Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020 ✝ SigurðurDarri Björns- son fæddist í Reykjavík 18. júní 1996. Hann lést af slysförum við Esj- una 29. janúar 2020. Foreldrar Sigurðar Darra eru Rannveig Sigurðardóttir, f. 9. júní 1967, og Björn Arnar Magnússon, f. 4. september 1964. Systur Sigurðar Darra eru Salvör Svanhvít, f. 4. júní 1998, nemi í umhverfis- og frá Björgunarsveit Hafn- arfjarðar vorið 2019. Sigurður Darri æfði knatt- spyrnu með Haukum frá 2004- 2013 og stundaði hesta- mennsku með afa sínum og vinum frá árinu 2006. Sigurður Darri lagði stund á ýmis störf á sumrin og með námi, m.a. hjá Hval hf., Toll- gæslunni og Icelandair hotels. Síðast starfaði hann hjá BÓ smiðum. Eitt af mörgum áhuga- málum Sigurðar Darra var að klífa fjöll og hafði hann meðal annars komist í grunnbúðir Everest í Nepal, á Machu Picchu í Perú og Mount Fuji í Japan ásamt mörgum fjöllum á Íslandi. Útför Sigurðar Darra fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 7. febrúar 2020, klukkan 13. byggingarverk- fræði í HÍ, og Hin- rika Salka, f. 2. júní 2009, nemi í Áslandsskóla. Sigurður Darri ólst upp í Hafnar- firði, lauk grunn- skólanámi frá Ás- landsskóla, stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 2016 og var á lokaári í um- hverfis- og byggingarverk- fræði í HÍ þegar hann lést. Hann lauk nýliðanámskeiðum Elsku besti stóri bróðir okkar. Við systurnar duttum heldur betur í lukkupottinn þegar við fengum þig sem stóra bróður. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa okkur, koma okkur til að hlæja og stríða okkur nóg. Þú ert okkar helsta fyrirmynd og munum við alltaf hugsa til þín. Þú varst alltaf svo glaður, já- kvæður og það var aldrei leiðin- legt að vera í kringum þig. Við vitum að þú verður alltaf hjá okkur, við elskum þig. Fyrir hönd okkar systra, Hinrika Salka. Elsku stóri bróðir minn. Ég er svo ótrúlega þakklát að hafa fengið þig sem stóra bróður minn. Frá því að ég man eftir mér hef ég litið upp til þín og viljað vera eins og þú. Þegar þú fórst í MR, þá fór ég í MR, þegar þú fórst í heimsreisu eftir nám gerði ég hið sama og þegar þú fórst að stunda nám í umhverfis- og bygg- ingarverkfræði var það sjálfsagt mál að ég myndi fylgja þér þang- að líka. Það gat örugglega verið pirrandi að litla systir elti þig í einu og öllu en þú studdir mig samt alltaf og hjálpaðir mér í gegnum þetta allt. Ég veit núna að þetta voru allt réttar ákvarð- anir hjá mér því við fengum þá svo dýrmætar stundir saman á leiðinni í skólann eða þegar við hittumst í skólanum. Þegar ég hugsa til þín man ég helst eftir húmornum þínum, já- kvæðninni og töffaraskapnum. Það er enginn eins og þú, elsku stóri bróðir. Ég elska þig. Þín systir, Salvör Svanhvít. Sigurður Darri frændi minn er farinn frá okkur og skilur eftir sig stórt skarð innan fjölskyldunnar. Náttúran tók frá okkur fyrir- myndarmann á þessum örlaga- ríka degi. Sigurður Darri var op- inn og skemmtilegur og það var alltaf jafn gaman að hitta hann þótt langt gæti liðið milli funda nú síðustu árin. Hann hafði ein- lægan áhuga á öðru fólki og alltaf var stutt í prakkaralegt bros. Við Sigurður kynntumst vel þegar við vorum saman í hesta- mennskunni. Hann var að taka sín fyrstu skref en ég hafði verið lengi í hestum. Eins og Sigurði einum var lagið var hann svo for- vitinn og öruggur í því sem hann tók sér fyrir hendur að fljótlega var hann orðinn flinkastur af okk- ur öllum í hesthúsinu. Það voru sex ár á milli okkar og við bæði á unglingsaldri á þessum tíma. Hestarnir voru okkar sameigin- lega áhugamál, við tengdumst í gegnum það og samskiptin voru alltaf þægileg þrátt fyrir aldurs- muninn. Við nutum