Morgunblaðið - 08.02.2020, Side 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 2020
✝ GuðfinnaHrefna, Guffý,
fæddist 12. janúar
1955 í Reykjavík.
Hún andaðist á
heimili sínu 28.
janúar 2020.
Hún var dóttir
hjónanna Arnórs
Kristjáns Diego
Hjálmarssonar, f.
30. mars 1922 í
Reykjavík, d. 25.
mars 1983 í Reykjavík, yf-
irflugumferðarstjóra og Guð-
finnu Vilhjálmsdóttir, f. 2. sept-
ember 1917, Hálsi á Ingjalds-
sandi, d. 31. desember 1998 í
Reykjavík.
Systkini sammæðra:
Brynhildur Kristinsdóttir, f.
25. júlí 1935. Selma Kristins-
dóttir, f. 9. júní 1938. Vilma
Mar, f. 21. desember 1940.
Alsystkini:
Hjálmar Diego Arnórsson, f.
26. nóvember 1942. Halldóra
Friðgerður Arnórsdótir, f. 22.
maí 1944. Hörður Diego Arn-
órsson, f. 24. mars 1946. Jó-
hann Pétur Diego Arnórsson, f.
13. desember 1949. Alma Diego
Arnórsdóttir, f. 9. ágúst 1953.
Guffý ólst upp í Hæðargarði
september 2012. Fyrir átti Her-
mann Ísabellu Dís, f. 17. maí
2005 (barnsmóðir Vigdís Krist-
jánsdóttir).
3. Kjartan Jóhannes Karvels-
son, f. 17. febrúar 1987 í Stykk-
ishólmi. Maki Ólöf Inga Stef-
ánsdóttir. Börn þeirra: Stefán
Karvel, f. 9. febrúar 2009,
Kristján Þorri, f. 30. október
2012, og Víkingur Kári, f. 2.
nóvember 2016.
4. Ívar Sindri Karvelsson, f.
26. apríl 1992 í Stykkishólmi.
Maki Jóhanna Kristín Sigurð-
ardóttir.
Guffý flutti til Stykkishólms
1974 og hófu þau Karvel bú-
skap í Tanganum. 1978 fluttu
þau til Fáskrúðsfjarðar og
bjuggu þar í þrjú ár. 1982
fluttu þau aftur í Stykkishólm
og hafa búið þar síðan.
Guffý sinnti skrifstofustörf-
um og sl. 20 ár sem gjaldkeri á
Sýsluskrifstofu Snæfellinga/
Vesturlands. Hún starfaði að
æskulýðsmálum, m.a. við fé-
lagsmiðstöð unglinga í Stykk-
ishólmi, X-ið.
Guffý tók virkan þátt í fé-
lagsmálum JC, Lionessuklúbb,
Kvenfélaginu, leikfélaginu og
Umf. Snæfelli m.m. Hún tók
einnig virkan þátt í sveitar-
stjórnarmálum og gegndi þar
ýmsum trúnaðar- og nefnd-
arstörfum í gegnum tíðina.
Útför Guffýjar fer fram frá
Stykkishólmskirkju í dag, 8.
febrúar 2020, klukkan 14.
44, Reykjavík. Árið
1972-73 var hún í
húsmæðraskólan-
um á Staðarfelli í
Dölum. Þar kynn-
ist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum
Karvel Hólm
Jóhannessyni. Þau
gengu í hjónaband
29. mars 1975.
Synir þeirra:
1. Guðlaugur
Ari, f. 24. nóvember 1973 í
Reykjavík, eiginkona hans er
Þórunn Inga Gísladóttir og
eiga þau dótturina Rósu Reg-
ínu, f. 20. nóvember 2018. Fyrir
átti Guðlaugur Ari Jóhannes
Karvel, f. 16. febrúar 1997
(barnsmóðir Erla Arnórsdóttir)
barn Jóhannesar: Kian Jóhann-
esson, f. 20. apríl 2017 (barns-
móðir Amanda Schleffler). Þór-
unn á fyrir dæturnar Ingi-
björgu Ramos, f. 6. mars 2003,
og Maríu Ramos, f. 21. febrúar
1998.
2. Hermann Kristinn Kar-
velsson, f. 1. október 1981 í
Stykkishólmi. Maki Kristín Þor-
björg Sverrisdóttir, synir
þeirra tvíburarnir Marinó
Smári og Sverrir Máni, f. 26.
Það var mikil tilhlökkun og
gleði að fara með litla þriggja
mánaða stelpu að heimsækja afa
og ömmu í Hólminn í fyrsta sinn.
