Morgunblaðið - 19.02.2020, Page 32

Morgunblaðið - 19.02.2020, Page 32
Tónlistarhópurinn Blóðberg frum- flytur Tangó eftir Harald V. Svein- björnsson auk þess að flytja tónlist eftir Girolamo Frescobaldi, Dario Castello og Isaac Albéniz á háskólatónleikum í kapellu aðal- byggingar Háskóla Íslands í dag kl. 12.30. Blóðberg skipa Helga Aðal- heiður Jónsdóttir á blokkflautu, Svanur Vilbergsson á gítar og Kristín Lárusdóttir á selló/víólu da gamba. Aðgangur er ókeypis. Tangó frumfluttur á háskólatónleikum MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 50. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Liverpool mátti þola 0:1-tap á úti- velli fyrir Atlético Madríd í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meist- aradeildar Evrópu í fótbolta í gær- kvöld. Saúl Niguez skoraði sig- urmarkið strax á 4. mínútu. Liverpool gekk illa að skapa sér færi gegn sterkri vörn Atlético. Erling Braut Håland skoraði mörk Dort- mund í 2:1-heimasigri á PSG. »26 Liverpool átti ekki skot á mark Atlético Madríd ÍÞRÓTTIR MENNING „Larissa vill semja aftur við mig og við höfum rætt málin. Ég er að skoða stöðuna en önnur félög hafa sýnt mér áhuga. Ég á því eftir að leggj- ast yfir það sem er í boði,“ segir Ögmundur Kristinsson, lands- liðsmarkvörður í knattspyrnu, meðal annars í samtali við Morg- unblaðið í dag en samningur hans í Grikklandi rennur út í sumar. »27 Larissa vill semja við Ögmund á nýjan leik Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tónlistar- og söngkonan Anna Han- sen, sem býr í Kaupmannahöfn, hef- ur verið á ferðinni heimsálfa á milli að undanförnu. Hún er nú við laga- smíðar og söng í Bangkok í Taílandi, en var í Nashville í Bandaríkjunum í liðinni viku að kynna fyrsta lag sitt, sem hún gaf út 7. febrúar síðastliðinn. „Countrylagið“ Grace er á streymisveitum og Youtube en Anna samdi það í samvinnu við Stefan Mørk og Lars Andersen. „Nashville er „höfuðborg“ country-tónlistar- innar og því fór ég þangað daginn sem lagið kom út, bæði til að kynna það og fylgja eftir tengslaneti sem ég byrjaði að byggja þar upp í fyrra, til þess að semja lög með lagahöf- undum á svæðinu og til að sækja inn- blástur í tónlistarlíf borgarinnar,“ segir hún. Anna spilaði á The George Jones og The Local í Nashville, þar sem lagahöfundar spiluðu tvö til þrjú frumsamin lög hver. Auk þess kom hún fram með nokkrum lagahöf- undum, sem hún segir að hafi allir verið tilnefndir þrisvar til fjórum sinnum til Grammy-verðlauna. Hún segir mikið um það að lagahöfundar hittist og semji saman í borginni og hún hafi fengið þó nokkur tilboð, eft- ir að hún kom fram, um að vinna með fólki. „Við kærastinn minn, gít- arleikarinn Anders Bo, vorum að grínast með það að í Nashville hittir maður ekki fólk og stingur upp á að hittast í kaffi, heldur er aðalsetn- ingin „við þyrftum endilega að hitt- ast og prófa að semja saman“.“ Fleiri lög og kynningar Þegar Anna var í grunnskóla lærði hún á klarínett og á aldrinum 14 til 19 ára var hún í klassísku söng- námi í Söngskólanum í Reykjavík. Hún flutti til Danmerkur 2008 og út- skrifaðist sem söngkennari frá Complete Vocal Institute 2014. Síð- an hefur hún unnið sem söngkennari þar og í öðrum tónlistarskólum í Kaupmannahöfn auk þess að starfa sem söngkona í hinum ýmsu verk- efnum. Nýlega samdi hún texta og söng tvö lög fyrir norsk/danska Net- flix-þáttinn Ragnarok, þar sem Gísli Örn Ragnarsson er í stóru hlutverki. „Textinn er á íslensku,“ segir hún og lofar verkefnið. „Ég hef haft mjög mikið að gera, sérstaklega undan- farin þrjú til fjögur ár, og núna fannst mér loksins kominn tími á að gefa út mína eigin tónlist.“ Fyrir skömmu var Anna kölluð inn í upptökustúdíó í Kaupmanna- höfn með ísraelskum listamanni og upptökustjóra hans frá Los Angeles. Hann bauð kærustuparinu til Taí- lands til að vinna með sér í upptöku- stúdíói, sem hann leigði í Bangkok, og semja meira. Anna segir að eftir vinnuna í Bangkok og nokkurra daga frí liggi leiðin aftur í hvers- dagsleikann í Kaupmannahöfn. Stefnan sé að halda áfram að gefa út lög og koma tónlist sinni frekar á framfæri í Danmörku og á Íslandi. „Planið er svo að fara fljótlega aftur til Nashville og fylgja ferðinni eftir, hamra járnið á meðan það er heitt og vera í sambandi við fólkið sem ég hef kynnst. Það er ekki á hverjum degi sem maður hefur tækifæri til þess að vinna með fólki, sem hefur gefið frá sér vinsæl lög og er með margar Grammy-tilnefningar á bakinu.“ Í Nashville Á tónleikum, frá vinstri: Stefan Mørk, Anna Hansen, Bill O’Hanlan, Megan Barker og Anders Bo. Með stjörnum í Nashville  Anna Hansen kynnti nýtt lag sitt með þekktu tónlistarfólki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.