Morgunblaðið - 07.02.2020, Qupperneq 17
börnum okkar sem voru fædd á
sama ári, notuðum hvert tæki-
færi til að hittast með þau sem
voru samstiga frá fæðingu og
léku sér saman frá nokkurra
mánaða aldri. Við lögðum líka
land undir fót með þau ung í eft-
irminnileg ferðalög.
Þráðurinn slitnaði aldrei þó ár-
unum fjölgaði og börnin yrðu
eldri. Við skiptumst á sögum af
börnunum svo við áfram gætum
fylgst með viðfangsefnum þeirra
og þroska. Leiðir unga fólksins
lágu síðar oft saman og alltaf gaf
Sigurður Darri sér tíma til að
staldra við, spjalla og spyrja út í
hvað á dagana hefði drifið.
Fjölskylda Sigurðar Darra er
samheldin og vinahópurinn hans
stór. Sorgin og missirinn eru
meiri en nokkur orð fá lýst og
margir sem gráta þungum tár-
um.
Elsku Rannveig, Bjössi, Sal-
vör, Hinrika og fjölskyldan öll.
Okkar innilegustu og dýpstu
samúðarkveðjur til ykkar allra.
Minningin um einstakan dreng
lifir.
Margrét og Helena Margrét.
Skarð er fyrir skildi við
skyndilegt og hörmulegt fráfall
ungs manns sem átti framtíðina
fyrir sér. Lífið heldur áfram fyrir
okkur hin, en í tilveruna vantar
ungan mann og kæran heimilis-
vin.
Sigurður Darri, eða bara Siggi
eins og hann var kallaður á okkar
heimili, hefur verið tengdur fjöl-
skyldunni allt sitt líf en hann og
Jón Gunnar sonur okkar voru
fæddir með tólf tíma millibili.
Með mæðrunum tókust ágætis
kynni strax í upphafi. Þegar syn-
irnir byrjuðu að æfa fótbolta með
Haukum og lentu í sama bekk í
Áslandsskóla styrktust tengslin
enn frekar og með piltunum fór
að myndast fallegt vinasamband.
Siggi var félagslyndur og vildi
gjarnan eyða tímanum með vin-
um sínum, hvort sem það var að
bjóða Jóni Gunnari með í
„gúmmíbollur“ til afa, koma í hjó-
latúr eða skreppa með í bíltúr í
sumarbústað. Afmæli voru haldin
saman, ferðir á fótboltamót voru
skipulagðar í sameiningu og þeg-
ar piltar þroskuðust voru áhuga-
málin svipuð. Fjölskyldurnar
fóru saman í skíðaferðir til Aust-
urríkis og þar nutu piltarnir sín
svo sannarlega. Allar brekkur og
lyftur voru prófaðar. Í dagslok
var svo krossað við hvaða brekk-
ur og lyftur var búið að reyna.
Þó vinirnir hafi kosið hvor sinn
menntaskólann þróuðust mál
þannig að þeim var skutlað sam-
an í skólann. Úti á hringtorgi
voru þeir teknir upp í. Siggi var
bara eins og hann var, kom
hlaupandi á síðustu stundu en
aldrei allt of seint, með úlpuna í
annarri hendi, töskuna í hinni og
skólabækur í fanginu. Klæðnað-
urinn og útlitið var hins vegar í
fullkomnu lagi. Hann kom eins og
stormsveipur inn í bílinn, fyllti
hann af góðri nærveru og spjalli.
Eftir að menntaskólanáminu
lauk hófu þeir vinirnir báðir nám
við Háskóla Íslands hvor á sínu
sviðinu.
Áhugamálin og vináttan
tengdu þá áfram saman, jafnvel
meira en áður. Þeir stunduðu
saman útiveru hverskonar, skíði,
klifur og hófu svo nýliðaþjálfun
hjá Björgunarsveitinni í Hafnar-
firði. Allt varð þetta til að styrkja
vináttuböndin og tryggja.
Ekki er ýkja langt síðan vin-
skap þeirra Sigga og Jóns Gunn-
ars bar á góma á heimilinu. Við
hjónin vorum sammála um að
milli þeirra væri mjög fallegt og
traust vinasamband sem myndi
endast út ævina þó svo að sam-
skiptin væru ekki dagleg. Því
miður reyndist sá tími allt of
stuttur fyrir alla.
