Morgunblaðið - 04.02.2020, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 2020
Útivistarskór
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
• Leður
• Vatnsheldir
• Vibram sóli
Verð 19.995
Stærðir 36 - 47
Le Florians
asons
Í framhaldi frétta af uppsögnum
hjá Bíói Paradís sem sér fram á að
ráða ekki við hækkandi rekstrar-
kostnað vegna hækkandi leigu,
hafa bæði Sambíóin og Sena, sem
rekur kvikmyndasali Háskólabíós,
lýst yfir áhuga á mögulegu sam-
starfi við Bíó Paradís.
Fram kemur í tilkynningu frá
Sambíóunum að forsvarsmenn
þeirra hafi viðrað þá hugmynd við
framkvæmdastýru Bíós Para-
dísar, að bíóið fái hluta af sölum
Sambíóanna í Kringlunni undir
sína starfsemi. Er sagt að for-
svarsmenn Kringlunnar séu mjög
jákvæðir í garð þessarar hug-
myndar.
„Kringlan er mjög miðsvæðis og
öll þjónusta mjög góð í Kringl-
unni. Sambíóin Kringlunni eru
mjög vinsæl fyrir eldri markhóp-
inn og þá sem vilja sjá vandaðar
myndir. Óskarsverðlaunamyndir
hafa verið mjög vinsælar í Kringl-
unni ásamt því sem þar hafa verið
óperusýningar í beinni frá Metró-
pólitan óperunni. Bíóið er einnig
vinsælt í fjölskyldumyndum og
hentar því afar breiðum hópi bíó-
unnenda,“ segir enn fremur.
Þá segir að góð bíómenning sé
metnaðarmál Sambíóanna.
Stjórnendur Senu vilja bjóða
Bíói Paradís aðstöðu í Háskólabíói
og eru tilbúnir að skoða hvaða
rekstrarform sem er svo hægt sé
að tryggja áframhaldandi starf-
semi þessa mikilvæga menningar-
kvikmyndahúss, sagði Jón Diðrik
Jónsson, forstjóri Senu, í samtali
við mbl.is. Hann hrósar góðu
starfi sem unnið hefur verið í Bíói
Paradís og segir það mikilvægt.
„Hluta af þessu höfum við verið
að gera í Háskólabíói, við erum að
sýna listrænar myndir og höfum
lagt áherslu á íslenskar kvik-
myndir,“ er haft eftir Jón Diðrik.
„Við höfum viljað bjóða Bíó
Paradís velkomið í Háskólabíó og
tryggja að það sé öflugt menning-
arbíó til og við erum til í að skoða
hvers konar rekstrarform í því
svo hægt sé að tryggja áfram
menningarlega kvikmyndahúsa-
starfsemi, fræðslu og fleira.“
Bæði Sambíóin og Sena sýna rekstri og
sýningarstefnu Bíós Paradísar áhuga
Morgunblaðið/Golli
Fjölbreytileiki Gestir á sýningu í Bíói Para-
dís þar sem sýndar eru kvikmyndir víða að.
Bandaríski rithöfundurinn Mary
Higgins Clark, sem áratugum sam-
an hefur verið í hópi vinsælustu og
söluhæstu glæpasagnahöfunda, er
látin 92 ára að aldri. Bækur Higg-
ins Clark hafa, samkvæmt The New
York Times, selst í meira en eitt-
hundrað milljónum eintaka í
Bandaríkjunum einum en nutu jafn-
fram vinsælda víða um lönd. Og
hún skrifaði nánast til dauðadags
en síðasta saga hennar kom út í
nóvember síðastliðnum.
Í flestum bóka Higgins Clark var
söguhetjan kona og illmennið karl;
sjálf sagðist hún skrifa um gott fólk
sem lenti í því að lífi þess væri um-
turnað. Sérfræðingar segja sögur
hennar byggðar á fyrirsjáanlegum
formúlum sem dyggir lesendur hafi
augsýnilega kunnað vel að meta,
því höfundurinn
kunni að segja
góðar sögur.
