Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 22

Morgunblaðið - 07.02.2020, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Langanesvegur 31, Langanesbyggð, fnr. 216-7891, þingl. eig. Úlfur Heiðar Marinósson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 12. febrúar nk. kl. 13:15. Austurvegur 1, Langanesbyggð, fnr. 222-5921, þingl. eig. Jónas Lárusson, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Langa- nesbyggð og ÍL-sjóður, miðvikudaginn 12. febrúar nk. kl. 13:00. Vestursíða 36, Akureyri, fnr. 215-1630, þingl. eig. Gylfi Jónsson, gerð- arbeiðandi Innheimtustofnun sveitarfélaga, þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 10:20. Eiðsvallagata 20, Akureyri, fnr. 214-5764, þingl. eig. Gauja Björg Ara- dóttir og Hjörtur Hvannberg Jóhannsson, gerðarbeiðendur Akureyr- arbær og ÍL-sjóður, þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 6. febrúar 2020 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9.30-12.30, nóg pláss. NÝTT NÁMSKEIÐ Zumba Gold 60+ kl. 10.30. Hreyfisalurinn er opinn milli kl. 9.30-11.30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur. BINGÓ kl. 13.30, spjaldið kostar 250 kr., veglegir vinningar. Kaffi kl. 14.30-15. Nánari upplýsing- ar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Botsía með Guðmundi kl. 10. Morgunsagan kl. 11. Göngubretti, æfing- arhjól með leiðbeinanda kl. 12.30. Línudans kl. 13.30. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Boðinn Hugvekja presta kl. 14.30. Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Slökun með Rás1 kl. 9.45. Morgunkaffi kl. 10-10.30. Heimsókn frá Stakkaborg kl. 10.15. Bíó í setustofu kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Dómkirkjan Kl. 17 sálmastund, kl. 18 fjölskyldustund og kvöldverður kl. 20. Kyrrðin hefst með hugvekju kl. 20-21, Bryndís Jakobdsdóttir. Hugleiðsla- og bænatónlist á gong. Kl. 21 hugvekja, kl. 21.45-22 kvöldsöngur. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7-8. Við hringborðið kl. 8.50. Púslum saman kl. 9-16. Thai chi kl. 9, botsía kl. 10.15-11.20. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið kl. 12.30-15.30. Hæðar- garðsbíó kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10. Föstudagshópurinn hittist kl. 10. Handaband kl. 13. Frjáls spilamenn- ska kl. 13-16.30. Bingó kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.30-12.30 og vöfflukaffi kl. 14.30-15.30. Nánari upplýsingar í síma 411-9450. Verið öll hjartanlega velkomin. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl. 14–17. Allir velkomnir. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Prjónakaffi kl. 10- 12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl.13-15. Velkomin. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía. kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist. Gullsmári Handavinna kl. 9. Leikfimi kl. 10. Ljósmyndaklúbbur og bingó kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður og tálgun kl. 9-12. Botsía kl. 10- 11. Hádegismatur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Brids í handavinnustofu 13. Korpúlfar Tölvuráðgjöf kl. 10. í Borgum og stykrtarleikfimi á sama stað kl. 10. Leikfimi í Egilshöll kl. 11 og skákhópur Korpúlfa í Borgum kl. 13 og tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Stofnfundur Leiklistar- hóps Korpúlfa kl. 14 í dag í Borgum, léttar veitingar og dagskrá, allir hjartanlega velkomnir á hátíðarstundina. Botsía kl. 15. í Borgum. