Morgunblaðið - 19.02.2020, Qupperneq 27
GRIKKLAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
„Persónulega hefur gengið mjög vel hjá mér þessi
tæpu tvö ár sem ég hef verið hérna. Ég hef því
ekki yfir neinu að kvarta,“ segir Ögmundur Krist-
insson, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, um
lífið og spilamennskuna í Grikklandi.
Ögmundur er á sínu öðru tímabili í Grikklandi
en hafði áður leikið í Danmörku, Svíþjóð og Hol-
landi. Til tíðinda telst ef Ögmundur missir úr leik
í seinni tíð en hann hefur leikið alla deildarleiki
sinna liða síðan í apríl 2018. Hann hefur ekki
misst úr deildarleik í Grikklandi og er fyrir vikið
næstleikjahæsti Íslendingurinn í efstu deild
Grikklands frá upphafi. Þar hefur einungis Arnar
Grétarsson vinninginn með 67 leiki.
Sjálfur gerir Ögmundur ekki of mikið úr þessu
og segir heppni spila inn í. „Jú jú, maður reynir
nú að passa upp á sig enda er það hluti af
vinnunni en maður hefur verið heppinn. Meiðsli
gera ekki alltaf boð á undan sér og menn geta ver-
ið misheppnir í þeim efnum. Ég hef verið heppinn
undanfarið og reyni að halda því þannig.“
Larissa er sem stendur í 11. sæti af fjórtán lið-
um í grísku deildinni með 26 stig eftir 24 umferð-
ir. „Deildin er ansi njöfn og sérstaklega er miðju-
moðið mjög jafnt. Nú eru tveir leikir eftir í
deildakeppninni eða áður en úrslitakeppnin byrj-
ar. Við þurfum að sjá hvað gerist ef okkur tekst
að vinna síðustu tvo leikina. Þá kemur í ljós hvort
okkur tekst að hanga í efri hlutanum.“
Samningurinn rennur út í sumar
Samningur Ögmundar rennur út í sumar og
forráðamenn Larissa hafa tekið upp viðræður við
markvörðinn um framhaldið.
„Larissa vill semja aftur við mig og við höfum
rætt málin. Ég er að skoða stöðuna en önnur félög
hafa sýnt mér áhuga. Ég á því eftir að leggjast yf-
ir það sem er í boði. Ég vil ekki segja allt of mikið
um þessi mál að svo stöddu en ég er alla vega
spenntur fyrir framtíðinni,“ segir Ögmundur en
hann var á dögunum orðaður við AEK í Aþenu en
þar hafa þeir Arnar, Eiður Smári Guðjohnsen og
Elfar Freyr Helgason leikið.
Spurður um baklandið og umgjörðina hjá Lar-
issa segir Ögmundur það vera gott. „Baklandið er
fínt. Larissa er eitt þeirra liða sem koma næst á
eftir stóru liðunum og hefur til dæmis orðið meist-
ari. Völlurinn er flottur en mætingin gæti verið
betri þótt stuðningsmennirnir séu góðir. Mikill
áhugi er á fótbolta í Grikklandi sem er mjög
skemmtilegt. Grikkirnir eru mjög heitir yfirhöfuð
og sérstaklega þegar kemur að fótboltanum. Allir
eiga sitt lið og allir hafa skoðanir á hlutunum.
Mikið er rætt um fótboltann og fólk fylgist með. Í
kringum félögin er oft alls kyns pólitík sem snýr
að eigendunum en það er eitthvað sem ég hef ekki
sett mig inn í og ætla ekki að gera.“
Larissa kom til Íslands
Ýmsar kempur hafa spilað fyrir Larissa í gegn-
um árin. Þar má nefna Geremi, Luis Boa Morte,
Nolberto Solano, Lauren Robert og Stelios Gian-
nakopoulos til að nefna einhverja. Larissa kom til
Íslands sumarið 2009 og mætti KR í forkeppni
fyrir Evrópudeildina. KR sigraði 2:0 í Frosta-
skjólinu og liðin gerðu 1:1 jafntefli. Ekki eru þetta
þau úrslit sem menn eru stoltastir af hjá gríska
félaginu en eru menn nokkuð búnir að gleyma því
þar á bæ að hafa verið slegnir út af íslensku liði?
