Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Reksturinn fór vel af stað, ofthefur verið erfitt en alltafgaman,“ segir Anna DóraJóhannsdóttir, einn eig-
enda Hressó.
Hún segir að það hafi oft á tíðum
reynst erfitt að halda úti svo víðtækri
starfsemi í litlu samfélagi. „Stöðvar
þykja litlar ef þar æfa færri en 2.000
manns en við skiptum 800 iðkendum
á þrjá staði. Við vorum kannski full-
bjartsýnar til að byrja með og erum
búnar að vera í basli eiginlega þangað
til á síðustu árum. Annaðhvort var
þetta þrjóska eða heimska, að vinna
kauplaust í tuttugu ár,“ segir Anna
Dóra og hlær.
Hún stofnaði stöðina með Jó-
hönnu Jóhannsdóttur systur sinni
sem er íþróttafræðingur. Þegar hug-
myndin að Hressó fæddist voru þær
báðar búsettar í Reykjavík en syst-
urnar eru frá Vestmannaeyjum.
Þá stunduðu þær líkamsrækt í
Studio Ágústu og Hrafns og kviknaði
hugmyndin að líkamsræktarstöð í
Vestmannaeyjum vegna þess sem var
boðið upp á þar. Á þeim tíma, árið
1995, var engin líkamsræktarstöð í
Vestmannaeyjum, að frátöldum fá-
tæklegum tækjasal.
Áttræður fastakúnni
Faðir Jóhönnu og Önnu Dóru
gaf systrunum góðfúslegt leyfi til að
nýta húsnæði sem fjölskyldan átti
undir nýja líkamsræktarstöð.
„Pabbi átti þessa hæð sem var
alveg í rúst. Við þurftum að gera hana
alla upp en hann var alveg sam-
þykkur því að við fengjum þessa hæð
sem var ónotuð hvort sem var. Svo
vorum við svolítið stórhuga, keyptum
allt nýtt inn og innréttuðum allt. Við
fengum lán fyrir þessu og bankinn
virtist treysta okkur þar sem við
þurftum engan ábyrgðarmann eða
neitt.“
Anna Dóra segir að Eyjamenn
hafi strax verið spenntir fyrir líkams-
ræktarstöðinni.
„Það komu mjög margir og var
strax vel mætt í tíma.“
Þónokkrir iðkendanna sem hófu
þjálfun hjá systrunum árið 1995
stunda enn líkamsrækt hjá Hressó.
„Elsti maðurinn sem æfir hjá
okkur hefur verið hjá okkur frá upp-
hafi. Hann er kominn yfir áttrætt og
æfir enn þá. Konan hans er 75 ára og
hún er bara eins og stelpa, hún tekur
margar ungar í nefið,“ segir Anna
Dóra.
Hressó hefur breyst mikið á síð-
ustu 25 árum eins og vænta má.
„Þetta var eiginlega bara dans
fyrst, aðallega eróbikk og pallar. Svo
bættum við spinning og body pump
við og höfum fylgst með öllu og reynt
að miða okkur við Reykjavíkina.
Við reynum eins og við getum að
hafa sem mest í boði og halda verðinu
lágu á sama tíma. Fólk vill oft meina
að úti á landi eigi verð alltaf að vera
svo lágt,“ segir Anna Dóra. Nokkru
eftir að Hressó opnaði sína fyrstu stöð
var opnuð önnur stöð á þeirra vegum.
Þar er meðal annars boðið upp á
crossfit en Anna Dóra segir að það
hafi einfaldlega ekki gengið að bjóða
upp á crossfit á upprunalega staðnum
þar sem hann er á annarri hæð.
„Það bara gekk ekki, húsið hefði
hrunið!“
Árið 2015 gerðu eigendur Hressó
tilboð í rekstur íþróttamiðstöðvar-
innar í Vestmannaeyjum, tilboðið var
samþykkt og hafa þau rekið tækja-
salinn síðan 2016.
Spurð hvort líkamsræktarmenn-
ing hérlendis sé almennt búin að
breytast mikið á þessum aldarfjórð-
ung sem um ræðir, segir Anna Dóra:
„Það eru svo miklu fleiri sem
nýta sér líkamsræktarstöðvar nú til
dags og karlar eru farnir að taka
virkari þátt.
Í Vestmannaeyjum eru þeir
reyndar ekkert rosalega duglegir.
Þeir þora engan veginn í hóptíma
nema einn og einn hugaður. Þeir virð-
ast frekar vilja æfa einir. Það er frek-
ar að þeir sæki í crossfitt samt. Það er
líka oft feimni úti á landi þar sem allir
þekkja alla.“
Hressó er fjölskyldufyrirtæki en
Anna Dóra og Jóhanna reka stöðv-
arnar ásamt Vigni Sigurðssyni, eigin-
manni Önnu Dóru, og Gísla Hjartar-
syni, eiginmanni Jóhönnu.
Hressó býður til stærðarinnar
afmælisveislu í Höllinni í Vestmanna-
eyjum á laugardaginn og fer hver að
verða síðastur að tryggja sér miða en
miðasölu lýkur í kvöld.
Herbert Guðmundsson tekur
lagið og spila Sprite Zero Klan og
Foreign Monkeys einnig fyrir dansi.
Páll Óskar þeytir svo skífum inn í
nóttina. Indverskt hlaðborð verður á
staðnum ásamt skemmtiatriðum.
Aldarfjórðungur af líkamsrækt
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Hress Eyjamenn eru duglegir að mæta í ræktina og gera það með bros á vör. Þeir hafa úr mörgum tækjum að velja hjá Hressó.
Systur Anna Dóra og Jóhanna reka stöðvarnar ásamt Vigni Sigurðssyni,
eiginmanni Önnu Dóru, og Gísla Hjartarsyni, eiginmanni Jóhönnu.
Líkamsræktarstöðin
Hressó í Vestmanna-
eyjum fagnar 25 ára af-
mæli sínu á laugardag
en eigendur stöðvarinnar
reka nú stöðvar á þremur
stöðum í Vestmanna-
eyjum. Margt hefur breyst
á þessum aldarfjórðungi.
Hoppað Fjölbreytnin hjá Hressó hefur aukist með hverju árinu síðustu 25
árin. Boðið er upp á fjölda hóptíma, crossfit, tækjasal og fleira.