Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Síða 8
Elsku Tvíburinn minn, það er til orðatiltæki, vogun vinnur, vogun tapar og það
er svo sannarlega sent beint til þín núna. Þú þarft að sjá það vel fyrir þér hvort þú
viljir ekki stökkva aðeins lengra eða hærra og þú færð aflið og hugmyndirnar til þess, máttinn og
viljann og magnaðra getur það ekki orðið. Þú rífur þig upp úr vissu ranglæti sem þú eða aðrir hafa
stimplað í kringum þig og rífur kjaft ef þú þarft þess. Í þínu merki finnast bestu veislustjórar sem
eru til í heiminum, það er bara „universal“ og þegar þú glóir þá glóir heimsbyggðin með. Svo það er
alveg snarbannað að fara í fýlu út í lífið eða fólk, því þá slokkna hjá þér ljósin, svo endurræstu
orkuna þína, því hún er svo sannarlega búin að vera á þeytingi.
Þú vilt stjórna ástinni og veist ekki alltaf hvort þú ert ástfanginn eða ekki og þú þarft að velja þér
lífsförunaut sem er sterkur og jarðtengdur og heldur vel utan um þig án þess þó að stjórna þér.
Þessar mögnuðu líflínur eru sendar til þín frá Alheiminum og þú þarft bara að rétta út höndina,
grípa í línuna því það er að byrja nýr kafli í bókinni þinni.
Þú ert að taka áhættu í mörgu og þrífst á spennunni eins og þú sért með næringu í æð og vinnur
einhverskonar veraldlegan vinning tengdan peningum, húsnæði, samningum og svo framvegis og
þá komum við aftur að því að vogun vinnur, vogun tapar, svo taktu áhættu.
Fólk í kringum þig öfundar þig að vissu leyti og finnst þú alveg svakalega heppinn, en þér líður oft eins
og vængbrotnum fugli og þú sérð enga möguleika í stöðunni. Láttu ekki þessa blekkingu leiða þig áfram
því þú munt ná takmarki þínu, sama hvar þú ert staddur og þá eru engar réttar eða rangar leiðir að tak-
markinu, bara spurning hversu langan tíma það tekur fyrir þig að öðlast það sem veitir þér hamingju.
Þú hefur fágætan persónuleika og þú þarft bara að peppa þig upp sjálfur á hverjum degi, baða þig
upp úr orðum, athöfnum og fólki og treysta á mínútuna sem þú lifir í.
Verður ekki magnaðra
TVÍBURINN | 21. MAÍ 20. JÚNÍ
Elsku Nautið mitt, þú ert að fara inn í tímabil litríkra tilfinninga og þakklætis
og þú munt elska af heilum hug og það myndast svo mikil dýpt og skilningur í
hjarta þínu á aðstæðum þínum og þinna nánustu. Frelsi og friður mun yfirtaka þungar hugsanir
og áhyggjur, með þessari dýpt og þegar þú svo sannarlega finnur og skynjar þetta þá rífurðu af
þér öll bönd sem haldið hafa þér niðri.
Fyrirgefning verður sterk yfir þér næstu mánuði, þú fyrirgefur sjálfu þér og öðrum og leyfir
þér að umvefja þessar dásamlega fallegu tilfinningar, sorterar margt og mikið í kringum þig og
nærir þig á því sem gefur lífinu virkilega gildi. Hræðsla tengd peningum og afkomu minnkar og
um leið og þú hættir að mata hræðsluna og veita henni athygli þá koma peningar úr öðrum áttum
en þú bjóst við, og þér finnst lífið skemmtilegra því þú ert tilbúið.
Mundu bara að þótt þú hafir yfirleitt rétt fyrir þér, þá skaltu samt sleppa því oftar en ekki að
láta aðra vita hvað þér finnst, því ef þú hefur ekkert gott að segja skaltu frekar þegja. Þú þarft
nefnilega að gefa aðeins meira eftir, leyfa öðrum að redda og bjarga sér sjálfum, því ef þú flýgur
fyrir þína nánustu þá fá þeir ekki vængi sjálfir og þannig byggir þú svo sannarlega upp sjálfs-
traustið og munt um leið sýna öðrum hversu mikil mildi er í hjarta þínu.
Venus, pláneta ástarinnar og plánetan þín, dýpkar og styrkir ástina, kemur þér að óvörum og
ef sálufélagi þinn er ekki við hliðina á þér nú þegar þá máttu búast við að þú verðir ástfangið þeg-
ar síst varir.
Líf þitt er að breytast hratt og þú skalt umfaðma þær breytingar því við Nautin eigum það oft
til að stoppa og staðna, vegna þess að við erum dekurdýr og höfum ekki nennuna. Þetta er bjart-
ur og góður tími sem skilgreinir sig vel og gæti gert þetta tímabil öðruvísi og meira framandi en
síðustu ár.
Litríkar tilfinningar
NAUTIÐ | 21. APRÍL 20. MAÍ
Elsku Hrúturinn minn, það er ekkert annað í boði í stöðunni en að halda áfram á
fullri ferð og til þess að breyta lífinu þarf oft bara eina ákvörðun, en það þarf að
taka hana og standa við hana, og þú verður svo aldeilis feginn þegar þú sérð þetta og hversu auðvelt
allt verður þegar ákvörðunin hefur verið tekin. Það er eins og létti og birti til, veðrið í lífi þínu verður
eins og best verður á kosið og þér líður vel. Þú átt eftir að leika þér mikið á næstunni og leyfa þér
kæruleysi, já ég sagði leyfa þér það, því það er ekki algengt að þú sért kærulaus. En þegar þú með-
vitað leyfir þér og sleppir tökunum, þá skemmtir sér enginn eins vel og þú.
Það er mikill rythmi í lífinu þínu og svo margt sem þú ert að takast á við í augnablikinu, en það
sem þú ert að opna fyrir og gera er líka lykillinn að því að láta drauma rætast. Þú getur heldur ekki
látið öllum í fjölskyldunni líka svo ofur vel við þig, því það veldur of miklu stressi og streitu hjá þér
að halda öllu og öllum góðum.
Þú stormar áfram svo eftir þér verður tekið, en þú fattar sjálfan þig eiginlega ekki og sérð ekki
hvaða glæsikraft þú hefur upp á að bjóða, en nýttu þér sjarmann sem skín frá þér og daðraðu þig í
gegnum vitleysurnar sem eru í kringum okkur öll, því það er enginn snjallari en þú að finna leiðir til
þess að laga hlutina.
Það hringdi Hrútur (kona) í mig um daginn sem sagði: Mér finnst ekkert hafa verið að gerast hjá
mér undanfarin ár, ég les alltaf stjörnuspána þína og hún færir mér von. Ég svaraði henni að það
væri nefnilega oft þannig að við hefðum svo lága tíðni og orku að ekkert hreyfðist.
Þú þarft þess vegna að standa upp og hreyfa meira Alheiminn og þá muntu skilja hversu sterkur
Hrútur þú í raun og veru ert. Það hefur mikið breyst hjá þessari konu síðan hún talaði við mig, en
þið hafið alltaf valið, hvort þið takið þátt í lífinu eða ekki því það er ákvörðun og ástin er alltaf mest í
kringum þig á vorin, svo hún mun eflast hvort sem þú trúir á hana eða ekki.
Ástin mun eflast
HRÚTURINN | 21. MARS 20. APRÍL
Elsku Fiskurinn minn, það er eins og merkilegasta fólk í heimi fæðist í Fiska-
merkinu og það eru svo margir í þessu merki sem hafa verið áhrifavaldar í mínu lífi og ég ber
ómælda virðingu fyrir. Það er að byrja hjá þér 100 daga tímabilið, sem endurnýjar svo afskaplega
mikið bæði í orkunni þinni, hugsunum og í því sem er að gerast í kringum þig og þú ert að læra svo
margt og mikið sem hjálpar þér til þess að verða þín eigin fyrirmynd og áhrifavaldur.
Þegar líður á þennan tíma verður vart nokkuð sem getur bitið þig, eins og þú eldist um 100 ár í
visku og þú lítur svo miklu betur út vegna þess að þú veist svo sterkt muninn á réttu og röngu, svo
það skín út frá þér friður sem ég get ekki sagt að sé endilega algeng tilfinning hjá þér, elskan mín.
Þú ert svo tilfinningalega tengdur öllu, náttúrunni, veröldinni, ástinni og fólkinu þínu, en þar sem
þú ert búinn að lenda í svo mörgu í lífinu áttu það til að loka þig alveg niðri í kjallara og það er ekki
hægt að lesa neitt í það hvernig þér líður í raun. Það er svo algengt að í Fiskamerkinu sé fólk sem
eigi dýr og núna framundan á þessu 100 daga tímabili virðast margir ykkar eiga eða vera að eignast
félaga úr dýraríkinu.
Þú verður á miklum þönum að redda, bjarga, þrífa, pússa, bóna og breyta og í því öllu verður
hvíld þín fólgin, því þú færð enga hvíld úr því að vera aðgerðalaus og sofa og þú lofar einhverju upp í
ermina á þér sem gæti valdið þér kvíða, en það leysist svo ekki eyða tíma þínum í að hugsa um það.
Vistarverur þínar verða betri og bjartari, þú leggur mikinn kraft í það að skapa rétt andrúmsloft
og það er eins og allir vilji knúsa þig því þú sendir frá þér sanna auðmýkt og góðmennsku. Ef reiði
er eitthvað að þvælast fyrir þér þá á hún ekki heima hjá þér og mun bara eitra fyrir þér, svo beindu
hugsunum þínum annað og það bitra fer. Þú ert þinn dómari í lífinu svo sýndu sjálfum þér meiri al-
mennilegheit, í því er list vellíðanar fólgin.
