Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 30

Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Rafmagns- og handverkfæri KLÁRAÐU TODO LISTA HEIMILISINS FYRIR KONUDAGINN! VIÐ EIGUM GRÆJURNAR! SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VERKFAERALAUSNIR.IS Nýtt merki Vegagerðarinnar var kynnt í vikunni. Með nýja merkinu er haldið í gamla merkið og það þró- að áfram, segir í frétt á heimasíðu stofnunarinnar. Eldra merki Vegagerðarinnar er upphaflega hugmynd Hallgríms Helgasonar, rithöfundar og mynd- listarmanns, sem var á sínum tíma starfsmaður Vegagerðarinnar, en efnt var til hugmyndasamkeppni um nýtt merki árið 1983. Merkið var síð- an teiknað af Kristínu Þorkelsdóttur hjá auglýsingastofunni AUK árið 1985, sem fékk það verkefni að vinna fullmótaða tillögu. Kolofon hannaði nýja merkið. Auglýsingastofa Kristínar lýsti merkinu þannig fyrir 35 árum að um væri að ræða „sneið af hrjóstrugu landslagi [sem] formar bókstafinn [V]. Varanlegur vegur liggur yfir hrjóstrugt landslagið,“ sagði í greinargerð með merkinu. Nýja merkið hefur víðtækari skírskotun. Enn táknar hægri hluti merkisins malbikaðan veg en mýkri línurnar til vinstri tákna sjóinn, náttúruna, vegi, öldur og umferðareyjur. Ýmsar breytingar eru að eiga sér stað hjá Vegagerðinni og á nýja merkið að endurspegla fjölbreyttari skyldur Vegagerðarinnar á nýjum tímum. sisi@mbl.is Merkin tvö Nýja merkið er til vinstri og hið gamla til hægri. Þau eru lík. Vegagerðin hefur kynnt nýtt merki  Á að endurspegla fjölbreyttar skyldur Vegagerðarinnar á nýjum tímum Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Áfengisverslun ríkisins og reglur hennar hafa gert okkur mjög erfitt um vik,“ segir Halldór Laxness Halldórsson, rithöfundur og víninn- flytjandi. Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á áfengislögum er nú til umsagnar í samráðsgátt stjórn- valda. Breyting- arnar fela í sér að heimilaður verði rekstur innlendra vef- verslana með áfengi í smásölu til neytenda. Halldór er annar eigenda innflutn- ingsfyrirtækisins Berjamós sem sérhæfir sig í innflutningi á léttvíni frá Evrópu, svokölluðu náttúruvíni. Hann lýsir stuðningi við frumvarpið sem gjörbreyti rekstrargrundvelli fyrir smærri innflytjendur. Í umsögninni lýsir Halldór því hvernig skilyrði ÁTVR fyrir sölu í Vínbúðunum hafi reynst afar íþyngjandi og í sumum tilvikum ómögulegt að uppfylla þau. „Ég gæti talið upp ótal dæmi, vín frá okkur hefur verið tekið úr sölu vegna þess að nafn framleiðandans er ekki stærra en 1,3 mm, sem er skylda samkvæmt löggjöf Evrópu- sambandsins. Samt er umrætt vín ítalskt, framleitt í Evrópu og selt um alla Evrópu,“ segir Halldór. „Annað vín hefur verið tekið úr sölu vegna þess að á því stendur Vini-bianco, ÁTVR vill fá límmiða sem stendur á hvítvín – og er það grátbroslegt í besta falli.“ Þá segir hann að ÁTVR hafi tek- ið upp á því að skilgreina sjálft hvað væri náttúruvín. Sú skilgrein- ing sé allt önnur en almennt sé gengið út frá. „Þannig gátu stærri birgjar flutt inn vín sem fellur að skilgreiningu ÁTVR, og selja nú eitthvað sem ÁTVR flokkar sem náttúruvín, en er það alls ekki, á miklu lægra verði en við getum nokkurn tíma boðið – og neytendur hafa ekki hugmynd um það. Svona ákvarðanir sem teknar eru í hálfkæringi á skrifstofu ÁTVR geta hæglega kostað smáa innflytj- endur reksturinn. Og þetta er ekki í lagi. En ekki getum við kvartað við neinn, bara látið ríkið valta yfir okkur í rólegheitum.