Morgunblaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 Dolorin Hita- og verkjastillandi paracetamól Á HAGSTÆÐUVERÐI! Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220 Hafnarfjörður | www.wh.is Lesiðvandlegaupplýsingarnaráumbúðumogfylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til lækniseða lyfjafræðingsséþörfá frekari upplýsingumumáhættuogaukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is Nýjar umbúðir Dolorin500mg paracetamól töflur - 20stkog30stk Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Bíðum ekki eftir að verði keyrt á annað barn,“ sagði einn fundargesta á íbúafundi sem efnt var til í Gler- árskóla fyrir íbúa í Hlíða- og Holtahverfi á Akureyri í gærkvöld. Tilefnið er að ekið var á barn á Hörgárbraut fyrir skömmu og er það annað barnið á einu og hálfu ári sem orðið hefur fyrir bíl á götunni. Fjölmörg slys hafa orðið á stuttum kafla á Hörgárbraut, árekstrar og aftan- ákeyrslur með tilheyrandi tjóni. Þykir mörgum nóg kom- ið og því var ákveðið að heyra hljóðið í íbúum og hvað þeir vilja aðhafast í framhaldinu. Skiptar skoðanir eru um bestu lausnir, sumir telja far- sælast að fara þá leið að lækka umferðarhraða með þrengingum og öðrum leiðum en aðrir telja ómögulegt að hefta það mikla umferðarflæði sem um brautina er. Um það bil 12 þúsund bílar fara um Hörgárbraut daglega. Á fundinum var nefnt að í gildi sé deiliskipulag frá því í júní árið 2010 sem geri ráð fyrir að undirgöng séu gerð á neðsta hluta Hörgárbrautar og kemur fram í því að með tilkomu þess muni umferðaröryggi aukast til muna. Þótt liðin séu tæp 10 ár frá því skipulagið var samþykkt hafi þó ekki neitt gerst í málinu og undirgöngin hafi ekki litið dagsins ljós. Íbúar vilja margir hverjir dusta rykið af hugmyndinni um undirgöng. Samþykkt var áskorun á bæjaryfirvöld og Vegagerð- ina að grípa til tafarlausra aðgerða til að auka öryggi vegfarenda á þjóðvegi 1 um Hörgárbraut. maggath61@simnet.is Krefjast aðgerða tafarlaust Morgunblaðið/ Margrét Þóra Fundur Ýmsar leiðir voru ræddar til að auka öryggi.  Íbúafundur um slysahættu á Hörgárbraut í gærkvöldi Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Miklar umræður urðu um málefni braggans við Nauthólsvík á borgar- stjórnarfundi í gærkvöldi. Reglur voru brotnar, tölvupóstum var eytt og gögn ekki skráð. Þetta sagði Vig- dís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Mið- flokksins, að komi fram í nýrri skýrslu Borgarskjalasafns um frum- kvæðisathugun á skjalastjórn skrif- stofu eigna- og atvinnuþróunar í tengslum við braggann. Vigdís óskaði eftir umræðunni á borgarstjórnarfundinum um skýrsl- una sem var lögð fyrir borgarráð í síðustu viku. Niðurstaða hennar er samhljóða skýrslu innri endurskoð- unar um braggann sem kom út í des- ember 2018. Þar kom fram að lög um skjalavörslu vegna framkvæmdanna við braggann í Nauthólsvík hafi verið brotin. Rannsókn hófst á málinu vegna framúrkeyrslu á kostnaði við bragg- ann. „Þetta er orðið sakamál og hef- ur alltaf verið,“ sagði Vigdís enn- fremur um málið og krafðist þess að meirihlutinn axlaði ábyrgð á gjörð- um sínum. Hún sagði skort hafa ver- ið á því alveg frá því málið kom upp fyrst. Borgarstjóri segir að að gott starf hafi verið unnið Dagur B. Eggertsson borgarstjóri benti á að þegar málið hefði verið tekið til skoðunar hjá innri endur- skoðun hefði því verið ólokið og því eðlilegt að öll skjöl hefðu ekki þegar verið skráð, líkt og rými er fyrir í lög- um. Hann ítrekaði að þegar hafi ver- ið brugðist við athugasemdum og til- mælum sem væru að finna í þessum tveimur skýrslum, þ.e.a.s. þessari og skýrslu innri endurskoðunar sem birtist árið 2018. Innanstjórnkerfi hefði þegar verið stokkað upp og kallað eftir umbótaráætlunum í skjalavörslu borgarinnar svo fátt eitt sé nefnt. „Ég er býsna stoltur af því góð starfi sem hefur verið unnið,“ út- skýrði hann. Dagur telur einnig að fela ætti borgarlögmanni að bregðast við skýrslu Borgarskjalasafns og meta hana lögfræðilega. Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, furðaði sig á því að starfsmaður borgarinnar yrði fenginn til að gera slíkt. „Það tíðkast ekki að maður rannsaki sjálfan sig,“ sagði hún og benti á að slík vinnu- brögð væru bæði „ófagleg“ og „ótraust“. Enda gegndi embætti borgarlögmanns einstaklingur sem hafi verið „handvalinn“ af borgar- stjóra í embættið. Með þessum um- mælum væri hún ekki að gera lítið úr borgarlögmanni sem fagmanneskju en óhjákvæmilegt væri að hann væri ekki ýkjagagnrýninn á störf borgar- stjóra og meirihlutans. Skoraði á meirihlutann að kalla til borgarskjalavörð Undir þessi sjónarmið tóku aðrir fulltrúar minnihlutans. Minnihlutinn gagnrýndi einnig að borgarskjala- vörður hefði ekki komið sjálfur og kynnt skýrsluna fyrir borgarráði líkt og tíðkast alla jafna þegar aðrar sam- bærilegar skýrslur væru kynntar. Eyþór Laxdal Arnalds, fulltrúi Sjálfstæðisflokks, skoraði á meiri- hlutann að fá borgarskjalavörð til að mæta og kynna skýrsluna. Eyþór gagnrýndi einnig að Borgarskjala- safn hefði ekki verið gerð sjálfstæð- ari eining innan stjórnkerfisins. Borgarskjalasafn sem eftirlitsaðili ætti að fá meira rými til slíks. Talsverð umræða spannst um þann lið þar sem meirihlutinn ítrek- aði að stjórnkerfisbreytingarnar hefðu eflt Borgarskjalasafnið til muna og væru til mikilla bóta. „Sakamál og hefur alltaf verið“  Miklar umræður um braggamálið í borgarstjórn  Fulltrúar minnihlutans segja reglur brotnar og krefjast ábyrðar  Borgarstjóri vill að borgarlögmaður meti skýrslu Borgarskjalasafns lögfræðilega Morgunblaðið/Eggert Bragginn Fram kom í skýrslu að lög um skjalvörslu vegna framkvæmda við braggann hefðu verið brotin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Borgarstjórnarfundur Umræða um skýrslu Borgarskjalasafns um frumkvæðisathugun á skjalastjórn vegna braggans stóð fram eftir kvöldi í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.