Morgunblaðið - 19.02.2020, Page 17

Morgunblaðið - 19.02.2020, Page 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 ✝ Ruth Pálsdótt-ir fæddist 10. desember 1926 í Reykjavík. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Eir 7. febrúar 2020. Hún var dóttir hjónanna Ingunnar Guðjónsdóttur frá Laugabökkum í Ölfusi, f. 1903, d. 1962, og Páls Ein- arssonar rafmagnseftirlits- manns frá Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 1904, d. 1958. Alsystur Ruthar eru Guð- ríður, f. 1925, Guðbjörg, f. 1928, og Guðrún, f. 1929, d. 11. mars 2018. Ingunn og Páll slitu sam- vistir. Samfeðra systkini voru Grettir, f. 1935, d. 2019, og Hallgerður, f. 1943, d. 1993. Síðar hóf Ingunn sambúð með Óskari Erlendssyni klæðskera, f. 1896, d. 1978. Ruth giftist Vermundi Ei- ríkssyni húsasmíðameistara og eignuðust þau fjögur börn. 4. Brynja leikskólakennari, f. 18. janúar 1957. Brynja er gift Loga Úlfarssyni og synir þeirra eru Bjarki, Breki og Boði. Ruth giftist 15. janúar 1967 Guðmundi H. Þorbjörnssyni húsgagnabólstrara, f. 28. októ- ber 1922, d. 9 september 2002. Ruth útskrifaðist úr Versl- unarskóla Íslands árið 1945 og réði sig til Verslunarráðs Ís- lands og starfaði þar um tíma- .Vermundur og Ruth ráku sam- an byggingafyrirtæki þar sem Ruth sá um bókhald og launa- greiðslur. Eftir að Vermundur lést hóf hún skrifstofustörf hjá Olíufélaginu Esso. Ruth og Guðmundur stofn- uðu bólstrunarfyrirtæki og unnu að því saman. Seinni hluta starfsævinnar starfaði Ruth við ýmis skrifstofustörf hjá Sjálfsbjörg. Ruth hafði mikinn áhuga á félagsmálum. Bridgespila- mennska var henni mikilvæg alla tíð. Einnig var hún mjög áhugasöm um allt félagsstarf sem fram fór í Eirarhúsum. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 19. febr- úar 2020, klukkan 13. Vermundur lést 3. mars 1964. Þeirra börn eru: 1. Sigurbjörg Ingunn mat- reiðslumaður, f. 21. des. 1949. Sig- urbjörg giftist Eyj- ólfi Gestsyni, þeirra börn eru Guðrún Ruth og Gestur. Sigurbjörg Ingunn og Eyjólfur slitu samvistum. Sigurbjörg Ingunn giftist síðar Kjell Harr og er dóttir þeirra Kristine. Sigurbjörg Ingunn er í sambúð með Öystein Moe og eru þau búsett í Noregi. 2. Páll Ómar bílamálari, f. 24. ágúst 1951, búsettur í Kópavogi. Börn hans eru Ruth og Ómar. 3. Kristín bókasafnsfræð- ingur, f. 18. febrúar 1955. Kristín giftist Vilhjálmi Fen- ger, f. 26. febrúar 1952, d. 21. október 2008, þeirra börn eru, Björg og Ari. Kristín er í sam- búð með Helga Benediktssyni. Á okkar heimili var alltaf tal- að um ömmu Ruth. Æska ömmu mótaðist af aðstæðum þess tíma sem hún ólst upp á þar sem bar- áttan snerist um að hafa í sig og á og hafa þak yfir höfuðið. En amma Ruth ólst upp hjá ein- stæðri móður ásamt þremur systrum sem voru alltaf sam- rýndar enda stutt á milli þeirra í aldri. Amma Ruth gekk mennta- veginn sem var ekki sjálfgefið á þeim tíma, en hún lauk verzl- unarskólaprófi, ein fárra kvenna. Eftir það starfaði hún hjá Verslunarráði Íslands og minntist þess tíma ávallt með miklu stolti og ánægju. Amma Ruth var ákveðin og dugleg og allt sem hún tók sér fyrir hendur var gert með stæl. Hún lét sig menn og málefni varða og hringdi gjarnan til að ræða málefni líðandi stundar, vakti það oft kátínu okkar að hverju áhuginn beindist. Útlit og föt skiptu ömmu Ruth miklu máli og fylgdist hún með nýjustu tískustraumum á hverjum tíma. Hún var alltaf vel tilhöfð og naut þess að klæða sig samkvæmt nýjustu tísku. Það skiptust á skin og skúrir í lífi ömmu Ruthar, afi Vermund- ur dó ungur frá henni og fjórum