Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
SMÁRALIND – KRINGLAN – DÚKA.IS
Skóbakkar og mottur
Þórunn Kristjánsdóttir
Arnar Þór Ingólfsson
„Þetta gekk mjög vel. Við urðum
ekki vör við nein verkfallsbrot og ég
held að það hafi almennt verið raun-
in,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Eflingar, í gær. Hún var í
verkfallsvörslu en alls fóru fimm
hópar á vegum stéttarfélagsins í eft-
irlitsferðir í leikskóla á höfuðborgar-
svæðinu. Sólarhringslangt verkfall
var í gær. Sólveig tók fram að ákaf-
lega vel hefði verið tekið á móti þeim
í leikskólunum sem voru heimsóttir.
Hún kvaðst finna fyrir miklum
stuðningi við kjaradeilu Eflingar.
Fjölmörg börn voru send heim í gær
vegna verkfallsins. Hópur Eflingar
ætlaði í verkfallsvörslu á hjúkrunar-
heimili á höfuðborgarsvæðinu í gær-
kvöld.
Mörg leikskólabörn í Reykjavík
voru send heim laust fyrir hádegi í
gær til þess að borða hádegismat.
Þau gátu svo snúið til baka södd og
sæl þegar foreldrar eða aðrir voru
búnir að gefa þeim að borða.
Margrét Elíasdóttir, leikskóla-
stjóri á Blásölum í Árbæ, segir að
þetta sé ekki almenn regla þar þótt
þetta eigi við um mörg börn. Deild-
irnar í leikskólanum séu mismun-
andi samansettar. Þar var ein deild
af fjórum lokuð í gær og öll börn af
henni heima auk þess sem þjónusta
á öðrum deildum raskaðist eitthvað.
Hún segir að ekki hafi verið í boði að
koma með nesti í gær, frekar en
aðra daga. „Það kemur enginn með
mat að heiman hérna inn. Við erum
með þessa þjónustu, erum með
mötuneyti hérna og erum ekkert að
bjóða upp á það að það sé verið að
koma með nesti hérna.“
Starfsdagur víða í dag
Hún segir að flestir leikskólarnir
verði lokaðir í dag vegna þess að um
80% leikskólanna í borginni höfðu
ákveðið að hafa starfsdag í dag. Hún
telur að í næstu viku verði foreldrar
orðnir pirraðir og argir vegna sí-
felldrar röskunar á þjónustu.
Fundur í kjaradeilu Eflingar og
Reykjavíkurborgar er í dag kl.
10.30. Sólveig er hóflega bjartsýn á
að deilan leysist á þeim fundi.
Verkfallsvarsla Leikskólar voru heimsóttir í gær til að kanna hvort verkfalli Eflingar væri framfylgt. Starfsdagur er í flestum leikskólanna í dag.
Urðu ekki vör
við verkfallsbrot
Eflingarfólk var við verkfallsvörslu
í gær Hætt við að foreldrar verði
pirraðir vegna skertrar þjónustu
Morgunblaðið/Eggert
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Félagar í aðildarfélögum BSRB sem
semja við ríkið, Samband íslenskra
sveitarfélaga og Reykjavíkurborg
ætla að greiða atkvæði um verkfalls-
boðun 17.-19. febrúar. Stefnt er að
því að hefja aðgerðir í mars, hafi
samningar ekki náðst þá.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formað-
ur BSRB, segir að um sé að ræða 18
félög innan BSRB og falla um 19
þúsund manns undir kjarasamn-
ingana sem um ræðir. Yfir 9 þúsund
félagar eru í Sameyki og vinna aðal-
lega hjá ríki og borg. Um 6.700 eru
samtals í félögum starfsmanna hinna
ýmsu sveitarfélaga. Félagar í
Landssambandi slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna eru um 1.200.
Sonja Ýr segir að fyrirkomulag
fyrirhugaðra aðgerða muni skýrast
þegar nær þeim dregur. Félögin
muni fá tíma til að fara yfir tillögur
þar um. Hún segir að um verði að
ræða skæruverkföll, en ekki alls-
herjarverkfall. Aðgerðir hjá fé-
lagsmönnum sem sinna hliðstæðum
störfum hjá ríki eða sveitarfélögum
um allt land verða samstilltar. At-
kvæði verða greidd hjá hverju stétt-
arfélagi og eftir því hjá hvaða vinnu-
veitanda viðkomandi félagsmaður
starfar. Sonja Ýr telur líklegt að at-
kvæðagreiðslan verði rafræn.
Landssamband lögreglumanna og
Tollvarðafélagið hafa ekki verkfalls-
rétt og munu því ekki boða til að-
gerða. Félögin hafa lýst yfir stuðn-
ingi við aðgerðirnar. Fangaverðir í
Sameyki hafa ekki heldur verkfalls-
rétt en styðja samt aðgerðirnar.
Væntir þess að samið verði
„Miðað við viðræðurnar undan-
farna daga og síðustu vikur þá hef ég
væntingar um að við náum að ljúka
þessu farsællega og vonandi áður en
til atkvæðagreiðslu eða aðgerða
kemur,“ sagði Sverrir Jónsson, for-
maður samninganefndar ríkisins.
Hann segir að kjarabæturnar fel-
ist ekki aðeins í launaliðnum heldur
einnig í breytingum á vinnutíma sem
geti verið verulegar lífskjarabætur.
Hann segir að viðræður um um-
fangsmiklar umbætur á starfsum-
hverfi vaktavinnufólks hafi gengið
vel. Góður samhljómur hafi verið á
milli allra þátttakenda í þeim við-
ræðum.
Sverrir sagði að viðræðunum mið-
aði vel og kvaðst hann hafa vænt-
ingar um að viðræðum muni miða
langt áfram á sameiginlegum fundi í
dag og eftir atvikum um næstu helgi.
„Gangi næstu dagar vel verða
samningar vonandi undirritaðir áður
en til atkvæðagreiðslu kemur. Það
væri jafnvel hægt að gera kjara-
samninga strax.“
BSRB undirbýr verkfallsaðgerðir
Um er að ræða 18 aðildarfélög með um 19.000 starfsmenn hjá ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélögum
Formaður samninganefndar ríkisins væntir þess að samningar náist áður en kemur til verkfalla
Morgunblaðið/Golli
Kjaradeila BSRB hefur verið án
kjarasamnings í á 11. mánuð.
Aðgangsstýring í spilara RÚV á net-
inu verður aukin á næstu vikum með
innleiðingu innskráningarkerfis, en
nú þegar hefur verið innleidd að-
gangsstýring fyrir spilarann sem
varar sérstaklega við efni sem bann-
að er börnum.
Þetta kemur fram í svari RÚV við
fyrirspurn Morgunblaðsins um
hvort sjónvarpsefni sem er strang-
lega bannað börnum, líkt og norska
sjónvarpsþáttaröðin Exit, verði
áfram aðgengilegt öllum í spilara
RÚV eða hvort standi til að læsa því
með aðgangsstýringu. Síminn sendi
kvörtun til Fjölmiðlanefndar vegna
málsins, en málið hefur enn ekki
verið tekið fyrir hjá nefndinni.
Í svarinu kemur jafnframt fram
að fyrirhugað innskráningarkerfi
muni ekki bara gefa kost á að læsa
efni sem ekki sé ætlað börnum, held-
ur geri það Íslendingum einnig kleift
að horfa á efni, sem hingað til hafi
eingöngu verið aðgengilegt á Íslandi
sökum réttindamála, hvar sem er í
Evrópu.
Munu auka
aðgangs-
stýringar