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl, 10.30. Leikfimi með Evu á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman á Skólabraut kl. 13 og kaffi á eftir. Spilað í króknum kl. 13.30. Brids í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Nk. þriðjudag 11. febrúar kl. 14. verður kynningarfundur í hátíðarsal Gróttu varðandi námskeiðið Farsæl öldrun, en það er sameiginlegt verkefni félags- starfsins og þjálfara Gróttu. Allir velkoknir. Stangarhylur 4 ÍSLENDINGASÖGUR, námskeið um Eyrbyggjasögu kl. 10 og kl. 13, umsjón Baldur Hafstað. Dansleikur Stangarhyl 4, sunnudagskvöld 9. febrúar kl. 20. Hljómsveit hússins. Mætum öll og njótum. Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Undraland, Mosfellsbær, fnr. 228-4240 , þingl. eig. Sólbjört Ósk Jensdóttir og Björn Gunnar Rafnsson, gerðarbeiðendur Trygginga- miðstöðin hf. og Arion banki hf. og Gildi - lífeyrissjóður, þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 10:00. Laxatunga 25, Mosfellsbær, fnr. 230-7904 , þingl. eig. HMG ehf., gerðarbeiðendur Mosfellsbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Ísleifur Jónsson ehf., þriðjudaginn 11. febrúar nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 6 febrúar 2020 Bækur Bækur til sölu Árbæku Espolins, frumútgáfa, Egils saga 1809, Kollsvíkurætt, Barn Náttúrunnar 1. útg., Nýja Testamentið 1813, Nýjasta læknatalið 1, 2 og 3, lúið, Lögfræðingatal 1- 4, Manntalið 1703, glæsiband með kápum, Vesturfaraskrá, Ævisaga Árna Þórainssonar 1- 6 gott band. Íslensk bygging, Guðjón Samúelsson, Skýrslur um lands- hagi á Íslandi 1-5, Stafrófskver handa börnum 1874, Eylenda 1- 2, Kötlugosið 1918, Ættir Austur- Húnvetninga 1-4, Landsskjálftar á Íslandi Þ.T.H., Veiðimaðurinn 1. - 86. tbl. Skák, Heimsmeistara- einvígið 1972, 1-23, Leikhúsmál 1940-1950, Líf og list, Byggðir og bú, S.Þ., ‘63, Svarfdælingar 1-2, Ættir Austfirðinga 1-9, Félags- blað Nýalssinna, Inn til fjalla 1-3, Ódáðahraun 1-3, Vestur-Skaft- fellingar 1-4, Gestur Vestfirð- ingur 1-5, Íslensk Myndlist 1-2, Úr fylgsnum fyrri alda 1-2, Vestur-Skaftafellssýsla og íbúar hennar, Húspostilla 1-2, 1838, Sjúkraliðatal, Súgfirðingabók, Íslensk þjóðlög 1974, Rit um jarðelda á Íslandi M.L. 1880, 130 bindi Stjórnartíðindi. Á torgi lífsins. Uppl. í síma 898 9475 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Bíll með öllum mögu- legum aukabúnaði Skráður 10/2012, ný tímareim (skipt í 152 þ.km. Framhjóladrif, 1,6 TDI, ekinn 153 þ.km. beinskiptur, dökkbrúnn, leðurklæddur, rafmagn í sætum, minni í sætum, stafrænt mælaborð, dráttarbeisli, skynjarar allan hringinn, álfelgur, navigation, skjár með bluetooth og öllu mögulegu, tölvustýrð miðstöð bæði fram í og aftur í, Xenon ljós sem elta í beygjum, kastarar, langbogar, sumar og vetrardekk. Uppl. í síma 615 8080 TILBOÐ 1.250 þús. staðgreitt SKODA Superb Station Smá- og raðauglýsingar atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Sigurður Þor-láksson fædd- ist í Vík í Grinda- vík 26. maí 1949. Hann andaðist á hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík 27. jan- úar 2020. Sigurður var sonur hjónanna Þorláks Gísla- sonar og Val- gerðar Jónsdóttur. Systkini Sigurðar eru: Margrét, Sæþór, Magnús og Guðjón sem eru látin. Þá Halldór, Krist- ólína, Gísli og Gunnar. Sigurður bjó í Grindavík alla tíð. Eftir hefðbundna skólagöngu byrj- aði hann að vinna í Þorbirni. Árið 1970 fékk hann hásetapláss