Morgunblaðið - 20.02.2020, Page 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Hjónin Sandra og John De Groot,
bændur og steingervingaáhugamenn,
voru árið 2010 í gönguferð nálægt
þorpinu Hays í suðurhluta Alberta-
fylkis í Kanada og komu auga á stein-
gerðar beinaleifar, sem þau töldu
vera úr risaeðlu.
Hjónin höfðu samband við Kon-
unglega Tyrrell-safnið, sem sérhæfir
sig í risaeðlum, og komu sérfræðingar
á staðinn og sóttu beinin.
Átta árum síðar var tók doktors-
neminn Jared Voris eftir beinunum í
geymslu í safninu og ákvað að rann-
saka þau nánar ásamt samstarfs-
mönnunum. Niðurstaðan var sú að
beinin væru úr áður óþekktri eðluteg-
und, sem nú hefur fengið nafnið
Thanatotheristes degrootorum, en á
grísku þýðir það sláttuvél dauðans.
Er hún talin vera elsta tegund rán-
eðlufjölskyldunnar sem fundist hefur
í Norður-Ameríku.
„Við völdum nafn sem táknar að
þessi ráneðla var eina þekkta rán-
dýrið sem vitað er til að hafi lifað á
þessum tíma í Kanada, sláttuvél
dauða,“ sagði Darla Zelenitsky,
aðstoðarprófessor í risaeðlustein-
gervingafræðum við Háskólann í
Calgary, við AFP-fréttastofuna. „Við
köllum hana Thanatos.“
Merkilegur fundur
Grameðla, Tyrannosaurus Rex, er
þekktasta ráneðlutegundin, en hún
elti bráð sína á sléttum Norður-
Ameríku fyrir um 66 milljónum ára.
Thanatos var uppi fyrir um að
minnsta kosti 79 milljónum ára, að
sögn vísindamannanna. Sennilega
hefur hún verið um átta metrar að
lengd með langt trýni, hnúða á bakinu
og stórar flugbeittar tennur.
„Það var ótrúlegt að finna kjálka-
beinið,“ hefur vefurinn Sci-News eftir
John De Groot. „Við vissum að þetta
var merkilegt vegna þess að stein-
gerðar tennur sáust greinilega.“
„John sagði alltaf að einn góðan
veðurdag myndi hann finna risaeðlu-
hauskúpu. Það var spennandi að finna
kjálkabeinið. Og að frétta að þetta
væri áður óþekkt tegund og sjá að
hún hefur fengið ættarnafnið okkar
er ótrúlegt,“ bætti Sandra De Groot
við.
Fáar ráneðlutegundir
„Tegundir ráneðla eru hlutfallslega
fáar,“ sagði Zelenitsky, sem er einn
höfunda greinar um rannsókn á
steingervingunum sem birtist í tíma-
ritinu Cretaceous Research. „Vegna
eðlis fæðukeðjunnar voru þessar teg-
undir, sem voru efstar í fæðukeðj-
unni, fáar samanborið við grasæt-
urnar.“
Rannsókn á beinunum bendir til
þess að Thanatos hafi verið með lagt
trýni, svipað og frumstæðar risaeðlur
sem lifðu þar sem nú eru sunnanverð
Bandaríkin. Vísindamennirnir segja
að munur á höfuðlagi ráneðlanna
milli svæða kunni að hafa stafað af
ólíku æti og verið háð þeirri bráð sem
dýrin fundu á hverjum tíma.
Frændi grameðlunnar fannst í Kanada
Leifar áður
óþekktrar ráneðlu
varpa nýju ljósi á
þróun risaeðla
AFP
FlugeðlurKjötætur
Thanatotheristes degrootorum
Sláttuvél dauðans
Heimild : Calgary háskóli/National Geographic
Fyrir 65 milljónum ára145199251299369397
67-65 m. ára
FornlífsöldAldarbil:
Tímabil:
Miðlífsöld
TríasPermKolDevon Krít Paleósean EósenJúra
Nýlífsöld
155-145 m. ára
225 - 65 millj. ára
Freyseðla Grameðla
Kennsl borin á nýja tegund grameðlu
Réðst líklega á stórar
jurtaætur
Tegund grameðlu sem hafði lengra og
mjórra trýni og fleiri tennur í
efri kjálkum
Hays
Hlutar af steingerðri haus-
kúpu og kjálka hafa fundist
Fannst í
Alberta
árið 2010
1 m
KANADA
Fyrir 79 milljónum ára
AFP
Tannhvöss Eðlan hefur verið með
langar og flugbeittar tennur.
Litrík Ein tilgáta um hvernig ráneðlan
Thanatos gæti hafa litið út þegar hún
leitaði uppi bráð í Kanada fyrir nærri
80 milljónum ára.
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
þú það sem
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA