Morgunblaðið - 07.02.2020, Blaðsíða 32
Líkt og í Reykjavík verður mikið um
að vera í dag í Kópavogi á Safna-
nótt. Í húsi Bókasafns Kópavogs og
Náttúrufræðistofu Kópavogs verð-
ur dagskrá frá kl. 17 til 23, m.a. fjöl-
skylduspurningakeppni með Sigyn
Blöndal og leiðsögn um nýja sýn-
ingu Náttúrufræðistofu.
Hápunktur Safnanætur er árviss
vörpun á Kópavogskirkju og í ár er
það listakonan ÚaVon sem skapar
verkið sem mun prýða kirkjuna.
ÚaVon varpar verki
sínu á Kópavogskirkju
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 38. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
SA varð í gærkvöld Íslandsmeistari
kvenna í íshokkí í 19. skipti á síð-
ustu 20 árum. SA vann þá afar
sannfærandi 7:1-sigur á Reykjavík
og úrslitaeinvígið í leiðinni örugg-
lega 2:0. Sarah Smiley skoraði þrjú
mörk fyrir SA. Framundan er
heimsmeistarakeppni á Akureyri
þar sem Ísland mætir Ástralíu,
Nýja-Sjálandi, Tyrklandi, Króatíu og
Úkraínu. »27
Íslandsmeistarar í
19. skipti á 20 árum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Listaverkið „Tákn“ eftir Steinunni
Þórarinsdóttur verður lýst upp í
kvöld á Safnanótt og verður við
það tilefni frumflutt kórverk eftir
breska tónskáldið Deborah Pritch-
ard við ljóð Daves Neita. Verkið
nefnist „Trophies of Peace“ eða
„Sigurtákn friðar“. Tíu manna kór,
Cantoque Ensemble, flytur verkið
en stjórnandi hans
er Kristín Vals-
dóttir. Um leið og
flutningur kór-
verksins hefst
verður listaverkið
lýst upp á sér-
stakan hátt
en verkið er
staðsett á
þakbrún
Arnarhvols.
„Sigurtákn friðar“
frumflutt við „Tákn“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Íþróttaaðstaðan í Kórnum í Kópa-
vogi er ein sú glæsilegasta á landinu
og framar öllum vonum átta 12 ára
stráka á Kársnesinu í Kópavogi,
þegar þeir byrjuðu að æfa hand-
bolta undir nafni Handboltafélags
Kópavogs í gamla ÍR-salnum við
Túngötu í Reykjavík fyrir hálfri öld.
„Við ætluðum okkur að verða
stórt og öflugt félag, töluðum strax
um það digurbarkalega og ótrúleg-
ur draumur hefur ræst,“ segir
Magnús Gíslason, einn frumherj-
anna, og vísar til þess að þeir hafi
verið duglegir að minna á sig í fjöl-
miðlum.
Magnús er varaformaður UMSK,
hefur verið viðloðandi HK alla tíð og
var samfellt í stjórn frá 1990 þar til í
fyrra, þegar hann hætti sem vara-
formaður aðalstjórnar. „Við stofn-
uðum púkafélagið heima í stofu, ég
var formaður þess, og við tókum
þátt í fyrsta Íslandsmótinu sem
gestir því félagið var ekki sam-
þykkt. Svo stofnuðum við Hand-
knattleiksfélag Kópavogs eftir ára-
mótin, 26. janúar 1970, í skóla-
stofunni í Kársnesskóla og þá tóku
foreldrar okkar við stjórninni.“
Hann bætir við að blakdeild HK
hafi verið stofnuð árið 1974. „Hún
er ein elsta og fjölmennasta blak-
deild landsins og stofnandinn Albert
N.K. Valdimarsson hefur oft verið
nefndur faðir blaksins á Íslandi.“
Vöxtur og aðstaða
Íþróttafélag Kópavogs var stofn-
að 1976 og gekk inn í HK 1991 með
stofnun knattspyrnudeildar HK.
Sigurjón Sigurðsson var fyrsti for-
maður deildarinnar ásamt því að
vera varaformaður HK. Hann hefur
verið í aðalstjórn félagsins frá þeim
tíma, þar af sem formaður síðan
2006, en fyrir sameininguna var
hann formaður ÍK eftir að hafa
byrjað þar í stjórn 1989. „Þetta er
ótrúlega langur tími en félagsstörfin
eru stór hluti af mér og þau eru
skemmtileg,“ segir hann. Hann
bætir við að störfin hafi breyst enda
sé umfangið allt öðruvísi nú en fyrir
þrjátíu árum. Félagið sé með fram-
kvæmdastjóra, fjármálastjóra og
fleira starfsfólk í störfum sem
stjórnarmenn hafi sinnt áður. „Ég
er ekki lengur á hliðarlínunni.“
Þegar félögin voru stofnuð var
nánast engin íþróttaaðstaða í bæn-
um fyrir utan Vallargerðisvöllinn og
Kópavogsvöllinn. Við sameininguna
hófst mikil uppbygging og nú eru
um 2.000 skráðir iðkendur í fótbolta,
handbolta, blaki, bandí, dansi og
borðtennis í HK. Margt afreksfólk
hefur orðið til í félaginu, það hefur
náð góðum árangri á mörgum svið-
um og framtíðin er björt.
„Mikið framfaraskref var stigið
fyrir um áratug þegar við byrjuðum
að bjóða iðkendum í 1. til 4. bekk
upp á akstur á æfingar í Kórnum og
til baka,“ segir Sigurjón. „Þetta var
ekki síst jákvætt skref fyrir for-
ráðamenn barnanna, sem þurftu
ekki lengur að hafa áhyggjur af því
að skutla börnunum á æfingar á
réttum tíma.“
Ekki fleiri deildir
Sigurður Geirdal bæjarstjóri
lagði línurnar að sameiningu ÍK og
HK og bærinn tók yfir skuldir ÍK.
Uppbygging hófst í Fagralundi og
þegar íþróttaaðstaðan í Kórnum
varð að veruleika flutti HK þangað.
„Við erum að hnýta síðustu lausu
endana í mannvirkjamálunum,“ seg-
ir Sigurjón. Hann bætir við að kröf-
urnar aukist eftir því sem aðstaðan
verði betri en félagsmenn kvarti
ekki. „Við vildum gjarnan geta boð-
ið upp á betri þjónustu með fleiri
íþróttagreinum en við höfum ekki
aðstöðu til að bæta við deildum.
Engu að síður erum við með frá-
bæra íþróttaaðstöðu.“
Strákafélag í Kópa-
vogi varð stórveldi
Ljósmyndir/Marteinn Sigurgeirsson
HK 50 ára Gestir fjölmenntu á afmælishátíðina í Kórnum.
HK hóf æfingar í ÍR-húsinu við Túngötu í Reykjavík fyrir 50 árum
Magnús
Gíslason
Sigurjón
Sigurðsson