Fyrsta bók
Higgins Clark
kom út árið 1975,
hjá Simon &
Schuster-
forlaginu sem
gaf út allar 56
spennubækur
hennar. Í yfirlýsingu frá forlaginu
segir að þær hafi allar náð frábærri
sölu. Kvikmyndir voru gerðar eftir
tveimur bókanna og sjónvarps-
þættir eftir þeim nokkrum. Þá
samdi Higgins Clark einnig nokkr-
ar barnabækur og samdi fimm
bækur með dóttur sinni, Carol
Higgins Clark, sem einnig er vin-
sæll höfundur.
Glæpahöfundurinn Higgins Clark látin
Mary Higgins Clark
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það verða mjög margar háar nótur,
flúr og fjör,“ segir Herdís Anna Jón-
asdóttir sópran sem ásamt Antoníu
Hevesi píanóleikara kemur fram á
fyrstu hádegistónleikum ársins í
Hafnarborg í dag, þriðjudag, kl. 12.
„Háa raddsviðið er yfirleitt ekki
vandamál hjá mér, það er frekar í
hina áttina,“ segir Herdís Anna og
tekur fram að einstaklega gott sé að
syngja í Hafnarborg þar sem hljóm-
burðurinn sé góður og andrúms-
loftið fínt.
Syngur sem strákur, nývöknuð
stúlka og ástfangin mær
Á efnisskránni eru þrjár aríur eft-
ir Giuseppe Verdi, Vincenzo Bellini
og Gaetano Donizetti. „Þetta verður
mjög létt og skemmtilegt pró-
gramm. Allt eru þetta aríur sem mér
finnst mjög gaman að syngja,“ segir
Herdís Anna þegar blaðamaður sló á
þráðinn til hennar. „Eftir Verdi syng
ég aríuna „Saper vorreste“ úr óp-
erunni Un ballo in maschera eða
Grímuballinu. Þar bregð ég mér í
hlutverk stráksins Oscars sem neit-
ar að segja Renato hvaða búning
Riccardo klæðist á grímuballinu þar
sem hann vill ekki svíkja herra
sinn,“ segir Herdís Anna og rifjar
upp að þau Ólafur Kjartan Sigurð-
arson hafi sungið hlutverk Oscars og
Renato í uppfærslu Ríkisleikhússins
í Saarbrücken í Þýskalandi fyrir
nokkrum árum þar sem Herdís
Anna var fastráðin á árunum 2013 til
2018.
„Eftir Bellini syng ég lokaaríuna
úr La sonnambula eða Svefngengl-
inum sem nefnist „Ah! non credea
mirarti“. Þar er Amina nývöknuð og
syngur um hamingju sína. Þetta er
ein af þessum óperum þar sem kon-
an er veik og læknast ekki fyrr en
ástin hennar kemur til hennar á ný.
Þetta er galin saga og því skiljanlega
ekki oft flutt í dag. Hins vegar er
tónlistin alveg yndisleg,“ segir Her-
dís Anna og tekur fram að hún hafi
ekki sungið hlutverkið á sviði. Það
eigi einnig við um síðustu aríu tón-
leikanna.
„Eftir Donizetti syng ég ástararíu
Lindu úr óperunni Linda di Chamo-
unix. Linda var á leið til fundar við
elskhuga sinn, en missti af honum
þar sem hún kom of seint,“ segir
Herdís Anna og tekur fram að þrátt
fyrir að hafa misst af elskhuganum
syngi Linda af gleði um ástina.
Vildi aukið frelsi
Sem fyrr segir var Herdís Anna
fastráðin við Ríkisleikhúsið í Saar-
brücken í Þýskalandi. „Vorið 2018
ákvað ég að flytja til Berlínar þar
sem ég starfa sjálfstætt,“ segir Her-
dís Anna og tekur fram að sér hafi
þótt nauðsynlegt að breyta til. „Mér
fannst ég aðeins of bundin og aðeins
of langt frá Íslandi meðan ég var í
Saarbrücken og ákvað því að breyta
til. Ég er svo heppin að geta reglu-
lega komið hingað heim til að vinna,“
segir Herdís Anna sem söng hlut-
verk Víólettu í La traviata í hjá
Íslensku óperunni í Hörpu fyrir ári,
en fyrir frammistöðu sína þar hlaut
Herdís Grímuverðlaunin sem
Söngvari ársins. „Ræturnar eru
sterkar og því er alltaf jafn gaman
að koma heim að syngja,“ segir Her-
dís Anna og tekur fram að íslenskir
áheyrendur séu alltaf jafnyndislegir.
