Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 2
Hver ert þú? Ég heiti Stefanía Sigurdís og er mikill femínisti og bar- áttukona. Þessa dagana er ég að fara með fyrirlestra í grunnskóla og menntaskóla um femínisma og stöðu jafn- réttis á Íslandi. Ég er einnig með hlaðvarpið Vaknaðu ásamt vinkonu minni Ásthildi Ómarsdóttur og þar munum við ræða um jafnrétti og femínisma í dag og einnig munum við fá fólk í viðtal til okkar sem tengist jafnréttisbaráttunni á einn eða annan hátt. Hvernig byrjaði þessi áhugi á jafnrétti kynjanna? Ég hef alltaf verið orkukvendi, alveg frá því að ég var lítil og allt- af pælt mikið í jafnrétti. Ég var skiptinemi í Kosta Ríka þar sem jafnréttismál eru komin stutt á veg. Ég upplifði mjög vonda hluti þar. Þarna eru ungar stúlkur að eignast börn af því þær höfðu ekki val um að fara í fóstureyðingu. Svo er mikil áreitni úti á götu; menn voru að reyna að grípa í mann og kyssa. Þetta er víða svona í Mið- og Suður-Ameríku. Hefurðu hugsað þér að fara í háskólanám í þessum greinum? Markmiðið mitt er að taka BA-próf í mannréttindum frá Malmö og fara svo í meistaranám í kynjafræði. Mannréttindanámið er einn besti grunnurinn ef mann langar að vinna hjá Sameinuðu þjóð- unum, en það er draumurinn minn. Ætlarðu strax í haust í námið? Nei, nú ætla ég að taka mér frí í ár og flytja til Spánar og öðlast víðsýni og reynslu. Ég þarf að sjá og upplifa eitthvað áður en ég fer að vinna við mannréttindi. STEFANÍA SIGURDÍS JÓHÖNNUDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Alltaf verið orkukvendi Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020 ÞÚ ÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar Lift Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar SÍGILDIR SUNNUDAGAR KLASSÍSK TÓNLEIKARÖÐ Tvíleikur Hulda Jónsdóttir & Guðrún Dalía 16. febrúar kl.16 Nánar á harpa.is/sigildir Fréttaflutningur í íslensku sjónvarpi náði nýjum hæðum rétt áður en nýj-asta mannskaðalægðin gekk á land á fimmtudagskvöldið. Við erum aðtala um Stöð 2 og kvöldfréttirnar. Viðbúnaður var að vonum mikill enda landið rauðglóandi á öllum veðurkortum og Þórir Guðmundsson frétta- þulur skipti rakleiðis yfir í beina útsendingu, þar sem hinn þráðbeini frétta- maður Jóhann K. Jóhannsson var klár í slaginn en, að sögn Þóris, hafði hann fylgst með lægðinni allan daginn. Höfum hugfast að á þessum tímapunkti var lægðin ennþá úti í hafsauga. Jóhann var væntanlega staddur á syðsta odda landsins og upp fyrir mér rann ljós – kappinn hafði verið sendur á vett- vang til að taka á móti lægðinni. Hvorki meira né minna. Og renna út rauða dreglinum – í boði Veðurstof- unnar. Ég sá Jóhann fyrir mér með óg- urlegan sjónauka þarna á syðsta odda landsins, nema þá að hann hafi hreinlega verið búinn að sigla til móts við lægðina á skonnortu bróður kunningja frænku eiginkonu sinnar; rífa sig með spartverskum til- burðum á kassann og skyrpa tann- holdi framan í helvítið að hætti hrím- þursa til forna. Dan gamli liðsforingi úr Forrest Gump kom líka upp í hugann, þar sem hann sat keikur á toppi siglutrésins og yggldi sig framan í höfuðskepnurnar. Núna þurfti Jóhann blessaður – sem hefur pottþétt ekki verið búinn að sofa dúr í margar nætur á undan af spenningi – til allrar hamingju ekki að sækja mannskaðalægðina yfir lækinn en eins og við munum rann hann mikið Skúlaskeið norður á Sauðárkrók þegar Veðurstofan gaf í fyrsta skipti út rauða viðvörun í desember síðastliðnum. Og hafði sex gæðinga til reiðar. Af þeim hamförum vildi okkar maður að vonum ekki missa og hélt uppi þrot- lausum útsendingum dögum saman – í þráðbeinni úr auga stormsins. Verst þótti mér á fimmtudagskvöldið að Jóhann hefur verið svo að- framkominn af eftirvæntingu að hann hefur gleymt að hafa með sér veð- urfræðing þangað suðreftir. Haraldur Ólafsson hefði ekki verið í vandræðum með að hafa uppi sjeikspírskar hendingar um hamfarirnar og spá endalokum siðmenningarinnar eins og við þekkjum hana þarna á oddanum. Þess í stað tefldi Jóhann fram einhverjum Landsbjargara sem var ekki nægilega vel þjálfaður í slíkri æsifréttamennsku til að stíga ölduna almennilega í takt við fréttamanninn og uppleggið. Það gengur bara betur næst. Huldri sé nú. Það er ekki upp á þessa þjóð logið! Skyrpti tannholdi framan í lægðina Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Kappinn hafði veriðsendur á vettvang tilað taka á móti lægðinni.Hvorki meira né minna. Og renna út rauða dreglinum – í boði Veðurstofunnar. Jóna Katrín Hilmarsdóttir Ég myndi segja þvotturinn. Leiðinlegast að vaska upp. SPURNING DAGSINS Hvaða húsverk er skemmti- legast? Ingvi Tómasson Ætli það sé ekki bara að ryksuga. Leiðinlegast að skúra. Heiða Björk Sturludóttir Að elda. Leiðinlegast að skúra. Halldór Hannesson Uppþvotturinn. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók RAX Stefanía Sigurdís Jóhönnudóttir fræðir ungmenni um stöðu kynjanna. Norðurorka styrkir verkefnið. Finna má hlaðvarpið hennar á Spotify undir Vaknaðu og á instagram á @vaknadu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.