Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Ekki hefur verið tekin ákvörðun af
hálfu borgarinnar um að rifta sölu á
tveimur lóðum í Vesturbugt á Slipp-
svæðinu við Gömlu höfnina í Reykja-
vík, sem úthlutað var árið 2017.
Á fundi borgarráðs 14. mars 2019
var samþykktur viðauki við samning
aðila þar sem kveðið var á um að
framkvæmdir á svæðinu skyldu hefj-
ast eigi síðar en 1. október 2019.
Framkvæmdir eru ekki hafnar og
lóðahafi hefur enn ekki lokið fjár-
mögnun.
Þetta kemur fram í svari skrif-
stofu borgarstjóra og borgarritara
við fyrirspurn Vigdísar Hauks-
dóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins,
sem lagt var fram á síðasta fundi
borgarráðs.
Ákveðið var árið 2016 að tveimur
lóðum Reykjavíkurborgar við
Vesturbugt við Reykjavíkurhöfn
skyldi úthlutað að undangengnu for-
vali, samkeppnisútboði og viðræðu-
ferli.
Á besta stað við höfnina
Lóðirnar eru á besta stað við
Gömlu höfnina í Reykjavík, milli Sjó-
minjasafnsins og Slippsins.
Útboðið var framkvæmt í þrepum
með viðræðum við tilboðsgjafa í ferl-
inu. Tilboðsgjafar lögðu í lok ferlis-
ins fram ítarlegar tillögur að fyrir-
komulagi og útliti húsa á lóðunum,
boð um greiðslu til Reykjavíkur-
borgar fyrir byggingarrétt á lóð-
unum, söluverð til Reykjavíkur-
borgar á um 74 íbúðum og um 170
bílastæðum.
Tvö lokatilboð bárust. Viðræðu-
nefnd Reykjavíkurborgar lagði mat
á hönnunartillögur bjóðenda. Tilboð
VSÓ Ráðgjafar ehf., f.h. óstofnaðs
félags, í kaup á byggingarrétti var
talið mun hagstæðara en hitt tilboðið
(frá Jáverki ehf.) og einnig fékk
hönnunartillaga þeirra fleiri stig.
Gengið var því til samninga við
Vesturbugt ehf., sem er félag er til-
boðsgjafinn stofnaði. Samningur var
undirritaður 18. apríl 2017.
Af því tilefni sagði framkvæmda-
stjóri Vesturbugtar ehf. í samtali við
Morgunblaðið að stefnt væri að því
að hefja jarðvinnu fyrir árslok 2017.
Nú, rúmum tveimur árum seinna, er
allt óbreytt í Vesturbugt.
Í svari skrifstofu borgarstjóra og
borgarritara kemur fram að lóðinni
Hlésgötu 1 var úthlutað til Vestur-
bugtar ehf. með úthlutunarbréfi 7.
desember 2017 og lóðarhafinn hefur
greitt áætlað gatnagerðargjald að
fjárhæð tæpar 147 millj. kr. Lóðinni
Hlésgötu 3 hefur ekki verið formlega
úthlutað og því hefur gatnagerðar-
gjald ekki verið lagt á fyrir þá lóð.
Fram kom í fréttum í fyrra að
þróunarfélagið Kaldalón hefði tekið
yfir Vesturbugtarverkefnið. Á
heimasíðu Kaldalóns kemur fram að
félagið eigi 59,5% í Vesturbugt ehf.
Verkið er sagt á „aðalhönnunarstigi“
og að verklok séu áætluð árið 2023.
Vigdís Hauksdóttir bókaði í
borgarráði að það væri rannsókn-
arefni hvað borgin sýndi þeim að-
ilum sem hefur verið úthlutað þessu
svæði mikla þolinmæði. „Hvað hang-
ir á spýtunni?“ spurði hún. Á sama
tíma hikaði borgin ekki við að svipta
aðila lóðum stæðu þeir ekki í skilum
eða gætu ekki fjármagnað uppbygg-
ingu. Borgin gætti ekki jafnræðis
milli aðila þegar kæmi að riftun út-
hlutaðra lóða.