Missir okkar fjölskyldunnar í
Þrastarási 1 við skyndilegt fráfall
Sigga er lítill miðað við þann
missi sem fjölskylda Sigga hefur
orðið fyrir.
Elsku Rannveig, Bjössi, Sal-
vör, Hinrika og fjölskyldan öll,
okkar innilegustu og dýpstu sam-
úðarkveðjur til ykkar á þessum
erfiðu tímum.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Anna María Gunnarsdóttir
og Bjarki Sverrisson.
Grunnskólaárin í Áslandsskóla
eru mér minnisstæð, þá aðallega
vegna þess hve dýrmætum vinum
ég kynntist. Sigurður Darri var
einn af þeim helstu og við náðum
sérstaklega góðu sambandi frá
fyrstu kynnum. Kaldhæðnislegur
einkahúmor okkar Sigga vakti þó
misgóðar undirtektir kennara en
við létum það ekki á okkur fá, við
studdum hvor annan, enda ungir,
óhræddir drengir. Ég bjó í öðru
hverfi en Áslandinu, þannig að
eftir skóla lá leiðin oftar en ekki
heim á fallegt heimili Sigga þar
sem mér var ávallt vel tekið af
Birni og Rannveigu, foreldrum
Sigga, og er ég þeim þakklátur
fyrir. Frá heimili Sigga var okkur
annaðhvort skutlað á fótboltaæf-
ingar eða við fórum fótgangandi.
Í þau skipti sem við löbbuðum
vöknuðu áhugaverðar samræður,
allt frá röksemdum um íþróttir
yfir í forvitni um gang himin-
tungla.
Siggi var mikill keppnismaður
hvort sem það snerti íþróttir eða
námið en samtímis hafði hann
einstaklega góða kímnigáfu enda
ávallt brosandi og tók þungum
byrðum með rósemi og yfirveg-
un. Þessi léttleiki og kærleikur
sem einkenndi Sigga er það sem
mér þykir aðdáunarvert, enda
eignaðist Siggi vini hvert sem
spor hans lágu. Síðar meir geng-
um við á ófá fjöll og nú síðast rölt-
um við undir lok sumars upp á
Heklu. Ferlið var einfalt; Siggi
sótti mig, hreykinn og stoltur af
jeppanum sínum sem reyndist
okkur vel í ferðinni. Á leiðinni
hlustuðum við á tónlist ásamt því
að spjalla og fórum yfir ýmis mál-
efni. Á hinn bóginn dugði okkur
einnig að vera í þögn, enda þekkt-
um við hvor annan frá barnæsku.
Við þurftum ekki að vera síta-
landi – við vissum hvor af öðrum,
rétt eins og í göngutúrum okkar á
fótboltaæfingar sem pollar, þar
sem þögnin var okkur oft á tíðum
nægjanleg, enda nærvera og
hjartalag Sigga einstakt.
Siggi var gæddur eiginleikum
sem má segja að séu eftirsóttir og
dýrmætir í lífinu, hann var með
djúpan mannskilning og kom
fram við alla af virðingu og
sæmd. Dugnaður Sigga á ýmsum
sviðum lífsins var og verður alltaf
hvatning fyrir mig.
Ég hlakka til þess að sjá þig
aftur. Þinn vinur,
Eggert Georg Tómasson.
Slysin gera ekki boð á undan
sér. Fallegur, sólríkur vetrardag-
ur breytist á svipstundu í sorg-
ardag þegar fréttir berast af því
að Sigurður Darri hafi látist í
snjóflóði í Esjunni. Eftir sitjum
við, sem hann þekktum, í sorg og
með döpur hjörtu og skiljum ekki
hvers vegna ungur, efnilegur og
glæsilegur drengur er tekinn svo
fljótt frá fjölskyldu og vinum.
Daginn eftir þjóðhátíðardag-
inn 1996 fæddist frumburður
Rannveigar og Bjössa þá nýlega
flutt í fallegt raðhús í Setbergs-
hverfi í Hafnarfirði. Frumburð-
urinn var ljós yfirlitum, fríður,
heilbrigður, yndislegur lítill gull-
moli, stolt hinna nýbökuðu for-
eldra. Það voru ekki komin mörg
börn í vinahópinn sem var ýmist
kallaður GT klúbburinn, Harðir
naglar eða Bognar nálar, sem var
hluti af stærri vinkvennahópi
sem hafði kynnst í MR. Börnun-
um fjölgaði í vinahópnum á næstu
árum. Systkinin Sigurður Darri
og Salvör Svanhvít, tveimur ár-
um yngri en eldri bróðirinn, voru
lengi vel tvö, Hinrika Salka
yngsta systirin fæddist 2009.
