Morgunblaðið - 07.02.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Lesið vandlega upplýsingarnar á umbúðumog fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum umáhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
Dolorin Hita- og verkjastillandiparacetamólÁ HAGSTÆÐUVERÐI!
Nýjar umbúðir
Dolorin500mg
paracetamól töflur
20stkog30stk
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Forsvarsmenn ferðaskrifstofanna
Heimsferða og Nonna Travel hafa
ákveðið að slá af Kínaferðir sem
áformaðar voru á næstunni. Alls
voru um þrjátíu
farþegar skráðir
í ferðina hjá
Nonna og sumt
af því fólki hafði
lýst áhyggjum
sínum vegna kór-
ónuveirunnar.
„Ákvörðun um að
fresta þessari
blasti því við og
allir sýna ráð-
stöfuninni skiln-
ing,“ segir Arnar Steinn Þorsteins-
son, sölustjóri Nonna Travel, í
samtali við Morgunblaðið.
Farþegar höfðu áhyggjur
Frá því kórónuveiran kom upp
hefur Arnar Steinn, sem bjó nokkur
ár í Kína, fylgst með þróun mála
eystra og verið í sambandi við
ferðaþjónustufólk þar í landi. „Eitt
af því sem við höfum staldrað við er
að smitleiðir virðast óhefðbundnar
og að fólk sem tekur veiruna er
stundum einkennalaust í nokkurn
tíma áður en það veikist. Margir af
þeim sem höfðu bókað sig eru
komnir yfir miðjan aldur og hafa
mögulega meiri áhyggjur en aðrir
af því að veikjast. Draumaferð í
fjarlæga heimsálfu verður ekki
skemmtileg sé fólk óttaslegið.
Ferðalög eiga að vera tilhlökkunar-
efni.“
Nonnaferðin til Kína var áætluð
6. til 22. apríl – og átti að fljúga í
gegnum Helsinki til Beijing – og
heimsækja Forboðnu borgina,
Sumarhöllina og Kínamúrinn svo
nokkrir staðir séu nefndir. „Kórón-
uveiran gengur væntanlega yfir á
ekki löngum tíma. Núna skoðum við
að gera aðra tilraun í haust eða um
páskana á næsta ári. Fólk sem ætl-
aði með okkur nú hefur margt lýst
áhuga á að koma með okkur þá,“
segir Arnar.
Ákvörðun í ljósi staðreynda
Heimsferðir höfðu sett upp tvær
ferðir til Kína nú á vordögum,
páskaferð 3.-23. apríl og aukaferð
22. til 9. maí. Málin hafa verið í
skoðun að undanförnu og í gær-
morgun voru ferðirnar blásnar af,
eftir að fyrirliggjandi upplýsingar
höfðu verið vegnar og metnar. „Við
teljum að það séu ekki forsendur
fyrir því að fara á næstu mánuðum
til Kína og tókum ákvörðun í ljósi
staðreynda,“ sagði Tómas J. Gests-
son, framkvæmdastjóri Heims-
ferða, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Allir sem höfðu bókað sig í
ferðirnar geta fengið endurgreitt
eða nýtt innborgunina til að komast
aðrar ferðir með ferðaskrifstof-
unni.
Ferðir til Kína slegnar af
Kórónuveiran vekur víða ugg Ferðaskrifstofur aflýsa Ákvörðunin blasti við
Stefnt á haustið og næsta vor „Ferðalög eiga að vera tilhlökkunarefni“
AFP
Ferðalangur Í Kína notar fólk andlitsgrímur til að forðast smit. Uggur er í mörgum og ferðaþjónustan í hægagangi.
Tómas J.
Gestsson
Þorsteinn Sig-
urðsson, fiski-
fræðingur og
fyrrverandi
sviðsstjóri upp-
sjávarlífríkis á
Hafrannsókna-
stofnun, hefur
verið ráðinn sér-
fræðingur í sjáv-
arútvegsráðu-
neytinu. Hann
gerði starfslokasamning á Haf-
rannsóknastofnun í haust, samhliða
uppsögnum á tíu starfsmönnum
stofnunarinnar.
Þorsteinn mun sinna ýmsum
störfum í ráðuneytinu og m.a. koma
að verkefnum innanlands og al-
þjóðasamstarfi sem Ísland á aðild
að. Hann kom sem starfsmaður
Hafró að fræðilegu starfi á sviði
fiskifræði innanlands og utan og að
samningum um fiskveiðimál sem
ráðgjafi stjórnvalda.
Þorsteinn er 55 ára líffræðingur
frá Háskóla Íslands og fiskifræð-
ingur frá Háskólanum í Bergen í
Noregi.
Frá Hafrannsókna-
stofnun í ráðuneytið
Þorsteinn
Sigurðsson
Fjórir voru úrskurðaðir í áfram-
haldandi gæsluvarðhald til 7. febr-
úar í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Fjórmenningarnir voru hand-
teknir um næstsíðustu helgi sam-
hliða mjög umfangsmiklum aðgerð-
um lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem lagt var hald á
fíkniefni, vopn og fjármuni. Í til-
kynningu LRH segir að rannsókn
málsins miði ágætlega, en ekki er
hægt að veita frekari upplýsingar
um það að svo stöddu.
Fjórir áfram
í gæsluvarðhaldi