Aðspurð segir Herdís Anna að
leikhúsið kalli enn á sig, en hún njóti
þess að geta núna sungið meira af
nútímatónlist og barokktónlist, sem
hún gat ekki meðan hún var fastráð-
in. „Mér finnst æðislegt að hafa
frelsi núna til að velja mér mín eigin
verkefni. Mér finnst skemmtilegast
að hafa þetta sem fjölbreyttast,“
segir Herdís Anna sem að þessu
sinni stoppaði á Íslandi í tvær vikur
og nýtti tækifærið til frekara tón-
leikahalds, meðal annars í Mengi og
á Myrkum músíkdögum sem lauk
um helgina.
Morgunblaðið/RAX
Hádegistónleikar Herdís Anna Jónasdóttir og Antonía Hevesi koma fram.
„Margar háar nótur“
Herdís Anna
Jónasdóttir syng-
ur í Hafnarborg
Andy Gill,
stofnandi og
gítarleikari
bresku ný-
bylgjurokk-
sveitarinnar
Gang of Four,
er látinn, 64
ára að aldri.
Hann lést úr
lungnabólgu
eftir að hafa glímt um skeið við önd-
unarfærasjúkdóm. Gill var í list-
námi í Leeds þegar hann stofnaði
hljómsveitina árið 1976 ásamt
söngvaranum Jon King, bassaleik-
aranum Dave Allen og trymblinum
Hugo Burnham. Nafnið sóttu þeir í
alræmda klíku kínverskra kommún-
istaleiðtoga á tímum Menningar-
byltingarinnar. Þeir höfðu orðið
fyrir áhrifum af fyrstu pönksveitum
Bretlands og Bandaríkjanna en léku
tónlist sem var þróaðri og fram-
sæknari, leidd af einstaklega frum-
legum og persónulegum gítarleik
Gills.
„Við að hlusta á Gang of Four
heyrði fólk að pönkbyltingin hafði
riðið yfir – en þetta var svo sannar-
lega ekki pönk,“ sagði Gill.
Tónlist Gang of Four var gjarnan
ágeng og hvöss, og sérkennilega
höktandi þar sem gítar-riff Gills
fylltu upp í þagnir, en samt þótti
hún dansvæn. Tónlistin náði aldrei
þeirri alþýðuhylli, sem iðulega var
spáð, en engu að síður hafði hún
mjög mikil áhrif á aðra tónlistar-
menn. Þar á meðal voru meðlimir
INXS, Rage Against the Machine,
Franz Ferdinand og Nirvana en
þeir síðastnefndu fengu Gill til að
stjórna upptökum á fyrstu plötu
sinni.
Gang of Four lagði nokkrum sinn-
um upp laupana en Gill endurvakti
hana alltaf og var að lokum einn eft-
ir af stofnendum sveitarinnar en
hélt áfram að koma fram.
Andy Gill höfuðpaur Gang of Four allur
Andy Gill
Rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir kemur
fram á Bókmenntakvöldi í Bókasafni Seltjarnarness
í kvöld, þriðjudag, klukkan 19.30 til 20.30. Bergþóra
mun lesa upp úr og ræða við gesti um sína fyrstu
skáldsögu, Svínshöfuð. Sagan kom út í haust sem
leið og vakti mikla athygli. Var hún til að mynda til-
nefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna, hreppti
Fjöruverðlaunin í flokki skáldverka og var valin
besta skáldsagan af starfsfólki bókaverslana.
Boðið verður upp á kaffi og kruðerí í bókasafninu
í kvöld og eru allir velkomnir.
Bergþóra segir frá Svínshöfði í kvöld
Bergþóra
Snæbjörnsdóttir