Amma tók brosandi á móti okkur
í dyrunum, búin að taka fram
barnateppi og breiða á rúmið
fyrir litlu stelpuna. Næst voru
það páskarnir, svo sumarið og nú
síðast jólin. Amma fór á jólaball
og dansaði glöð í kringum jóla-
tréð hvern hringinn á fætur öðr-
um með litlu eins árs prinsess-
una sína í fanginu. Þessar
minningar eru svo dýrmætar í
dag og þær munu ylja okkur um
hjartarætur um ókomna tíð. Með
innilegri þökk kveð ég tengda-
móður mína. Þökk fyrir að hafa
tekið svo einstaklega vel á móti
mér og dætrum mínum.
Þórunn Inga Gísladóttir.
Elsku Guffý frænka.
Ekki grunaði mig að ég væri
að kveðja þig í síðasta sinn þegar
við hittumst á sunnudagsmorgni
í „brunch“ hjá foreldrum mínum
rúmum sólarhring fyrir andlát
þitt. Óneitanlega vorum við
minnt á hverfulleika lífsins og að
samferðafólk er ekki sjálfgefið.
Ég minnist þín sem mikils
gleðigjafa með svo smitandi hlát-
ur að þegar þú byrjaðir að hlæja
þá hlógu allir með þér.
Ég á margar minningar frá
dvöl minni í Stykkishólmi hjá
ykkur Kalla sumarið 1975 þegar
ég var níu ára og þú lést mér líða
eins og ég væri að gera þér mik-
inn greiða með því að vera
barnapía hjá ykkur Kalla. Ég
öðlaðist hjá ykkur sjálfstraust
sem varð til þess að sumarið eftir
var ég orðin kaupakona í sveit
hjá vandalausum við að passa
börn.
Ég man eftir öllu KÁ-súkku-
laðinu sem þú bjóst til sumarið
góða og hvað okkur báðum þótti
það gott.
Ég man að mér fannst þú frá-
bær frænka sem leyfði mér að
gera hluti sem ég vissi að for-
eldrar mínir hefðu ekki leyft.
Ég minnist þín sem svo „cool“
frænku sem var svo mikill stuðn-
ingsmaður Snæfells í körfunni.
Ég á eftir að sakna athuga-
semda þinna á FB sem voru oft
dásamlega skemmtilegar.
Ég á eftir að sakna persónu-
legu jólakortanna frá þér, þar
sem hver millimetri á kortinu var
nýttur til skrifa.
Takk fyrir að vera þú, alltaf.
Ég veit að í sumarlandinu eru
margir sem taka á móti þér. Við
hittumst þar og hlæjum þegar ég
kem.
Ég bið algóðan guð að umvefja
Kalla, Ara, Hermann, Kjartan,
Ívar og fjölskyldur á erfiðum
stundum.
Aðalheiður.
Elsku Guffý frænka.
Það er sárara en tárum tekur
að missa þig á þínum besta aldri,
þú sem áttir eftir að gera svo
margt, ég trúi því ekki að ég sjái
þig ekki meir. Ég ólst upp með
annan fótinn inni á þínu heimili,
stelpan í strákahópnum þínum,
það var alltaf svo notalegt að
koma til þín í kaffi þegar ég kom
vestur, við spjölluðum um allt
milli himins og jarðar. Alltaf leit-
aði ég eftir þér þar sem einhver
samkoma var því mér þótti alltaf
svo vænt um að hitta á þig þótt
það væri mislengi í hvert sinn.
Þú varst svo hjartahlý og hlát-
urmild og það lifnaði yfir öllum í
návist þinni.
Þeir segja þig látna, þú lifir samt
og í ljósinu færð þú að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið þú þurftir að kveðja.
Í sorg og í gleði þú senda munt ljós,
sem að mun okkur gleðja.
(Guðmundur Ingi Guðmundsson)
Elsku Guffý, þín verður sárt
saknað, þú munt alltaf eiga stað í
hjarta mínu og minning þín lifir.
Hvíl í friði, elsku frænka.
Elsku Karvel, Ari, Hermann,
Kjartan, Ívar, tengdadætur,
barnabörn og barnabarnabarn,
ég sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur og vona að guð
gefi ykkur styrk í gegnum sorg-
ina og söknuðinn.
Hugur minn er hjá ykkur.
Kolbrún Diego
Halldórsdóttir.
Mig langar að minnast elsku-
legrar mágkonu minnar og vin-
konu, Guðfinnu Hrefnu Arnórs-
dóttur, eða Guffýjar eins og hún
var alltaf kölluð.
Aldrei hefði mig grunað að
komið væri að kveðjustund því
einungis rúmum sólarhring áður
en hún lést kvöddum við þau
hjón, Guffý og Karvel að morgni
sunnudags eftir að hafa átt með
þeim yndislega samveru kvöld-
inu áður í hinu árlega þorrablóti
systkinanna ásamt mökum.
