Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 58
58 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
F
á
k
a
f
e
n
i
9
1
0
8
R
e
y
k
j
a
v
í
k
50 ára Eyrún er
Reykvíkingur, ólst upp
í Breiðholti og býr í
Úlfarsárdal. Hún er
með BS-gráðu í
hjúkrunarfræði frá
Háskóla Íslands og er
forstöðumaður líf-
trygginga hjá Sjóvá.
Maki: Stefán Jóhannsson, f. 1970,
verkefnastjóri hjá Origo.
Börn: Bjarki Stefánsson, f. 1993, og
Viðar Stefánsson, f. 1997.
Foreldrar: Baldvin Einarsson, f. 1934,
d. 2018, lengst af starfsmannastjóri hjá
Sambandinu, og Sigurveig Haralds-
dóttir, f. 1934, starfaði síðast í mötu-
neytinu hjá Landsbankanum, búsett í
Reykjavík.
Eyrún
Baldvinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt allt virðist vera á rúi og stúi í
kringum þig skaltu ekki láta það glepja þig
heldur halda þínu striki. Gefðu þér tíma til
að vera með vinum þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þörfin fyrir að gera sér glaðan dag
er allsráðandi. Mundu að aðrir reiða sig á
þig svo þú skalt takmarka þig við það sem
þú getur staðið við.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er óþarfi að taka allt per-
sónulega sem sagt er í hita leiksins. Vertu
rómantísk/ur í dag. Kvöldið verður líflegt
og skemmtilegt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er alltaf niðurdrepandi þegar
traust þitt á einhverjum minnkar. Félags-
lífið er í blóma og þú ert meira úti í bæ en
heima hjá þér þessa vikuna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér verður ekkert úr verki ef þú ætlar
þér of mikið í einu. Vertu óhrædd við að
leita þér aðstoðar til þess að þú getir skil-
að af þér verkefnum í tæka tíð.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér fer mikið fram í sjálfsástinni.
Fáðu á hreint hver ber ábyrgðina á vissu
verki og sæktu síðan rétt þinn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nýjar reglur í vinnunni gætu leitt til
sparnaðar eða aðhaldsaðgerða. Ágrein-
ingur milli elskenda kemur upp úr kafinu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér hættir til fljótfærni og því
ættirðu að varast að taka afdrifaríka
ákvörðun án þess að vera búin(n) að
kanna alla málavexti. Kannski færðu
óvæntar fréttir í kvöld.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það getur verið erfitt að halda
haus í stormum lífsins. Leggðu spilin á
borðið og láttu fólk vita hvað þú vilt og til
hvers þú ætlast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er um að gera að setja sér
raunhæf markmið, því fátt er verra en
springa á limminu. Þér verður boðið út úr
bænum fljótlega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hætt við að einhvers
konar deilur komi upp á milli þín og maka
þíns í dag. Ef þú vinnur í efasemdum þín-
um munu þær að lokum hverfa.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Truflanir á vinnuferli eru líklegar í
dag. Taktu fólki eins og það er, ekki viltu
láta aðra segja þér hvernig þú átt að vera?
Læknafélags Íslands 2014. Einnig
var hann formaður Sjálfstæðisfélags
Dalasýslu um skeið og í Gilsfjarðar-
nefnd sveitarfélaga í Dölum og
Austur-Barðastrandarsýslu lungann
úr tíunda áratugnum.
„Síðastnefnda verkefnið var til að
koma fram vegabótum um Gilsfjörð
og hafði verið áhugaefni rekstrar-
aðila Heilsugæslustöðvarinnar í Búð-
ardal um árabil. Það verk hlaut far-
björns. Hann var formaður Kristi-
legra skólasamtaka á menntaskóla-
árunum. Í háskóla var hann
formaður Kristilegs stúdentafélags
og ráðningastjóri ungra lækna í
kandidatsnámi. Sigurbjörn var for-
maður stjórnar Læknafélags Vestur-
lands 1981-1985, formaður Félags ís-
lenskra heimilislækna 1991-1995 og
formaður Læknafélags Íslands 1999-
2007. Hann var kjörinn heiðursfélagi
S
igurbjörn Sveinsson er
fæddur 20. febrúar 1950 í
Reyjavík og ólst upp í Sig-
túninu sem taldist til Teig-
anna og er í Laugar-
nesinu. „Leiksvæðið var iðjagræn tún
bændanna í Laugardal og á Undra-
landi. Stórt svæði var þar fyrir kart-
öflugarða Reykvíkinga og allmargir
höfðu gert sér áhaldakofa og jafnvel
niðurgrafnar kartöflugeymslur. Þetta
var fyrir tíma Blómavals og hótel-
byggingar og ekkert sem truflaði leik
okkar krakkanna.
