Morgunblaðið - 08.02.2020, Qupperneq 11
Ritinn í bátunum útbýr siglinga-
og ferilskrá í rauntíma fyrir hvern
skipstjóra og bát og er líka ör-
yggisstjórnunar- og atvikaskrán-
ingakerfi. Meðal annars er skráð
hvernig bátnum var siglt, á hvaða
hraða og hvernig sjólagið er og
hvort farið var eftir ráðlögðum há-
markshraða.
Þessum upplýsingum er líka
streymt upp í ský þar sem flota-
stjórar, eigendur og aðrir geta haft
aðgang að þessum upplýsingum. Á
aðgangsstýrðri stjórnendasíðu
Hefring Marine kerfisins er hægt
að skoða gögn og skýrslur fyrir
hverja siglingu og fylgjast með í
rauntíma,“ segir Karl Birgir og
tekur undir að að hluta til geti ver-
ið um „svarta kassa“ eins og í flug-
vélum að ræða.
Viðræður við erlenda aðila
Nú er prófunum að ljúka, kerfið
tilbúið og fram undan er að kynna
og selja afurðina. Í næstu viku
verður Hefring Marine kynnt fyrir
stórum bátaframleiðanda í Hol-
landi, „sem hefur einbeittan áhuga
á að setja kerfið um borð í báta
sem verið er að smíða fyrir strand-
gæslu ríkis í Evrópu“ og þar gætu
einhverjir tugir báta verið undir en
þar er m.a. horft til ESB-reglu-
gerðar sem meðal annars kveður á
um hámark titrings og högg við
vinnu sem sjófarendur mega verða
fyrir.
Þá eru fram undan samtöl og
samningaviðræður við einn stærsta
bátaframleiðanda í Skandinavíu. Sá
er að smíða leitar- og björgunar-
báta fyrir tvö björgunarfélög og
strand- og löggæsluaðila í Evrópu.
Þar gætu menn verið að tala um
aðra 30 báta í þessari umferð.
Í næstu viku er einnig á dagskrá
að taka þátt í vinnustofu eða hraðli
fyrir sprotafyrirtæki í haftengdri
starfsemi sem fram fer í Hollandi.
Þar keppir Hefring við 40 fyrirtæki
alls staðar að úr heiminum og þar
gætu opnast tenging á samskiptum
við framleiðendur báta og snekkja.
Sömuleiðis óskaði fyrirtæki sem
tengist Lloyd’s-tryggingafyrirtæk-
inu eftir að Hefring sækti um þátt-
töku í hraðli á vegum Lloyd’s. Þar
var metið að nýja kerfið gæti
gagnast í tryggingamálum.
Þá má nefna að Hefring Marine-
kerfið verður kynnt á ráðstefnu
sem fagráð siglinga stendur fyrir
um öryggismál sjófarenda 19 mars.
Tekið á stóru vandamáli
Björn segir að verkefni Hefring
sé gott dæmi um íslenska nýsköp-
un, sem taki á alvarlegu og stóru
vandamáli á heimsvísu. „Samstarf
og stuðningur hér heima hefur gert
okkur kleift að klára þróunina og
gefa okkur byr í seglin til að hefja
kynningu erlendis. Þá er Ísland,
eins og í okkar tilviki, líka mjög
góður markaður til að prófa nýj-
ungar í hafsækinni starfsemi,“
segir Björn.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
ÚTSÖLU-
SPRENGJA
LOKSINS ÚTSÖLUVEÐUR
SEINASTA
ÚTSÖLU-
VIKA
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Opið 11-15 í dag
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
ALGJÖRT
VERÐHRUN
Á ÚTSÖLUNNI
Str. 36-52
Útsölubuxur
kr. 3900.-
Aðeins 5 verð
2000.-
3000.-
4000.-
5000.-
6000.-
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Fundur verður haldinn til að kynna ferðir ársins
2020 á Gullhömrum (í Grafaholti), við Vínlands-
leið, Þjóðhildarstíg 2, 113 Reykjavík.
Miðvikudaginn 12 . febrúar 2020 kl. 19:30.