„Nei nei, alls ekki. Sjúkraþjálfarinn í liðinu var
að ég held með Larissa í þessari ferð og veit allt
um þetta. Fleiri menn hjá félaginu hafa nefnt
þetta við mig. Þeir segjast hafa haldið að þeir
væru á leið í skemmtiferð til Íslands til að mæta
áhugamannaliði en fengið að kenna á því.“
Ögmundur segist skilja eitthvað í grískunni en
segir að innan hópsins sé bæði töluð gríska og
enska. „Annaðhvort er töluð gríska, og þá með
hjálp frá enskum túlk, eða það er töluð enska.
Maður reynir að koma sér inn í grískuna eins
mikið og maður getur. Eftir tæp tvö ár er maður
farinn að geta bjargað sér en ekki alveg nógu
mikið.“
Lífsgæði í Grikklandi fóru niður á við eftir
bankakreppuna eins og frægt varð og fluttar voru
fréttir af efnahagserfiðleikum í Grikklandi um
nokkurt skeið. Eru Grikkir að ná vopnum sínum?
„Auðvitað er lífið hér frábrugðið því sem maður
hefur kynnst heima á Íslandi. Töluvert ódýrara er
að lifa í Grikklandi heldur en á Norðurlöndunum.
Maður verður var við að hér hafi verið kreppa.
Þetta tekur tíma eins og við Íslendingar vitum
sjálfir. Ég vona Grikkjanna vegna að stöðugleik-
inn verði meiri hérna enda hafa þeir ýmsa tekju-
möguleika, til dæmis í ferðaþjónustunni. En ég er
svo sem ekki neinn sérfræðingur í þjóðfélagsmál-
unum í Grikklandi,“ segir Ögmundur Kristinsson,
en Morgunblaðið tók púlsinn á honum í gær.
Hefur enn ekki misst úr
deildarleik í Grikklandi
Ögmundi markverði stendur til boða að vera áfram hjá Larissa
AFP
Traustur Ögmundur Kristjánsson hefur ekki misst af deildarleik síðan í apríl árið 2018.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2020
Thelma Dís Ágústsdóttir, landsliðs-
kona í körfubolta, var valin íþrótta-
maður vikunnar hjá Ball State-
háskólanum í Indiana vestanhafs.
Thelma skoraði 26 stig, tók sjö fráköst
og gaf tvær stoðsendingar í 69:58-
sigri á Buffalo. Hefur hún nú í tvígang
hlotið viðurkenninguna.
Þýska knattspyrnufélagið Borussia
Dortmund keypti í gær þýska miðju-
manninn Emre Can frá Juventus. Can
kom til Dortmund á lánssamningi í
janúar, en þýska félagið hefur nú keypt
hann á 25 milljónir evra. Can lék með
Liverpool áður en hann fór til Juven-
tus.
Knattspyrnudeild Magna hefur
fengið miðjumanninn Tómas Veigar
Eiríksson að láni frá KA. Tómas lék tvo
leiki með Magna síðasta sumar, en var
einnig að láni hjá KF. Hann skrifaði ný-
verið undir samning við KA sem gildir
til 2021.
Danski miðvörðurinn Andreas
Christensen hjá Chelsea var nefbrot-
inn þegar hann reyndi að koma í veg
fyrir að Anthony Martial kæmi Man-
chester United yfir á lokamínútum
fyrri hálfleiksins í viðureign liðanna á
Stamford Bridge í fyrrakvöld. Fjórum
mínútum áður en Martial skoraði fékk
Christensen þungt högg frá Frakk-
anum í návígi þeirra og þurfti aðhlynn-
ingu í smástund. Hann hélt áfram en á
45. mínútu hafði Martial betur í skalla-
einvígi við Danann og skoraði fyrir
United. Christensen var síðan skipt af
velli í hálfleik. Chelsea missti líka
N’Golo Kanté af velli snemma leiks
vegna meiðsla og Frank Lampard,
knattspyrnustjóri Chelsea, sagði að
um tognun væri að ræða sem ætti eft-
ir að skoða betur en útlitið væri ekki
gott.
