður fyrir Víkurál út af Vestfjörðum. Hafís hindraði mjög yfirferð í Grænlandssundi,“ segir á heimasíðu Hafrannsóknastofnunar. Á laugardag var byrjað á annarri yfirferð loðnumælinga, en Árni Frið- riksson, Polar Amaroq og Aðalsteinn Jónsson taka þátt í þeim. aij@mbl.is Loðnuleiðangur í janúar 2020 Dreifing og þéttleiki loðnu 13.-25. janúar Leiðangurslínur þriggja skipa, RS Árna Friðrikssonar, ásamt loðnuskipunum Hákoni EA-148 og Polar Amaroq Þéttleiki (t/sjm2)Heimild: Hafrannsókna- stofnun Hefðu þurft 6-8 sinnum meira  Loðnumælingar langt undir mörkum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.