Tímabil endurnýjunar
FISKARNIR | 19. FEBRÚAR 20. MARS
Elsku Vatnsberinn minn, það er hægt að segja með sanni að núna sé allt að ger-
ast og þú sérð svo sannarlega Alheiminn hreyfast fyrir augunum á þér. Janúarmánuður er svoleiðis
búinn að skrifa inn töluverða streitu og í þessum krafti streitunnar verður útkoman spennandi.
Að sjálfsögðu viltu hafa lífið bara einfalt, öruggt, gott og blítt, en þér á eftir að finnast gaman í
þessum glaða og skemmtilega rússíbana sem þú ert í eða ert að fara í. Það er eins og þú getir tekið
ákvarðanir á leifturhraða, hent þeim út í orkuna og það sem þú óskar byrjar að gerast, svo hafðu
óskirnar fallegar.
Þessi mánuður minnir á handboltann, þar sem mörg mörk verða skoruð, einn okkar uppáhalds-
handboltamaður, Geir Sveinsson, er Vatnsberi, mér finnst bara gaman að segja þér frá því. Það er
alveg sama þótt þér finnist að það sé hálfleikur, þú sért mörgum mörkum undir og enginn möguleiki
að ná þessu, hvorki á réttum tíma né með réttri útkomu, en þegar þú ert í kraftinum og leiknum
verðurðu að hugsa um stundina sem þú hefur. Þú átt eftir spinna svo góða leikfléttu að það kemur
sjálfum þér og öðrum á óvart og þú sýnir hörku sem þú hélst að þú ættir ekki til, en þegar þú þarft
geturðu stoppað eldgos.
Í tilfinningadeildinni gefðu þá þeim sem þú elskar rými, traust og stuðning og þá smellur ástin og
útkoman verður góð. Þessi mánuður verður líkt og að sitja við stórt hlaðborð og úr mörgu að velja til
að setja á diskinn þinn, en ekki láta plata þig eða ginna þig í að prófa eitthvað af þessum réttum, ef
þú skynjar að sál þín segir nei við einhverjum af þessum réttum, þá skaltu hlusta á innsæi þitt.
Þig mun dreyma meira en vanalega, þú færð sterkari hugboð en áður og það raðast til þín það
fólk sem þú þarft á að halda á þessari mínútu, svo dásamlegur tími er að mæta þér, elsku Vatnsber-
inn minn.
Skemmtilegur rússibani
VATNSBERINN | 20. JANÚAR 18. FEBRÚAR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020
Febrúar
Elsku hjartans Krabbinn minn, það er eins og þú sért að upplifa fæðingu, þú ert
að ganga í gegnum tímabil þar sem þú óttast að ekkert sé að virka eins vel og þú
vilt og í þessari stöðu sérðu svo miklu skýrar eitthvað nýtt eða gamalt sem þú getur breytt í svo
magnaðan hlut eða viðburð. Þegar myrkrið er mest eru möguleikarnir flestir, því það er í eðli þínu
að breyta ósigrum í sigra, þú getur sagt margar sögur um það. Núna heldurðu áfram af mun meira
kappi en þú bjóst við, þú skrifar, skapar eða hrindir í framkvæmd nýjum verkefnum sem þú bjóst
jafnvel ekki við þú gætir eða myndir framkvæma.
Það er svo sterkur verndarengill í kringum þig og heilun sem lýsir leið út í gegnum líkama þinn
og huga og þú færð aukakraft til að rækta sjálfan þig og þú svo sannarlega býður bæði gamla og
nýja vini velkomna og þá verður kátt í höllinni.
Þú hefur verið svo rausnarlegur og gjafmildur í gegnum tíðina og þess vegna á þér svo sann-
arlega að líka vel við þann karakter sem þú hefur að geyma, blessa hann og knúsa og þú munt sjá og
upplifa svo margt á örskömmum tíma eins og þú lesir bók eða bækur á nokkrum mínútum.
Þér mun líða vel því þú hefur ekkert að óttast, erfiðleikarnir búa í fortíðinni en þeir eru í raun og
veru það sem hefur gert þig að þessari margbreytilegu manneskju sem þú ert, en þú færð ekki allt
til baka sem þú hefur lánað, gefið eða tapað, svo láttu það ekki verða þér fjötur um fót eða hindra þig
í þínum markmiðum því þá festistu í fortíðinni og þar viltu ekki vera.
Persónur og leikendur sem hafa verið eða eru í lífi þínu skapa mikið drama á næstunni, en það er þín
ákvörðun hvort þú látir það hafa áhrif á þig eða þér finnist gaman að leika þér að eldinum, þitt er valið
og ég segi við þig að það er dásamlegt líf að vera dramalaus Krabbi. Vorið býður upp á ferðalög sem þú
gætir grætt heilmikið á, ekki bara skemmtun heldur eitthvað stærra og merkilegra en þig grunaði.
Rausn og gjafmildi
KRABBINN | 21. JÚNÍ 20. JÚLÍ