þess að vera úti í náttúrunni og í návist hest- anna. Sigurður Darri var einlæg- ur náttúruunnandi og dýravinur og ég var heppin að kynnast þeirri hlið á honum. Elsku Bjössi, Rannveig, Sal- vör og Hinrikka, ég hugsa til ykk- ar með hlýhug á þessum erfiðu tímum. Á sama tíma og sárt er að kveðja lifa fallegar minningar um Sigurð Darra í hjarta okkar allra. Katla Marín Berndsen. Elsku prinsinn minn, frændi, besti vinur og bróðir. Hjartað mitt er í molum. Hvernig á ég að halda áfram án þín? Við áttum svo fallegt samband sem ég er svo þakklát fyrir. Ég gat alltaf leitað til þín, sama hvað. Þú hafðir svo einstakan hæfileika til að gera allt skemmtilegra og betra. Ósjaldan sátum við saman við matarborðið og tókum þátt í líflegum samræðum, skutum inn í og horfðum hvort á annað án þess að nokkur tæki eftir og hlógum. Að hugsa til framtíðar án þín er svo sárt, að þú verður mér ekki við hlið. Við töluðum oft saman um að halda áfram að hittast eins oft og við höfum alltaf gert, halda miðvikudags- og sunnudagsmat með fjölskyldum okkar og börn- um. Ég hlakkaði svo til þess að fylgjast með þér verða pabbi sjálfur og ég veit að þú hefðir náð framúrskarandi árangri á því sviði eins og í öllu sem þú tókst þér fyrir og einbeittir þér að. Ég er svo þakklát og ham- ingjusöm að Darri Þór skyldi fá að kynnast þér. Þú fórst alltaf fyrst til hans af öllum þegar við hittumst og varst svo góður við hann. Að hafa gefið þér nafna er eitt af því sem ég er stoltust af í lífinu, þú áttir það svo sannarlega skilið. Að hafa verið stóra frænka þín og fylgt þér í gegnum allt þitt líf eru forréttindi og bíð ég eftir því að sjá þig aftur, einhvers staðar. Ég veit að þú munt taka á móti mér opnum örmum, brosandi fal- lega brosinu þínu og jafnvel skjóta einum kaldhæðnum brandara að mér eins og þér ein- um var lagið. Ég bið að heilsa ömmu Hinnu. Ég elska þig. Hinrika Bjarnadóttir (Hinrika stóra). Sigurður Darri kom með lát- um í heiminn, fékk hjörtu okkar til að missa slag, og með sömu lát- um kvaddi hann þennan heim. Ekkert okkar nær andanum. Frá því augnabliki sem ég sá hann fyrst, á fæðingardeildinni, var hann prinsinn minn. Ég er svo þakklát fyrir að hafa haft hann í kringum mig og mína frá þeim degi, því hann lýsti upp veröld okkar og heiminn allan. Sigurður Darri var alla sína ævi sólarmegin í lífinu, eins og mamma hans hafði oft orð á. Hann vissi alltaf hvert hann stefndi, vann að þeim markmið- um og náði þeim. Markmið hans á þessu ári var að ná 1. einkunn í umhverfis- og byggingarverkfræði í HÍ í vor, vinna fram yfir áramót svo hann gæti farið utan í fjallgöngu í jan- úar, sem átti að verða enn ein varðan á leið hans á Everest. Mikill samgangur er á milli fjölskyldna okkar systra, Birgis bróður og afa Sigga. Við höfum alla tíð borðað saman tvisvar í viku, haldið jólahátíðina og páskana sameiginlega og farið saman í ýmsar ferðir. Skemmti- legastar voru skíða- og hestaferð- irnar, þar sem Sigurður Darri naut sín best. Þegar ég loka augunum og sé Sigurð Darra fyrir mér sé ég hann ganga inn í rými með bros á vör og fagna okkur öllum. Þau sem fengu þó fyrst athygli hans og hlýju voru yngsta fólkið okkar, Hinrika Salka og Darri Þór, nafni hans. Ég er svo heppin að Sigurður Darri hafði mikinn áhuga á hest- um og var með okkur í hesta- mennsku. Oft stóðum við við hesthúsgluggann og dáðumst að því hversu gullfallegur prinsinn væri á baki uppáhaldsmerarinnar sinnar, Perlu. Áhugamál Sigurðar Darra voru mörg. Hann lagði mikið á sig til að sinna þeim og verða sér- fræðingur í hverju þeirra. Hann naut þess að vera með fjölskyldu sinni og vinum og hafði brenn- andi áhuga á