Í sveit var ég sendur sex ára gam-
all sumarlangt að Grafarkoti í Lín-
akradal. Þar bjó ungt ágætisfólk, sem
var að breyta búskaparháttum frá
nítjándu öldinni inn í þá tuttugustu.
Má segja að kynni mín af háttum
fyrri aldar hafa orðið þar sterkari en
af nútímanum. Lífsreynsla sem
gleymist ekki.“
Sigurbjörn gekk í Laugarnesskól-
ann fram að landsprófi. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík, af stærðfræðideild, 1970,
og kandidatsprófi í læknisfræði frá
Háskóla Íslands 1978. „Á námstím-
anum í læknadeild HÍ kenndi ég bæði
við MR og Hjúkrunarskóla Íslands
auk þess sem við hjónin stjórnuðum
sumarbúðum þjóðkirkjunnar í Skál-
holti eitt sumar. Aukastörf féllu auð-
vitað til við hjúkrun og svo lækningar
eftir því sem náminu vatt fram. Mest
var ánægja mín af að leysa af héraðs-
lækna úti á landi og gerði ég mér far
um það eftir því sem kostur gafst.“
Strax eftir kandídatspróf fóru þau
hjónin vestur í Búðardal til rúmlega
árs dvalar og síðan aftur eftir kandi-
datsár í Reykjavík. „Árin þar áttu að
vera eitt til tvö en urðu tugur við
spennandi uppbyggingarverkefni og
pólitísk afskipti. Það kom í minn hlut
að leiða m.a. uppbyggingu dvalar-
heimilis í Búðardal og heilsugæslu á
Reykhólum.“ Frá ársbyrjun 1989 hef-
ur Sigurbjörn stundað heimilis-
lækningar í Reykjavík, lengst af sem
heilsugæslulæknir í Mjóddinni. Í rúm
þrjátíu ár hefur hann einnig verið
trúnaðarlæknir Pósts og síma og nú
síðast Símans hf.
Til jafns við lækningarnar hafa fé-
lagsstörf einkennt lífshlaup Sigur-
sælan framgang eins og alkunna er
með gerð brúar fyrir mynni fjarðar-
ins.“
Helstu áhugamál Sigurbjörns eru
bækur og tónlist og sumarbústað-
urinn í landi Kiðafells í Kjós. „Það er
ættaróðal okkar Kiðfellinga og mörg
okkar frændsystkina eiga bústað þar
auk þess sem nafni minn Hjaltason er
bóndi á Kiðafelli. Hin síðari ár nýt ég
þess að mæta í ræktina með spúsu
minni og hef gott af.
Á yngri árum fórum við vítt og
breitt um landið með börnin í tjald-
vagni og síðar í fellihýsi, þegar öld
þeirra rann upp. Við hjónin höfum
ferðast til flestra heimshorna okkur
til ánægju en ferðalög í sumarblíðu á
Íslandi eru engu lík.“
Fjölskylda
Eiginkona Sigurbjörns er Elín
Ásta Hallgrímsson, 29.2. 1952, bók-
menntafræðingur og kennari. For-
eldrar hennar voru hjónin Thor G.
Hallgrímsson, f. 22.12. 1913, d. 6.2.
1996, framkvæmdastjóri Kveldúlfs og
Norðurstjörnunnar, og Ólafía Guð-
laug Jónsdóttir Hallgrímsson, f.
Sigurbjörn Sveinsson, heimilislæknir og fv. formaður Læknafélagsins – 70 ára
Fjölskyldan Sigurbjörn og Elín ásamt börnum og barnabörnum á heimili þeirra í Seljahverfinu árið 2016.
Félagsstörf einkenna lífshlaupið
Hjónin Í siglingu við bæinn Cartagena á Suðaustur-Spáni.
30 ára Kristrún er
Reykvíkingur, ólst upp
í Hlíðunum, en býr í
Kópavogi. Hún er með
BA-gráðu í þroska-
þjálfun frá Háskóla Ís-
lands. Kristrún er
aðstoðarforstöðu-
maður í Félagsmiðstöðunni Öskju, en er
í fæðingarorlofi.
Maki: Guðmundur Árni Magnússon, f.
1982, er með BA-gráðu í arkitektúr og
starfar sem stuðningsfulltrúi.
Sonur: Elvar Már Guðmundsson, f.
2019.
Foreldrar: Sigríður Steingrímsdóttir, f.
1953, kennari, og Kristján Hermannsson,
f. 1947, fyrrverandi þjónustustjóri hjá
Framtaki. Þau eru búsett í Reykjavík.
Kristrún Emilía
Kristjánsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is