Það voru ófáar sumarbústaða-
ferðirnar sem fjölskyldurnar fóru
í og ferðalög innanlands sem ut-
an. Börnin í vinahópnum, sem
urðu alls tíu, tengdust sterkum
böndum í gegnum sameiginlegar
upplifanir og skemmtilegar ferð-
ir. Þau lýsa Sigurði Darra sem
hlýjum, indælum, vingjarnlegum,
stríðnum, rólegum, klárum,
skemmtilegum og með allt á
hreinu. Sigurður átti fjöldann all-
an af áhugamálum, hann stundaði
meðal annars fótbolta, hesta-
mennsku með afa sínum og
nafna, var með bíladellu sem
hann deildi með föður sínum og
mikinn Formúluáhuga. Hann var
mjög sjálfstæður eins og t.d. þeg-
ar hann hringdi í foreldra sína,
sem þá voru stödd á Krít með GT
hópnum, og tilkynnti þeim að
hann væri fluttur út í bili, farinn
að leigja með vinum sínum. Það
var skemmtilegur dagur þegar
við fórum upp í Hvalstöð þar sem
Sigurður starfaði nokkur sumur
og hann sýndi okkur vinnustað-
inn sinn.
Það að Sigurður Darri, 23 ára
háskólanemi með framtíðina fyr-
ir sér og rúma 3 mánuði í lokapróf
í verkfræði sé hrifinn brott úr
þessu lífi skilur enginn.
Elsku Rannveig, Bjössi og fjöl-
skylda. Ykkar missir er ólýsan-
legur. Engin orð megna að lýsa
líðan við slíkar aðstæður. Við
sendum ykkur okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Eftir lifir minn-
ing um yndislegan ungan mann,
vel gerðan í alla staði.
Ykkar vinir,
Sigurbjörg (Begga) og
Vigfús (Fúsi) og börn,
Hallfríður (Halla),
Kristinn og börn.
Helma Rut og börn.
Það er ólýsanlega erfitt að
setjast niður og skrifa minning-
argrein um besta vin sinn sem
fellur frá aðeins 23 ára gamall.
Siggi var sannarlega vinur
vina sinna og sá vinur sem allir
þurfa á að halda. Hann var ein-
staklega hress og skemmtilegur,
hjartahlýr og traustur. Siggi stóð
alltaf við bakið á manni eins og
klettur, lá aldrei á skoðunum sín-
um og sagði manni hvað honum
fannst. Hann var alltaf hreinskil-
inn og heiðarlegur við okkur vin-
ina. Hann var opinn fyrir öllu og
maður gat alltaf nálgast hann
fyrst með hugmyndir sínar og
plön. Um leið og hann var ekki
opinn fyrir hugmyndinni eða
plönum vissi maður strax að hug-
myndin var kannski ekki svo góð.
Hann gerði ósjaldan grín að okk-
ur vinunum og það var aldrei
langt í húmorinn og kaldhæðnina.
Hann fór heilshugar í allt sem
hann hafði áhuga á, kynnti sér
hlutina til fulls sjálfur með því að
lesa sér til, horfa á myndbönd og
vafra um á netinu. Skipti þá ekki
máli hvort það var ljósmyndun,
fjallaskíðamennska eða líkams-
rækt svo eitthvað sé nefnt.
Okkur er minnisstætt þegar
við fórum með Sigga og fleiri vin-
um á Airwaves um árið. Þar tók
hann forystuna og leiddi hópinn á
alla áhugaverðustu viðburðina
sem boðið var upp á. Hann var að
sjálfsögðu búinn að lesa sér til um
alla listamennina og hlusta á tón-
list þeirra. Við nutum góðs af því.
Í ferð okkar saman á Formúl-
una í Ungverjalandi síðastliðið
sumar var Siggi, eins og alltaf,
búinn að kynna sér alla flottustu
staðina til að heimsækja. Hann
var að sjálfsögðu með Formúluna
upp á 10 og byrjaður að lýsa
henni í beinni fyrir okkur vinun-
um. Hann fór að sjálfsögðu alla
leið og var klæddur í búning Kimi
Räikkönen, sem hafði alltaf verið
í uppáhaldi. Gerði þetta upplifun
okkar hinna mun ánægjulegri.
Sama hvað kom upp á stress-
aðist Siggi aldrei, hann átti það til
að týna hlutum s.s. lyklum, síma
eða vegabréfi en lét það aldrei
hafa nein áhrif á sig. Þrátt fyrir
að gleyma sér með smáhlutina
var hann sérstaklega góður í að
halda utan um stærri hlutina í líf-
inu. Fjölskyldan og vinir skiptu
hann öllu máli, það var gaman að
fylgjast með hversu náinn hann
var fjölskyldu sinni og ræktaði
hana vel. Einnig náði hann alltaf
að vera í sambandi og rækta hina
mismunandi vinahópa og tengja
þá vel saman.
Við kynnumst Sigga fyrst í
MR og áður en við vitum af er
hann orðinn besti vinur okkar og
mjög náinn vinur vina okkar.
Siggi var frábær einstaklingur og
góður vinur þannig að það tók
hann ekki langan tíma að verða
einn af okkur Vesturbæjarstrák-
unum. Einnig átti hann alltaf í
góðu sambandi við æskuvini sína
úr Hafnarfirði auk þess sem hann
átti vini í verkfræðinni, lyfting-
um, útivistinni og við gætum
haldið endalaust áfram.
Hann var einstakur í að tengja
saman mismunandi vinahópa og
erum við þakklátir fyrir alla þá
vini sem við höfum eignast í
gegnum Sigga.
Við sendum fjölskyldunni allri
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Dagur Þór og Viðar Þór.
Elsku Siggi.
Við höfum verið svo heppin að
njóta nærveru þinnar næstum
daglega í þrjú ár. Á þessum árum
hefur þú verið okkar besti vinur
og snert hjörtu okkar með hlátri,
gleði, væntumþykju en einnig
smá prakkaraskap og stríðni.
Þessi stríðni var samt í lagi því
við vitum að þetta var þín leið til
að segja að þér þótti vænt um
okkur. Það er erfitt að mæta í
skólann án þín þar sem þú varst
svo stór hluti af hópnum. Þú varst
svo mikill karakter, það fór ekki
fram hjá neinum að þú varst
mættur í skólann. Það er tómlegt
að vera í tíma án þín og við mun-
um sakna draslsins sem fylgdi
þér sem einhver af okkur endaði
á að ganga frá. Þú munt alltaf
vera mesti töffari sem við höfum
kynnst og munum halda áfram að
reyna að ganga í augun á þér alla
okkar ævi. Við lítum öll upp til þín
og það að fá hrós frá þér gerði
daginn manns, jafnvel vikuna,
betri. Það sem einkenndi þig var
að þú lést námsálag ekki stjórna
þér og passaðir ávallt að eyða
tíma í það sem þér þótti skemmti-
legt, hvort sem það var skíði, klif-
ur eða bara að hitta vini þína í
bjór. Við munum seint gleyma því
þegar við vorum stressuð og
þreytt að læra fyrir lokapróf en
þú skelltir þér bara á skíði í stað
þess að læra.
Þú varst einn skemmtilegasti
maður sem við höfum kynnst og
við erum ævinlega þakklát fyrir
að hafa fengið að vera partur af
þínu lífi.
Við munum sakna þín, elsku
vinur.
Meistaradeildin (vinir úr um-
hverfis- og byggingarverkfræði),
Björg Bjarnadóttir,
Margrét Ásta Bjarnadóttir,
Snærós Axelsdóttir,
Agnes Guðlaugsdóttir,
Kolbrún Fríða
Hrafnkelsdóttir,
Ingi Sigurður Ólafsson,
Kristján Þór Jónsson,
Ásmundur Jóhannsson,
Ólafur Davíð Friðriksson,
Nils Ólafur Egilsson,
Þorvaldur Kári
Vilhjálmsson.