“ Halldór segir að þær breytingar sem frumvarpið feli í sér verði til bóta fyrir íslenska áfengismenn- ingu. „Netverslun myndi gera okkur kleift að selja vín til þeirra sem vilja kaupa það. Milliliðalaust. Þetta myndi alfarið breyta okkar rekstri.“ Segir ríkið valta yfir smærri innflytjendur  Halldór Laxness styður frumvarp dómsmálaráðherra Morgunblaðið/Eggert Skál Hægt verður að kaupa áfengi í innlendum netverslunum nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga. Innflytjandi lýsir stuðningi við það. Athygli vekur að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms- málaráðherra hefur breytt frumvarpi um breytingar á áfengislögum frá því sem áformað var. Hún hafði boðað tvær undanþágur á einokun ÁTVR á smásölu áfengis. Annars vegar að heimila innlenda vefverslun með áfengi til neytenda í smásölu og hins vegar að framleið- endum áfengis yrði heimilað að selja áfengi til neytenda með ákveðnum takmörkunum. Nú hefur síðarnefnda undanþágan verið sett á ís og segir Áslaug að unnið verði áfram að frumvarpi sem heimili minni framleið- endum sölu á eigin framleiðslu á framleiðslustað. DÓMSMÁLARÁÐHERRA DREGUR Í LAND Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Sala beint frá býli í biðstöðu Guðni Einarsson gudni@mbl.is Leyft verður að veiða allt að 1.325 hreindýr á þessu ári, 805 kýr og 520 tarfa. Það er 8,7% minni veiðikvóti en í fyrra þegar leyft var að veiða allt að 1.451 hreindýr, 1.043 kýr og 408 tarfa. Það er því fækkað veiði- leyfum á kýr en fjölgað á tarfa á milli ára. Kvótinn er gefinn út með þeim fyrirvara að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum. Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en Umhverf- isstofnun getur að fenginni heimild hreindýraráðs heimilað tarfaveiðar frá 15. júlí séu tarfarnir ekki í fylgd með kúm. Þá mega veiðarnar ekki trufla kýr og kálfa í sumarbeit. Kálfaveiðar eru bannaðar Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. Veiðimenn eru hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr fyrstu tvær vikur veiðitímans. Það er gert til að draga úr áhrifum veiða á kálfa og stuðla að því að þeir verði ekki móðurlausir fyrir 12 vikna aldur. Leyft er að úthluta allt að 23 leyfum á kýr á veiðisvæði 8 og 25 leyfum á veiðisvæði 9, það er syðstu veiði- svæðunum, á tímabilinu frá 1.-20. nóvember. Það er gert til að dreifa veiðiálagi á hjarðir á veiðisvæð- unum. Bannað er að veiða kálfa og vetur- gamlir tarfar eru alfriðaðir. Tarfa- veiðin miðast því við tveggja vetra og eldri tarfa. Hreindýraveiðikvótinn var aug- lýstur í gær en umsóknarfrestur um veiðileyfi er til 9. mars. Umhverfis- stofnun (UST) sér um sölu veiði- heimilda. Umsóknum skal skilað á vef stofnunarinnar (ust.is/veidi- menn). Veiðigjaldið er 150.000 kr. fyrir tarf og 86.000 kr. fyrir kú. Greiða þarf veiðileyfin fyrir 15. apríl. Morgunblaðið/RAX Fljótsdalsheiði Hreindýrin krafsa og ná í eitthvað að bíta. Veiðikvótinn endurspeglar ástand stofnsins og markmið með stjórn stofnstærðarinnar. Hreindýrakvótinn minnkar á milli ára Hreindýraveiðar » Hreindýraveiðimenn þurfa að hafa leyfi til að skjóta úr stórum riffli og að vera með veiðikort fyrir hreindýr. » Þá þurfa bæði hreindýra- veiðimenn og leiðsögumenn þeirra að standast verklegt skotpróf áður en haldið er til veiða. » Veiðileyfishafi má ekki fara til hreindýraveiða nema í fylgd leiðsögumanns sem hefur starfsleyfi UST. Halldór Laxness Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.