Eins og svo oft áður gistu þau
hjón hjá okkur Hjálmari hér í
Reykjavík, því Guffý og Karvel
höfðu búið í Stykkishólmi í tæp
50 ár. Ekkert benti til að komið
væri að kveðjustund og Guffý
eins og venjulega hrókur alls
fagnaðar. Þarna nutum við þess
að vera saman þar sem mikið var
borðað spjallað og hlegið langt
fram á nótt.
Það er einhvern veginn svo
óraunverulegt að trúa því að hún
þessi fjörkálfur og hvers manns
hugljúfi sé farin, horfin á braut
frá manninum sínum og strákun-
um sínum fjórum, tengdadætr-
um og barnabörnum.
Ég kynntist Guffý þegar þeg-
ar ég kom inn í Hæðargarðsfjöl-
skylduna en þá var hún bara 10
ára stelpa. Strax þá varð mér
ljóst hversu mikil gleði og kraft-
ur var í henni. Mér er minnis-
stætt að eitt sinn hringdi kenn-
arinn í móður hennar og kvartaði
yfir því að það væri ekki friður í
kennslustofunni svona snemma
morguns þar sem Guffý væri
bara með stöðugan galsagang.
Þá svaraði móðir hennar að það
væri alveg á hreinu að Guffý
væri sko vöknuð þegar hún kæmi
í skólann.
Guffý hafði ótrúlega smitandi
hlátur og gat séð spaugilegar
hliðar á ýmsu sem aðrir sáu ekki.
Ógleymanlegar eru allar bíóferð-
irnar okkar saman á okkar yngri
árum, þar hló hún svo smitandi
hlátri að allir voru farnir að
hlæja með henni.
Örlögin réðu því hvernig
Guffý fann Karvel sinn. Eftir
gagnfræðapróf fór Guffý á hús-
mæðraskólann á Staðarfelli í
Dölunum. Líkaði henni vel í skól-
anum. Einhverju sinni var haldið
ball og komu nokkrir strákar frá
Stykkishólmi til að skemmta sér
og kíkja á stelpurnar. Þar hitti
Guffý Karvel manninn sinn og
hafa þau verið saman síðan.
Guffý undi hag sínum vel í
Stykkishólmi og þó að hún væri
fædd og uppalin í Reykjavík,
langaði hana aldrei að flytja aft-
ur til Reykjavíkur. Það var ekki
tiltökumál fyrir Guffý að skjótast
á milli Reykjavíkur og Stykkis-
hólms og voru það ófáar ferð-
irnar sem hún fór ef þurfti að er-
indast í höfuðstaðnum, eins og að
fara til læknis eða passa barna-
börnin. Aldrei bar skugga á vin-
áttu okkar og reyndi hún alltaf
að koma við hjá okkur Hjálmari
ef hún var ekki í tímaþröng.
Þessara heimsókna á ég eftir að
sakna óendanlega.
Guffý var yngst af níu systk-
inum og var nýorðin 65 ára.
Við Hjálmar þökkum fyrir all-
ar samverustundirnar. Alltaf var
tekið svo vel á móti manni og oft
á tíðum komum við með gesti
með okkur og stundum erlenda
gesti sem þau höfðu aldrei séð.
Þá var bara tekið á móti öllum og
boðið að borða eins og þeir væru
fjölskyldumeðlimir.
Elsku Karvel, Ari, Hermann,
Kjartan og Ívar. Við sendum
ykkur okkar innilegustu samúð-
arkveðjur. Guffýjar verður sárt
saknað af öllum sem þekktu
hana.
Elsku Guffý hvíl í friði.
Þín mágkona,
Anna.
Elsku Guffý mín. Mikið sem
ég vildi að það væri ekki komið
að þessari kveðjustund. Við höf-
um unnið saman síðan 1996, fyrst
á hótelinu og 3 árum síðar á
sýsló. Það er skrítið að því sé
svona skyndilega lokið eftir öll
þessi ár. Kveðjan var stutt á
mánudegi, einfaldlega; sjáumst á
morgun, og þannig átti það svo
sannarlega að vera.
Ég hef hugsað um margt síð-
ustu daga og bæði grátið og hleg-
ið. Hlegið að því sem oft gekk á
og því sem gaman var að. Við
gátum rætt Leiðarljós þættina
heilu kaffitímana, en samstarfs-
fólkinu okkar fannst það minna
gaman. Hlegið að því að við fór-
um bara í alvöru á lakkrís festi-
val til Svíþjóðar! Sú ferð gleym-
ist aldrei. Ég mun líka sakna
þess að færa þér segul úr útlönd-
um, heyra hláturinn gella um allt
hús þegar þú fékkst eitthvað
fyndið í tölvupósti og syngja af-
mælissönginn hástöfum þegar
einhver átti afmæli. Þú mættir
alltaf í grímubúning á öskudag-
inn alveg sama hvort þú værir
ein um það eða fleiri með þér, ég
mun sakna þess. Ég mun líka
sakna þín í haust þegar næsta
stórafmæli mitt brestur á. Þú
varst sko í essinu þínu í kringum
svoleiðis viðburði. Mannlegi þátt-
urinn, hann lék í þínum höndum.
