Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 26
VIÐTAL
Guðrún Vala Elísdóttir
Borgarnesi
Körfuboltasysturnar í Borgarnesi, þær Guðrún
Ósk, Sigrún Sjöfn og Arna Hrönn Ámunda-
dætur, voru teknar tali í vikunni, en eins og al-
þjóð veit vann kvennalið Skallagríms í körfu
bikarmeistaratitil eftir öruggan 17 stiga sigur,
66-49, á KR.
Þetta er fyrsti bikarmeistaratitill Skalla-
gríms í sögunni og hafa Borgnesingar brosað
út að eyrum síðan.
Guðrún hefur þjálfað liðið í vetur, en þær
Sigrún og Arna Hrönn spilað. Þær eru allar
sammála um að tilfinningin að ná bikar-
meistaratitlinum sé ólýsanlega góð.
„Ég trúði því allan tímann að við gætum
orðið bikarmeistarar en ég vissi líka að við
þyrftum að leggja gífurlega mikið á okkur og
allt þurfti að ganga upp, sem það gerði,“ segir
Sigrún og Guðrún bætir við að þegar þær
slógu Hauka út hafi hún fengið góða tilfinn-
ingu um að þær gætu farið alla leið.
Mikill heiður að ná bikarmeistaratitli
Þær eru ánægðar með að hafa loksins náð
langþráðu markmiði og segja þakklæti vera
þeim efst í huga. Þakklæti fyrir að fá að taka
þátt í þessari stemningu með allri fjölskyld-
unni og mikill heiður að fá að gera þetta með
fjölskyldunni og uppeldisfélagi sínu.
Systurnar byrjuðu allar ungar að æfa körfu-
bolta með Skallagrími, en þær eru fæddar
1987, 1988 og 2001. Guðrún fór síðan í skóla
fyrir sunnan og spilaði þar með Haukum og
KR. Hún flutti aftur í Borgarnes með það að
markmiði að aðstoða liðið við að komast í efstu
deild, sem tókst og þar hefur liðið verið síðan.
Hún vinnur í Arion banka í Borgarnesi ásamt
því að þjálfa. Sigrún fór einnig í bæinn eftir
grunnskóla og hefur spilað með Haukum, KR,
Hamri og Grindavík. Enn fremur hefur hún
spilað erlendis bæði í Frakklandi og Svíþjóð.
Sigrún vinnur hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu ásamt því að stefna á að ljúka BA-
gráðu í lögreglufræði í vor. Því má svo bæta
við að hún situr í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
Arna Hrönn, sú yngsta, segist muna eftir
fyrstu körfuboltaæfingu sinni þegar hún var
fimm ára og hefur hún verið á fullu að æfa síð-
an þá, en þar sem mjög fáar stelpur voru að
æfa í hennar flokki æfði hún með strákunum
og Haukum í yngri flokkum, þegar Guðrún
systir hennar æfði þar. Eftir að meistaraflokk-
urinn var endurvakinn hefur Arna Hrönn æft
með þeim en einnig spilað með sameiginlegu
liði með Snæfelli. Arna er í Menntaskóla
Borgarfjarðar og útskrifast þaðan í vor.
Þær segjast líka vera mjög góðar vinkonur
og stefna að sama markmiðinu. „Ég er bara
þjálfarinn og þær leikmenn og við virðum
það,“ segir Guðrún.
Geta má nærri að mikill tími fer í körfuna,
þær æfa oftast um fimm sinnum í viku og svo
eru leikir einu sinni til tvisvar í viku ásamt öll-
um undirbúningi fyrir leiki og æfingar. Sem
sagt fara nánast öll kvöld í skipulagðar
æfingar með liðinu eða leiki auk þess að oft
reyna þær að æfa aukalega.
Spurðar um önnur áhugamál nefna þær
strax hestamennsku, sem er fjölskylduáhuga-
mál. Guðrún stundar hestamennsku lítið en
hefur gaman af að fylgjast með þeim, en ann-
ars hefur hún gaman af ferðalögum og að
skoða nýja staði. Sigrún hefur alltaf haft mik-
inn áhuga á hestum og finnst gott að komast
aðeins á hestbak til að hreinsa hugann. Arna
Hrönn stundar einnig hestaíþróttir.
Ómetanlegur stuðningur foreldranna
Foreldar þeirra, þau Ámundi Sigurðsson og
Ragnheiður Guðmundsdóttir, hafa stutt þær í
gegnum körfuboltann frá upphafi. Þau hafa
varla misst úr leik frá því að stelpurnar voru
litlar og telja þær að það sé ein af ástæðunum
fyrir því hversu vel hefur gengið og að þær
séu enn allar að.
„Í raun má segja að þau séu ástæðan fyrir
því að ég er enn að spila því þau hafa verið
dugleg að styðja okkur í gegnum allan ferilinn
og stuðningur þeirra er ómetanlegur.
Draumar mínir og markmið urðu að veruleika
því þau höfðu trú á mér og fórnuðu ýmsu svo
við gátum æft af krafti. Við eigum Sigga bróð-
ur líka mikið að þakka, en hann hefur hjálpað
okkur með andlegu hliðina,“ segir Sigrún. Og
Arna Hrönn tekur undir það og bætir við:
„Þau hafa stutt okkur í gegnum súrt og
sætt alveg frá fyrsta degi, skutlað okkur fram
og til baka á æfingar og varla misst úr leik.
Ég er virkilega þakklát fyrir að eiga þau að,
það er ekkert sem þau myndu ekki gera fyrir
okkur“.
Framtíðaráætlanir
„Mig langar að halda áfram að þjálfa og sjá
hvert framhaldið verður, þar sem þetta er
fyrsta tímabilið mitt sem þjálfari,“ segir Guð-
rún, sem má vel við una eftir frábæran ár-
angur. Sigrún stefnir á að halda áfram að spila
körfubolta á meðan líkaminn leyfir og ætlar
svo að sjá til hvað tekur við eftir þann tíma.
Örnu Hrönn langar að komast til Bandaríkj-
anna í háskóla, mennta sig og bæta sig í körf-
unni. Hún hefur áhuga á flugnámi.
Systurnar vilja þakka öllum sem hafa stutt
við bakið á þeim, kvennaráðinu, stjórninni,
styrktaraðilum og öðrum sem styðja við
okkur. Eins öllum sem mættu í höllina og létu
ekki brjálað veður stoppa sig við að styðja þær
eða eins og þær segja: „Stuðningsmennirnir
voru klárlega sjötti maðurinn á vellinum.“
Langþráðu markmiði var náð
Þrjár systur í bikarmeistaraliði Skallagríms í körfubolta Sú elsta þjálfar þær yngri Segja
sigurtilfinninguna ólýsanlega Foreldrarnir hafa varla misst af leik frá upphafi ferils dætranna
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Körfuboltafjölskylda Systurnar með bikarana, f.v. Guðrún Ósk, Sigrún Sjöfn og Arna Hrönn.
Að baki þeim eru foreldrarnir Ragnheiður Guðmundsdóttir og Ámundi Sigurðsson.
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi
HITABLÁSARAR
ertu tilbúin í veturinn?
Þegar aðeins
það besta kemur
til greina
Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646
ÚTSÖLU-
LOK
20-70% afsláttur
Opið virka daga kl. 10-18
Nú finnur þú það
sem þú leitar að
á FINNA.is