Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.02.2020, Blaðsíða 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020 Náttúran ræður för er titill ljós- myndasýningar sem opnuð hefur verið í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Á henni má sjá verk eftir Zuzönnu Szarek sem er pólsk- ur myndlistarmaður, ljósmyndari og kvikmyndahandritahöfundur en hún hlaut doktorsgráðu og útskrif- aðist með láði frá sjónlistadeild Myndlistarháskólans í Varsjá og hefur einnig kennsluréttindi. Árið 2016 hóf Szarek að vinna að ljós- myndaröðinni, sem nú má sjá í Skotinu, á hringferð sinni um Ís- land og einblíndi hún á ákveðnar breytingar í umhverfinu og áhrif fólks á draumkennt landslagið sem fyrir augu hennar bar. Á Íslandi Ein ljósmynda Zuzönnu Szarek. Ljósmyndir frá hringferð Szarek ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is  Rás 2  FBL BAFTA VERÐLAUN7 m.a.BESTA MYNDIN BESTI LEIKSTJÓRINN SAM MENDES ÓSKARS TILNEFNINGAR11 6 ÓSKARSTILNEFNINGAR SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD Tónleikar verða haldnir í salnum Hömrum í Hofi á Akureyri á morgun, sunnu- dag, kl. 17 og er yfirskrift þeirra Það þarf alltaf smá klassík. Á þeim koma fram tvær ungar sópransöngkonur að norðan, þær Jónína Björt Gunnarsdóttir og Silja Garðarsdóttir, með píanóleikaran- um Daníel Þorsteinssyni og flytja íslenskar söngperlur, íslenskar og erlendar aríur, lög úr söngleikjum og verk eftir tónskáld frá Norður- landi. Það þarf alltaf smá klassík í Hofi Silja Garðarsdóttir Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þetta hefur verið brjálað,“ segir Hildur Guðnadóttir og hlær þegar spurt er út í ferðalagið síðustu vikur, frá einni verðlaunahátíðinni á aðra þar sem tónlist hennar við kvik- myndina Joker og sjónvarpsþættina Chernobyl hefur verið tilnefnd til ýmissa verðlauna. Hildur hefur þeg- ar hreppt tíu verðlaun fyrir þessi verkefni og er nú komin til Los Ang- eles þar sem þau allra þekktustu, Óskarsverðlaunin, verða afhent ann- að kvöld. Og sérfræðingar segja hana afar sigurstranglega fyrir tón- listina í Joker. Þegar Hildur er spurð að því hvernig tilfinning það sé að hafa heila þjóð á eyju norður í Atlantshafi sem fylgist spennt með hverju henn- ar fótspori á þessu flandri, þá segist hún hafa fundið mikið fyrir því og finnist fallegt hvernig allir heima séu með henni í liði. „Það er yndislegt að finna hvað fólk heima er spennt og fylgist vel með. Ég finn fyrir allri þeirri jákvæðu orku sem fólk sendir mér og það er mjög þægilegt.“ Varðandi hamaganginn á þessari verðlaunaafhendingavertíð, þar sem hún hefur flogið stórborga á milli, ítrekar Hildur að það hafi verið mik- ið brjálæði. „Og þetta gerist allt svo hratt því Óskarinn er óvenju snemma í ár og enginn vill vera með sín verðlaun á eftir Óskarnum. Það hefur verið algjör rússíbani að fara á milli staða og ná að mæta á allt.“ – Hefurðu þá nokkuð náð að semja eða vinna að öðrum verkum? „Þetta hefur eiginlega verið full vinna! Ég náði að semja svolítið áður en þetta byrjaði allt, eitt lítið kammerverk sem var frumflutt í þarsíðustu viku í New York og svo gerði ég eina insetningu með Ólafi Elíassyni sem var opnuð í janúar. Ég hef lítið getað einbeitt mér. Það hef- ur verið frekar mikill hávaði!