Ég mun bara sakna þín hell-
ing því þú varst svo stór karakt-
er að það er mikill missir að þér.
Leiðir okkar lágu einnig sam-
an á fleiri stöðum en í vinnunni.
Við héldum danska daga saman,
þá stærstu sem haldnir hafa ver-
ið og sátum ávallt á sama stað á
leikjum hjá Snæfelli. Það var
auðvelt til þín að leita og þú varst
alltaf til, ef einhverjum datt eitt-
hvað í hug. Mest gaman hafðir
þú af því þegar við settum upp
okkar litlu skemmtanir, míní
þorrablót, fórum á happy hour
og eitthvað slíkt og þó að aldurs-
munur á okkur væri töluverður
þá var hann aldrei að finna.
65 ár eru ekki hár aldur. Þú
hefðir haft svo gaman af „rest-
inni“ með honum Kalla þínum,
strákunum og öllum barnabörn-
unum sem þú elskaðir svo mikið.
En það var ekki í kortunum þín-
um og snögglega ertu bara farin.
Karvel og fjölskylda, ykkar
missir er mikill og sár, ég votta
ykkur mína dýpstu samúð, sem
og öllum stóra vinahópnum og
félögum því missirinn er margra.
Saknaðarkveðjur,
Þín vinkona
Berglind Lilja.
Farðu í friði vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Elsku Guffý, takk fyrir að
taka mig í þinn stóra faðm. Ég
var farin að hlakka til að verða
ellismellur með þér í Stykkis-
hólmi, nú ert þú farin en ég
geymi gamlar minningar.
Elsku Karvel og fjölskylda,
Guð veiti ykkur styrk á þessum
erfiðu tímum.
Kveðja,
Sigrún Jóhannsdóttir.
Guffý hóf störf hjá Sýslu-
manni Snæfellinga árið 1996.
Hún starfaði þar sem gjaldkeri
allt til síðasta dags. Hennar starf
fólst að miklu leyti í samskiptum
við viðskiptavini sem henni fór
vel úr hendi.
Hún var hress og reffileg í
síma og persónu og lék oft á als-
oddi við afgreiðslu. Sérstaklega
hafði hún gaman að því ef börn
komu að sækja um vegabréf þar
sem hún gat dúllast í þeim og lát-
ið þau hlæja.
Guffý var allra manna dugleg-
ust að huga að mannlega þætti
starfsmanna, með alls kyns
uppákomum og skemmtilegheit-
um. Það er alveg staðreynd að
við fundum fyrir þögninni þegar
Guffý var í fríi frá vinnu og mikið
sem það er skrítið að nú komi
skellirnir og lætin ekki aftur.
Guffý skilur eftir sig stórt skarð,
eins og eðlilegt er þegar stórir og
sterkir karakterar kveðja. Við
þökkum samfylgdina í leik og
starfi, Minning þín mun lifa með
okkur.
Við vottum Karvel og allri fjöl-
skyldunni okkar innilegustu
samúð á þessum erfiðu tímum.
Fyrir hönd samstarfsfólks á
sýsló,
Hulda og Berglind.
Guðfinna Hrefna
Arnórsdóttir
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÓSKAR GABRÍELLU
BERGÞÓRSDÓTTUR,
Reynigrund 44, Akranesi.
Óli Jón Gunnarsson
Bergþór Ólason
Jóhann Gunnar Ólason Kolbrún Þóroddsdóttir
Rúnar Ólason María Rahko
Lotta Ósk Bergþórsdóttir Flume
Erik Óli Jóhannsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
HELGI MAGNÚS SIGVALDASON,
Hlíðarvegi 38, Reykjanesbæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 22. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landspítalans við Hringbraut,
deild 11E, fyrir frábæra umönnun.
Sigrún Helgadóttir
Hugrún Helgadóttir Adam Ásgeir Óskarsson
Guðrún Helgadóttir
Svava Helgadóttir
Helgi Helgason
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VIÐAR GUÐMUNDSSON
vélvirki,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 26. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hulda Jenný Marteinsdóttir
Sólveig Viðarsdóttir
Guðmundur Skúli Viðarsson Ingunn Bernótusdóttir
Helga Matthildur Viðarsd.
barnabörn og barnabarnabörn