Morgunblaðið - 20.02.2020, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Sundaborg 7-9 | 104Reykjavík | Sími 511 4747 | www.northwear.is
Starfsmannafatnaður
Einkennisfatnaður
Við höfum áður rætt ummikilvægi hreyfingar fyrireldra fólk. Okkur langar núað halda áfram og ræða
hreyfingu sem hægt er að stunda
heima, því ekki eiga allir heiman-
gengt, og það er aldrei of seint að
byrja.
Styrkur og lipur lengur
Með daglegri hreyfingu höldum við
okkur styrkum og liprum lengur,
bætum heilsuna og viðhöldum betur
færninni til að lifa sjálfstæðu lífi. Við
erum misjafnlega vel á okkur komin,
og því er um að gera að byrja rólega
og síðan smáauka hreyfinguna.
Allir þurfa daglega hreyfingu og
margt er hægt að gera heima. Ef þú
átt erfitt með jafnvægið, þá er um að
gera að tryggja það, gæta þess að
styðja sig og geta gripið í eitthvað
stöðugt.
Forðastu kyrrsetu og stattu upp
reglulega og liðkaðu þig t.d. með
því að ganga um gólf. Að hreyfa sig
þannig reglulega yfir daginn getur
dregið úr verkjum, einkum í baki.
Gakktu rösklega um gólf, eða
gakktu rösklega á staðnum. Lyftu
vel fótum og sveiflaðu örmum ef
jafnvægið leyfir. Þegar við
hreyfum okkur rösklega fáum við
þjálfun fyrir vöðva, hjarta, æða-
kerfi og lungu.
Stigar eru góð styrktar- og þrek-
þjálfun. Nýttu þá ef þeir eru í hús-
næðinu, gakktu upp og niður stig-
ana. Gott er að byrja á nokkrum
tröppum.
Heimilisstörf eru þjálfun, s.s. að
þurrka af, sópa, hengja upp þvott.
Stattu upp úr stólnum og sestu aftur
nokkrum sinnum. Frábær
styrktaræfing fyrir fætur og
stuðlar að betri beinþéttni og bætir
jafnvægið.
Lyftu þér upp á tær og hæla með
þvi að styðja þig, t.d.við eldhús-
vaskinn. Það styrkir og liðkar
fætur.
Dansaðu og hreyfðu þig við tónlist.
Það er frábær heilsubætandi
hreyfing, t.d. rifja upp vals og
tangó.
Ekki gleyma að setja tónlist á þeg-
ar þú gerir æfingar, það verður svo
miklu skemmtilegra.
Klappaðu saman lófum
Það er ekki á allra færi að æfa í
standandi stöðu. Þú getur gert marg-
ar æfingar sitjandi á stól.
Lyftu fótum á víxl og stappaðu í
gólf.
Réttu vel úr öðru hné í einu.
Krepptu og réttu ökklana, annan í
einu.
Beygðu þig mjúklega niður og
teygðu fingur í gólf. Réttu síðan úr
þér og teygðu hendur upp í loft.
Spenntu greipar fyrir aftan
hnakka, lyftu bringu og færðu oln-
bogana aftur.
Klappaðu saman lófum og klapp-
aðu á læri, á víxl. Ekki skemmir ef
hlustað er á góða tónlist með eða
sungið.
Það er hægt að gera allar æfing-
arnar með morgunleikfimi út-
varpsins sitjandi, og hreyfa arma
og fætur.
Svo kviðurinn hreyfist
Eftir góða hreyfistund skaltu koma
þér vel fyrir í stól, lokaðu augunum,
settu hendur á kvið og fylgstu með
andardrættinum. Andaðu inn og út
um nefið ef þú getur, annars munn-
inn. Athugaðu hvort þú náir að anda
djúpt, svo kviðurinn hreyfist og
njóttu. Í ofantöldum tillögum að
hreyfingu var einkum hugað að þjálf-
un beinagrindarvöðva. En það er
einnig gott að þjálfa raddböndin, æfa
sig að lesa upphátt, tala hátt og skýrt
og frábær raddþjálfun er að syngja.
Á vefnum heilsuvera.is eru leið-
beiningar um hreyfingu fyrir eldra
fólk.
Hreyfing aldraðra er mikilvæg
Morgunblaðið/Hari
Stólaleikfimi Forðastu kyrrsetu og stattu upp reglulega og liðkaðu þig t.d.
með því að ganga um gólf. Að hreyfa sig þannig getur dregið úr verkjum.
Heilsuráð
Ásbjörg Magnúsdóttir iðjuþjálfi,
Jóna Þorsteinsdóttir sjúkraþjálfari og
Sigrún K. Barkardóttir, hjúkrunarfræð-
ingur hjá Heimahjúkrun Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins.