“ Tónlistin undir húðina Jókerinn er áhrifamikil kvikmynd en líka umdeild. Hildur segist hafa komið óvenju snemma að verkinu. „Leikstjórinn, Todd Philips, er undir miklum áhrifum frá tónlist og hún skiptir hann miklu máli í kvik- myndaferlinu,“ segir Hildur. „Hann hafði samt aldrei unnið þetta náið með tónskáldi en var viss um að hann vildi fara aðra leið en venju- lega. Hann spurði því hvort ég væri til í að semja tónlist út frá tilfinn- ingum mínum strax við lestur á handritinu. Það var ótrúlega spenn- andi að geta byrjað svona snemma og vera hluti af fyrstu frumeining- unum að myndinni. Yfirleitt kemur tónlist frekar seint inn, svo það var frábært að fá að vera hluti af öllu ferlinu og hafa áhrif á tempóið í myndinni og uppbygginguna. Og hafa áhrif á tilfinningarnar í henni frá upphafi. Einn af kostunum við að vinna svona var að hægt var að nota tón- listina strax við upptökurnar og hún gat haft áhrif á hreyfingar leikar- anna, á stemninguna í því sem aðal- leikarinn Joaquin Phoenix var að gera, og á kvikmyndatökuna. Tón- listin hafði áhrif á alla á settinu og er djúpt inni í frumeindunum.“ Leikstjórinn hefur lýst því fallega hvers konar áhrif það hafði á Phoenix við upptökur á lykilatriði í kvikmyndinni, þar sem eðli Jókers- ins er að brjótast fram, að leika strax þá fyrir hann tónlist Hildar. „Það er svo fallegt við tónlist hvernig hún getur náð á aðra staði en orð, hún fer undir húðina,“ segir Hildur um dans leikarans við tónlist hennar. „Það er fallegt að sjá hann í stað þess að nota díalóg bregðast líkamlega við því sem tónlistin kallar fram.“ Tók eitt og hálft ár Hildur er margreyndur sellóleik- ari og sellóið er í stóru hlutverki í Joker. Samdi hún á sellóið? „Nei, ég reyni að hafa vinnuferlið breytilegt. En eitt af fáu sem Todd sagði við mig í upphafi var að hann væri spenntur fyrir sellói í aðal- hlutverki. Annars var hann forvitinn að heyra hvað ég kæmi með.“ –Tónlist kvikmyndarinar er mikið á lágu nótunum, með dimmum hljóð- færum, sellóinu og drunum úr hin- um nýja íslenska dórófón. Þetta neðra svið tónaflóðsins fær tilfinn- ingasviðið líka til að víbra. „Algjörlega. Það er svo magískt svæði,“ segir Hildur og bætir við að þegar hún byrjaði að lesa handritið hafi henni þótt rödd aðalpersón- unnar liggja á því dimma tónsviði. En hvað tók þetta ferli með tónlist- ina við kvikmyndina langan tíma? „Þetta var hátt í eitt og hálft ár, frá byrjun til enda. Þegar maður kemur svona snemma inn í ferlið er það skuldbinding til langs tíma. Það tekur rosalegan tíma að gera svona bíómynd. Ætli ég hafi ekki verið hvað lengst af öllum listamönnunum að vinna að þessu.“ Samtímis vann Hildur að tónlist- inni og hljóðheiminum fyrir sjón- varpsþættina Chernobyl. „Þegar maður vinnur að kvik- mynd í svona langan tíma hefur maður rýmri tíma frá degi til dags til að gera annað líka. En þetta var frekar mikil vinna í þó nokkra mán- uði! Og það náðist…“ Hefur náð að sanna sig Sömu karlanöfnin koma aftur og aftur fyrir á listum yfir helstu kvik- myndatónskáldin. En er hún ekki núna komin í klúbbinn? „Jú, mér sýnist það,“ svarar hún glaðlega. „Ég hef fundið alveg rosa- lega mikinn stuðning og jákvæðni í minn garð.“ En hún segir súrreal- ískt hversu fáar konur hafi samið tónlist fyrir helstu kvikmyndir. „Það er sérstaklega flókið við þessar stóru Hollywood-myndir hvað pressan er mikil, og rosalegt stress sem fylgir þessum heimi. Stúdíóin eru frekar rög við að taka áhættu með tónskáldin, hafa viljað taka mjög öruggar ákvarðanir og velja tónskáld sem þau eru viss um að ráði við verkin. Þess vegna sjáum við sömu nöfnin aftur og aftur. En ég finn fyrir mikilli breytingu núna, maður þarf bara að komast með annan fótinn inn til að sanna að mað- ur geti ráðið við þetta – og á síðustu árum hafa stúdíóin séð að ég geri það. Þar af leiðandi hafa þau gefið mér tækifæri á stærri og stærri verkefnum, sem er frábært.“ Lengri útgáfu af viðtalinu við Hildi Guðnadóttur má lesa á mbl.is Tónlist nær á aðra staði en orð  Þegar líður að afhendingu Óskarsverðlauna finnst Hildi Guðnadóttur fallegt hvernig fólk heima á Íslandi er með henni í liði  „Þetta hefur verið brjálað“ AFP Verðlaunasafn Hildur Guðnadóttir tók á dögunum við Grammy-verð- launum. Margir spá því að Óskarsverðlaun bætist við á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.