Borgarfulltrúar meirihlutaflokk-
anna bókuðu á móti að í Vesturbugt
væri um að ræða umfangsmikið og
flókið samningskaupaferli og hefði
borgarráði reglulega verið gerð
grein fyrir stöðu þess. „Það er ekki
sjálfgefið að veittir séu frekari frest-
ir og er það ekki gert nema mál-
efnaleg rök séu fyrir og borgarráð
samþykki.“
Þegar lóðunum við Vesturbugt var
úthlutað í apríl 2017 kom fram að á
reitnum yrðu byggðar 176 íbúðir og
atvinnuhúsnæði auk bílakjallara.
Byggingamagn ofanjarðar er áætlað
17.735 fermetrar, þar af 3.185 fer-
metra atvinnusvæði. Bílageymslur
neðanjarðar verða 10.200 fermetrar.
Samkvæmt drögum að samningi
áttu framkvæmdir að hefjast eigi
síðar en 15 mánuðum eftir undir-
skrift samnings og þeim lokið eigi
síðar en 60 mánuðum eftir undir-
skrift samnings.
Lóðahafi í Vesturbugt hefur
enn ekki lokið fjármögnun
Lóðinni var úthlutað árið 2017 og framkvæmdir áttu að hefjast í fyrrahaust
Fulltrúi Miðflokksins segir rannsóknarefni hvað borgin sýni mikla þolinmæði
Vesturbugtin Þannig mun íbúðabyggðin líta út samkvæmt þeim hugmyndum arkitekta sem kynntar voru 2017.
Reykjavíkurborg samdi í fyrra við
Knattspyrnufélagið Víking um að
taka við íþróttasvæði Fram við Safa-
mýri þegar Framarar flytja alla
starfsemi sína í Úlfarsárdal.
Þó svo að Víkingur taki ekki form-
lega yfir íþróttastarfsemi og mann-
virki í Safamýri fyrr en haustið 2022
hefur félagið þegar tekið fyrstu
skrefin varðandi starfsemi þar, að
því er fram kemur í nýjasta frétta-
bréfi Víkings.
Í janúar síðastliðnum tók íþrótta-
skóli Víkings til starfa í Álftamýrar-
skóla. Víkingur tók einnig yfir
kvennaknattspyrnu í hverfinu. Þá
hefur karatedeild Víkings flutt starf-
semi sína í Safamýri og er fyrsta
deild Víkinga sem fær þar inni. Í
fréttabréfinu kemur fram að mikil
ánægja sé með nýju aðstöðuna, en
miklar vatnsskemmdir urðu á sal
karatedeildarinnar í Víkinni fyrir
nokkrum misserum.
Til að tengja saman bæði æfinga-
svæðin hefur Víkingur tekið upp
akstursþjónustu sem tengir Víkina
og Safamýri, sem og skóla hverfis-
ins. Hófst akstursþjónustan nú í
janúar. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Safamýrin Víkingur tekur yfir alla íþróttaaðstöðu á svæðinu haustið 2022.
Víkingur tekur fyrstu
skrefin í Safamýrina
Þrír drengir fæddir 2003 og 2004
eru grunaðir um að hafa tekið bif-
reið traustataki á Rangárvöllum í
fyrradag og ekið á Hvolsvöll þar
sem þeir eru grunaðir um að hafa
hnuplað áfengi á veitingastað. Þeir
virtu ekki stöðvunarmerki lögreglu
og óku eftir þjóðvegi 1 í átt að Sel-
fossi. Lögregla reyndi að stöðva
akstur þeirra með því að leggja
naglamottu yfir veginn. Var bíll
drengjanna á fjórum loftlausum
skömmu eftir að honum var beygt
inn á Langholt á Selfossi og þar á
bak við húsnæði MAST. Þeir voru
handteknir er þeir hugðust forða
sér á hlaupum.
Reyndu að stinga
lögregluna af
35 cm verð 99.000,-
50 cm verð 139.000,-
70 cm verð 239.000,-
Til í fleiri litum
Atollo
Borðlampi
Vico Magistretti 1977
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum