Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 44

Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 ✝ Einar Sverr-isson fæddist í Hvammi í Norður- árdal 9. júní 1928. Hann lést 2. febrúar 2020. Foreldrar hans voru Sverrir Gíslason, bóndi í Hvammi, f. 4. ágúst 1885, d. 24. mars 1967, og Sigurlaug Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 24. júlí 1890, d. 18. mars 1971. Systkini Einars voru Guð- mundur, f. 1917, d. 2003; Andr- és, f. 1918, d. 2004; Vigdís, f. 1920, d. 2013; Ólafur, f. 1923, d. 2005; Ásgeir, tvíburabróðir Ein- ars, f. 1928, d. 2008. Einar kvæntist þann 14. nóv- ember 1954 Vilborgu Þorgeirs- dóttur kennara, f. 21. júlí 1929 á Hlemmiskeið á Skeiðum, d. 21. febrúar 2017. Foreldrar hennar voru Þorgeir Þor- steinsson bóndi á Hlemmiskeiði, f. 16. mars 1885, d. 20. ágúst 1943, og Vilborg Jónsdóttir kennari, f. 9. maí 1887, d. 2. apríl 1970. Börn Vilborgar og Einars eru: 1) Þorgeir rafmagnsverk- fræðingur, f. 19. ágúst 1955. Maki hans er Halla Kristín Þor- steinsdóttir ljósmóðir. Börn þeirra eru: a) Auður Kristín, f. 1976, maki Jón Viðar Stef- ánsson og börn þeirra eru: Halla Karen, Jökull, Stefán Frosti og Fanndís. Maki Höllu Karenar er Snorri Helgason og synir þeirra eru Hrafn Viðar og ur þeirra eru: a) Vilborg Vala, f. 1995; b) Eva Hrund, f. 1997. Einar lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1950 og cand.oecon. í við- skiptafræði frá Háskóla Íslands 1955. Stundaði nám í hagfræði- störfum á vegum Statens ra- sjonaliseringsdirektoar í Ósló frá sept. 1971 til sept. 1972. Einar starfaði sem fulltrúi hjá ríkisbókhaldi frá 1955 til 1972 og í fjármálaráðuneytinu, Fjárlaga- og hagsýslustofnun frá 1972. Var deildarstjóri þar frá 1978 og í fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins frá 1991 til 1996. Hann vann að sérverk- efnum á vegum fjármálaráðu- neytisins frá 1996 til 1998 þegar hann fór á eftirlaun. Vann um nokkurra ára skeið eftir 1998 hlutastarf á skrifstofu Útfar- arstofu Íslands. Einnig starfaði Einar sem stundakennari við Menntaskólann í Reykjavík frá árinu 1961 til 1969. Einar sinnti ýmsum félags- og trúnaðarstörfum í gegnum tíðina. Hann sat í Stúdentaráði Háskóla Íslands 1952-1953; í stjórn Sambands ungra fram- sóknarmanna 1956-1960; var formaður Félags ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík 1959- 1960; gjaldkeri í Stúdentafélagi Reykjavíkur 1956-1957; formað- ur Félags starfsmanna stjórnar- ráðsins 1964-1965. Einnig sat Einar í ýmsum stjórnskipuðum eða lögbundnum nefndum á vegum fjármálaráðuneytisins frá 1972. Útför Einars fer fram frá Langholtskirkju í dag, 20. febr- úar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Eiður Ernir; b) Þórey Vilborg, f. 1977, maki Ey- steinn Ingólfsson og dætur þeirra eru Katla og Andrea; c) Þor- steinn Ari, f. 1981, maki Krist- ín Helga Ein- arsdóttir og börn þeirra eru Álfrún María og Einar Dagur; d) Hjördís Erna, f. 1985, maki Andri Freyr Viðarsson og börn þeirra eru Hrafnkell og Unnur Lóa; e) Valdís Helga, f. 1988, maki Óli Valur Þrast- arson og sonur þeirra er Flóki. 2) Sverrir útfararstjóri, f. 12. febrúar 1959. Dóttir Sverris og Esterar Harðardóttur er Erna Björg, f. 1990, sambýlismaður Guðjón Hlíðquist Björnsson. 3) Vilborg Rósa grunnskólakenn- ari, f. 4. febrúar 1964. Maki hennar er Tryggvi M. Baldvins- son, tónskáld og forseti tónlist- ardeildar LHÍ. Synir þeirra eru: a) Sveinbjörn Júlíus, f. 1984, sonur hans og Halldóru Krist- insdóttur er Tryggvi Kristinn; b) Einar Sverrir, f. 1988, maki Guðrún Þóra Arnardóttir og synir þeirra eru Hafliði og Tómas Áki; c) Baldvin Ingvar, f. 1991, maki Guðrún Pálsdóttir og dóttir þeirra er Salka. 4) Sig- urlaug Vigdís leikskólakennari, f. 26. nóvember 1966. 5) Sigrún Unnur leikskólakennari, f. 29. apríl 1969. Maki hennar er Sig- urjón Bragason bílstjóri og dæt- Það er undarlegt til þess að hugsa að eiga ekki lengur for- eldra. Foreldrar mínir spiluðu svo stórt hlutverk í lífi mínu að ég á erfitt með að sætta mig við að hafa þau ekki lengur hjá mér. Það er varla hægt að minnast pabba án þess að tala um mömmu í leiðinni, hún var alltaf í forgrunni og hann stóð hjá. Það var okkur ekki auðvelt að missa mömmu fyrir þrem árum og pabbi varð hálfbjargarlaus og reyndum við systkinin, kannski sérstaklega við systurnar, að stíga þar inn en engin komst í fótspor mömmu. Þegar pabbi kvaddi 2. febrúar sl. leið mér eins og nú væri ég líka að kveðja mömmu, endanlega. Pabbi var ekki allra og átti ekki auðvelt með að tjá tilfinn- ingar með orðum eða faðmlög- um. Hann fór öðruvísi að, eins og aðstoða okkur fjárhagslega eða keyra okkur hvert sem við vildum. Meðan við Sigrún systir vorum í Fósturskólanum lagði hann lykkju á leið sína til að koma okkur þangað, ekki síst ef veður var vont. Þegar ég var í lyfjameðferð keyrði hann mig í hvert sinn og hann og mamma sátu hjá mér til að hitta lækninn og fylgja mér fyrstu skrefin. Í seinni tíð varð pabbi meyrari og opnaði sig meira um líf sitt og líðan, því þótt pabbi hafi verið mikill sögumaður og elskaði að segja sögur af fólki talaði hann lítið um sitt líf nema í gegnum sögur af systkinum sínum og samferðamönnum. Kannski var maður sjálfur farin að spyrja meira um líf hans þegar mamma var ekki lengur til staðar og því heyrði ég sögur sem ég geymi hjá mér. Pabbi var líka farinn að segja oftar hve mikils virði við börnin hans værum honum og hvað hann væri ánægður að sjá okkur eða eins og hann sagði oft og vitnaði þar í mömmu: „Þið björguðuð alveg deginum mín- um.“ Eitt sem skipti pabba miklu máli var menntun og vinna okk- ar systkinanna og síðar barna- barnanna og hve stoltur hann var að afkomendurnir stóðu sig vel í vinnu og luku langflestir háskólanámi. Fram á það síðasta spurði hann mig hvar ég væri stödd í námi og fannst ánægju- legt að heyra að ég væri alltaf að læra og fannst eiginlega skrítið að ég væri ekki komin í dokt- orsnám, sem hann efaðist ekki um að ég færi létt með. Ljúfustu minningarnar um pabba eru þegar við bjuggum í Ósló og ég var fimm ára og svo mörgum áratugum seinna á Eir. Alltaf í gönguferðum í Ósló leiddi ég pabba og síðustu árin hans minntist hann þess oft hve stóra hönd ég hafði þá, væri handstór eins og móðir hans, en núna væri ég ekki svo handstór en alltaf jafngott að halda í höndina mína. Síðasta skiptið sem ég sat hjá honum sagði hann ekki neitt en hélt fast í höndina mína. Nú er komið að kveðjustund og ég veit að pabbi var sáttur að fara og ég vona að hann hafi aft- ur hitt hana Villu sína sem hann saknaði svo mikið. Bless pabbi og mamma og takk fyrir allt. Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir. Hvað er hægt að segja um afa Einar? Þetta hef ég hugsað síð- an hann kvaddi þennan heim fyrir tveimur vikum. Mér líður eins og það ætti ekki að vera erfitt að lýsa afa sínum; eins og ég ætti að geta leyft orðunum og minningunum að flæða úr höfðinu beint á blað- ið. En afi minn talaði ekki mikið um sjálfan sig. Hann lék sér sjaldan og lítið við okkur barna- börnin. Hann hélt sér almennt nokkuð mikið til hlés. Á yngri árum man ég ekki eftir að hafa oft átt einhver mikil samskipti við afa minn í einrúmi. Hann sat venjulega sem fastast í stólnum sínum fyrir framan sjónvarpið á meðan amma sner- ist í kringum okkur. En það var alltaf eitt sem ég gat notað til að freista hans: Skrafl. Við háðum ófáar skraflorrust- urnar við borðstofuborðið á Háaleitisbrautinni og ég man enn eftir tilfinningunni þegar ég vann hann í fyrsta sinn. En eins góð og sú tilfinning var þótti mér samt alltaf vænst um að hafa fundið eitthvað til að gera með afa. Samveran var dýrmæt- ari en „x“ á þreföldu stafgildi. Afi var öflugur skraflari. Afi talaði ekki mikið um sjálf- an sig en sagði samt ógrynni af sögum. Þær voru fæstar af hon- um sjálfum eða afrekum hans en ef maður var á höttunum eftir sniðugum tilsvörum úr Borgar- firði eða hnyttnum móðgunum af göngum Menntaskólans í Reykjavík var afi rétti maðurinn til að segja söguna með öllum tilheyrandi eftirhermum og leik- rænum tilþrifum. Afi var góður og ástríðufullur sögumaður. Endrum og eins lét hann þó sögu af sjálfum sér flakka – reynslusögur af kenn- araárunum úr MR, æskusögur af strákapörum úr Hvammi, hugljúfar sögur af lífi hans og ömmu – og þá leið manni eins og maður hefði unnið í lottó! Samband hans og ömmu fannst mér nefnilega alltaf ótrú- lega heillandi og mér fannst það skína í gegn á síðari árum hve vænt honum þótti um ömmu. Afi elskaði konuna sína. Það er auðvitað aragrúi fleiri minninga um afa sem flýtur um í huga mér: Fótboltaleikirnir sem við horfðum á, sundlaugarnar sem við heimsóttum, göngu- túrarnir sem við fórum í. En amma var ávallt með og afi virt- ist oft taka að sér einhvers kon- ar aukahlutverk í þeim upplif- unum. En þó að sinfónía minning- anna sem ég hef um „afa og ömmu“ sé lituð af sterkum og hlýjum laglínum ömmu minnar er afi minn ómissandi hluti í verkinu. Hann var alltaf til staðar. Hann var alltaf góður. Hann var alltaf með sögu og Kókómjólk til reiðu. Hann var alltaf afi minn. Einar Sv. Tryggvason. Glettinn, léttur og húmorísk- ur. Skarpgreindur og ofurlítið stríðinn. Skemmtilegur sögu- maður og fróður um stjórnmál, þjóðmál og andans menn. Hlýr og elskulegur í viðmóti; drengur góður. Þannig minnist ég Einars Sverrissonar, en hjá honum og eiginkonu hans heitinni, Vil- borgu Þorgeirsdóttur, var ég heimagangur á unglingsárum mínum. Minning þeirra Einars og Vilborgar er samofin í huga mér – enda erfitt fyrir þá sem þekkja til þessara sómahjóna að minnast annars þeirra án þess að mynd hins komi í hugann. Þegar Vilborg lést árið 2017 hafði farsæl samvera þeirra var- að í 63 ár. Í fyrsta lagi minnist ég elsku- semi þeirra hjóna og umhyggju fyrir fjölskyldunni, og einstakrar gestrisni í garð vina og vanda- manna. Þau voru höfðingjar heim að sækja, enda var iðulega gestkvæmt og glatt á hjalla í Álfheimunum. Mikið var spjallað og hlegið þegar þjóðmálin voru brotin til mergjar með hnyttni og góðum húmor þeirra bræðra, Einars og Ásgeirs heitins. Jafnframt minnist ég dugn- aðar þeirra hjóna, eljusemi og endalausrar atorku Vilborgar. T.d. var lengi í minnum haft þegar Vilborg var farin að príla upp í stiga framan á útvegg hússins í Álfheimunum – byrjuð að mála húsið að utan, strax daginn eftir að hún var loks komin í sumarleyfi eftir langan kennsluvetur. Og alltaf í sama góða skapinu. Þá minnist ég þolinmæði