Kaffiveitingar, verð kr. 3.200.
Upplýsingar um ferðir ársins 2020 er hægt að
finna á http://orlofrvk.123.is. Hægt er að
nálgast upplýsingar og bækling á skrifstofunni
að Hverfisgötu 69, á mánudögum, þriðjudögum
ogmiðvikudögum, milli klukkan 16:00 og 17:30,
í mars og apríl 2020 og í síma 551-2617/
864-2617 á sama tíma.
„Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili
forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf,
á rétt á að sækja um orlof.“
Nefndin
Aukaaðalfundur
Búmanna hsf.
Aukaaðalfundur Búmanna hsf. verður haldinn á
Grand Hótel við Sigtún 38 í Reykjavík í fundarsalnum
Hvammi, þriðjudaginn 3. mars 2020 og hefst kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
2. Tillögur stjórnar Búmanna hsf. um breytingar á
samþykktum Búmanna hsf.
3. Önnur mál
Tillögur að breytingum á samþykktum Búmanna hsf.
hafa verið birtar á heimasíðu Búmanna,
www.bumenn.is. Einnig er hægt að nálgast tillögur
að breyttum samþykktum á skrifstofu Búmanna að
Lágmúla 7, 5. hæð, Reykjavík.
Stjórn Búmanna hsf.
Auglýsing – Fiskislóð 41
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með lóðina Fiskislóð 41 í Reykjavík lausa til umsóknar
samkvæmt almennum skilmálum Faxaflóahafna sf. um lóðaúthlutun og lóðagjöld.
Lóðin er 5.127 m2 og hámarkshæð er allt að 14 metrar á hluta lóðarinnar. Landnotkun á
lóðinni er skilgreind sem hafsækin þjónusta, verslun, þjónusta og fínlegri atvinnustarfsemi.
Greiða skal lóðagjald fyrir lóðina miðað við nýtingarhlutfallið 0,5 eða 0,6 með millipöllum.
Deiliskipulagi lóðarinnar var nýverið breytt þannig að nú er heimilt að byggja samkvæmt
nýtingarhlutfallinu 1. Greiða þarf viðbótargatnagerðargjald, samkvæmt gjaldskrá
Reykjavíkurborgar, fyrir fermetra umfram nýtingarhlutfallið 0,5 eða 0,6 með millipöllum.
Umsóknum skal skilað til skipulagsfulltrúa
Faxaflóahafna (hildur@faxi.is) sem veitir
einnig frekari upplýsingar um lóðina.
Umsóknum skal skilað fyrir fimmtudaginn 20.
febrúar n.k. ásamt greinargóðri lýsingu á
fyrirhugaðri nýtingu lóðarinnar, fyrirhugaðar
framkvæmdir og fjármögnun. Við úthlutun
lóðarinnar verður horft til framangreindra
þátta.
Skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna sf.
Við lokaprófanir á Hefring Marine-
búnaðinum síðustu vikur hefur
fyrirtækið átt í góðu samstarfi við
Landhelgisgæsluna og Landsbjörg,
sem þeir Karl Birgir og Björn segja
ómetanlegt. Kerfið hefur einnig
verið prófað um borð í fiskibátum.
„Starfsmönnum og stjórnendum
Landhelgisgæslunnar verður seint
fullþakkað fyrir að styðja við bakið
á sprotafyrirtæki eins og okkar,“
segir Björn. „Svo dæmi sé tekið
þá held ég að það sé ekki sjálf-
gefið að sprotafyrirtæki í Þýska-
landi geti bankað upp á hjá
strandgæslunni þar í landi og
fengið hana til að taka þátt í
svona prófunum.
Í þessu felast mikil verðmæti
fyrir okkur og nýsköpun yfir
höfuð,“ segir Björn.
Stutt við bakið á sprotafyrirtæki
GOTT SAMSTARF VIÐ LANDHELGISGÆSLUNA OG LANDSBJÖRG
Gott samstarf Björn Jónsson útskýrir kerfið fyrir skipverjum á varðskipinu Tý.