börnum og markaði það líf fjöl- skyldunnar en hún stóð þá ein, 37 ára með fjögur börn á aldr- inum 7 til 15 ára. Menntunin kom sér vel þar sem hún þurfti að ala önn fyrir sér og börnun- um. Það var svo gæfuspor fyrir ömmu Ruth og börnin hennar þegar hún giftist afa Guðmundi sem reyndist okkur fjölskyld- unni afar vel. Amma Ruth var bæði bráð- skemmtileg og félagslynd. Hún spilaði bridge og félagsvist um allan bæ og rakaði að sér verð- launum. Eftir að amma Ruth fluttist í þjónustuíbúð á Eir naut hún sín mjög vel og eignaðist góða vini. Hún var ein af stofn- endum kjaftaklúbbsins sem hittist einu sinni í viku og fór yf- ir stöðu mála. Við vitum að það verður vel tekið á móti ömmu Ruth af þeim sem á undan eru gengnir enda mun hún hvíla í hlýjunni á milli afa Vermundar og afa Guð- mundar. Góð ferð, elsku amma Ruth. Kristín, Björg og Ari. Elskulega mamma mín mjúk er alltaf höndin þín tárin þorna sérhvert sinn sem þú strýkur vanga minn. Þegar stór ég orðinn er allt það skal ég launa þér. (Sigurður J. Jóhannesson) Þakklæti er mér efst í huga þegar ég kveð elsku mömmu. Þakklát fyrir að hafa fengið að eldast með henni. Þakklát fyrir allar góðu sam- verustundir bæði hérlendis og erlendis. Þakklát fyrir að hafa fengið að deila með henni bæði gleði og sorg. Þakklát fyrir að hafa átt hana fyrir mömmu. Þakklát fyrir allt sem hún kenndi mér. Þakklát fyrir að hafa fylgt henni síðustu sporin. Fyrir mig verður það tómlegt að geta ekki hitt mömmu og átt gott spjall en minningarnar munu lifa með mér. Ég kveð hana með söknuði, hún var hvíldinni fegin og var búin að lifa góðu lífi eins og hún sagði sjálf. Hvíldu í Guðs friði, elsku mamma mín. Þín Brynja. Nú hefur hún tengdamóðir mín yfirgefið jarðvistina eftir langa ævi, en hún var 93 ára þegar hún kvaddi fyrr í þessum mánuði. Á slíkum tímamótum hrannast upp fallegar minning- ar. Við andlát ástvinar er eins og maður missi ákveðinn neista og það er eins og eitthvað deyi inni í manni. Þannig líður mér núna. Ég kynntist Ruth þegar ég var unglingur þannig að hún hefur verið í lífi mínu í langan tíma, eða 48 ár. Ég fór að venja komur mínar í Stangarholtið þegar yngsta dóttirin varð kær- astan mín. Það var alltaf gott að koma á heimili þeirra Guðmund- ar og alltaf tekið vel á móti manni. Alla tíð vorum við Ruth miklir vinir og það var gott að eiga slíkan vin, sem rétti fram hjálp- arhönd þegar þörf var fyrir, spjallaði áhugasöm um svo margt þegar svo bar undir og var alla tíð vel inni í því sem maður var að gera, alveg fram á síðasta dag. Ruth var góð kona, ákveðin, og rökföst með sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Hún fylgdist alla tíð vel með því sem var efst á baugi hverju sinni. Hún var líka dugleg, hörð af sér, greind, fylgin sér og sjálfstæð. Hún var líka lífsreynd og fór í gegnum eitt og annað á langri ævi og það var ekkert auðvelt. Hún var fötluð frá fæðingu en lét það aldrei stoppa sig í neinu og ég held það hafi bara hert hana og gert hana sterkari ef eitthvað var. Hún missti fyrri mann sinn snemma frá fjórum börnum, það yngsta sjö ára, sem hlýtur að hafa verið mikið áfall. Hún fór í gegnum alla þá erfiðleika en kynntist síðar Guðmundi og þau gengu í hjónaband 1967. Ruth og Guðmundur voru einstaklega samhent hjón en Guðmundur var ótrúlega góður maður og gekk börnunum í föðurstað, sem eins og gefur að skilja hefur ver- ið ærið verkefni. Með Guðmundi ferðaðist Ruth mikið um heiminn og hafði afskaplega gaman af því að koma á nýja staði. Við Brynja vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá stundum að slást í för með þeim og við eigum yndislegar minningar úr þeim ferðum öll- um. Ruth var félagslega sterk kona og átti stóran vinahóp sem var einstaklega samheldinn og hittist oft. Hún hafði unun af því að vera innan um fólk og mér eru minnisstæð árin sem hún var meðlimur í félagsskapnum málfreyjur, geislaði þá af áhuga við að semja ræður og flytja þær. Hún var líka vel lesin og í gegnum tíðina sótti hún sér ýmsa menntun til að bæta við þekkingu sína. Og gaman að segja frá því að árið sem hún varð 74 ára skellti hún sér á tölvunámskeið því hún vildi vita allt um þessa nýju tækni sem þá hafði rutt sér til rúms. Við kveðjum í dag yndislega og góða konu með söknuði í hjarta en eftir lifa minningarnar sem ylja svo sannarlega. Ég sendi börnum Ruthar, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarnabörnum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Logi Úlfarsson. Elsku yndislega amma mín. Það er ávallt erfitt þegar fyr- irmyndirnar okkar falla frá, en ég tel mig afar heppna að hafa fengið að hafa þig svona lengi í mínu lífi. Ég mun ávallt geyma innra með mér þá visku, þá gleði og þær fallegu minningar sem ég á um þig. Ég á svo óendanlega margar góðar minningar í hjarta mínu um þig og líka um ykkur Guð- mund afa saman. Þegar ég var barn fannst mér alltaf svo gott að koma til ykkar á sumrin, þar sem ég var búsett í Noregi og sá ykkur ekki mjög oft. Þið voruð svo endalaust góð við mig og ég fann alltaf fyrir svo mikilli hlýju og öryggi að vera hjá ykkur. Mér eru ofar- lega í huga allir ísbíltúrarnir okkar saman enda ís í miklu uppáhaldi hjá mér á þeim tíma, og leiddist það engum. Mikið var líka gaman að fá þig í heimsókn til London þar sem ég er búin að vera búsett undanfarin 18 ár. Þú komst reglulega með Brynju en líka með Löbbu systur þinni og Jón- ínu. Við nutum þess svo innilega að fara á söngleiki saman, út að borða á skemmtilegum veitinga- stöðum en líka bara að slaka á og spjalla. Okkur fannst heldur ekki leiðinlegt þegar við fórum saman í „afternoon tea“ og gæddum okkur á krúttlegum kökum, litlum samlokum og skoluðum því svo niður með kampavínsglasi. Svo var úthald þitt í öllum fallegu búðunum aðdáunarvert, þú fannst þér alltaf afsökun til að versla þegar þú sást fallega flík. Já, þú hafðir svo mikinn áhuga á tísku og föt- um, amma mín, enda varst þú ávallt svo flott, falleg og vel til- höfð. Ég er líka svo heppin að hafa fengið að eyða jólunum síðustu árin með þér fyrir austan. Þú alltaf svo glöð í fallegu rauðu jólapeysunni þinni, svo jákvæð, hláturmild og hafðir alltaf gam- an af fyndnu pökkunum frá jóla- sveininum. Það vantaði sko ekki húmorinn hjá þér, elsku amma mín, það er víst. Lífið var þér ekki alltaf auð- velt en styrkur þinn, dugnaður og jákvæðni voru til fyrirmynd- ar, amma mín, og ég dáist svo mikið að þessum eiginleikum þínum. Þú varst félagslega svo sterk og hafðir svo gaman af því að vera innan um fólk, hvort sem var við bridge-spilamennsku eða bara til að spjalla. Greind varstu svo sannarlega, ein af fyrstu konum til að klára versl- unarpróf við VÍ, fórst á tölvu- námskeið komin vel á áttræð- isaldur og fylgdist vel með fréttum innanlands og líka er- lendis og hafðir gaman af að ræða þær. Mér eru minnisstæð- ar spurningarnar um Brexit, þá kom ég mér oft í vandræði. Mig langar líka að nefna hvað þú varst alltaf einstaklega góð við hann Alexander minn og tal- aðir svo fallega til hans og um hann. Honum fannst líka ynd- islegt að hafa þig í kringum sig og sérstaklega gaman