Morgunblaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 Kæra mágkona og vinkona Sigrún. Þú reyndist mér alltaf sem besta systir. Þegar ég stóð uppi heimilis- laus opnaðir þú dyrnar – fagnaðir mér eins og langþráðum gesti. Og hjá þér bjó ég um þriggja mánaða skeið. Kvöldin okkar voru dýrmæt, við lyftum kannski rauðvínsglasi, horfðum út yfir hafið, rifjuðum upp góðar minn- ingar. Gaman var þegar við keyrðum með Bögga bróður í kringum eyj- una Púertó Ríkó, sem átti eftir að verða heimili ykkar. Eftirminnilegt þegar við sát- um uppi í fjallasal – Böggi sló danstaktinn á píanóið, við sveifl- uðum okkur á gólfinu, fullar af kátínu og lífsgleði. Sigrún Siggeirsdóttir ✝ Sigrún Sig-geirsdóttir fæddist 10. mars 1946. Hún lést 11. febrúar 2020. Sigrún var jarð- sungin 18. febrúar 2020. „Eigum við ekki að dansa, Obba mín,“ sagðir þú eitt sinn brosandi þegar ég kom að heim- sækja þig þar sem þú sast í hjólastóln- um og gast þig ekki hreyft. Dásamlegt að þú skyldir geta yljað þér við fallegar minningar. Ein jólin vorum við Auður hjá ykkur í New York, fórum saman í kirkju, hlýddum á jólaguðspjallið – viðmót þitt alltaf jafnhlýtt. Í þér eignaðist ég systurina sem ég hafði alltaf þráð. Sárt að þið Böggi skylduð ekki bera gæfu til að eyða lífinu sam- an. Púertó Ríkó togaði í hann – Ísland í þig. En ykkur þótti alltaf vænt um hvort annað. Þú barst fallega og góða áru, elsku Sigrún. Mynd þín mun ætíð skipa sess í huga mínum. Farðu í friði – friður Guðs þig blessi. Þín „mágkona“ og vina, Oddný Sv. Björgvins. Með fáeinum orðum langar mig fyrir hönd okkar hjóna að minnast heiðursmannsins Sigurðar Árna Sigurðssonar eða Adda prentara sem yfirgaf hér vistina 5. febrúar síðastliðinn eftir langa ævi. Sigurði Árna kynntist ég fyr- ir meira en hálfri öld. Hann og Guðrún, eiginkona hans, voru sérstakir vinir tengdaforeldra minna. Hann var leiðtogi minn þegar ég var tekinn í Oddfel- low-regluna. Sigurður Árni var traustur og trúfastur bróðir, starfaði í reglunni í rúm 65 ár, sinnti trúnaðarembættum af trúmennsku og alúð og var enda heiðraður af stórsír regl- unnar og sæmdur 60 ára heið- ursmerki hennar. Sigurður Árni var í mínum huga einn af hetjum hversdags- ins, hvers manns hugljúfi, Sigurður Árni Sigurðsson ✝ Sigurður ÁrniSigurðsson fæddist 4. janúar 1928. Hann lést 5. febrúar 2020. Útför Adda fór fram 14. febrúar 2020. smekkvís og vand- virkur fagmaður. Um það geta allir vottað sem störf- uðu í stúkunni Hallveigu því að hann prentaði leyfi ég mér að segja allt sem þurfti að prenta fyrir hana. Hann var Odd- fellowi í húð og hár og þau hjón bæði. Dóttir þeirra heitir Hallveig eftir stúkunni. Þau sóttu vel alla viðburði í stúkustarfinu og voru hrókar alls fagnaðar. Addi og Gunna vöktu ekki síst eft- irtekt á dansgólfinu þar sem þau tjúttuðu með miklu svingi svo að meira að segja Sæmi rokk hefði orðið grænn af öf- und. Skíðabrekkurnar á KR- svæðinu voru sömuleiðis heima- völlur hins fótalipra manns. Á áttræðisaldri fór hann í skíða- ferð til Colorado með Þóri vini sínum og félaga í KR. Sigurður Árni var uppalinn Vesturbæ- ingur, æfði og lék með KR á yngri árum var traustur KR- ingur fram í andlátið. Við hittumst á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund í janúar og eins og séntilmönn- um sæmir fengum við okkur „te fyrir tvo“. Nafni Sigurðar og barnabarn leit þá inn og hafði með sér fallegu hvítu Gol- den Retriever-tíkina hennar Hallveigar. Við vorum í svörtu. Það var orðið fundarhæft hjá KR. Kom svo á daginn að Sig- urður yngri er mikill KR-ingur eins og afi hans, hafði orðið Ís- landsmeistari með sínum flokki í fyrra. Hann þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að sann- færa okkur um að KR væri best á Íslandi en Liverpool í Englandi. Fallinn er frá góður drengur, heill og sannur Oddfellowi og KR hefur misst traustan stuðn- ingsmann. Missir fjölskyldunn- ar er þó mestur en Sigurður Árni var faðir og tengdafaðir, afi og langafi. Hugur okkar er hjá henni þegar við kveðjum kæran vin. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Trausti og Kristín. Elsku besti afi okkar. Síðustu dagar hafa verið erf- iðir fyrir okkur öll eftir að þú sveifst yfir í draumalandið góða til drottningarinnar þinnar. Það yljar okkur þó um hjartarætur að vita að þið séuð loksins sam- einuð á ný eftir tæpa sex ára bið. Við efumst ekki um að það hafi verið tekið á móti þér opn- um örmum og að drottningin þín hafi verið tilbúin að stíga léttan dans með þér í bana- stuði. Það fór aldrei mikið fyrir þér, elsku afi, en þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og hefur alla tíð verið fyrirmynd okkar allra. Þú kenndir okkur margt og þá sérstaklega að vera nægjusöm og þakklát fyrir það sem við höfum og eigum. Það er sárt að hugsa til þess að við fáum ekki að knúsa þig einu sinni enn eða spjalla við þig á Grundinni góðu þar sem þú eyddir síðustu árunum þín- um en við vitum að þér líður vel núna. Missirinn er mikill og þín verður sárt saknað en minning þín mun lifa í hjarta okkar allra um ókomna tíð. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Guð geymi þig afagullið okk- ar, við elskum þig afar heitt. Sjáumst síðar. Þín afabörn, Rakel Sif, Þórhalla Mjöll og Sigurður Oddgeir. Hann Kiddi var svo einstaklega fal- lega samansett manneskja, hlýr, einlægur, hláturmildur og svo- lítið stríðinn en yfirvegaður og æðrulaus þegar ljóst var að ekki yrði um bata að ræða. Mig langaði að faðma hann og strjúka honum um kollinn, en hann svaf svo vært, ég faðmaði Ólöfu í staðinn. Einhvern veginn hrakar manneskjum hægar sem manni þykir svo óendanlega vænt um og Ólöf dvaldi hjá honum Kidda öllum stundum þar til yfir lauk. Þau minntu mig á álftaparið með ungana sína, stolt og Guðjón Kristinn Harðarson ✝ Guðjón Krist-inn Harðarson fæddist 23. desem- ber 1954. Hann lést 1. febrúar 2020. Útför Guðjóns fór fram 14. febr- úar 2020. þokkafullt leið hóp- urinn áfram, annað foreldrið fór fyrir þeim, hitt á eftir. Halla skáldkona á Laugabóli hafði þann starfa sem ung stúlka að tína fegurstu fjaðrirnar sem rak á fjöru Gilsfjarðar. Seinna orti hún af heimþrá til æsku- stöðvanna: Svanurinn minn syngur, sólu ofar hljóma ljóðin hans og heilla helga englasveitir. Blómin löngu liðin líf sitt aftur kalla. Fram úr freðnum gljúfrum fossar braut sér ryðja. Í annan tíma sitja litlar syst- ur í aftursætinu á drossíunni hans Bubba á G-10, og þau mamma mala í framsætinu og svo birtast Vöðlurnar yfir Bjarkalundi, Teigsskógur í Þorskafirði, seinna Dóra í Gróf og fjallgrösin. Upp Töglin, Þorskafjarðarheiðin, ofan í Langadalinn, Nauteyrin, bryggjan á Melgraseyri, áfram upp úr beygjunni. Hvítan reykinn ber í fellið, strompurinn, fallegi litli glugg- inn yfir útidyrum og amma. Haukur Morthens í útvarpinu „Ég er kominn heim ... “ Við systurnar 14 ára og Inga Ding á milli okkar í svarta fólksvagninum syngur við raust: Táp og fjör og frískir menn finnast hér á landi enn, þéttir á velli og þéttir í lund, þrautgóðir á raunastund. Djúp og blá blíðum hjá brosa drósum hvarmaljós. Norðurstranda stuðlaberg stendur enn á gömlum merg. (Grímur Thomsen) Við systurnar flissum eins og hálfvitar, en mamma horfir heilluð á systur sína. Áð við minnismerki Stephans G. og pabbi stoltur af sveitunga sínum; Skagafjörðurinn opinn, og bjartur eins og stórt leik- svið. „Nú styttist leiðin til Laugu systur á Brúnastöðum,“ segir pabbi, eftirvæntingin leynir sér ekki. Áður söng ungur piltur í réttunum, sinni tæru rödd og kenndi sig við Ísland: Þú komst í hlaðið á hvítum hesti, þú komst með vor í augum þér. Ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér. (Davíð Stefánsson) Við Ólöf tökum okkur ef til vill far með Morgunstjörnunni og siglum á vit sólarlagsins meðan yndislegasti söngvari bernsku minnar; hann Sigurður Ólafsson, tekur lagið. Það gefur á bátinn við Grænland og gustar um sigluna kalt, en togarasjómanni tamast það er að tala sem minnst um það allt. En fugli, sem flýgur í austur, er fylgt yfir hafið með þrá. Og vestfirskur jökull, sem heilsar við Horn í hilling með sólroðna brá, segir velkominn heim, segir velkom- inn heim, þau verma hin þögulu orð. Sértu velkominn heim, yfir hafið og heim. Þá er hlegið við störfin um borð. (Kristján við Djúpalæk) Björk Gísladóttir. ✝ GuðmundurÞorsteinsson fæddist í Hólsseli 31. janúar 1922. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Sundabúð 15. jan- úar 2020. For- eldrar hans voru Þorsteinn Jóhann- es Sigurðsson, fæddur á Víðirhóli 2. nóvember 1895, d. 18. ágúst 1986, og Guðrún Sigurbjörnsdóttir, fædd í Sand- fellshaga 12. júní 1899, d. 7. maí 1969. Systkini Guðmundar voru Sigurður, fæddur 19. mars 1923 í Hólsseli, d. 9. júlí 2014, Sigurbjörn, fæddur 23. nóv- ember 1925 í Ný- hóli, d. 12. nóv- ember 2010, Karólína Guðný, fædd 15. sept- ember 1927 í Víði- dal, d. 1. sept- ember 2004, og Aðalbjörg Ester, fædd 28. júní 1937 í Víðidal, dáin 6. sept- ember 2007. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Við systkinin frá Möðrudal viljum minnast Guðmundar Þor- steinssonar frá Víðidal á Fjöll- um en hann lést í hárri elli 15. janúar. Samfélagið á Fjöllum var þétt og miklar samgöngur á milli bæja og Mundi og Ester áttu stóran þátt í því. Ekki var rutt á milli bæja yfir veturinn en það voru lagðar slóðir eða farið á snjósleða á milli. Mundi var með eindæmum geðprúður maður og það má segja að ekkert hafi haggað honum eða sett hann út af lag- inu. Eitt skipti sem hann kom upp í Möðrudal á bíl spurði pabbi hvernig færðin hefði verið á milli bæjanna og hann svaraði: „Þetta var allt í lagi.“ Síðar komst pabbi að því að hann hafði farið meira og minna aftur á bak niður Skarðið á bílnum vegna hálku. Mundi var frár á fæti og göngugarpur mikill. Hann smal- aði ætíð fótgangandi. Fjöllin í Víðidal eru gróin upp að toppi en það vafðist ekki fyrir honum að ná fénu niður úr þeim. Í Víði- dalnum og á bæjunum í kring þekkti Mundi hverja þúfu og var hann mjög fjárglöggur. Þekkti á svip kindanna frá hvaða bæ þær voru. Ef hann sá kind einu sinni þekkti hann hana þar eftir. Það vildi ekkert okkar systkinanna í Möðrudal missa af því að fara í heimsókn í Víðidal til Munda og var hann mikill félagi okkar og vinur. Jólin hófust ekki hjá okk- ur fyrr en búið var að fara í Víðidal á aðfangardagsmorgun. Jón Björgvin fór af og til í pöss- un til Munda þegar hann var um 5-9 ára. Mundi hafði allan tím- ann í heiminum og léku þeir sér í bílaleik þar sem Mundi sat öðrumegin við eldhúsborðið og Jón hinumegin og þeir ýttu bíl- um sín á milli og svo var það símaleikurinn þar sem þeir not- uðuðst við gamla síma og gekk leikurinn út á það að þeir hringdu hvor í annan og sögðu sögur og hlógu og hlógu. Eitt sinn braut Jón bolla og Mundi var fljótur að láta hann hverfa. Þegar Mundi og amma Margrét hittust var glatt á hjalla og þau fræddu okkur um gamla tímann með spjalli sínu. Það er örugglega glatt á hjalla hjá ykkur gömlu Fjallabú- um nú. Með kærri þökk fyrir hvað þú varst okkur góður og mikill fé- lagi, Bergrún (Begga), Snæþór, Vilhjálmur (Villi) og Jón Björgvin. Guðmundur Þorsteinsson Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR BENNÝ EIRÍKSDÓTTIR lést á Hrafnistu, Reykjavík, föstudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju mánudaginn 24. febrúar klukkan 15. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg. Eiríkur Gunnarsson Valgerður Stefánsdóttir Trausti Gunnarsson Berglind Rut Sveinsdóttir Hildur Gunnarsdóttir Guðjón Pétur Ólafsson Ragnheiður Gunnarsdóttir Bjarni Snæbjörnsson Unnur Gunnarsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Okkar ástkæra, LILJA BERNÓDUSDÓTTIR frá Skagaströnd, varð bráðkvödd að heimili sínu í Reykjavík 9. febrúar. Útförin fer fram frá Hólaneskirkju laugardaginn 14. mars klukkan 13. Halla Björg Bernódusdóttir Ari Hermann Einarsson Þórunn Bernódusdóttir Guðmundur Jón Björnsson Ólafur Halldór Bernódusson Guðrún Pálsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT JÓNA JÓNASDÓTTIR lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð föstudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Höfðakapellu föstudaginn 21. febrúar klukkan 10.30. Jónas P. Sigurðsson Ólöf M. Guðbjartsdóttir Karl Á. Sigurðsson Þorbjörg Ragnarsdóttir Alfreð Alfreðsson Stefán E. Sigurðsson Ágústa G. Sigurðardóttir Sigurður B.H. Jóhannesson Aron Þ. Sigurðsson og ömmubörnin. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.