Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 33
FRÉTTIR 33Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam- þykkti 30. janúar síðastliðinn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi golfvallar sunnan Rifs. Skipulags- svæðið liggur austan og norðan þjóðgarðsins Snæfellsjökuls og er á náttúruminjaskrá. Gert er ráð fyrir 9 holu golfvelli sem Edwin Roald Rögnvaldsson hefur hannað. Einnig tveimur bygg- ingum innan byggingarreits og bíla- stæðum. Golfskáli verði allt að 120 fermetrar og geymsluhús verði allt að 160 fermetrar. Húsin verði felld vel að landi og verði lágreist vegna nálægðar við flugvöll. Hætt var við 18 holu golfvöll Vallarstæðið liggur nálægt flug- vellinum á Rifi. Tekið er fram að við allar framkvæmdir skuli forðast að þrengja að flugvellinum og brautir skulu ekki lagðar þannig að löng upphafshögg séu slegin í átt að flug- vellinum. Haft verði samráð við Isavia vegna framkvæmdanna. Fram kemur í greinargerð með tillögunni að í Snæfellsbæ sé mikill áhugi á golfíþróttinni. Áhugi hafi verið á því að byggja 18 holu golf- völl en við nánari skoðun og mat áhrifa á umhverfið hafi niðurstaðan orðið sú að völlurinn yrði 9 holur. Það er yfirlýst markmið bæjar- yfirvalda í Snæfellsbæ að stuðla að almennri iðkun íþrótta. Golfvöllur sunnan Rifs henti vel vegna ná- lægðar við þéttbýlið á Rifi, Ólafsvík og Hellissandi. Staðsetningin auki líkur á því að yngri kynslóðin vilji hefja golfiðkun. Lagning golfvallarins er ekki tal- in hafa veruleg umhverfisáhrif í för með sér að mati Skipulagsstofnunar og er því ekki háð mati á umhverfis- áhrifum. Á fyrirhuguðu golfvallar- svæði er graslendi, mólendi, lítt gró- ið land og deiglendi. Norðan vallarsvæðisins er votlendi og er lögð áhersla á að þar verði ekki rask. Vegna kríuvarps, votlendis og fuglaskoðunarsvæðis við tjarnir var meðal annars fallið frá hugmyndum um 18 holu golfvöll. Fram kemur að gert sé ráð fyrir að framkvæmdirnar verði unnar á fjórum árum og skal forðast fram- kvæmdir á varptíma fugla frá vori fram á sumar. Flatarmál ræktaðra brauta verður um 12 hektarar. Stefnt er að því að rækta völlinn upp með nægjusömum grasteg- undum, aðallega yrkjum rauðving- uls sem best standast vetrarhörkur og þurfa minnsta næringargjöf og slátt. „Hönnun, grasval og fram- kvæmd skal lágmarka umhverfis- áhrif. Fella skal völlinn þannig að landi og gróðri að breyting ásýndar á svæðið verði hverfandi lítið,“ segir í deiliskipulagstillögunni. Hægt að gera athugasemdir Tillögurnar liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar að Klettsbúð 4, Hellissandi. Þær er einnig að finna á heimasíðu Snæ- fellsbæjar, www.snb.is. Athuga- semdir eða ábendingar skulu vera skriflegar og berast til skipulags- og byggingarfulltrúa í síðasta lagi fimmtudaginn 19. mars 2020. Sveitarfélagið Snæfellsbær var stofnað 11. júní 1994 með samein- ingu Ólafsvíkurkaupstaðar, Nes- hrepps utan Ennis, Breiðuvíkur- hrepps og Staðarsveitar. Íbúar eru tæplega 1.700. Í Ólafsvík er starfandi Golf- klúbburinn Jökull, stofnaður 21. júlí 1973. Hann hefur yfir að ráða einum velli, Fróðárvelli, sem er 9 holur. Engin upphafshögg í átt að flugvelli  Til stendur að byggja 9 holu golfvöll sunnan Rifs á Snæfellsnesi  Völlurinn mun liggja nálægt flugvellinum og tekur hönnun golfvallarins mið af því  Mikill áhugi á golfíþróttinni í Snæfellsbæ Fyrirhugaður golfvöllur Grunnkort/Loftmyndir ehf. 9 holu golfvöllur, golf - skáli allt að 120 m2, geymsluhús og bílastæði Helli ssan dur Rif Ó lafsvík Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir golfvelli sunnan Rifs Morgunblaðið/Eggert Byltingarkennd nýjung í margskiptum glerjum 50–65% stærra lessvæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.