að fá þig í útskriftarveisluna sína 2018. Honum finnst hann vera svo heppinn að hafa fengið að kynn- ast þér og eiga þig sem lang- ömmu. Takk, elsku amma mín, fyrir allt sem þú hefur gefið okkur Al- exander, þú skilur svo sannar- lega eftir þig falleg spor í hjört- um okkar og hjá öllum þeim sem hafa verið svo lánsamir að kynn- ast þér. Þín verður sárt saknað. Guðrún Rut. Við bræður minnumst Ruthar ömmu með gleði og hlýju í huga. Skörp og snjöll með mikinn og beittan húmor. Já, hún var eig- inlega bara nákvæmlega eins og ömmur eiga að vera. Hlý og góð og hafði mikil og jákvæð áhrif á líf okkar bræðra. Við höldum að sú fátækt sem hún amma ólst upp við hafi mót- að hennar karakter og aldrei heyrði maður hana kvarta yfir nokkrum sköpuðum hlut. Hún lét fötlun sína aldrei há sér og vissi ekkert verra en að þurfa að nota göngugrindina og síðar hjólastólinn. Þetta viðhorf henn- ar smitaði út frá sér til okkar barnabarnanna og kenndi okkur að taka ekki öllu sem sjálfsögð- um hlut og um leið að leggja okkur 100% fram í því sem við tökum okkur fyrir hendur. Okkur leið alltaf vel í Stang- arholtinu. Það vel að tveir af okkur hafa búið í götunni á full- orðinsárum og alltaf horfir mað- ur á númer 20 með bros á vör. Það var ekki algengt að konur fæddar snemma á tuttugustu öldinni gengju menntaveginn en það gerði hún amma. Hún fór í Verzlunarskólann og það gerð- um við bræðurnir einnig. Ruth amma hafði mikinn áhuga á samfélaginu og var allt- af inni í öllum málum, hlustaði á alla fréttatíma og las öll blöðin. Oftar en ekki var hún mun betur inni í málum en við blaðamenn- irnir og það var oft snúið að reyna að rökræða við þá gömlu. Amma var líka sú fyrsta sem kynnti okkur mikilvægi þess að vinna fyrir sér. Bjarki og Breki seldu merki fyrir Sjálfsbjörg, þar sem amma vann, alla sína æsku og má segja að þeir hafi átt Holtin um tíma. Hún kenndi okkur ólsen-ólsen á milli þess sem hún rakaði til sín verðlaun- um í bridge og lagði í P-stæðin með merkið sitt í framrúðunni. Amma var alla tíð mikil áhugamanneskja um kvikmynd- ir og þá sérstaklega sakamála- myndir þar sem hún var iðulega búin að átta sig á plottinu löngu áður en 90 mínúturnar voru liðnar og langt á undan okkur ungu mönnunum. Langömmubörnunum fannst alltaf gaman að heimsækja Ruth ömmu og hún hafði gaman af því að spjalla og sjá þau vaxa og dafna. Minnisstætt er þegar hún lá inni á Borgarspítalanum síð- asta sumar og var mikið veik. Hún talaði sjálf um að nú hlyti þetta að fara að taka enda. Breki ákvað að segja henni að von væri á þriðju stúlkunni hjá sér, en hún mætti alls ekki segja neinum frá því aðeins voru komnar nokkrar vikur. Skömmu síðar byrja svo að streyma inn hamingjuóskir og hafði sú gamla þá ekki getað setið á sér enda alltaf mjög spennt og áhugasöm þegar von var á lang- ömmubarni í heiminn. Hún amma er nú farin, 93 ára, og nýtti þessi ár sem hún fékk ansi vel. Amma var, höld- um við, sátt með að fara á þess- um tímapunkti enda hafði lík- aminn lokið hlutverki sínu en skýr var hún í kollinum fram á síðasta dag. Nú er hún komin á milli þeirra tveggja, Guðmundar og Vermundar í Fossvoginum, lífs- förunautanna sem hún elskaði svo heitt og vitum við að þeim þremur kemur vel saman. Við kveðjum ömmu auðvitað með söknuði en einnig með brosi á vör því minningarnar um þessa hlýju og góðu konu sem kenndi okkur svo margt munu lifa um ókomna tíð. Bjarki, Breki og Boði. Minningargreinin hefði getað orðið heil bók, en ég og þú erum orðin gömul. Þakka kærlega vináttu sem rekur sig ævina okkar