Morgunblaðið - 20.02.2020, Side 63
MENNING 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Tökur ganga glimrandi vel enda
er ég umvafin reynslumiklu
hæfileikafólki í öllum deildum,“
segir Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri
og handritshöfundur kvikmyndar-
innar Skjálfta sem byggir á met-
sölubókinni Stóra skjálfta eftir
Auði Jónsdóttur. Tómas Örn Tóm-
asson sér um stjórn kvikmynda-
töku og tónlistina semur Páll
Ragnar Pálsson. Með helstu hlut-
verk fara Aníta Briem, Edda
Björgvinsdóttir, Jóhann Sigurðar-
son, Benjamín Árni Daðason og
Sveinn Geirsson. Aðalframleiðandi
er Hlín Jóhannesdóttir undir
merkjum Ursus Parvus.
„Þó að handritið að Skjálfta sé
byggt á skáldsögunni Stóra skjálfta
eftir Auði Jónsdóttur hefur mörgu
verið breytt, ýmsu sleppt og öðru
bætt við eins og svo oft vill verða
þegar skáldsögur eru aðlagaðar
kvikmyndaforminu. Kjarni sög-
unnar höfðaði sterkt til mín þegar
ég las bókina og sá ég strax
ákveðna leið að honum sem hentar
kvikmyndinni sem listformi vel.“
Tökur hófust 11. febrúar og
munu standa til loka marsmánaðar.
Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins
hitti tökuhópinn voru þau stödd í
Lönguhlíð að mynda atriði þar sem
Edda Björgvinsdóttir og Aníta
Briem eru í forgrunni. Spurð hvaða
senur handritsins hafi eða verði
mesta áskorunin að skjóta svarar
Tinna: „Ég myndi segja að mesta
áskorunin sé senur þar sem börn
og dýr koma við sögu. Í Skjálfta
eru nokkrar slíkar og hingað til
hefur allt gengið mjög vel. Ég er
með sex ára snilling í stóru hlut-
verki, hann Benjamín Árna Daða-
son, sem leikur eins og hann hafi
aldrei gert annað. Sá á eftir að
fanga mörg hjörtu, trúi ég.“
Í ljósi þess hve rysjótt veðrið
hefur verið að undanförnu liggur
beint við að spyrja hvort þau hafi
verið heppin með aðstæður til
þessa. „Við höfum hingað til verið
mestmegnis í útitökum en þrátt
fyrir óveður og djúpar lægðir
höfum við verið svo heppin að fá
þau veðurbrigði sem við þurfum
fyrir myndina.“
Skáldsagan Stóri skjálfti segir
frá Sögu, sem rankar við sér eftir
flogakast á gangstétt við Miklu-
brautina og þá er þriggja ára sonur
hennar á bak og burt. Í viðtali
Árna Matthíassonar við Auði sem
birtist í Morgunblaðinu síðla árs
2015 ræddu þau um umfjöllunar-
efni bókarinnar, sem væri ekki
bara flogaveikin heldur minnið og
það hvernig minnið og heilinn virk-
ar. „Heilinn er vinnslustöð og hann
er líka tækifærissinnaður og alltaf
að búa til sinn eigin sjónvarpsþátt
eða sjónvarpsþáttaseríu. Eftir því
sem maður eldist verður manni til
dæmis betur ljóst hvernig maður
man ákveðin tímabil eftir hentisemi
og ólík eftir ólíkum aldursskeiðum.
[…] Það eru miklar vangaveltur í
taugalíffræðinni um hvernig við bú-
um til okkar sögu og hvernig heil-
inn er sífellt að búa til sögu ómeð-
vitað, hvernig við erum stundum
meðvituð í ómeðvitaðri útgáfu af
okkur sem er kannski allt öðruvísi
ef við setjum hana við hliðina á út-
gáfu einhvers annars og þá verða
skil, flekaskil sem raspast saman.
Minnið er svo skrýtið.“
Tökur á Skjálfta hafnar
Útitökur Leikstjórinn og handritshöfundurinn Tinna Hrafnsdóttir í aksjón á myndinni vinstra megin. Hægra megin eru John Ingi Matta, Tómas Örn
Tómasson, sem sér um stjórn kvikmyndatöku, og Egill Gestsson í fremri röð, en fyrir aftan eru frá vinstri Daníel Gylfason og Gunnhildur Helgadóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Alvarlegar Aníta Briem og Edda Björgvinsdóttir ræða málin í bíl.
Tónlistarmaðurinn Lewis Capaldi
var sigursæll við afhendingu
bresku Brit-tónlistarverðlaunanna
á þriðjudagskvöldið. Hann var val-
inn besti nýliðinn í dægurtónlist-
inni og hreppti einnig verðlaunin
fyrir besta lag, „Someone You
Loved“. Það sat í sjö vikur á toppi
breska vinsældalistans í vor og þá
var plata Capaldis, Divinely Un-
inspired to a Hellish Extent, sú
söluhæsta í Bretlandi á árinu. Hún
var þó ekki valin besta plata árs-
ins, þau verðlaun hreppti rapp-
arinn Dave fyrir plötuna Psycho-
drama sem hlotið hefur mikið lof.
Dave hlaut einnig Mercury-
verðlaunin fyrir plötuna og er
hann einungis annar listamað-
urinn sem hreppir bæði þekktistu
bresku tónlistarverðlaunin fyrir
sömu plötu, en Arctic Monkey
hlaut líka bæði árið 2006 fyrir
Whatever People Say I Am, That’s
What I’m Not.
Annar rappari, Stormzy, var
valinn besti karlkyns listamað-
urinn í breskri tónlist á liðnu ári
og Mabel besta tónlistarkonan. Þá
var Los Angeles-rapparinn Tyler –
The Creator valinn besti alþjóð-
legi karlkyns listamaðurinn, og
hin unga Billie Eilish hélt áfram
sigurgöngu sinni og tók við verð-
launum sem besta konan á al-
þjóðlega tónlistarsviðinu.
AFP
Sigursæll Lewis Capaldi hreppti
verðlaun fyrir besta lagið og var
jafnframt valinn besti nýliðinn.
Lewis Capaldi
sigurvegari
Brit-verð-
launanna
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
Rás 2
FBL
BAFTA VERÐLAUN7 m.a.BESTA MYNDIN
BESTI LEIKSTJÓRINN SAM MENDES
m.a.
ÓSKARSVERÐLAUN3
BESTA KVIKMYNDATAKAN
ÓSKARSVERÐLAUN4 BESTA MYNDINm.a.
ÓSKARSVERÐLAUN2 BESTA FRUMSAMDA TÓNLISTm.a.
HILDUR GUÐNADÓTTIR