ljósmyndun, úti- veru, fjallgöngum, skíða- mennsku, hestamennsku og byggingarlist. Hann hafði auga fyrir fallegum hlutum og gaman af smíðum og því stakk nýi bíllinn hans, ljósblár, eldgamall og frek- ar ljótur pikköpp, nokkuð í stúf en hann hentaði honum og hans fjallamennsku fullkomlega. Eftir stúdentspróf fór Sigurð- ur Darri í heimsreisu með æsku- vinum sínum og þá gengu þeir m.a. í grunnbúðir Everest. Þar kviknaði fjallabakterían sem síð- an litaði líf hans og varð til þess að hann gekk í Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Á þessum erfiðu tímum er það okkar eina huggun að prinsinn lifði sínu fullkomna lífi. Hann var að sinna sínu á sínum forsendum og gera það sem hann elskaði. Enginn sagði Sigurði Darra fyrir verkum. Hann gaf hins veg- ar mikið af sér til allra sem þekktu hann og ef orð gætu lýst honum þá væru þau ást, um- hyggja, virðing, áhugi, samskipti, kaldhæðni, húmor, draslari, lífið og framtíðin. Prinsinn okkar kvaddi á falleg- um degi þegar hann var að sinna því sem hann elskaði, með vinum sínum, og við vitum að hann var glaður. Við trúum því að hann hafi verið kallaður til merkari verka en hann á möguleika á að sinna hér hjá okkur. Sigurður Darri var augasteinn foreldra sinna og systrum sínum var hann besti bróðir í heimi. Sorgin er óyfirstíganleg. Hinsta kveðja, Sigríður Sigurðardóttir (Sigga frænka). Stundum erum við minnt á það hversu hverfult lífið getur verið og ósanngjarnt. Stundum er líka erfitt að skilja almættið, eins og til dæmis núna þegar Sigurður Darri frændi okkar er tekinn frá okkur í blóma lífsins. Lífið blasti við Sigurði Darra, hann var að klára umhverfis- og byggingar- verkfræði frá Háskóla Íslands núna í vor, hafði gengið til liðs við björgunarsveitina, ferðast um heiminn og stundaði útivist af kappi. Margar minningar koma upp í hugann þegar við hugsum til baka og minnumst þess hve heppin við höfum verið að fylgj- ast að í gegnum lífið. Annars veg- ar börnin mín Arna og Breki og hins vegar frændsystkini þeirra Sigurður og Salvör tengdust ekki aðeins fjölskylduböndum, heldur var vinskapur þeirra og fjöl- skyldu okkur mjög kær. Frænd- systkinin voru jafngömul, gengu í sama skóla og ánægjulegt var að fylgjast með þeim vaxa saman úr grasi. Áralöng hefð eins og fjöl- skylduveislan á gamlárskvöld þar sem stórfjölskyldan kemur alltaf saman og fagnar nýju ári er okkur einkar minnisstæð. Hún var síðast haldin heima hjá for- eldrum Sigurðar Darra, Rann- veigu og Bjössa. Var sú veisla einstaklega fjörug og skemmti- leg. Við fjölskyldan ræddum ein- mitt eftir það kvöld hvað okkur fannst Sigurður Darri vera glæsilegur ungur maður sem hefði góða nærveru, fallegt bros, vel gefinn, góðan húmor og hon- um væru allir vegir færir. Elsku Rannveig, Bjössi, Sal- vör og Hinrika, missir ykkar er mikill. Megi hlýjar minningar styrkja ykkur í sorginni. Hann mun um alla tíð eiga stað í hjarta okkar. Hrafnhildur, Arna og Breki. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku fjölskylda, hugur okkar og samúð er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Megi minningar um Sigurð Darra vera ykkur ljós og styrkur um ókomin ár. Gréta Þórðardóttir, Hermann Björn, Þórður Örn, Hildur og fjölskyldur. Sigurður Darri var einstök manneskja. Hann hafði einstak- an hæfileika til að hafa gleði og gaman í kringum sig. Hann var oft með þennan einkennandi stríðnisglampa í augunum enda alltaf stutt í grínið og kaldhæðn- ina hjá honum. Hann kunni svo vel að gera góðlátlegt grín að fólkinu í kring og umhverfinu en vissi einhvern veginn alltaf hvar mörkin lágu, enda uppskar hann oftar en ekki mikinn hlátur hjá okkur bekkjarfélögunum. Hann var svo hamingjusamur og lifði lífinu eins og flestir ættu að gera, að elta draumana sína. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og fengið að vera vinir hans, það eru forréttindi. Við munum sakna þín elsku Siggi Darri okkar og hugsa hlýlega til þín þegar bekkurinn hittist í framtíðinni. Þú verður alltaf hluti af okkur. Hvíldu í friði. Fyrir hönd vina í 6. R., Brynjar Orri Briem, Kol- beinn Ari Arnórsson og Ólafur Baldvin Thors. Fundum okkar Sigurðar bar fyrst saman sumarið 2017 í Kína. Hann var á ferðalagi með vinum mínum og ég með vini hans. Haustið eftir byrjaði Sigurður í verkfræði við Háskóla Íslands, þar sem ég lærði stærðfræði, og innan skamms vorum við orðnir perluvinir. Þennan vetur eyddum við miklum tíma saman, vorum eins konar samferðamenn. Sig- urður hafði góða nærveru, tók hlutina ekki of alvarlega, án þess þó að vera kærulaus. Hann var einstaklega lítillátur, hafði sig ekki í frammi að óþörfu, án þess þó að vera feiminn. Ég kynntist Sigurði ágætlega á þessum tíma, ekki í gegnum það sem hann sagði heldur með því að fylgjast með því sem hann gerði. Sigurður Darri var góður maður og góður vinur, vinur allra en þó sér í lagi vinur vina sinna. Alltaf þótti hon- um það jafn sjálfsagt að rétta vini hjálparhönd, hikaði ekki við það og minntist síðan ekki á það aft- ur. Eitt sinn var ég einmana á meginlandinu og vissi af honum í Hafnarfirði að bíða eftir að hval- veiðin hæfist. Ég hringdi og spurði hvort hann vildi hitta mig í París, örfáum dögum síðar hitt- umst við þar. Við áttum góða daga, gistum á hóteli í 10. hverfi og tókum inn það helsta. Ég veit ekki til þess að hann hafi verið neitt sérlega spenntur fyrir París fyrir símtalið, hann bara sam- þykkti almennt góðar tillögur, væri það gerlegt. Viku síðar fór hann í hvalinn og þá sá maður hann ekki meir; það var smá eins og að eiga vin í fangelsi. Við Jón Kristinn heimsóttum hann um haustið, það er góð minning. Stuttu síðar flutti ég úr landi og sambandið fjaraði út. Þrátt fyrir það eru þær ófáar, góðu minning- arnar. Fjölskyldu Sigurðar Darra og vinum votta ég samúð mína. Gylfi Þ. Gunnlaugsson. Vinur minn Siggi Darri hafði þann einstaka eiginleika að veita öllum í kringum sig einlæga hlýju og væntumþykju. Ég hef séð síð- ustu daga að þessir eiginleikar skinu hvað skærast af öllum þeim miklu kostum sem Siggi hafði. Er ég lít til baka og hugsa til áranna í MR verður Siggi mér efst í huga. Vinahópurinn þar samanstóð af okkur Sigga og strákum úr Vesturbænum. Siggi bjó í Hafnarfirði og þegar við vin- irnir hittumst fékk ég Sigga til að ná í mig í leiðinni í Vesturbæinn, sem hann gerði alltaf með glöðu geði. Stundirnar sem við áttum saman tveir í Audi-inum hans eru mér kærar. Metallica var yfirleitt í græjunum og við Siggi ræddum mikið um tónlist, sérstaklega rokkið. Siggi var duglegur að sækja tónlistarviðburði og stuttu eftir að við útskrifuðumst frá MR fékk hann mig með sér á Airwaves. Hann sótti mig á hverju kvöldi fyrir tónleika og við hlustuðum á allar tegundir tónlistar, slömm- uðum hausnum og vöknuðum daginn eftir með hálsríg. Þarna urðu til margar dýrmætar minn- ingar. Einnig höfðum við mikinn áhuga á knattspyrnu og vorum báðir ákafir stuðningsmenn Ars- enal. Á lokaárinu okkar í MR fór- um við í skólaferðalag til Lund- úna. Við Siggi ákváðum að lengja ferðina, fara á Arsenal-leik og kaupa okkur eins treyjur með nafni okkar uppáhaldsleikmanns. Það sem ég dáði mest í fari Sigga var hversu duglegur og metnaðarfullur hann var. Hann hafði snemma framtíðarsýn og vissi nákvæmlega hvert hann stefndi en hafði þó einstaka hæfni til að lifa í núinu, taka skyndi- ákvarðanir og stunda áhugamál sín af kappi og