Morgunblaðið - 19.02.2020, Page 21

Morgunblaðið - 19.02.2020, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020 ✝ Steinunn GróaValdimarsdóttir fæddist í Reykjavík 2. júlí 1925. Hún lést á Droplaugarstöðum 29. janúar 2020. Foreldrar hennar voru Sigurlína Jóns- dóttir frá Innstu- Tungu í Tálknafirði, f. 20.8. 1893, d. 2.8. 1928, og Valdimar Bjarnason frá Neðri- Hvestu í Arnarfirði, f. 10.11. 1884, d. 24.11. 1943. Systur hennar eru Kristín Ingveldur Valdimarsdóttir, f. 3.10. 1920, Svanhildur Sigríður Valdimarsdóttir, f. 20.10. 1922, d. 12.11. 2000, Bjarnfríður Gíslína Valdimarsdóttir, f. 17.12. 1923, d. 10.5. 2015. Yngsta systirin fædd- ist andvana árið 1927. Steinunn Gróa var þriggja ára þegar hún missti móður sína. Faðir hennar var þá orðinn ekkjumaður með fjórar litlar stelpur og sú elsta einungis sjö ára svo að Steinunn systir hans hljóp þá í skarðið og var Stein- unn Gróa hjá henni til 10 ára ald- urs. Þá fór hún aftur til pabba síns á Njálsgötu og gekk í Aust- urbæjarskóla. Gróa var fjórtán ára gömul þegar hún fór að vinna og fór í vist eins og gerðist í þá daga. Árið eftir byrjaði hún að vinna á Elliheimilinu Grund í borðstofunni og fór þaðan í Sjó- klæðagerðina að sauma. Steinunn Gróa giftist átján ára Bjarna Knudsen, varð þeim fimm barna auðið. Aron Ívar Benediktsson, f. 2.1. 1995, í sambúð með Þórdísi Unu Arnarsdóttur, f. 10.12. 1996. 4. Kristmundur Már, f. 24.1. 1954, var í sambúð með Vilborgu Þórarinsdóttur, f. 16.8. 1955, eiga þau einn son, Þórarin, f. 8.3. 1973, og er hann giftur Ragn- heiði Hrönn Stefánsdóttur, f. 8.8. 1973, börn þeirra eru Stefán Már, Katrín Helga og Kristján Örn. 5. Bjarni Steinar Bjarnason, f. 29.6. 1961 var giftur Margréti Harðardóttur, f. 13.7. 1964, börn þeirra eru Bryndís Steinunn, f. 29.8. 1989, Hörður Már, f. 24.7. 1991, og yngst er María, f. 15.8. 2005. 6. Arnar, f. 7.4. 1969, faðir ókunnur, giftur Áslaugu Ólafs- dóttur, f. 3.1. 1972. Elsta dóttir Arnars er Elva Kristín, f. 14.3. 1988, móðir hennar er Svanhild- ur Ingibjörnsdóttur. Elva Kristín er í sambúð með Viggó Júl- íussyni, f. 2.7. 1989, börn þeirra eru Mikael Máni og Agnes Bríet. Fannar Örn, f. 1.10. 1992, í sam- búð með Diljá Ragnarsdóttur, f. 5.8. 1993, dóttir þeirra er Vaka. Ólöf Rebekka, f. 15.1. 1997, Þór- ey Berta, f. 16.11. 2012, og Leifur Hrafn, f. 16.11. 2012. Eftir skilnað við Bjarna fór Gróa að vinna í Dósaverksmiðj- unni og við þrif í útibúi Lands- bankans vestur í bæ og Melabúð- inni. Það var mikið áfall fyrir hana að missa Sigurlínu dóttur sína en þær voru mjög nánar. Þegar aldurinn færðist yfir fór heilsan að gefa sig. Fór hún m.a. í erfiðar hjarta- og heilaskurð- aðgerðir en alltaf reis hún upp. Síðustu árin átti hún á Drop- laugarstöðum. Hún verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, 19. febrúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Bjarni og Gróa hófu búskap í Skerjafirði. Fluttu þau síðar á Mel- haga 17 í Reykja- vík. Börn þeirra eru: 1. Valdimar, f. 25.11. 1943, giftur Unni Eddu Müller, f. 9.7. 1952. Börn þeirra eru Ragnheiður Sara, f. 26.1. 1976, börn hennar Anja Birta, Andri Freyr og Aron Fannar. Rakel Ýrr, f. 26.1. 1976, á hún tvo syni, Bóas og Jökul. Ró- bert Kári, f. 30.9. 1980, d. 9.5. 1982. Fyrir átti Valdimar með Ástu Benediktsdóttur Magnús, f. 7.9. 1965, giftur Guðnýju Hrafns- dóttur, og Dagmar, f. 4.10. 1966, dætur hennar eru Margrét Ásta og Bjarnheiður María. 2. Berta Karen Bjarney, f. 26.4. 1945, synir hennar eru þrír, Brjánn, f. 3.8. 1964, faðir hans er Baldur Hrafnkell Jónsson, Berta er búsett í Bretlandi og var gift Roger Rumens og synir þeirra eru Hugo Brynjar, f. 20.11. 1975, og Thomas Edward, f. 1.7. 1979, giftur Vanessu N. Rumens, f. 7.8. 1985. 3. Sigurlína, f. 14.9. 1951, d. 22.8. 2011, var í sambúð með Birni Blöndal og eiga þau Ívar Blöndal, f. 21.12. 1972, var í sam- búð með Tinnu Maríu Jóhann- esdóttur, f. 8.7. 