Morgunblaðið - 20.02.2020, Síða 59

Morgunblaðið - 20.02.2020, Síða 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 „VILTU GISTA HÉR Í NÓTT EÐA SOFA OG BORÐA Á STRÖNDINNI?” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... tilhlökkun. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG VAR AÐ TÉKKA … OG ÞAÐ EINA SEM EFTIR ER Í KVÖLDMATINN ERU NÚÐLUR OG SÚKKULAÐIBÚÐINGUR VÁ HVAÐ VIÐ ERUM HEPPNIR! VIÐ ERUM PIPAR- SVEINAR! BRÓÐIR ÓLAFUR, HEFUR EINHVER MINNST Á ÞAÐ VIÐ ÞIG AÐ HÁRIÐ Á ÞÉR LÍKIST HREIÐRI? FLISS JÁ 12.10. 1919, d. 29.5. 1993, húsfreyja. Börn Sigurbjörns og Elínar eru 1) Tómas Örn, f. 11.9. 1974, viðskipta- fræðingur hjá Alvotech í Reykjavík. Maki: Margrét Grétarsdóttir, mann- auðsstjóri hjá Reykjavíkurborg. Þau skildu; 2) Ásta Sóllilja, f. 3.7. 1978, héraðsdómslögmaður hjá embætti Ríkislögmanns. Maki: Davíð Björn Þórisson bráðalæknir; 3) Friðrik Thor, f. 28.9. 1983, svæfingalæknir. Maki: Erna Niluka Njálsdóttir hjúkr- unarfræðingur; 4) Katrín Þóra, f. 12.1. 1993, BA í lögfræði og MS í íþrótta- og heilsufræði. Maki: Þorvaldur Hauksson, héraðsdómslögmaður hjá Umboðsmanni Alþingis. Barnabörn- in eru sjö og tvö í aukagetu. Bræður Sigurbjörns voru Ólafur Sveinsson, f. 1.8. 1942, d. 18.6. 2012, tæknifræðingur í Reykjavík, og Arn- ór Sveinsson, f. 1.11. 1943, d. 6.3. 2019, bifvélavirki í Garðabæ. Foreldrar Sigurbjörns voru hjónin Sveinn Valdemar Ólafsson, f. 6.11. 1913, d. 4.9. 1987, fiðluleikari í Sinfón- íuhljómsveit Íslands og saxófónleik- ari, og Hanna Sigurbjörnsdóttir að- stoðarbókavörður, f. 4.6. 1915, d. 9.11. 2007. Þau voru búsett í Reykjavík. Sigurbjörn Sveinsson Solveig Ólafsdóttir húsfr. á Valdastöðum og í Rvík Bjarni Jakobsson bóndi á Valdastöðum í Kjós og trésm. í Rvík Gróa Bjarnadóttir húsfreyja í Rvík Hanna Sigurbjörnsdóttir aðstoðarbókavörður í Reykjavík Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson verslunarm. og forseti Gídeonfélagsins Sigurbjörn Björnsson öldrunarlæknir Sólveig Sigurbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Kristín Gísladóttir húsfreyja á Kiðafelli og í Rvík Þorkell Halldórsson bóndi á Kiðafelli í Kjós., síðast bús. í Rvík Sigurbjörn Þorkelsson kaupm. í Vísi og forstj. Kirkjugarða Rvíkur Sigurbjörn Magnússon lögmaður og stjórnarformaður Árvakurs Áslaug Sigurbjörnsdóttir hjúkrunarfr. í Reykjavík Sigríður Brynjólfsdóttir fv. skrifstofum. í Rvík Ólína Pétursdóttir húsfr. á Daðastöðum í Núpasveit, N-Þing. Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona Pétur Bjarnason skipstjóri á Bíldudal Þorsteinn Þorsteinsson kennari og þýðandi í Rvík Fríða Pétursdóttir húsfr. á Bíldudal Hörður Arnarson forstj. Landsvirkjunar jalti Sigurbjörnsson bóndi á Kiðafelli HSigurbjörn Hjaltason bóndi á Kiðafelli Sigríður Össurardóttir húsfr. í Breiðavík við Látrabjarg, fór til Vesturheims Hálfdán Árnason þurrabúðarm. í Hvallátrum á Breiðafirði Kristjana Hálfdánardóttir ljósmóðir og klæðskeri á Bíldudal Ólafur Veturliði Bjarnason skipstjóri á Bíldudal Ólína Ólafsdóttir húsfreyja í Dufansdal Bjarni Pétursson bóndi í Dufansdal íArnarfirði Úr frændgarði Sigurbjörns Sveinssonar Sveinn Valdemar Ólafsson hljóðfæraleikari í Reykjavík Sigurlín Hermannsdóttir yrkir áLeir og kallar „Lægðir“: Nú þyrpast grimmar lægðir upp að landi og ljóst að gríðarmikill verður skaði því reynslan er að rafmagnsstaurum grandi og rústi þökum, vegum flett sem blaði. Björgunarsveita bíður mikill vandi með barning við að nálgast ferðastaði. En þegar í mér sjálfri situr lægð þá seytlar líf mitt fram með stakri hægð. Í Vísnahorni á þriðjudag sagði ég að vafalaust væri þekktasta vísa Þórðar á Strjúgi þessi: Við skulum ekki hafa hátt hér er margt að ugga; í allt kvöld hef ég andardrátt úti heyrt á glugga. Þannig er vísan í „Menn og menntir“ og gefur Páll Eggert þá skýringu að á jólanótt hafi Þórður búist til tíða, komið að bæ og heyrt þar hávaða. – Hann „lagðist á skjá og heyrði á heldur óþvegna viðræðu mæðgna þriggja; urðu þær þá varar við, að maður var á skjánum; fór kerling þar að, reif úr skjáinn og tók í skegg Þórði; hafði hann þá engin ráð önnur en að skera af sér skeggið við hendur kerlingar. Orkti hann síðan kvæðið (Mæðgnasennu). Þaðan er þessi alkunna staka (lögð á varir einni mæðgnanna.“ Gunnar Stefánsson sendi mér póst á þriðjudaginn, svohljóðandi: „Þú tilfærir húsgang eignaðan Þórði á Strjúgi í dag. Ég hef kunnað seinni helminginn svo: Eg hef heyrt í alla nátt andardrátt á glugga. Finnst vísan betri svona. Þökk fyrir vísnahornið.“ Ég þakka Gunnari póstinn. Sjálfur lærði ég vísuna barn eins og Gunnar fer með hana. Hér er alkunn staka Þórðar við smala sinn: Fáðu skömm fyrir fíflslegt hjal fúll og leiður glanni; héðan af aldrei happ þér skal hljótast af neinum manni. En strákur var fljótur til og kvað á móti: Rækarlinn bið ég reisi upp tögl rétt sem ég nú greini; hafi hann af þér hár og nögl, hold með skinni og beini. Mér þykir vænst um þessa stöku Þórðar: Þótt slípist hestur og slitni gjörð slettunum ekki kvíddu hugsaðu hvorki um himin né jörð haltu þér fast og ríddu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lægðir og Mægðnasenna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.