ástríðu. Áhugasvið hans var fjölbreytt og listrænt. Hann var duglegur að taka ljós- myndir og fylgdi myndavélin með hvert sem hann fór. Hann stund- aði hreyfingu, mikill útivistar- maður og var alltaf gaman að fara með honum í kvikmyndahús enda mikill smekkmaður þar. Siggi gaf sér alltaf tíma fyrir vini sína; faðmaði alla innilega og smitaði af sinni fallegu lífsgleði alla þá sem fengu að verja tíma með hon- um. Hlátrasköllin voru ótalmörg og var Siggi með þennan smit- andi hlátur sem fékk mann til að hlæja enn meira. Siggi var alltaf samkvæmur sjálfum sér og ef við vinirnir þurftum á hreinskilnu áliti að halda veitti Siggi það og lá aldrei á skoðunum sínum, sem ég kunni ávallt vel að meta í fari hans. Hann setti hag okkar vina sinna í fyrsta sæti, enda traustari vinur vandfundinn. Erfitt er að gera sér í hugar- lund að eiga aldrei eftir að heyra þennan smitandi hlátur, finna þessa einlægu hreinskilni, upplifa hans einstöku hlýju og fallegu nærveru aftur. Ég hef þó komist að því að þessir þættir í fari Sigga eru það sem ekki gleymist þeim sem hann þekktu. Hann gaf mik- ið af sér og lífsgildi hans og lífs- gleði er það sem við vinir hans tökum með okkur til að takast á við framtíðina með bros á vör og hlýju í hjarta. Ég er ævinlega þakklátur fyrir að hafa kynnst þessum yndislega dreng og notið þess heiðurs að kalla hann vin minn. Fjölskyldu Sigga sendi ég frá mínum dýpstu hjartarótum sam- úðarkveðjur. Ég mun sakna þín að eilífu, elsku Siggi Darri. Þinn vinur, Bjarni Páll (Baddi). Siggi vissi nákvæmlega hver hann var og hvað hann vildi gera í lífinu. Þegar hann langaði eitt- hvað gerði hann einfaldlega það sem þurfti og lét skoðanir ann- arra ekki hafa áhrif á sig. Siggi ákvað til dæmis einn daginn að hann langaði í stærri bíl svo hann kæmist í allar ævintýraferðirnar sínar. Hann tók sig þá til, seldi nýja bílinn sem hann hafði unnið sér inn fyrir og keypti í staðinn 30 ára gamlan ryðgaðan hilux-pall- bíl. Við félagarnir hristum haus- inn þegar við sáum bílinn en Siggi lét það ekki á sig fá og fullvissaði okkur um að þetta væru góð kaup. Það leið ekki langur tími þar til manni var farið að þykja verulega vænt um að heyra í vél- inni á pallbílnum fyrir utan þegar Siggi var kominn að sækja mann fyrir æfingu. Siggi var gríðarlega vinmarg- ur en á einhvern ótrúlegan hátt gat hann alltaf fundið tíma fyrir mann. Þrátt fyrir að kynnast honum á okkar seinni árum var eins og við hefðum þekkt hann alla ævi. Jákvæða orkan sem geislaði af Sigga og einlægni hans dró alla að honum. Síðustu tvö ár fórum við með Sigga á æfingu flesta daga vikunnar og var alltaf hægt að treysta á að sá hluti dagsins yrði skemmtilegur. Smit- andi hlátur hans, bros og húmor gat alltaf komið okkur í gott skap. Siggi var mjög skoðanafastur og það var alltaf hægt að treysta á hann til að segja það sem allir voru að hugsa. Elsku Siggi okkar, eins mikil og sorgin er þá erum við ótrúlega þakklátir fyrir þann tíma sem við fengum með þér. Við munum varðveita allar þær minningar sem við eigum saman og reyna að tileinka okkur alla þína frábæru eiginleika í lífi okkar. Hvíldu í friði elsku vinur. Elías og Högni. Á fyrstu árum sínum kom strax í ljós að Sigurður Darri væri orkumikill og skemmtilegur drengur. Hann dafnaði og þrosk- aðist í faðmi stoltra foreldra sinna, Rannveigar og Bjössa, ásamt systrum sínum og varð vel gerður og fallegur ungur maður sem átti alla framtíðina fyrir sér. Það er því með mikilli sorg og trega sem við kveðjum þennan unga mann sem náttúran hrifsaði til sín, svo fyrirvaralaust og óvægið.Við fylgdumst að með Sigurður Darri Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.