Morgunblaðið - 20.02.2020, Qupperneq 60
60 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Lengjubikar karla
A-deild, 3. riðill:
FH – Grótta .............................................. 1:1
Óskar Atli Magnússon 45.(víti). – Kristófer
Orri Pétursson 55. Rautt spjald: Guðmann
Þórisson (FH) 55.
England
Manchester City – West Ham................. 2:0
Staðan:
Liverpool 26 25 1 0 61:15 76
Manch.City 26 17 3 6 67:29 54
Leicester 26 15 5 6 54:26 50
Chelsea 26 12 5 9 43:36 41
Tottenham 26 11 7 8 43:34 40
Sheffield Utd 26 10 9 7 28:24 39
Manch.Utd 26 10 8 8 38:29 38
Wolves 26 8 12 6 35:32 36
Everton 26 10 6 10 34:38 36
Arsenal 26 7 13 6 36:34 34
Burnley 26 10 4 12 30:39 34
Southampton 26 9 4 13 32:48 31
Newcastle 26 8 7 11 24:40 31
Crystal Palace 26 7 9 10 23:32 30
Brighton 26 6 9 11 31:38 27
Bournemouth 26 7 5 14 26:40 26
Aston Villa 26 7 4 15 34:50 25
West Ham 26 6 6 14 30:45 24
Watford 26 5 9 12 24:40 24
Norwich 26 4 6 16 24:48 18
Meistaradeild Evrópu
Atalanta mætti Valencia (3:0) og Totten-
ham mætti RB Leipzig (0:1) en leikjunum
var ekki lokið þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Sjá mbl.is/sport/fotbolti.
Ungverjaland
Bikarinn, 16-liða, seinni leikur:
Fehervár – Újpest ................................... 1:0
Aron Bjarnason lék ekki með Újpest
sem tapaði 0:1 samanlagt.
Olísdeild karla
Leik Vals og Fjölnis var ekki lokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/
sport/handbolti.
Meistaradeild karla
Flensburg – Pick Szeged.................... 34:26
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði
ekki fyrir Pick Szeged.
Efstu lið: Barcelona 22, Szeged 20, París
SG 18, Flensburg 13, Aalborg 13, Celje 6.
EHF-bikar karla
Bjerringbro/Silkeborg – Melsungen 35.31
Þráinn Orri Jónsson skoraði eitt mark
fyrir Bjerringbro/Silkeborg.
Danmörk
Fredericia – Aalborg .......................... 31:33
Ómar Ingi Magnússon skoraði 4 mörk
fyrir Aalborg og Janus Daði Smárason 4.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.
Esbjerg – Viborg ................................. 29:22
Rut Jónsdóttir lék ekki með Esbjerg.
Frakkland
París SG – Créteil................................ 39:26
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk
fyrir PSG.
Spánn
Huesca – Barcelona............................. 26:32
Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Barcelona.
Svíþjóð
Kristianstad – Redbergslid ................ 29:27
Teitur Örn Einarsson skoraði 8 mörk
fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð-
mundsson er meiddur.
Noregur
Haslum – Elverum............................... 28:34
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 9
mörk fyrir Elverum.
Oppsal – Follo ...................................... 20:18
Thea Imani Sturludóttir skoraði 3 mörk
fyrir Oppsal.
Dominos-deild kvenna
Valur – Skallagrímur ......................... 107:41
Breiðablik – Grindavík......................... 89:68
KR – Haukar......................................... 75:72
Staðan:
Valur 21 19 2 1778:1371 38
KR 21 16 5 1592:1356 32
Haukar 21 13 8 1523:1442 26
Skallagrímur 21 12 9 1414:1444 24
Keflavík 20 12 8 1459:1411 24
Snæfell 20 6 14 1320:1541 12
Breiðablik 21 3 18 1348:1642 6
Grindavík 21 2 19 1348:1575 4
1. deild kvenna
Fjölnir – ÍR ........................................... 82:77
Staðan:
Fjölnir 18 14 4 1401:1143 28
Keflavík b 17 12 5 1279:1181 24
ÍR 18 11 7 1221:1045 22
Njarðvík 18 11 7 1209:1055 22
Tindastóll 18 8 10 1186:1293 16
Grindavík b 18 4 14 1021:1336 8
Hamar 17 2 15 977:1241 4
Bikarmeistararnir í Skallagrími
mættu með vængbrotið lið til leiks í
Dominos-deild kvenna í gær. Nú
liggur við að hægt sé að tala um að
báðir vængirnir hafi verið brotnir
því liðið saknaði Keiru Robinson,
Emilie Sofie Hesseldal og Maju
Michalska. Leikmenn sem skorað
hafa samtals 47 stig að meðaltali.
