Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 7. F E B R Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  32. tölublað  108. árgangur  Fagnaðu vetri með Touareg Tilboðsverð Offroad+ 9.850.000,- HEKLA · www.hekla.is/volkswagensalur FRUMFLYTUR NÝTT VERK UM LOFTSLAGIÐ ÁRANGUR Í ÖRYGGISMÁLUM VEKUR ATHYGLI ALFREÐ TEKUR VIÐ ÞÝSKA HANDBOLTA- LANDSLIÐINU 200 MÍLUR 24 SÍÐUR MIKILL HEIÐUR 26KRISTJÁN HRANNAR 28  Icelandair tapaði 7,3 milljörðum króna á árinu 2019. Það er álíka mikið tap og árið áður, en þá tap- aði félagið sjö milljörðum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að helsta ástæða tapsins á árinu sé kyrrsetning Boeing 737 MAX- þotna félagsins, en allar þrjár vél- ar félagsins af þessari gerð hafa verið kyrrsettar síðan í mars á síð- asta ári. Bogi Nils Bogason, forstjóri fé- lagsins, segir í tilkynningunni að árið í fyrra hafi reynst mikil áskorun, þar sem kyrrsetning MAX-véla félagsins hafi haft for- dæmalaus neikvæð áhrif á rekstur félagsins. »12 Morgunblaðið/Árni Sæberg Uppgjör Árið í fyrra reyndist mikil áskor- un fyrir Icelandair, einkum vegna MAX. Icelandair tapaði 7,3 milljörðum króna  Kannanir Íslandsstofu hafa leitt í ljós að almennir neytendur erlendis virðast ekki upplýstir um sérstöðu íslenskra sjávarafurða hvað varðar gæði. Hafa lönd eins og Noregur þar töluvert forskot á Ísland. Daði Guðjónsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu, segir í samtali við 200 mílur í dag að íslenskir útflytj- endur hafi náð mjög góðum ár- angri í markaðssetningu íslensks fisks til dreifingar- og söluaðila, sem viti að þeir geti stólað á gæði vörunnar og framboð. Sú markaðs- setning hafi hins vegar ekki náð til neytenda. »200 mílur Gæði sjávarafurða ekki alkunn  Innflutningur svínakjöts jókst um 42% á síðasta ári. Gerði hann meira en að vega upp þann samdrátt sem varð í sölu á svínakjöti frá inn- lendum framleiðendum þannig að neyslan jókst í heildina. Innflutt svínakjöt er nú fjórðungur af neysl- unni. Búist er við auknum kjöt- innflutningi í ár vegna opnunar markaðarins fyrir fersku kjöti. Svínabændur hafa enn ekki fundið fyrir áhrifum þess. »14 Innflutningur svína- kjöts jókst um 42% Vetrarhátíð var sett í 19. sinn í gær þegar verk- inu Sálumessa jöklanna eftir listamanninn Heimi Frey Hlöðversson var varpað á Hallgrímskirkju. Tók kirkjan á sig mynd jökuls sem var að bráðna á meðan dropahljóðum bráðnandi jökul- íss var breytt í tóna sem ómuðu undir. Lagði nokkur fjöldi leið sína að kirkjunni til að fylgjast með verkinu og vakti það mikla athygli. Hátíðin stendur svo yfir til næsta sunnudags. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hallgrímskirkja bráðnaði fyrir augum viðstaddra Rekja má 43 skipsströnd við landið á síðustu 20 árum til þess að stjórn- andi sofnaði. Í einu tilviki hafði stjórnandi vakað í 40 klukkutíma fyrir strandið. Rannsóknastjóri sigl- ingasviðs RNSA segir þennan fjölda uggvænlegan og það sé mikil mildi að ekki hafi orðið banaslys í þessum skipsströndum. Hann segir það aldr- ei nógsamlega brýnt fyrir skip- stjórnendum að þeir fái nauðsynleg- an hvíldartíma. Ásta Þorleifsdóttir, varaformaður fagráðs um siglingamál, segir að fag- ráðið muni efna til ráðstefnu 19. mars þar sem fjallað verður sérstak- lega um þetta vandamál. „Það sem slær mig svolítið illa er að í júlí síðastliðnum urðu sex svona strönd við góðar aðstæður. Við höf- um verið ótrúlega heppin að það hafi ekki orðið nein banaslys, eftir því sem ég best veit,“ sagði Ásta. Hún bendir á að tjónið sé samt mikið. Bátarnir jafnvel ónýtir, fólk missi vinnuna og svona óhöpp hafi keðju- verkandi áhrif á þeim stöðum þar sem bátarnir voru gerðir út. Andleg líðan þeirra sem í þessu lenda bíði þess jafnvel aldrei bætur. Ásta segir að Íslendingar hafi náð mjög góðum árangri varðandi öryggi sjófarenda. Það verði ekki af okkur tekið. Nú þurfi að taka á þessu stóra vandamáli. Hún segir að samkvæmt lögum eigi menn ekki að standa lengri en 14 stunda vaktir. Erfitt sé að fylgja því eftir. M.a. verður fjallað um það á ráð- stefnunni að Norðmenn settu reglur um viðvörunarkerfi í brú skipa. Hverfi skipstjórnandi frá stýri um ákveðinn tíma fer viðvörunarkerfi af stað. Einnig verða kynnt íslensk verkefni sem vonandi skila góðum árangri. Eitt þeirra er strandvari sem les staðsetningu bátsins og landsins og varar við ef hætta er á strandi. Önnur lausn er ölduvari sem varar við stórum öldum. Alda rís eft- ir því sem nær dregur landi og það ætti að geta komið að gagni. Eins verður fjallað um það að sleppibún- aður björgunarbáta sleppir þeim ekki þegar bátum hvolfir. Ráðstefn- an verður haldin í Stýrimannaskól- anum og verður öllum opin. aij@mbl.is, gudni@mbl.is Stranda bátum sofandi  Mörg strönd vegna sofandi skipstjórnenda  Ráðstefna um öryggi til sjós MSofandi stjórnandi… »6

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.