Morgunblaðið - 20.02.2020, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 20.02.2020, Qupperneq 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 2020 Myndin er svarthvít. Tværkonur sitja berfættar íefnismiklum tvílitumbúningi á gömlu kám- ugu trégólfi. Hárið er bundið í hnút og yfirbragð búninganna minnir á klæði kvenna um aldamótin 1900 ef ekki fyrr. Herbergið er tómlegt með hvítmáluðum veggjum. Upp við vegg hægra megin sést í mikið notað alda- gamalt trékoffort atað í hvítri máln- ingu og upp við vegg hinum megin í rammanum sést glitta í kommóðu með útskornu miðaldamynstri. Fyrir framan konurnar eru tvær skálar. Postulínsskál með hinu svo- kallaða „Danska munstri“, eða hin- um konunglega bláma Kaupmanna- hafnar, framleidd af Den Kongelige Porcelænsfabrik á 19. öldinni, er full of brotum sem önnur konan er að tína til og sýna hinni konunni. Sú kona heldur á einhvers konar kjuða sem hún á yfirvegaðan hátt notar til að strjúka barm hvítrar skálar á gólfinu fyrir framan hana og fram- kallar þannig fallegan lágstemmdan hljóm. Myndin byrjar að taka lit og í ljós kemur að efri hluti búningsins er í raun konunglega blár og reynd- ar allt herbergið sem áhorfandinn er staddur í. Konurnar eru með svart- an augnskugga, önnur á hægra en hin á vinstra augnloki. Inn í þennan heim brýst stafræn mynd af iðandi bláum marglínuhring sem birtist sem lag yfir myndinni og hún dofnar út í að vera svartur bakgrunnur ið- unnar. Okkur er kippt inn í 21. öld- ina. Þannig er lýsing á fyrstu 45 sek- úndunum í nýju kvikmyndaverki Gjörningaklúbbsins – sem eru þær Eirún Sigurðardóttir og Jóní Jóns- dóttir – Vatn og blóð, en það var pantað af Listasafni Íslands fyrir það sem við fyrstu sýn lítur út fyrir að vera sérstakt kvikmyndarými safnsins. Er það staðsett í sal 2 inn af afgreiðslunni, og væri í raun besta rýmið á landinu helgað kvikmyndum myndlistarmanna og gæfi ekkert eftir öðrum slíkum rýmum sérgerð- um fyrir einkasýningar á kvikmynd- um myndlistarmanna á listasöfnum í Evrópu. Svo reynist ekki vera. Rétt er að Gjörningakúbburinn um- breytti rýminu sérstaklega fyrir verkið og er það ásamt rými innan af ein stór innsetning utan um og í kringum kvikmyndaverkið. Vatn og blóð er rúmlega 25 mín- útna kvikmynd þar sem Gjörninga- klúbburinn er innblásinn af lífi og list Ásgríms Jónssonar listmálara (1876-1958). Til að vera í takt við al- þjóðlega faglega orðræðu er hér tal- að um kvikmyndaverk sem þýðingu á „Artist Moving Image“ (AMI) en það er heiti sem hefur tekið yfir það sem áður var kallað vídeólist, enda tengist það ákveðinni tækni frekar en fyrirbærinu sem slíku. AMI vísar í notkun myndlistarmanna á bæði stafrænni og analóg kvikmynda- tækni og er notað um myndir mynd- listarmanna frá þriðja áratug síð- ustu aldar og fram á daginn í dag og nær yfir bæði einrása verk og marg- rása innsetningar, óháð því hvort myndlistarmenn staðsetji sig í kvik- myndahúsasamhengi eða á safni. Áhugavert samtal Það er stórfrétt þegar jafn metn- aðarfullt kvikmyndaverk kemur út í íslenskri myndlistarsögu. Hér er ekki treyst á hið tilfallandi eða að gera allt sjálfur heldur eru fagmenn fengnir til að nota sérþekkingu sína til að þjóna hugmynd Gjörninga- klúbbsins. Kvikmyndataka og klipp- ing í höndum Óskars Kristins Vign- issonar er vel útpæld, bæði hvað varðar myndbyggingu, sjónarhorn linsunnar og hreyfingu myndavél- arinnar. Lýsing í höndum Kjartans Darra Kristjánssonar