Borgnesingar lentu í klónum á Ís-
landsmeisturunum Valskonum, sem
voru sárar eftir tap fyrir KR í bik-
arnum í síðustu viku. Niðurstaðan
varð risasigur Vals, 107:41. Nú var
við því að búast að ekki yrði
skemmtilegt að mæta Val í fyrsta
leik eftir tapið gegn KR en þessar
lokatölur eru svakalegar. Valur er
sem fyrr í góðri stöðu á toppnum
með nítján sigra og aðeins tvö töp.
Tíu leikmenn skoruðu fyrir Val í
leiknum en atkvæðamest var Helena
Sverrisdóttir með 27 stig og stal
boltanum fjórum sinnum. Hjá
Skallagrími var Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir stigahæst með 17
stig. Leikmenn sem fá alla jafna fáar
mínútur inni á vellinum fengu að
spreyta sig. Gunnhildur Lind Hans-
dóttir nýtti tækifærið ágætlega og
skoraði 12 stig og tók 6 fráköst.
Morgunblaðið spurði Guðrúnu
Ósk Ámundadóttur, þjálfara bikar-
meistaranna, hvers vegna fasta-
mennirnir þrír hefðu ekki verið með.
Skýringin er sú að skæð flensa
gengur í Borgarnesi og hún lagði
leikmennina þrjá að velli. Maja
Michalska, sem lék svo vel í vörninni
í bikarúrslitaleiknum, er raunar með
lungnabólgu. Sjálf var Guðrún á
hliðarlínunni með hita.
Nú er spurning hvernig leik-
mönnum Skallagríms reiðir af fram
að helgi, en á laugardaginn á liðið
mikilvægan leik gegn Haukum í
Ólafssal á Ásvöllum.
Blikar upp fyrir Grindvíkinga
Breiðablik vann býsna öruggan
sigur þegar neðstu liðin mættust í
Smáranum. Breiðablik vann Grinda-
vík 89:68 og komst upp fyrir Grinda-
vík með 6 stig en Grindvíkingar eru
með 4 stig. Danni Williams skoraði
41 stig fyrir Blikana og Tania
Pierre-Marie 28 fyrir Grindavík.
KR styrkti stöðu sína í 2. sæti með
sigri á Haukum 75:72 og munar nú
sex stigum á liðunum. sport@mbl.is
Valur valtaði
yfir Skallagrím
Flensa herjar á bikarmeistarana
Morgunblaðið/Eggert
Á Hlíðarenda Dagbjört Samúelsd. og Gunnhildur Lind Hansd. eigast við.
Ingibjörg Sigurðardóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu, er gengin í raðir
norska félagsins Vålerenga frá
Djurgården í Svíþjóð. Ingibjörg hef-
ur leikið með Djurgården síðustu
tvö tímabil, hún kom til félagsins frá
Breiðabliki en hún var með lausan
samning. Ingibjörg, sem er 22 ára,
missti aðeins af einum deildarleik á
tveimur árum hjá Djurgården og
skoraði alls fjögur mörk. Ingibjörg
hefur leikið 27 landsleiki. Vålerenga
hafnaði í öðru sæti í norsku úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð, fjórum
stigum á eftir Lilleström.
Flytur frá Stokk-
hólmi til Óslóar
Morgunblaðið/Eggert
Flytur Ingibjörg Sigurðardóttir er
farin til Vålerenga í Ósló.
Arnór Ingvi Traustason og sam-
herjar hans í Malmö fá gríðarlegan
stuðning í leik sínum gegn þýska
liðinu Wolfsburg á útivelli í kvöld,
en liðin mætast í fyrri viðureign
sinni í 32ja liða úrslitum Evrópu-
deildarinnar í fótbolta. Stuðnings-
menn Malmö hafa keypt ríflegan
þriðjung þeirra miða sem seldir
voru fyrir fram, samkvæmt upplýs-
ingum frá Wolfsburg, en rúmlega
fjögur þúsund manns fylgja liðinu
til Þýskalands. Hinn íslenskættaði
Jon Dahl Tomasson stýrir Malmö í
fyrsta sinn í alvöruleik í kvöld.
