Morgunblaðið - 20.02.2020, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
www.danco.is
Heildsöludreifing
Decoris 2020 línan komin í hús
Ný vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Fyrirtæki og verslanir
Bekkur Velvet
Kitchen Goods-Matarstell
Úti Partyljós
Dolimite Vasi
Agave Planta
blómapottasett - FACE hvítt
Buddha ljósgylltur 61 cm
Skápur
40x90x150 cm
Solar Úti Lukt 24x42 cm
Strá í búnti 80 cm
Hengiplöntur
Cologne Glervasi
20x30
Pottar CATS 10x9 cm
Lakkrísbolla með súkkulaði-
rjóma og lakkrískurli
Súkkulaðirjómi
150 g Síríus rjómasúkkulaði með salt-
lakkrísflögum
75 ml rjómi
600 ml rjómi (þeyttur)
150 g Síríus lakkrískurl
Lakkrískaramella
1 poki Nóa lakkrískúlur
4 msk. rjómi
Lakkrískaramella
1 poki Nóa lakkrískúlur
4 msk. rjómi
Aðferð
Brytjið niður rjómasúkkulaðið með
lakkrísflögum og hitið rjómann (75
ml) að suðu. Hellið rjómanum yfir
súkkulaðið og hrærið vel saman.
Súkkulaðiblöndunni er síðan bland-
að varlega saman við þeytta
rjómann. Skerið bollurnar í sundur
og setjið súkkulaðirjómann á milli og
svo lakkrískurl.
Nóa lakkrískúlur settar í lítinn pott
ásamt rjómanum og brætt saman.
Dýfið lokunum á bollunum í lakkrís-
karamelluna eða setjið á lokin með
skeið. Að lokum eru bollurnar
skreyttar með gróft muldu pipar-
kroppi og lakkrískurli.
Lakkrísbolla með súkkulaði-
rjóma og lakkrískurli
Hér erum við með
lakkrísbollu í
hæsta gæðaflokki
sem ætti engan að
svíkja. Bollan er á
meðal fjölmargra
sem eru að finna í
bollubæklingi Nóa
Síríus sem er
hreint frábær. Hreinasta sælgæti Þessi dásemdar-
bolla gælir við bragðlaukana og ætti
ekki að valda vonbrigðum.
Vatnsdeigsbollur
10-12 stk.
100 g smjör
2 dl vatn
110 g hveiti
3 stór egg
Aðferð:
Hitið ofninn í 200 °C (blástur).
Setjið vatn og smjör í pott og látið
suðuna koma upp. Sjóðið í tvær mín-
útur.
Setjið hveitið út í og blandið vel sam-
an þar til deigið er orðið mjúkt.
Leyfið deiginu að kólna í nokkrar
mínútur. Þið megið færa deigið yfir í
hrærivélarskál á þessu stigi eða
hræra áfram með höndunum.
Bætið eggjunum saman við, einu í
einu, og þeytið vel á milli.
Setjið deigið í sprautupoka og
sprautið bollunum á pappírsklædda
bökunarplötu en það má auðvitað
nota skeiðar til þess að forma boll-
urnar.
Bakið við 200 °C í 25 mínútur. Það er
mikilvægt að opna ekki ofninn fyrstu
15 mínúturnar af bökunartímanum
svo að bollurnar falli ekki.
Kælið mjög vel áður en þær eru
fylltar með gómsætum fyllingum.
Vatnsdeigs-
bollur Evu
Laufeyjar
Hér erum við að tala um
svokallaða grunn-
uppskrift að öllum góð-
um bollum. Fyrir þá sem
hafa ekki bakað vatns-
deigsbollur áður er
leyndarmálið á bak við
bollubaksturinn að
fylgja leiðbeiningunum í
þaula – annars fer allt í
vitleysu.
Tiramisu-bolla með
Dumle-karamellu
Dumle-karamella
1 poki af Dumle-karamellum
2 msk. rjómi
Tiramisu-fylling:
150 ml rjómi
50 g mascarpone
50 g rjómaostur
50 g flórsykur
2 msk. kaffi (uppáhellt)
Kakó
Aðferð:
Dumle-karamella:
Látið dumle-karamellurnar í pott
ásamt rjómanum og bræðið við
vægan hita.
Tiramisu-fylling:
Þeytið saman rjómaost, masc-
arpone, flórsykur og kaffi.
Þeytið rjómann í annarri skál.
Blandið rjómablöndunni og rjóm-
anum varlega saman.
Samsetning:
Smyrjið tiramisu-fyllingunni á
botninn og stráið kakói yfir (best
að nota sigti).
Setjið Dumle-karamelluna á lokið
og stráið að lokum meira kakói
yfir.
Tiramisu-bolla með Dumle-karamellu
Þessi bolla kemur sterk inn og eflaust munu margir
prófa hana á komandi dögum. Bollan kemur úr
smiðju Sylvíu Haukdal og er hana að finna í Hag-
kaupsbæklingnum sem inniheldur fleiri snilldar-
bollur frá Sylvíu sem ættu að falla í kramið.
Tiramisu Það er eitthvað óendanlega heillandi við tiramisu!
Lífrænar speltbollur
475 ml jurtamjólk
50 g kókosolía eða vegan smjör
3 msk. hlynsíróp
1 pakki (11 g) þurrger
1 tsk. vanilla
½ tsk. sjávarsalt
600 g fínt spelt, lífrænt frá Himneskt
Skerið jurtasmjörið í litla bita og bræðið í potti
ásamt jurtamjólkinni, hlynsírópinu og vanillu. Hrær-
ið í pottinum á meðan blandan bráðnar, takið svo
pottinn af hellunni og kælið.
Þegar blandan hefur kólnað niður í um það bil 37
°C, hellið henni í hrærivélarskál, stráið þurrgerinu
yfir og látið standa í um 15 mínútur.
Blandið speltinu og saltinu út í og hrærið saman.
Látið viskastykki yfir skálina og látið standa á
hlýjum stað svo deigið geti hefast í um 20-30 mín.
Þar sem þetta deig er klístrað er gott að nota ís-
kúluskeið til að móta bollurnar, sem eru settar á bök-
unarpappír á ofnplötu.
Uppskriftin gefur um 15 bollur.
Látið bollurnar hefast aftur í um það bil 20 mínútur
á plötunni áður en þær eru settar í ofninn.
Bakið við 190 °C í um 20 mínútur.
Fylling:
Lífrænt eplamauk frá Himneskt
Marsípan, rifið
Fersk jarðarber, niðurskorin
Hafrarjómi frá AITO, þeyttur
Flórsykur til að strá yfir
Aðferð:
Skerið bollurnar í tvennt.
Setjið skeið af eplamauki á botninn, stráið rifnu mars-
ipani yfir. Raðið jarðarberjunum á botninn og setjið
skeið af þeyttum hafrarjóma yfir.
Lokið bollunum og stráið flórsykri yfir lokin með sigti.
Vegan bollur með jarðarberjum og jurtarjóma
Það er engin önnur en Solla Ei-
ríks sem á heiðurinn af þessari
uppskrift sem kemur einmitt úr
bollubæklingi Hagkaupa.
Lostæti Frábærlega útfærð bolla sem leikur við
bragðlaukana. Bragðsamsetningin er upp á tíu!