er betri en al- mennt gengur og gerist í íslenskum kvikmyndaverkum myndlistar- manna og er oft leyst með einföldum en áhrifaríkum hætti þar sem nátt- úrulegt ljós fær að njóta sín og ann- ars staðar er greinilega hugsað út í ljósahönnun. Hljóðhönnun í höndum Diana Queirós er unnin fyrir fimm rásir eins og kvikmyndahúsa-dolby og hefur afgerandi áhrif á hvernig verkið umleikur áhorfandann sem situr eða liggur í sérstökum vatns- litamáluðum tungusófa. Tónlist Ólafs Björns Ólafssonar þjónar hug- mynd Gjörningaklúbbsins en ekki öfugt en það er lykilatriði. Annars væri hér um myndskreytingu að ræða en ekki myndlist. Gjörninga- klúbburinn ber ábyrgð á samsetn- ingu fagmanna, leikstjórn, handriti, útliti, búningum, skúlptúrum og framleiðslu, eins og yfirleitt er með kvikmyndagerð myndlistarmanna. Útkoman er áhugavert samtal milli listamanna en það teygir sig síðan inn í rýmið sjálft með dökkbláa litnum á veggjum og í rýminu innan af þar sem stillt er saman frægri vatnslitasjálfsmynd Ásgríms og hreyfimyndasjálfsmynd Gjörninga- klúbbsins. Ásgrímur notar vatnsliti en Gjörningaklúbburinn notar einn- ig pensil kvikmyndaformsins sem er lýsing. Að búa til kvikmyndaverk snýst að miklu leyti um að nota lýs- ingu til að búa til liti og stemningu. Það leggja þær áherslu á með því að lýsa hvítan rýmisstóran pappírs- skúlptúr með lituðum ljósum svipað og Ásgrímur gerði með vatnsliti. Brautryðjandi í þróun Þegar haft er í huga að eitt helsta framlag íslenskrar myndlistarsögu er einmitt á sviði kvikmyndaverka væri óskandi að stuðningi við gerð slíkra verka væri komið á svipað ról og gerist í Evrópu þar sem kvik- myndagerð, bæði tilraunakennd og söluvæn, stendur í miklum blóma. Gjörningaklúbburinn hefur verið brautryðjandi í þróun íslenskra kvikmyndaverka myndlistarmanna síðan á 10. áratugnum og sýnt á mörgum merkustu stofnunum sam- tímalistar í heiminum. Það væri við- eigandi að sjá Kvikmyndasjóð styrkja kvikmyndagerð myndlistar- manna eins gert er í Evrópu þar sem kvikmyndasjóðir eða sjóðir sem eru í ætt við kvikmyndasjóði standa þétt að baki listamönnum og útkoman sýnileg í söfnum álfunnar. Um þess- ar mundir starfar vinnuhópur á veg- um mennta- og menningarmála- ráðherra að því að móta kvikmynda- stefnu Íslands til ársins 2030. Vonandi mun þessi hópur taka tillit til kvikmyndagerðar myndlistar- manna og næst þegar Gjörninga- klúbburinn kemur með nýtt verk verði það styrkt af Kvikmyndasjóði eða sérstökum tilraunasjóði á hans vegum. Farið á fjörurnar við Ásgrím Samtal Verkið Vatn og blóð er rúmlega 25 mínútna kvikmynd Gjörningaklúbbsins, sem Jóní Jónsdóttir og Eirún Sigurðardóttir skipa. Myndin er innblásin af lífi og list Ásgríms Jónssonar og er að hluta tekin í vinnustofu hans. Listasafn Íslands Vatn og blóð – Gjörningaklúbburinn bbbbn Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi. Verkefnastjóri sýningar: Júlía Marinósdóttir. Sýningin stendur til 1. mars 2020. Opið þriðjudaga til sunnudaga 10-17. HULDA RÓS GUÐNADÓTTIR MYNDLIST Ljósmynd/Sigurður Gunnarsson Upplifun „Gjörningakúbburinn umbreytti rýminu sérstaklega fyrir verkið og er það […] ein stór innsetning utan um og í kringum kvikmyndaverkið.“ Ljósmynd/Sigurður Gunnarsson Sjálfsmyndir Í innra rými sýningarinnar er stillt saman „frægri vatnslita- sjálfsmynd Ásgríms og hreyfimyndasjálfsmynd Gjörningaklúbbsins.“ Stilla úr Vatn og blóð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.