alla. Allar ferðirnar okk- ar. Öll spilakvöldin. Jólahátíð- arnar sem við héldum saman með börnunum okkar. Aldrei bar skugga á vináttu fjölskyldna okkar. Far þú í guðs friði, kæra vinkona. Viggó M. Sigurðsson og fjölskylda. Við förum öll sömu leið, erum eins í grunninn, sem sést best þegar við hittumst í laugunum. Svo margt sameinar okkur, óyggjandi, út í hið óendanlega, líkamlega og áþreifanlega. And- lega eigum við líka okkar ósýni- legu sameiginlegu þætti, sem tengja okkur böndum, sem land- ar, eins og sagt er ein fjöl- skylduheild með reynslu for- feðra okkar. Það atvikaðist svo að bróðir minn Eyjólfur Gests- son, sem nú er látinn, gekk að eiga Sigurbjörgu Ingunni, dótt- ur heiðurshjónanna Ruthar Pálsdóttur og Vermundar Ei- ríkssonar. Ruth hefur nú lokið 93ja ára lífshlaupi. Með sinni glöðu lund og framgöngu er Ruth mörgum hugstæð. Þannig kynntist ég Ruth á námsárum mínum í Reykjavík. Þessari nú- tímalegu og sterku kona, tengdamóður stóra bróður míns. Það var ánægjulegt að heimsækja Ruth og Guðmund í Stangarholtinu. Þá var ég ung og óreynd, austan úr sveitum. Eftirminnilegar voru stundirnar sem við áttum saman yfir spjalli, kaffi og meðlæti, en Guð- mundur vann að bólstrun á verkstæði sínu niðri. Þau tvö voru fallegt samhent par sem geislaði af. Efst í huga er þakklæti mitt fyrir þetta vinasamband, sem stóð með mér alla tíð. Bubba og Eyfi eignuð- ust tvö mannvænleg börn, Guð- rúnu Ruth og Gest. Þau áttu ásamt Alexander langömmu- barninu tryggan stað hjá ömmu Ruth. Við vottum fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð og biðjum Guð að vera með þeim. Sigrún Valgerður Gestsdóttir og fjölskylda. Ruth Pálsdóttir Elsku amma mín lést sunnudags- morguninn 2. febr- úar og var jarð- sungin 14. febrúar í sönnu íslensku veðri. Líkt og ávallt þegar ástvinur kveður finnur maður fyrir sorg og söknuði, en einna helst finn ég fyrir gríð- arlegu þakklæti og hamingju yfir því að hafa átt hana Sig- rúnu ömmu mína að eins lengi og ég gerði, en hún lést rúmum mánuði eftir 100 ára afmæli sitt. Amma var hreinskilin, sterk og ástúðleg kona sem alla sína ævi var í umönnunarhlutverki, sem móðir, amma, eiginkona, systir og hjúkrunarkona. Líf hennar og tilvera fólst í að hugsa vel um fólkið sitt og aðra. Ég hef sjaldan hitt jafn ákveðna mann- eskju með skoðun á öllu og jafn ríka réttlætiskennd, ég get bara vonað að þessir eiginleikar hennar hafi skilað sér að ein- hverju litlu leyti til mín þegar mér var gefið nafnið hennar. Til að lýsa henni örlítið fyrir þá Sigrún Hermannsdóttir ✝ Sigrún Her-mannsdóttir fæddist 27. desem- ber 1919. Hún lést 2. febrúar 2020. Útför Sigrúnar fór fram 14. febr- úar 2020. sem ekki þekktu hana ömmu mína þá var Nallinn spil- aður á meðan við barnabörnin fylgd- um henni síðasta spölinn. Amma átti góða ævi, þó hún hafi ekki verið alveg áfallalaus, en hún eignaðist fimm börn, 13 barnabörn og 12 barnabarnabörn og átti þrjár systur sem allar voru mjög nánar. Hún ferðaðist mik- ið og bjó bæði í Danmörku og Noregi, þó að ég haldi að eng- inn staður hafi henni þótt betri eða fegurri en Seyðisfjörður, hennar fæðingarstaður og æskustöðvar. Sögurnar sem hún hefur sagt mér og allar minningar sem ég á munu sjá til þess að Sigrún amma er aldrei langt undan. Ég læt fylgja með síðasta versið í ljóði Jóns Thoroddsen, Litfríð og ljóshærð, sem amma mín söng svo oft fyrir mig. Sofðu, mín Sigrún, og sofðu nú rótt; guð faðir gefi góða þér nótt! Vertu sæl, elsku amma mín. Þín Sigrún.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.