1982, börn Ívars eru Davíð Örn, Júlía Rós, Sindri Már, Andri Þór, Kristófer og Flóki. Yngri sonur Sigurlínu er Ég á margar góðar minningar um hana mömmu mína. Á hennar yngri árum vann hún mikið til þess að sjá fyrir okkur sex systk- inum. Hún var eina fyrirvinnan á okkar heimili. Hún skildi snemma við pabba. Ég átti heldur ekki ömmu á þeim tíma, aðeins afa. Það var stórt skarð sem hún þurfti að fylla, hún gerði það með hlýju og ást í minn garð. Mamma tók alltaf daginn snemma, byrjaði daginn á að velja sér falleg föt, setja á sig rauðan varalit. Þau skipti sem við fórum saman á kaffihús var ekki hægt að fara af stað fyrr en búið var að ná í spegilinn, setja á sig rauðan varalit og ná í fallegasta jakkann, kveðja alla, láta vita að hún væri að fara í bæjarferð. Við áttum margar góðar stundir saman og fyrir það verð ég ævinlega þakk- látur. Mamma sá til þess að ég væri vel klæddur, fengi góðan og holl- an mat tvisvar á dag, það var ekki sjálfsagt á þessum árum. Hún var útivinnandi og hafði ekki há laun eða mikinn tíma. Hún vann við skúringar og aðra tilfallandi verkamannavinnu sem var í boði. Þegar ég var smástrákur fór hún oft með mig í Björninn sem var smurbrauðsstofa, sú besta í bæn- um, ég var ekki mikið fyrir kökur á þeim tíma, hún vissi að mér þótti rækjubrauð í Birninum al- veg sérstaklega gott, hún fór með mig þangað þó það væri ekki ódýr staður. Hún gerði það til að gleðja mig, oftast fékk hún sér ekkert, sjálfsagt til að spara peningana. Hún var afbragðsgóður kokk- ur og það var alltaf góður matur heima. Minn áhuga á elda- mennsku á ég henni að þakka, enda er ég mikið fyrir góðan mat. Þegar hún síðan eignaðist fyrsta bílinn sinn, Volkswagen-bjöllu, fór hún með mig til Þingvalla að veiða silung, þótt hún hefði ekki mikinn áhuga á silungsveiðum, en þetta gerði hún nú samt fyrir mig því hún sá gleðina sem ég fékk af veiðiferðunum. Alltaf þegar eitt- hvað bjátaði á var hún til staðar hvort sem ég hafði meitt mig eða þurfti á hennar stuðningi að halda. Vinir mínir voru oft heima hjá mér, fundu hversu velkomnir þeir voru á Melhaganum eða Kapla- skjólsveginum, enda stjanaði hún við okkur með nýbökuðum kökum og tilheyrandi, eða bauð þeim í mat. Mamma var alltaf tilbúin að hjálpa öðrum sem áttu í vanda og opnaði heimilið fyrir þeim sem áttu í erfiðleikum. Síðustu árin bjó hún á hjúkrunarheimilinu á Droplaugarstöðum. Á hverjum degi þakka ég fyrir að hafa átt heimsins bestu mömmu. Heimsins besta mamma, takk fyrir alla ástina og hlýjuna sem þú gafst mér. Ég mun sakna þín. Þinn sonur, Steinar. Amma góða amma. Erla góða Erla ég á að vagga þér. Svíf þú inn í svefninn í söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er. Hart er mannsins hjarta, að hugsa mest um sig. Kveldið er svo koldimmt, ég kenndi í brjósti um mig. Dýrlega þig dreymi og drottinn blessi þig. (Stefán frá Hvítadal.) Þín ömmustelpa, Þórey Berta. Kallið er komið elsku Gróa mín. Við náðum ávallt vel saman þrátt fyrir að vera gjörólíkar. Frá því ég kynntist tengda- móður minni sextíu og sjö ára að aldri þá hefur hún ávallt verið ung í anda og aldrei viljað líta á sig sem gamla konu. Það var ekki fyrr en um jólin síðustu sem hún sagði mér að fyrra bragði, þá níutíu og fjögurra ára, að hún væri orðin gömul og færi nú sennilega að fara. Gróa var Vestfirðingur en bjó í Vesturbænum nánast alla tíð og elskaði hann eins og sannir Vest- urbæingar gera. Í Reykjavík var sama hvort farið var til læknis, í matvörubúð eða á kaffihús var ávallt var verið að hrósa henni. Það var ýmist verið að dást að því hversu dugleg, falleg eða myndarleg hún var alla ævi. Gróa var harðdugleg enda kom hún upp sex börnum samhliða því að vinna um tíma á allt að sex stöðum samtímis, minntist sjálf alltaf á að þá hafi hún reyndar verið komin með bíl til að fara á milli. Hún var ávallt gríðarlega stolt af sínum afkomendum og hversu margir þeir eru orðnir. Átti ekki til orð yfir hversu dugleg þau voru í námi