Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 20.02.2020, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Kolibri trönur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaflokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavörum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Fagleg þjónusta fyrir fólk í framkvæmdum flugger.is „Útsendingin heppnaðist mjög vel. Það er ótrúlegt hvað heim- urinn er orðinn lítill. Maður þarf eitt tæki, nettengingu í gegnum 4g og nokkra míkrófóna og maður er farinn að senda út út- varpsþátt niður undir miðbaug heim til Íslands,“ segir Siggi spurður hvort það hafi ekki verið neitt mál að senda heilan þátt frá öðru landi. „Við fengum til okkar fullt af skemmtilegum gestum sem höfðu frá mörgu merkilegu að segja. T.d. kom Anna Kristjáns til okkar en hún hefur búið þarna í hálft ár og lætur vel af því,“ segir Logi, spurður um dvölina á Tenerife. Öll viðtölin er hægt að nálgast á heimasíðu K100 á k100.is. Hápunktur ferðarinnar var svo á föstudag þegar þeir félagar gáfu heppnum hlustanda ferð í sólina með Heimsferðum. Það var hann Þórarinn Þórarinsson sem hreppti hnossið og var að vonum himinlifandi. Þurftu hlustendur að leysa nokkuð erfiða lagaþraut til þess að eiga möguleika á vinn- ingnum og Þórarinn rak upp ösk- ur þegar hann fékk að vita að hann hefði svarað rétt. „Þetta var virkilega gaman og hver veit hverju við tökum upp á næst,“ segir Siggi að lokum. Sólargeislarnir voru sendir heim Það var mikill gestagangur og gleði á svölunum hjá Loga Bergmann og Sigga Gunnars á Castle Harbour-hótelinu á Tenerife í síðustu viku. Sendu þeir félagar þrjá þætti út í síðustu viku frá „paradísareyjunni“ eins og margir kalla hana. Á svölunum Siggi Gunnars og Logi Bergmann á svöl- unum á Tenereife þaðan sem Síðdeg- isþátturinn var send- ur út í síðustu viku. Hún er nú að klára 10. bekk í spænskum grunnskóla sem hún segir að sé skemmtilegur þó að kennararnir geti verið strangir. „Það er hægt að gera alls konar hluti í þessum skóla. Við erum allt- af að taka þátt í alls konar verk- efnum,“ sagði Matthildur. Sagði hún þó að meiri agi væri í skólum á Spáni en á Íslandi. „Þeir eru kannski aðeins strang- ari kennararnir,“ sagði hún. „Það fer eftir kennurum. Það eru sumir sem eru voðalega ljúfir en svo eru aðrir sem geta ekki heyrt hósta og þá eru þeir bara, „hafið hljóð!““ Matthildur sagði kerfið í grunn- skólum á Tenerife einnig vera afar ólíkt því sem þekkist á Íslandi en nemendur geta þurft að taka árið aftur ef þeir falla í tveimur til þremur áföngum. Einnig eru ein- kunnir nemenda oft lesnar upp fyr- ir framan allan bekkinn. „Það er eitt af því sem ég er frekar óánægð með og ég segi kennaranum það oft. Það hefur stundum virkað til þess að þeir hætti að lesa þær [einkunnirnar] upp,“ sagði Matthildur. Hún viður- kenndi þó að þetta kerfi hefði ekki komið illa niður á henni enda gengi henni afar vel í skóla. Matthildur sagðist eiga nokkra íslenska vini sem hún haldi sam- bandi við en stefnir á að flytja aftur til Íslands eftir grunnskóla og taka menntaskólann þar til að kynnast fleiri íslenskum krökkum. Hún stefnir á að fara í Kvennaskólann í Reykjavík eftir sumarfrí. „Mig langaði til að prófa það. Líka upp á að vera aðeins meira með ömmum og öfum. Þrátt fyrir að þau komi hingað á hverju ári í smátíma er alltaf gott að geta farið þegar maður vill,“ sagði hún. Aðspurð segir Matthildur að vegna uppeldisins búi í henni Spán- verji þó að hún hafi ekki enn kom- ist upp á lagið með að taka „síestu“. Íslendingurinn sé þó allt- af innra með henni líka enda líti innfæddir yfirleitt á hana sem „Ís- lendinginn“. „Sérstaklega af því að ég er svo hvít. Það eru allir svo brúnir hérna,“ segir Matthildur og hlær. Tenerifebúi Matthildur þekkir ekkert annað en að búa á Tenerife. Meiri agi í skól- um á Tenerife Matthildur Traustadóttir flutti til Tenerife ásamt foreldrum sínum og systur aðeins fjögurra ára gömul en hún hefur nú búið þar í 12 ár og þekkir lítið annað. Hún spjallaði við Sigga Gunnars og Loga Bergmann í beinni frá Tenerife á K100 á dögunum og sagði þeim frá lífinu og tilverunni sem fylgir því að alast upp á eyjunni sólríku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.