Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.02.2020, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2020 Í MYNDUM Wuhan. Kínversk stórborgin sem er áallra vörum um þessar mundir.Ekki lýkur fréttatíma í ljósvaka- miðlum án þess að minnst sé á hana og kóróna- veiruna ógnvekjandi sem leggur einhverja tugi manna að velli daglega og dreifist með lævís- legum hætti út um heimsbyggðina, svo öllum stendur ógn af. Kórónaveirunnar varð fyrst vart í Wuhan og er rakin til markaðar með villibráð þar í borg. Fólk hefur til þessa einkum veikst í borginni og nærumhverfi hennar, þótt veirur hafi augsýni- lega síðan náð að vera laumufarþegar með ferðalöngum á leið til ólíkra áfangastaða. Við- brögð stjórnvalda í Kína, þegar þau loksins tóku við sér, voru að loka Wuhan. Skella 11 milljón manna iðnaðarborg í lás, helstu borg Mið-Kína – og í raun 50 milljón manna borgar- kjarna í fjölmennasta ríki jarðar. Fréttamyndir sýna að nú eru fáir á ferli í Wuhan, verslanir lokaðar, markaðir mannlausir, nokkuð sem enginn hefði getað séð fyrir. En spurningin er hvort það takist að girða allar þessar milljónir manna inni með opinberum tilskipunum. Eftir að hafa á sínum tíma upplifað hreint makalausa mannlífskösina í Wuhan á venjulegum virkum dögum, þar sem alls kyns götumarkaðir iðuðu af lífi (og sumir dauða dýranna sem þar voru seld á fæti eða sporði) og flóð kassa með alls kyns og ólýsanlegri iðnaðarframleiðslu og mat- vælum barst eftir götum, ám og lestarteinum út úr borginni, þá finnst mér, eins og mörgum öðr- um, það afar ólíklegt. Hrollkaldir dagar í heillandi borg Umræðan um Wuhan og veiruna leiddi hugann slétt tuttugu ár aftur í tímann. Þá kom ég þang- að siglandi einn hrollkaldan janúardag með ferju niður hið mikla Yangtze-fljót, eftir að hafa í tvær vikur aflað efnis í umfangsmikla umfjöll- un um hina tröllvöxnu Þriggja gljúfra-stíflu sem átti eftir að girða fyrir fljótið nokkru fyrir ofan Wuhan. Borgin reis á mótum Yangtze og helstu þver- ár fljótsins, Han-árinnar, og hefur um aldir ver- ið mikilvæg miðstöð viðskipta, framleiðslu og stjórnmála í hinu fjölmenna og frjósama Hubei- héraði. Til marks um mikilvægi borgarinnar Það er hrollköld vetrarrigning í gamla bænum og allskyns vörur sem þarf að koma til skila. Burðarkarl hleypur með herðaprik úr bambus í næsta verkefni. Alls staðar sendibílar og kassar. Króuð inni af drekkhlöðnum kassakerrum í kraðaki einnar götunnar í miðborg Wuhan. Mannlífskösin í Wuhan Kínverska iðnaðarborgin Wuhan er umtöluð eftir að svokölluð kórónaveira tók að sýkja íbúa og hafa margir látist. Umræðan var ljósmyndara hvatning til að taka fram filmur með myndum sem hann tók í mannmergð Wuhan fyrir nákvæmlega 20 árum. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þegar frostið bítur og vindstrengur berst frá fljótinu geta fóðruð vetrareyru komið sér vel.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.