Morgunblaðið - 04.02.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020
Umeraðræðaeittglæsilegastahúsið ímiðbæReykjavíkur
staðsettáhorniLaugavegsogVatnsstígs.Eigninskiptist í
kjallara,götuhæðogþrjárskrifstofuhæðiraukgeymslulofts.
Lyftaer íhúsinuognærhúnúrkjallaraoguppá4.hæð.Húsið
erreisulegtogmjögfallegt.Aðinnaneruskrautlistarámörgum
stöðumogýmsarskreytingarsemgefahúsinuvirðulegt
yfirbragðogmikilprýðiaf.Reynthefurveriðaðviðhalda
upprunalegumglæsileikaeignarinnar.
Áefrihæðumermikiðumskrautalista í loftumoghurðargerefti
erumeðfallegumunstrioggefurhúsinufallegtyfirbragð.
Lóðinerbaklóðogerhægtaðlokahennimeð járnhliði. Sér
afnotareiturLaugavegs31erviðhúsið. Lóðinerhellulögð.
SALA FASTEIGNA
SÍÐAN 1957
Grensásvegur 11
Sími 588 9090
www.eignamidlun.is
SverrirKristinsson
Löggiltur fasteignasali
Sími 8618514
KjartanHallgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Sími8249093
FREKARI UPPLÝSINGAR
LAUGAVEGUR 31
TIL SÖLU
Verð kr. 570 millj.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin hefur auglýst útboð
annars áfanga á breikkun Suður-
landsvegar milli Hveragerðis og Sel-
foss. Tilboð verða opnuð 3. mars nk.
Fram kemur í auglýsingu Vega-
gerðarinnar að óskað er eftir til-
boðum í annan áfanga í breikkun
hringvegar milli Biskupstungna-
brautar og Hveragerðis.
Lengd útboðskaflans er 7,1 kíló-
metri. Hann er á milli Gljúfurholtsár
og Biskupstungnabrautar. Um er að
ræða nýbyggingu hringvegar að
hluta og endurgerð núverandi hring-
vegar að hluta. Einnig gerð nýrra
vegamóta við Kirkjuferjuveg og
Hvammsveg eystri, gerð hringtorgs
við Biskupstungnabraut, nýbygg-
ingu Ölfusvegar, breytingu Þóru-
staðavegar og Biskupstungna-
brautar sem og gerð heimreiða.
Fimm steyptar brýr
Hluti verksins er bygging fimm
steyptra brúa og undirganga ásamt
tveggja reiðganga úr stáli.
Einnig eru innifaldar breytingar á
lagnakerfum veitufyrirtækja sem og
nýlagnir og landmótun auk annarra
þátta sem nauðsynlegir eru til að
ljúka verkinu.
Verkinu skal að fullu lokið 29.
september 2023. Útboðsgögn verða
aðgengileg frá og með föstudeginum
31. janúar 2020 og skal tilboðum
skilað rafrænt fyrir kl. 14.00 þriðju-
daginn 3. mars 2020. Ekki verður
haldinn sérstakur opnunarfundur en
eftir lok tilboðsfrests verður bjóð-
endum tilkynnt um nöfn bjóðenda og
verðtilboð.
Útboðið er einnig auglýst á Evr-
ópska efnahagssvæðinu, að því fram
kemur í auglýsingunni.
Fyrsti áfangi breikkunar Suður-
landsvegar, „Gljúfurholtsá – Varmá“
var boðinn út árið 2018 og hófust
framkvæmdir í árslok það ár. Samið
var við Íslenska aðalverktaka, sem
áttu lægsta tilboðið, 1.361 milljón
króna. Þessi hluti verksins fólst í
breikkun hringvegar ásamt gerð
nýrra gatnamóta við Vallaveg og
Ölfusborgaveg, auk hliðarverka.
Heildarlengd kaflans er um 2,5 kíló-
metrar. Opnað var fyrir umferð á
vegakaflann í október í fyrra og ÍAV
lauk verkinu í nóvember.
Verki lokið á árinu 2024?
Fram kom í fréttum síðasta haust
að gengju áætlanir stjórnvalda eftir
yrði lokið við breikkun Suðurlands-
vegar á milli Hveragerðis og Selfoss,
fyrir utan brú á Ölfusá, á árinu 2024.
Í framhaldinu verði ráðist í fram-
kvæmdir á milli Fossvalla og Bæj-
arháls í Reykjavík. Eftir það verður
öll leiðin frá Vesturlandsvegi að Sel-
fossi komin með aðskildum akbraut-
um með vegriði á milli.
Unnið verður að undirbúningi
vegar frá Biskupstungnabraut að
nýrri brú yfir Ölfusá hjá Selfossi.
Reiknað er með að sú framkvæmd
verði samvinnuverkefni ríkis og
einkaaðila og hefur ekki verið tíma-
sett. Ráðgert er að brúin verði ríf-
lega 300 metra löng, með turni á
Efri-Laugardælaeyju, í miðri Ölf-
usá.
Bjóða út breikkun Suðurlandsvegar
2. áfanga vega-
lagningar á að
ljúka haustið 2023
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Suðurlandsvegur Starfsmenn Íslenskra aðalverktaka unnu að breikkun vegarins í fyrra. Verkinu lauk í nóvember.
2. áfangi
Kortagrunnur: OpenStreetMap
I N G Ó L FS -
FJA L L
Ölfusá
Va
rm
á
G
ljú
fu
rh
ol
ts
á
Hveragerði
Kotströnd Bi
sk
up
st
un
gn
ab
ra
ut
Selfoss
Reykjavík
Þo
rlá
ks
hö
fn
/Þ
re
ng
sli
Gr
ím
sn
es
Flói
2. áfangi
Fyrirhuguð lega hring-
vegar og brúar yfi r Ölfusá
Núverandi vegstæði
Núverandi lega hringvegar
Ölfusárbrú
Breikkun Suðurlandsvegar milli Hveragerðis og Selfoss
1. áfangi
Nýtt vegstæði
Nýtt hringtorgÖL
FU
S
Lengd: 7,1 km