Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Side 2
Hvað er Hringleikur? Hringleikur er hópur sirkuslistafólks sem var stofnaður fyrir tveimur árum. Mörg okk- ar hafa líka verið í Sirkus Íslands. Við viljum byggja upp sirkusmenningu á landinu og markmið okkar er að byggja upp breiðari sirkussenu. Við reynum að ýta sirkus í aðrar áttir. Svo rekum við líka Æskusirkusinn, sem er barna- og unglingastarfið okkar. Hvað er svona skemmtilegt við að vera í sirkus? Þetta er líkamleg og krefjandi listgrein og svo er maður á einhvern hátt líka að leika sér. Á sama tíma fær maður að vera skapandi. Það eru engar reglur og það má gera það sem maður vill. Svo getur fólk valið sér mismunandi leiðir; sumir eru í loftfimleikum en aðrir labba á línu eða djöggla. Er þetta fullt starf hjá þér? Já, ég er formaður Hringleiks og einnig sjálfstætt starfandi listamaður. Ég er loftfimleikakona og fór utan í nám og sérhæfði mig í því. Er til svoleiðis nám? Já! Ég var mjög glöð að uppgötva það. Það er fjögurra ára háskóla- nám; BA-nám í sirkuslistum. Hvað er að gerast á sunnu- daginn í Iðnó? Það er opin dagskrá frá eitt til fjögur með viðburðum yfir daginn. Við ætlum líka að frumsýna nýja heimildamynd um sirkus á Íslandi. Svo verða bæði sýningar og námskeið þar sem kennt verður að djöggla, ganga á línu og standa á höndum! EYRÚN ÆVARSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Engar reglur í sirkus Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020 TÆKNI A FYRIR H TVINNUMANNSIN E I www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar er létt og meðfærilegt og þú ert fljótari að strauja en nokkru sinni fyrr. Calou Moa 34.990 kr. 17.495 kr. Garðatorg 4 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is 50- 60% afsláttur af útsöluvörum Knattspyrnufélag Magnúsar Finnssonar, KMF, sem starfrækt hefurverið hér á Morgunblaðinu frá árinu 1976, komst óvænt og skyndi-lega í fréttirnar meðan á Evrópumeistaramótinu í handbolta stóð á dögunum. „Hvernig má það vera?“ spyrð þú nú, lesandi góður og tekur ofan lesgleraugun. Hvað koma gamlir bumbukallar með króníska fótaóeirð þeirri göfugu íþrótt handbolta eiginlega við? Jú, því skal ég svara. Í umfjöllun Fréttablaðsins um aðstöðuleysi íslenska landsliðsins, meðan það bjó sig und- ir EM hér heima í byrjun janúar, kom fram að eini tíminn sem hefði fundist einn daginn hefði verið á eftir bumbubolta í Framheimilinu í Safa- mýri. Það var sumsé tími okkar KMF-liða, sem við höfum búið að í ríflega aldarfjórðung. Til að forðast allan misskilning þá vorum við aldrei beðnir að víkja fyrir landsliðinu, sem við hefðum glaðir gert, en á hinn bóginn kom ósk frá Fram þess efnis að við lykjum leik stundvíslega kl. 13. Ekki kl. 13.05, eins og við höfum tilhneigingu til að gera. Þá gengu „strákarnir okkar“ sperrtir í salinn. Miklir lurkar, svona í návígi. Því fer fjarri að þetta sé í fyrsta sinn sem æfingar KMF og „strák- anna okkar“ liggja saman enda hafa þeir verið með annan fótinn í Framheim- ilinu í byrjun janúar um langt árabil. Alltaf hefur það gengið hnökralaust fyr- ir sig, utan einu sinni, þegar við þurftum inngrip frá starfsmanni til að losna við kappana af gólfinu, en æfing þeirra var þá á undan æfingu okkar. Sumsé. Við mætum þarna galvaskir á slaginu kl. 12. Æfingu „strákanna okkar“ er þá lokið en þeir ennþá inni á gólfinu, sultuslakir. Sumir að teygja, aðrir á bekknum hjá sjúkraþjálfaranum, auk þess sem Gaupi var mættur á svæðið með míkrafóninn og Einar Þorvarðarson að taka púlsinn á mann- skapnum. Við byrjum að hita upp í saljaðrinum og enginn þorir að stugga við „strákunum okkar“ enda eru þeir upp til hópa þjóðargersemi. Svona gengur þetta í nokkrar mínútur, strákarnir stara í forundran á þessi gatslitnu gamal- menni og sýna ekki á sér neitt fararsnið. En þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst. Salhurðinni er hér um bil svipt af hjörunum og inn stormar baðvörður þeirra Framara á þeim tíma, Alex að nafni, ættaður frá Georgíu. „Strákúr, stúrtú, núna, bless!“ gellur í kappanum sem sópar „strákunum okkar“ og fylgdarliði út úr salnum á fimm sekúndum sléttum. Fyndnari sjón hef ég varla séð um dagana. Snýr sér svo að okkur: „Gjörðú svo vel, strákúr!“ Þeir fara víst ekki í manngreinarálit þarna í Georgíu. Strákúr, stúrtú, núna, bless! Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Svona gengur þetta ínokkrar mínútur,strákarnir stara í for-undran á þessi slitnu gamalmenni og sýna ekki á sér neitt fararsnið. Valborg Svanholt Eiginlega ekki mjög. SPURNING DAGSINS Óttast þú kóróna- veiruna? Simbi Bæði og. Ég er að spá í hvort ég eigi að taka grímu með til útlanda. Ég er á báðum áttum. Ólöf Sæunn Valdimarsdóttir Já, pínu, en ekki mikið samt. Smári Sigurðsson Nei, ekkert svakalega. Kína er hinum megin á hnettinum. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók RAX Sunnudaginn 2. febrúar er Sirkusdagur Hringleiks í Iðnó. Sirkus- hópurinn Hringleikur verður þar milli kl. 13 og 16 ásamt krökkum úr Æskusirkusnum. Þar verða ýmsir viðburðir og einnig verður hægt að læra sirkuslistir. Miðar fást við innganginn og á tix.is. Ljósmynd/Lilja Draumland

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.