Danski knattspyrnumaðurinn Mart-
in Braithwaite gæti orðið leikmaður
Barcelona á næstu dögum en félagið
íhugar að kaupa hann af Leganés. Þar
sem Ousmane Dembélé verður frá
keppni í meira en sex mánuði má
Barcelona kaupa leikmann strax, þó
félagaskiptaglugginn sé ekki opinn,
samkvæmt reglum spænsku 1. deild-
arinnar. Sá leikmaður má þó aðeins
koma frá öðru spænsku liði og yrði
ekki gjaldgengur með Barcelona í
Meistaradeild Evrópu. Braithwaite hef-
ur skorað 6 mörk í 19 leikjum með
Leganés í vetur og sjö mörk í 39 lands-
leikjum fyrir Danmörku.
Forseti portúgalska knattspyrnu-
félagsins Porto hefur staðfest að Iker
Casillas, markvörðurinn reyndi, sé
formlega hættur sem leikmaður hjá
félaginu en Casillas tilkynnti um fram-
boð sitt til kjörs forseta spænska
knattspyrnusambandsins á mánudag-
inn. Forsetinn, Pinto de Costa, sagði
við O Jogo að þeir hefðu sest saman
yfir morgunverði þar sem Ca-
sillas hefði tjáð honum
ákvörðun sína. Markvörð-
urinn hefur ekkert spilað
síðan hann fékk
hjartaáfall á æf-
ingu með Porto
síðasta vor en hóf
æfingar á ný með
liðinu í nóvember.
Hann lék 725
mótsleiki fyrir
Real Madrid
og 167
landsleiki
fyrir Spán
og vann fjölda titla
með báðum liðum.
Eitt
ogannað
Valsmenn gætu mætt sínum fornu fjendum í Potaissa
Turda frá Rúmeníu, takist þeim að sigra Halden frá
Noregi í átta liða úrslitum Áskorendabikars karla í
handknattleik. Dregið var til átta liða úrslitanna í gær
og Valur dróst gegn Halden, þar sem fyrri leikurinn á að
fara fram í Noregi, en Potaissa mætir AEK frá Grikk-
landi. Tvö ár í röð náði rúmenska félagið að slá út ís-
lensk lið með einu marki samanlagt í undanúrslitum í
þessari sömu keppni, Val vorið 2017 og ÍBV vorið 2018.
Seinni leikur Vals og Potaissa í Rúmeníu var sérstaklega
sögulegur, Valur hafði unnið 30:22 á Hlíðarenda en tap-
aði 32:23 í Turda eftir allskrautlega dómgæslu sem HSÍ
kvartaði yfir til EHF.
Mótherjar Valsmanna í átta liða úrslitunum, Halden, eru í áttunda sæti
af tólf liðum í norsku úrvalsdeildinni og hafa verið á þeim slóðum síðustu
ár. Liðið er frá samnefndum bæ syðst í Noregi, skammt frá sænsku landa-
mærunum, mitt á milli Óslóar og Gautaborgar. Leikið er tvær síðustu helg-
arnar í mars, fyrst í Noregi. vs@mbl.is
Valur gegn fornum fjendum?
Valsmenn fara
til Noregs.
Stuðningsmenn enska knattspyrnufélagsins Tottenham
Hotspur fengu slæmar fréttir í gær þegar félagið skýrði
frá því að suðurkóreski sóknarmaðurinn Heung-min Son
væri handleggsbrotinn eftir leikinn gegn Aston Villa á
sunnudaginn. Þar skoraði hann tvö mörk í 3:2 útisigri,
sigurmarkið í uppbótartíma, en lék brotinn eftir að hafa
meiðst þegar hann skoraði fyrra mark sitt í leiknum á
lokamínútu fyrri hálfleiks. Son er á leið í aðgerð og sam-
kvæmt tilkynningu félagsins verður hann frá keppni í
nokkrar vikur. José Mourinho knattspyrnustjóri sagði á
fréttamannafundi í gær að hætt væri við að fjarvera
hans yrði lengri, jafnvel út tímabilið.
Tottenham er því án tveggja sinna bestu sóknarmanna þar sem Harry
Kane fyrirliði er úr leik fram á vor eftir að hafa meiðst illa á nýársdag.
Tottenham verður í það minnsta án Son í leikjunum gegn RB Leipzig frá
Þýskalandi í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en fyrri leikurinn fer
fram í London í kvöld. Atalanta mætir Valencia í hinum leik kvöldsins í
keppninni. vs@mbl.is
Annar lykilmaður úr leik
Heung-min
Son