Sex doktorsnemar við Lyfjafræði-
deild Háskóla Íslands hafa hlotið
viðurkenningu úr Verðlaunasjóði
Bergþóru og Þorsteins Scheving
Thorsteinssonar lyfsala við Háskóla
Íslands. Þetta eru Blanca Lorenzo
Veiga, Ólöf Gerður Ísberg, Pitsiree
Praphanwittaya, Sankar Rathinam,
Sebastian Björnsson og Unnur Arna
Þorsteinsdóttir.
Rannsóknir þeirra ná yfir mjög
breitt svið innan lyfjafræðinnar, allt
frá þróun nýrra aðferða til bættra
sjúkdómsgreininga, örkjarnadreifum
og nanóagnaferjum til lyfjaflutninga
að leit nýrra lyfjasprota gegn Alz-
heimerssjúkdómi og efnasmíði bakt-
eríuhemjandi peptíðafleiða, að því er
fram kemur í frétt frá Háskóla Ís-
lands.
Þetta er í tólfta sinn sem doktors-
nemum í lyfjafræði og/eða lyfjavís-
indum við Háskóla Íslands er veitt
viðurkenning úr sjóðnum fyrir fram-
úrskarandi rannsóknir. Heildar-
upphæð styrksins er 1,8 milljónir
króna og fær hver styrkhafi fyrir sig
300 þúsund krónur.
Verðlaunasjóðnum er ætlað að
styrkja vísindaleg afrek á sviði lyfja-
fræði og rannsóknir og framhalds-
nám í faginu. Sjóðurinn hefur stutt
við kraftmikla uppbyggingu doktors-
náms í lyfjafræði við háskólann og
gert nemendum kleift að kynna rann-
sóknir sínar erlendis og taka þátt í
erlendu rannsóknasamstarfi. Bent
Scheving Thorsteinsson stofnaði
sjóðinn í maí árið 2001 til minningar
um foreldra sína. Í desember 2007
bætti Bent um betur og lagði til við-
bótarframlag við höfuðstól sjóðsins.
Eigið fé er um 20 milljónir króna en
samtals hefur Bent gefið Háskóla Ís-
lands 60 milljónir króna með stofnun
þriggja sjóða sem heyra undir
Styrktarsjóði Háskóla Íslands.
Hinir sjóðirnir tveir eru Verðlauna-
sjóður Óskars Þórðarsonar barna-
læknis, sem hefur það að markmiði
að veita verðlaun fyrir vísindaleg af-
rek, rannsóknir, ritgerðir og skylda
starfsemi á sviði barnalækninga, og
Styrktarsjóður Margaretar og Bents
Scheving Thorsteinssonar, sem ætl-
að er að styðja við eineltisrannsóknir.
Bent Scheving lést á Landspítal-
anum 7. janúar 2015 á 93. aldursári.
„Hann var einn af mestu velunnurum
Háskóla Íslands og munu sjóðirnir
sem hann stofnaði við háskólann
halda minningu hans á lofti um
ókomin ár. Styrktarsjóðir Háskóla Ís-
lands hafa umsjón með sjóðum og
gjöfum sem Háskóla Íslands hafa ver-
ið ánafnaðar allt frá stofnun hans.
Flestir þeirra starfa samkvæmt stað-
festri skipulagsskrá og er þeim ætlað
að styðja ýmis verkefni á ákveðnum
fræðasviðum til hagsældar fyrir Há-
skóla Íslands, stúdenta eða starfs-
fólk,“ segir í frétt HÍ.
Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving
Sex doktorsnemar í lyfjafræði
við HÍ fengu viðurkenningar
Rannsóknir Við afhendingu viðurkenninga til doktorsnema í lyfjafræði.
Karlalið Selfoss í handbolta er Sunn-
lendingar ársins 2019, samkvæmt
könnun á fréttavefnum sunn-
lenska.is. Fékk liðið nokkuð örugga
kosningu, að því er fram kemur á
vefnum.
Þar segir einnig að árið 2019 hafi
verið stórt í íþróttalífinu á Suðurlandi
en upp úr hafi staðið fyrsti Íslands-
meistaratitill Selfoss í boltaíþrótt,
þegar Selfyssingar urðu Íslands-
meistarar í handknattleik karla 22.
maí 2019. Höfðu þeir sigur á Haukum
eftir fjóra leiki í úrslitunum.
Hergeir Grímsson, fyrirliði Selfoss,
tók við viðurkenningunni frá Sunn-
lenska úr hendi Guðmundar Karls
Sigurdórssonar ritstjóra, fyrir leik
liðsins gegn Aftureldingu í Olísdeild-
inni í vikunni.
„Við erum bara mjög stoltir og
þakklátir fyrir að vera kosnir Sunn-
lendingar ársins. Árið var frábært hjá
okkur og eins og alltaf þá fengum við
mjög góðan stuðning af öllu Suður-
landi,“ er m.a. haft eftir Hergeiri á
vef sunnlenska.is.
Sunnlendingar ársins
Karlalið Selfoss
í handbolta
Ljósmynd/Sunnlenska
Viðurkenning Hergeir Grímsson,
fyrirliði Selfoss, til vinstri.