Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga. 10–17 Laugardaga. 11–15 Samkeppniseftirlitið ólmast núvið að koma í veg fyrir að Krónan haldi áfram rekstri á Hvolsvelli og ástæðan sem gefin er upp er að með því sé verið að þjóna hagsmunum neytenda.    Stofnuninlætur sér ekki nægja að heyja þessa mikilvægu baráttu sína með þeim tækjum og tólum sem löggjafinn skammtar henni, heldur hefur hún tekið upp á því að auglýsa af- stöðu sína í þessum efnum á Face- book.    Sá angi baráttunnar er í meiralagi sérkennilegur í ýmsu til- liti og hlýtur meðal annars að vekja spurningar um það hvort neytendum, sem líka eru skatt- greiðendur, er greiði gerður með slíku háttarlagi.    En þessi barátta Samkeppnis-eftirlitsins er ekki síður sér- kennileg þegar haft er í huga að allt bendir til að íbúum Hvols- vallar líki ágætlega við verslunina sem Samkeppniseftirlitið vill loka og vilja hafa hana áfram.    Hvernig getur þá verið að Sam-keppniseftirlitið sé að gæta hagsmuna íbúanna með þessari undarlegu baráttu sinni?    Getur verið að stofna þurfi ann-að samkeppniseftirlit til við- bótar við það sem nú starfar til að koma meira viti í þennan mála- flokk?    Hlýtur ekki vandinn að vera sáað Samkeppniseftirlitið kemst upp með hvað sem er vegna skorts á samkeppni? Sérkennilegt baráttumál STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hinn nýi dráttarbátur Faxaflóa- hafna, Magni, lagði loks af stað til Íslands í fyrrakvöld. Ef allt geng- ur að óskum er von á honum til Reykjavíkur í lok næstu viku. Magni hefur beðið brottfarar í Rotterdam í Hollandi. Til stóð að hann legði af stað til Íslands í byrjun janúar en stöðug ótíð á út- hafinu hefur tafið brottför. Fjórir eru um borð í Magna, verktakar á vegum Damen skipa- smíðastöðvarinnar. Að sögn Gísla Jóhanns Hallssonar, yfirhafnsögu- manns hjá Faxaflóahöfnum, er takmarkið hjá skipverjum ná til Orkneyja fyrir helgi og vera þá komnir í stöðu til að fara yfir haf- ið í næsta „veðurglugga“, sem þeir sjá fyrir sér að sé á sunnudag. „Þeir ætla að halda möguleikanum opnum að skjóta sér inn til Fær- eyja ef þeir sjá fram á að ná ekki til Íslands í einum legg,“ segir Gísli Jóhann. Hann og fimm aðrir skipstjórar Faxaflóahafna fóru í fyrra í tveggja vikna þjálfun í skipahermi í Hollandi. Þeir munu svo fá þjálf- un á bátinn sjálfan þegar hann kemur til landsins. Skipstjórinn og yfirvélstjórinn munu væntanlega sjá um þjálfun á bátinn. Hinn nýi dráttarbátur var smíð- aður í Víetnam. Magni lagði af stað til Íslands 19. október og kom til Rotterdam tveimur mán- uðum seinna, eða 18. desember. Hann hafði þá lagt að baki tæp- lega 10.000 sjómílna siglingu. Gekk sú sigling vel að öllu leyti. sisi@mbl.is Nýi Magni loks lagður af stað heim Ljósmynd/Damen Nýr Magni Báturinn er loks lagður af stað í lokaáfangann til Íslands. Biskup Íslands, séra Agnes M. Sig- urðardóttir, hefur staðfest ráðningu tveggja presta við Garða- og Saur- bæjarprestakall í Vesturlandspró- fastsdæmi. Akranes er stærsta sóknin í prestakallinu. Alls sóttu sjö um störfin tvö en tveir umsækjenda drógu umsóknir sínar til baka. Kjörnefnd kaus séra Jónínu Ólafs- dóttur til almennra prestsstarfa og Þóru Björgu Sigurðardóttur guð- fræðing í starf er snýr að æskulýðs- málum. Í samræmi við þær breytingar sem nú hafa orðið á starfsmanna- málum þjóðkirkjunnar eru þær sr. Jónína og Þóra Björg ráðnar ótíma- bundið í starfið með hefðbundnum uppsagnarfresti, að því er fram kem- ur í frétt á heimasíðu kirkjunnar. Sr. Jónína Ólafsdóttir er fædd á Egilsstöðum 1984 og ólst upp í Þing- eyjarsýslu frá fimm ára aldri. Hún lauk BA-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 2008 og mag. theol.-prófi 2017, diplómaprófi í sál- gæslu 2019 og vinnur nú að lokarit- gerð til MA-prófs í guðfræði á sviði kristinnar hjónabandssiðfræði. Sr. Jónína var settur prestur í Dalvíkurprestakalli frá 1. október sl. til 31. mars 2020. Hún var vígð 11. ágúst á síðasta ári. Eiginmaður Jónínu er Eggert Þ. Þórarinsson, forstöðumaður í Seðla- banka Íslands, og eiga þau tvö börn. Þóra Björg Sigurðardóttir er fædd í Reykjavík 1989. Hún lauk prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 2019 og BS-prófi í sálfræði frá sama skóla 2016. Hún hefur starfað sem ritari og æskulýðsfulltrúi við Grafarvogskirkju frá árinu 2011 en komið að kristilegu starfi frá árinu 2008, m.a. á vegum KFUM&K í Vatnaskógi og Ölveri. Séra Þráinn Haraldsson er sóknarprestur á Akranesi. Þar í bæ eru kirkjur prestakallsins, auk Hall- grímskirkju í Saurbæ. sisi@mbl.is Tveir nýir prestar til starfa á Akranesi  Kjörnefnd valdi tvær konur úr hópi fimm umsækjenda Jónína Ólafsdóttir Þóra Björg Sigurðardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.