og fannst það alveg frábært. Það mótaði hana sjálfa alla tíð að hafa misst móður sína mjög ung að aldri og ég held það hafi nánast aldrei liðið sá mánuður að hún talaði ekki um það. Minntist oft á það að það hafi vantað hlýju í hennar uppeldi og þótti svo vænt um þá sem veittu henni mikla hlýju. Hún var glæsileg og flott skvísa enda hefur það skilað sér til stelpnanna okkar sem vilja bara líkjast ömmu sinni; passa vel upp á útlitið. Þessi duglega kona er klárlega mjög fegin að hafa fengið að fara því hún var orðin mjög þreytt og hana langaði ekki til að verða gömul og geta ekki séð um sig sjálf. Við fjölskyldan hans Arnars þökkum fyrir allar þær góðu minningar sem við áttum með henni og vonum að hennar líf verði auðveldara og ánægjulegra í sumarlandinu. Gróa hafði yndi af söng og söng sér oft til skemmtunar ásamt því að fara í fjölmargar gönguferðir um Reykjavík. Því er vel við hæfi á textabroti Hver gengur þarna eftir Austurstræti og ilmar eins og vorsins blóm með djarfan svip og ögn af yfirlæti á ótrúlega rauðum skóm. Ó það er stúlka engum öðrum lík, Það er hún Fröken Reykjavík ... Hver situr þar með glóð í gullnum lokkum í grasinu við Arnarhól svo æskubjört í nýjum nælonsokkum og nýjum flegnum siffon kjól? Hver svífur þarna suður Tjarnarbakka til samfundar við ungan mann sem bíður einn á brúnum sumarjakka hjá björkunum við Hljómskálann? (Jónas Árnason) Hvíldu í friði. Þín Áslaug. Steinunn Gróa Valdimarsdótt- ir lést á 95. aldursári. Hún var móðir æskuvinar míns Arnars. Gróa hélt fallegt og hlýlegt heim- ili þar sem gestir upplifðu sig vel- komna. Það var alltaf gott og ánægjulegt að koma heim til Arn- ars, bæði þegar hann bjó á Mel- haga og síðar þegar þau bjuggu við Kaplaskjólsveg. Gróa var harðdugleg og lét ekkert eftir sér til að tryggja fjölskyldunni gott líf og öryggi. Þrátt fyrir mikla vinnu sinnti Gróa börnum sínum mjög vel og hlúði að þeim. Ég vil votta Arnari, Steinari, Muggi, Bertu og Valdimar og öðr- um ættingjum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Um leið og ég kveð Gróu vil ég þakka góða og hlýja vináttu. Gunnar Alexander Ólafsson. Steinunn Gróa Valdimarsdóttir HINSTA KVEÐJA Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir.) Kveðja frá Ingu systur. Elsku amma. Ég vona að þú komist á Njálsgötuna, því það var síðasta ósk þín til mín að fá að fara þangað. En ég veit ekkert hvað þú ætlar að gera á Njálsgötunni því þar býr enginn lengur sem þú þekkir. Takk fyrir að hafa alltaf verið góð við mig. Þinn Leifur Hrafn. Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ELÍSABET GUÐNÝ HERMANNSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugardaginn 8. febrúar. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 20. febrúar klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Sigríður Indriðadóttir Margeir Pétursson Einar Páll Indriðason Halla Halldórsdóttir og barnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma INGVELDUR HÖSKULDSDÓTTIR lést á gjörgæsludeild Landspítalans að morgni fimmtudags 13. febrúar. Jarðsett verður frá Langholtskirkju mánudaginn 24. febrúar klukkan 15. Hallfríður Kristjánsdóttir Veigar Óskarsson Ástvaldur Óskarsson Marta Jónasdóttir Helgi Óskarsson ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, HALLGRÍMUR SVEINSSON fyrrverandi skólastjóri, Þingeyri, lést á heimili sínu sunnudaginn 16. febrúar. Útförin fer fram frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 22. febrúar klukkan 14. Guðrún Steinþórsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VILBORG SIGURÐARDÓTTIR Miðleiti 7, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans laugardaginn 15. febrúar. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. febrúar klukkan 15. Vikar Pétursson Jón Ólafsson Sigrún Birgisdóttir Halldór Ólafsson Alexandra Jónsdóttir Anastasía Jónsdóttir Ólafur Birgir Jónsson Anna Vilborg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.