Studdir dyggilega
á útivelli í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
UEFA Arnór Ingvi Traustason spilar
með Malmö í Wolfsburg í kvöld.
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Forráðamenn Manchester City ætla
að berjast gegn úrskurði UEFA,
Knattspyrnusambands Evrópu,
með kjafti og klóm, en félagið var
síðasta föstudag dæmt í tveggja ára
keppnisbann frá Meistaradeild Evr-
ópu og sektað um 25 milljónir
punda.
Félagið sendi frá sér myndskeið í
gær þar sem framkvæmdastjórinn
Ferran Soriano tilkynnir stuðnings-
mönnum City að þeir megi vera
vissir um tvö atriði: Í fyrsta lagi séu
ásakanirnar á hendur félaginu
rangar og í öðru lagi muni félagið
gera allt sem í þess valdi stendur til
að sanna að svo sé.
UEFA sakaði Manchester City
um að brjóta reglur sambandsins
um fjárhagslega háttvísi á árunum
2012 til 2016 með því að gefa upp of
háar tölur um auglýsingatekjur í
bókhaldi sínu. Þar voru bókfærðar
67,5 milljónir punda sem UEFA
segir að hafi verið bein greiðsla frá
eiganda félagsins, Sheikh Mansour,
en hann er aðstoðarforsætis-
ráðherra Sameinuðu arabísku
furstadæmanna og hálfbróðir for-
seta ríkisins. Þá fylgdi með í úr-
skurðinum að forráðamenn City
hefðu ekki verið samvinnuþýðir.
Manchester City hefur áfrýjað
dómnum til Alþjóða íþróttadóm-
stólsins, CAS, en ekki er ljóst hve-
nær áfrýjunin verður tekin fyrir.
Erum sjálfbært félag
„Við erum sjálfbært knattspyrnu-
félag, við skilum hagnaði, við skuld-
um ekki, bókhald okkar hefur verið
margskoðað af endurskoðendum,
eftirlitsstofnunum og fjárfestum,
og þetta er alveg á hreinu. Við höf-
um tekið fullan þátt í rannsókn
málsins og skiluðum miklu magni af
skjölum sem við teljum vera
fullnaðarsönnun á því að þessar
ásakanir séu rangar,“ sagði Sori-
ano enn fremur í yfirlýsingunni sem
birt var í gær.
City var áður sektað um 49 millj-
ónir punda af UEFA árið 2014 fyrir
að brjóta reglur um fjárhagslega
háttvísi en ekkert bann fylgdi þá í
kjölfarið.
UEFA hóf rannsókn á þessu máli
eftir að þýska blaðið Der Spiegel
birti skjöl frá uppljóstrurum í
nóvember 2018 þar sem kom fram
að City hefði ýkt umræddar tölur
og með því blekkt UEFA.
Ætla ekki að fara
Miklar vangaveltur hafa verið í
gangi frá því á föstudag um við-
brögð Pep Guardiola knatt-
spyrnustjóra og leikmanna liðsins.
Guardiola hefur þegar lýst því yfir
að hann muni halda áfram störfum,
jafnvel þótt liðið yrði sent niður í
fjórðu deild á Englandi, en núgild-
andi samningur hans rennur út árið
2021. Raheem Sterling hefur þegar
lýst því yfir að hann fari hvergi þótt
bannið myndi standa og viðbrögð
annarra leikmanna hafa verið á
svipuðum nótum. Það fer þó ekki á
milli mála að tveggja ára fjarvera
frá Meistaradeild Evrópu myndi
hafa í för með sér gríðarlegan
tekjumissi fyrir City, sem í dag er
metið annað ríkasta knattspyrnu-
félag heims, á eftir Paris SG, og
hefur sankað að sér titlum á Eng-
landi undanfarinn áratug, en tólf ár
eru frá því að Sheikh Mansour og
hans menn keyptu félagið.
Evrópumeistaratitilinn vantar
hins vegar í safnið og hann gæti
City tryggt sér í vor áður en bannið
skellur á – ef það skellur á. Þá þurfa
Guardiola og hans menn að byrja á
að slá út Real Madrid, en fyrri leik-
ur liðanna fer fram í næstu viku.
AFP
City Pep Guardiola ræðir við Bernardo Silva í leik. Guardiola hefur þegar
lýst því yfir að hann verði áfram við stjórnvölinn hjá Manchester City.
City hafnar öllum ásökunum UEFA