þeirra, æðruleysis og bros- glampans í augunum þegar burknarnir mínir og ég ferðuð- umst með miklum bægslagangi fram og til baka af heimilinu eft- ir því hvernig vindar blésu í sambandi okkar yngri sonarins. Og alltaf buðu þau mig vel- komna með sömu hlýjunni – bæði fyrr og síðar. Nú þegar Einar og Vilborg eru sameinuð á ný, minnist ég þeirra með þakklæti og virðingu. Ég efast ekki um að á heimili þeirra í landi ljóssins verðum við öll boðin velkomin af sama höfð- ingsskapnum og elskuseminni eins og í Álfheimum forðum. Börnum þeirra og fjölskyldunni allri votta ég innilega samúð. Björg Rúnarsdóttir. Það er ekki hægt að tala um afa án þess að tala um ömmu líka. Þau gerðu eiginlega allt saman, fóru í sund, út að ganga og að versla. Það var bara skrít- ið að hitta afa einhvers staðar án þess að amma væri með, og öf- ugt. Þau voru meira að segja næstum alltaf í stíl, afi í blárri flíspeysu og amma í rauðri. Afi var mikill nammigrís, og þá sér- staklega súkkulaðigrís, og þáði alla súkkulaðimola sem honum buðust. Svo var alltaf hægt að treysta á að hann ætti svellkalt pólókex í ísskápnum. Eftir að amma dó kynntumst við afa upp á nýtt. Við höfðum alltaf þekkt hann sem helming af teyminu sem hann og amma mynduðu saman en eftir andlát ömmu fundum við í honum ótrúlega hlýjan mann og kynntumst til- finningalegu hliðinni á honum. Hann sýndi meiri ást með faðm- lögum og kyssti okkur stundum á hendurnar. Hann var greini- lega mjög þakklátur fyrir okkur og allt frábæra fólkið í kringum sig, bæði fjölskylduna og frá- bæra starfsfólkið á Eir. Það er ótrúlega sárt að missa afa en um leið er mikil huggun í því að hann og amma séu sameinuð á ný. Einhvers staðar í eilífðinni sitja þau saman yfir Manchester United-leik og japla á kjötsúpu með AB-mjólk. Eva Hrund og Vilborg Vala. Einar Sverrisson ✝ Lilja Þórð-ardóttir fædd- ist í Ólafsvík 12. september 1930. Hún lést á Hrafnistu í Reykjanesbæ 7. febrúar 2020. Foreldrar henn- ar voru Þórður Kristjánsson skip- stjóri, f. 23. júlí 1891, d. 28. sept- ember 1980, og Svanfríður Una Þorsteinsdóttir húsmóðir, f. 21. desember 1888, d. 8. maí 1960. Börn þeirra hjóna voru alls 14 en þau átta sem komust á legg eru Elín Kristín, f. 1917, d. 2006. Ester, f. 1921, d. 2007. Þórður, f. 1923, d. 2013. Sigrún, f. 1926, d. 2014. Rafn, f. 1927, d. 1996. Lilja, f. 1930, d. 2020. Rakel, f. 1931, d. 1975. Unnur, f. 1933 og ein eftirlif- andi. Hinn 7. desember 1957 giftist Lilja Jóni Magnússyni, f. 20. jan- úar 1930, d. 28. mars 2007. Þau eignuðust fjögur börn saman: Hrafnhildur, f. 1957, gift Karli Antonssyni, eiga þau fjögur börn. Númi, f. 1959, kvæntur Ásdísi Gunnlaugsdóttur, eiga þau þrjú börn. Sigurveig Una Jóns- dóttir, f. 1961, gift Jónasi Péturssyni, eiga þau fjögur börn. Sif, f. 1970, á hún eina dóttur, ömmubörnin eru 12 og langömmubörnin eru orðin 19. Fyrir átti Lilja Hörð Baldursson, f. 27. júlí 1951, d. 8. júlí 1990. Lilja fluttist ung til Reykjavík- ur og kynntist þar mannsefni sínu. Fluttu þau saman til Kefla- víkur og byggðu sér heimili að Faxabraut 42b. Þau hjónin fóru víða um Evrópu ásamt því að fara bæði til Afríku og Ameríku. Þeg- ar börnin voru vaxin úr grasi hóf Lilja störf í flugeldhúsinu og vann þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Útför Lilju fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag, 20. febrúar 2020, og hefst athöfnin klukkan 13. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Elsku Lilja amma, við þökk- um þér fyrir allt sem þú kenndir okkur og allar minningarnar sem við munum geyma og ylja okkur við. Lilja Dögg, Jón Hrafn, Marta, Uni Hrafn, makar og börn. Elsku mamma. Þú varst kletturinn minn, fyr- irmyndin mín, við vorum miklar vinkonur og leiddist okkur aldrei saman. Þakka þér fyrir allt sem þú gafst mér. Það verður skrítið að geta ekki hringt í þig og spjallað eins og ég var vön að gera, en nú veit ég að þú ert komin á góðan stað. Mikið á ég eftir að sakna þín. Þú hélst mikið upp á Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Hvert blóm, sem grær við götu mína, er gjöf frá þér, og á þig minnir allt hið fagra, sem augað sér. Sól og jörð og svanir loftsins syngja um þig. Hvert fótspor, sem ég færist nær þér, friðar mig. Þín dóttir, Una. Lilja Þórðardóttir Látinn er nú í hárri elli Símon Oddgeirsson, Dal- seli. Það var farið að kvölda í lífi hans er ég kynntist honum í gegnum Mörtu Kristjánsdóttur frænku hans á Seljalandi. Það voru ánægjulegar heimsóknir er þeir frændur Guðjón á Syðstu-Mörk og Símon í Dalseli komu í Selja- land og var þá margt spjallað og rætt um liðna tíð og ýmis mál- efnin krufin til mergjar. Hann var viðræðugóður, fjöl- lesinn og átti góðan bókakost, bæði nýjar bækur og eldri, en einnig bækur sem nú eru vand- fundnar en hafa fylgt ættinni frá fyrri tímum svo sem guðspekirit af ýmsu tagi sem gaman var að líta í. Hluti af þessum góðu bók- um held ég að hafi farið á bóka- safnið á Hvolsvelli eða á Skóga- safn. Ég dvaldi hjá Símoni tvisvar í nokkrar vikur í senn og var það góður tími. Höfðum við nóg að spjalla enda bæði fædd á fyrri hluta síðustu aldar og upp- alin við ámóta skilyrði og bú- skaparhætti þó að landgæði séu mun betri í Dalseli en var í minni sveit austur á Héraði. Símon var minnugur og hafði ferðast mikið um landið og þekkti fjöldann all- an af fólki. Hann hafði ánægju af því að græða landið og nú vex upp mikill skógur við Markar- fljósbakka með tjörnum og fugla- lífi sem mun gleðja augu allra Símon Oddgeirsson ✝ Símon Odd-geirsson fædd- ist 2. desember 1927. Hann lést 17. janúar 2020. Útför Símonar fór fram 1. febrúar 2020. sem þangað munu koma í framtíðinni. Við veru mína í Dalseli varð mér ljóst að þó að Símon og þeir Einar ættu ekki afkomendur þá áttu þeir mikil ítök í þeim drengjum sem urðu þess aðnjót- andi að eiga samleið með þeim í leik og starfi. Sumir eitt sumar en flestir sumar eftir sum- ar og jafnvel vetur líka. Oftlega birtist bíll á hlaðinu og var þá einhver drengjanna að koma við í kaffi og hitta Símon og spjalla. Einnig hringdi síminn oft á kvöldin, var þá einhver sumar- strákur að ræða málin og við- halda góðum kynnum, sumir þá búsettur í Sviss. Danmörku eða Ameríku eða einhverju öðru landi úti í heimi. Við spjall mitt við tvo af þessum sumardrengj- um á ólíkum aldri reiknaðist okk- ur til að nöfn 27 drengja kæmu þá í ljós og var sterkur þráður frá þeim til heimilisins í Dalseli enda þar vinur í varpa. Góður granni er gulli betri og má það orðtæki eiga vel við Fríðu í Stóradal en hún gerði Símoni kleift að dvelja á sínu heimili eins lengi og fært var og ætla ég að hann hafi metið það við hana að verðleikum. Ég minnist með ánægju alls þess góða fólks sem ég kynntist undir Eyjafjöllum og er þakklát forlögunum að hafa fengið að ganga með því af og til nokkur tímabil af ævi minni. Ég minnist Símonar með ánægju og þökk og bið honum blessunar Guðs. Guðlaug Erla. Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.