á Hrafni Sveinbjarnarsyni III GK hjá Sveini Ísakssyni og var hann einnig seinna með hon- um á Hrafni GK. Sigurður byrjaði sem háseti í milli- landasiglingum á Eldvíkinni hjá frænda sínum, Finnboga Kjeld, eiganda Víkurskipa. Haustið 1977 hóf hann nám við Stýrimannaskólann og út- skrifaðist þaðan með far- mannapróf vorið 1981. Að námi loknu starfaði hann áfram hjá Víkurskipum sem stýrimaður og skipstjóri. Eftir að Sigurður hætti til sjós hóf hann störf hjá neta- gerðinni Möskva og starfaði þar til ársins 2008 er hann lét af störfum vegna heilsu- brests. Útför Sigurðar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 7. febrúar 2020, klukkan 14. Í dag kveðjum við elsku Sigga frænda sem lést eftir stutt veikindi aðeins sex dögum á eftir bróður sínum, honum Gauja. Þeir bræður dvöldu báð- ir á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík. Siggi sigldi á fraktskipum á sínum yngri árum ásamt Gunna bróður sínum og Láka frænda. Það var alltaf svo spennandi að koma í heimsókn til Sigga þegar hann var að koma heim úr sigl- ingum þegar við vorum börn. Hann kom alltaf með eitthvað handa okkur krökkunum; kók og appelsínugos í dósum, fram- andi nammi eða eitthvert dót handa okkur. Man að við systurnar fengum svartar dúkkur með stóra hringi í eyrunum og það sem okkur þótti þær spennandi. Það átti sko enginn sem við þekktum svona dúkkur. Í æsku vorum við systkina- börnin mikið heima hjá afa of ömmu í Vík, þar sem Siggi bjó líka. Fengum að leika okkur í herberginu hans og það var svo skemmtilegt að gramsa í plötu- safninu hans. Hlusta á alls kon- ar tónlist sem heyrðist nú ekki mikið á gömlu gufunni. Siggi var mikill áhugamaður um fótbolta og eldheitur stuðn- ingsmaður Liverpool í enska boltanum. Höfðu bræður hans og fleiri gaman af því að espa hann upp í rökræðum um hvort Manchester United eða Liver- pool væri betra lið. Man að pabbi setti upp Manchester- veggteppi í einu herbergi á Ása- brautinni og sagði í gríni við Sigga að hann þyrfti að hneigja sig fyrir því. Siggi hélt nú ekki og fyrr frysi í helvíti en að hann myndi gera það. Einnig var hann mikill sjálfstæðismaður og þótti mjög gaman að taka þátt í starfsemi félagsins í Grindavík. Við vitum að systkini þín, þau Gaui, Sæþór, Magnús og Magga, taka vel á móti þér í sumarlandinu. Hvíldu í friði elsku frændi. Klara og Þuríður. Sigurður Þorláksson Eins og þegar eldur deyr í hlóðum yfirgefins tjaldstaðar um haust, vindur slökkvir hinsta gneista í glóðum, sópar af hellu silfurgráa ösku, sáldrar henni yfir vatn og fjörð svo vil ég duft mitt berist burt með þeynum um beitilönd og þýfðan heiðamó, falli sem skuggi á fjallsins spegil, finni sér skjól í hlýrri mosató, Guðmundur Hagalín Jensson ✝ Guðmundur Hagalín Jens-son fæddist 6. mars 1962. Hann lést 21. október 2019. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 7. febrúar 2020, klukkan 13. heimkomið barn við barm þér, móðir jörð. (Þýð. Einar Bragi) Hvíl í friði, mamma, Jens og Gunnjóna. Ég var unglingur þegar ég fékk veður af því að Haraldur litli bróðir hans pabba væri kominn með kærustu. Eins og allir venjulegir unglingar þá ein- kenndist tilvera mín af ótak- mörkuðum áhuga á minni eigin tilvist. Áhuginn var slíkur að það var auðvelt að taka hreinlega ekki eftir því hver hafði gift sig eða eignast barn í fjölskyldunni. En enginn, ekki einu sinni sjálf- miðaður unglingur, gat látið gleðina og hamingjuna sem skein af þeim skötuhjúum fram hjá sér fara. Það var hins vegar ekki fyrr en löngu síðar að við Kolbrún kynntumst almennilega. Hún var hætt að vinna vegna sinna veik- inda og ég var sömuleiðis óvinnufær vegna alvarlegs geð- sjúkdóms sem ég greindist með fyrir nokkrum árum. Mín reynsla er sú að í svona aðstæð- um finnst fólki það oft ekki vita hvernig það á að vera eða hvað það á að segja. Sumir enda á því að segja ekkert og fjarlægjast. Það átti heldur betur ekki við hana Kolbrúnu. Hún kom með styrk og æðruleysi og gaf mér von. Von um að ég gæti fundið einhverja eiginleika hjá mér sjálfri sem gætu nýst mér eins Kolbrún Jónsdóttir ✝ Kolbrún Jóns-dóttir fæddist 26. desember 1956. Hún lést 22. janúar 2020. Útför Kol- brúnar fór fram 4. febrúar 2020. og hún nýtti sér, að því er virtist óþrjót- andi, styrk sinn og æðruleysi. Þó að ég myndi ekki óska mínum versta óvini að fá geðsjúkdóm eins og þann sem ég er með þá veit ég ekki hvort við Kolbrún hefðum þekkst með þessum hætti ef svo hefði ekki verið. Sennilega ekki. Þrátt fyrir talsverðan aldurs- mun áttum við Kolbrún ýmislegt sameiginlegt annað en alvarleg veikindi okkar. Við nutum þess að spjalla saman yfir góðum kaffibolla. Við áttum báðar nokk- uð gott með að segja það sem við vorum að meina og ekkert ann- að. Það voru því oft einkar áhugaverðar samræður sem við áttum um lífið og tilveruna. En ef það var eitthvað sem ég kunni að meta umfram allt í fari henn- ar Kolbrúnar var það nærgætni hennar og hlýja gagnvart mér og mínum veikindum. Það voru engar væntingar um neitt annað en það sem var. Hún reyndi aldrei að breyta neinu í mínu fari, engum skoðunum og engri skynjun. Ég hafði aldrei á til- finningunni að hún væri að von- ast eftir neinu sérstöku. Hún hlustaði og spurði forvitin eða áhugasöm. Allt mátti vera eins og það var. Líka það sem var veikindi. Að vera með alvarlegan geðsjúkdóm er eins og að vera alltaf með vindinn í fangið. Að fara í heimsókn til Kolbrúnar var eins og að komast í skjól. Það er með miklum söknuði og trega að ég kveð hana Kol- brúnu í hinsta sinn. Þakklætið fyrir að hafa fengið að kynnast henni mun lifa enn þá sterkara í hjarta mínu í dag og alla daga hér eftir. Elsku Haraldur, Steinþóra, Valli, Vigdís og Kolbeinn, mínar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar á þessum erfiðu tímum. Elín Ýr. Elskuleg frænka okkar Kol- brún Jónsdóttir, Dolla, er látin eftir erfiða baráttu við krabba- mein. Dolla barðist við vágestinn með jákvæðni, lífsgleði og bjart- sýni að vopni. Það var fallegt að fylgjast með því hversu samhent þau Haraldur voru og dugleg að nýta tímann vel og hvað litla fjöl- skyldan gerði ótalmargt skemmtilegt saman. Við og Dolla erum systradæt- ur og mikil og góð samskipti á milli systranna. Við vorum báðar í sveit í Reykholti og gengum seinna í Reykholtsskóla, Dröfn vann líka á Símanum hjá Dóru frænku. Dröfn og Dolla voru saman í skólanum og voru þær alltaf miklar og góðar vinkonur. Dolla var hins vegar lítil, og minnisstæð skotta þegar Stella var í Reykholti. Við áttum báðar yndislegan tíma í Reykholti, þar var alltaf líf og fjör. Dolla var dugleg og kraftmikil í hverju því sem hún tók sér fyr- ir hendur, hún var frændrækin, glaðvær og góð manneskja. Við vottum Haraldi, Steinþóru og fjölskyldunni allri okkar innileg- ustu samúð. Blessuð sé minning yndislegu Dollu okkar! Dröfn Vilmundsdóttir, Stefanía Ólafsdóttir (Stella).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.