Elsku Sigurður Darri. Leiðir
okkar lágu saman fyrst á ung-
lingsárum þínum í gegnum frá-
bæra fjölskyldu þína sem þú end-
urspeglaðir svo sannarlega
sjálfur. Sambönd þín við alla voru
yfirburðafalleg en það var alltaf
stutt í húmorinn og hnyttin svör
sem þú hefur eflaust fengið frá
föður þínum. Að sama skapi
gleymi ég aldrei töffaranum og
harðjaxlinum með krullurnar nið-
ur á axlir sem ég tengi beint við
móður þína. Þú varst fyrirmynd
fyrir yngri systkini þín og ert fyr-
irmynd fyrir mér, jafnvel þótt þú
værir yngri en ég. Það var svo
frábært að fylgjast með þér vaxa,
dafna og þroskast með hverju
árinu sem leið ásamt því að sjá
þig elta drauma þína og lifa lífinu
eins og þú vildir (sbr. heimsreis-
an, Hiluxinn o.s.frv.). Hvað sem
þú tókst þér fyrir hendur kláraðir
þú það eins og þér einum var lag-
ið, með því að gera eingöngu það
sem þurfti til og eftir þínu höfði.
Ég vildi óska þess að við hefðum
náð fleiri stundum saman á fjöll-
unum og ég mun alltaf hugsa til
þín sérstaklega þar, en það var
svo margt annað sem við áttum
sameiginlegt og því mjög auðvelt
fyrir okkur að tengjast vináttu-
böndum.
Tími okkar var alltof skammur
saman og tími þinn með syni mín-
um og nafna þínum var enn
styttri, en hann mun ávallt fá að
heyra sögur um þig. Tenging
ykkar var og er mér afar mik-
ilvæg, og því mun ég gera allt
sem ég get til að heiðra þig og
minningu þína. Þakklæti kemur
upp í hugann fyrir það að hafa
kynnst þér og djúpur söknuður
tekur við þegar ég kveð þig. Á
sama tíma votta ég fjölskyldu
þinni og vinum mína dýpstu sam-
úð en hvíldu í friði og takk fyrir
allt sem þú gafst okkur!
Jóhann Valur Sævarsson.
Í dag kveð ég vin.
Vin sem ég hef gengið í gegn-
um bróðurpartinn af því sem ég
man eftir af þessu lífi með mér
við hlið.
Það er erfitt að lýsa því hvað
það er sárt að fá ekki að sjá mann
sem ég taldi minn besta vin ekki
verða fullorðinn. Þess vegna er
því mikilvægara að fagna því
hver hann var og hvað við fengum
að upplifa saman í þessu lífi.
Ég er strax byrjaður að sakna
þín og ég veit að sá söknuður
SJÁ SÍÐU 18
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2020
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÚN BRYNHILDUR
BJÖRNSDÓTTIR,
Lækjasmára 2,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 22. janúar.
Útför hennar fór fram í kyrrþey mánudaginn 3. febrúar.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 12G við Hringbraut fyrir
einstaka hjúkrun og nærgætni.
Kolbrún Erla Helgadóttir Luther Carl Almar Hróbjartss.
Eiríkur Hreinn Helgason Stefanía Valgeirsdóttir
Vilborg Helgadóttir Albert Guðmundsson
barnabörn og langömmubörn
Okkar ástkæri
ÁSTÞÓR RUNÓLFSSON,
Þúfuseli 2,
lést sunnudaginn 2. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Ingunn Jóna Óskarsdóttir
Hildur Ástþórsdóttir Jóhann Ólafur Jónsson
Guðmundur Már Ástþórsson Dagný Alda Steinsdóttir
Hlín Ástþórsdóttir Hrafnkell Marinósson
Hulda Ástþórsdóttir Aðalsteinn Guðmannsson
Runólfur Þór Ástþórsson Heiðrún Ólöf Jónsdóttir
Silja Ástþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BÁRA VESTMANN,
Skólabraut 5, Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild LSH 2. febrúar.
Útför verður frá Seltjarnarneskirkju
11. febrúar klukkan 11.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en Báru má minnast
með því að láta svd. Vörðuna njóta, kt. 701193-2379, rnr.
0137-15-630625.
Jónatan Guðjónsson Brynja Blumenstein
Ottó Vestmann Guðjónsson Elín Kolbeins
Valborg G. Guðjónsdóttir Willem C. Verheul
Guðjón S. Guðjónsson Hrefna Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VIÐAR GUÐMUNDSSON
vélvirki,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 26. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hulda Jenný Marteinsdóttir
Sólveig Viðarsdóttir
Guðmundur Skúli Viðarsson Ingunn Bernótusdóttir
barnabörn og barnabarnabörn