Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 4
Endurkoma samlokusímans?
Í áratugi hafa símaframleiðendurkeppst við að sýna okkur nýjarútgáfur síma sem búa yfir end-
ingarbetri rafhlöðu, stærri skjá eða
betri myndavél; nokkuð sem neyt-
endur hafa kallað eftir. Minna hefur
heyrst í röddum að kalla eftir sím-
um sem hægt er að brjóta saman.
Þá er bara spurning hvort neytand-
inn bíti á agnið; viljum við hverfa
aftur til samlokusímans, eða
breyttrar myndar af honum?
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan hinn svokallaði samlokusími
var heitasta varan í bænum. Snjall-
símar verða sífellt fullkomnari og
endast betur en áður. Það setur
símaframleiðendur í bobba; fólk
kaupir sér sjaldnar nýja síma sem
er ekki gott fyrir viðskiptin, sam-
kvæmt nýrri grein í New York Tim-
es í vikunni.
Til þess að fá nýja kaupendur
hafa framleiðendur hafist handa við
að framleiða nýja tegund samloku-
snjallsíma. Mögulega er þetta end-
urkoma samlokusímans. Eða hvað?
Dýrir en lofa góðu
Nú eru komnir á markað hjá Sam-
sung, Motorola og Huawei nýir
samlokusnjallsímar sem hægt er að
opna og loka eins og lítilli bók og er
einn kosturinn sá að skjárinn er þá
nokkuð stór en síminn lítill í vasa.
Einn galli sem nefndur hefur verið
er að þar sem brotið er verður alltaf
sýnileg lína á miðjum skjánum sem
gæti pirrað suma.
Símar þessir sem nýkomnir eru á
markað hafa fengið misjafna dóma.
Fyrsti samlokusnjallsíminn sem
Samsung setti á markað í fyrra, Ga-
laxy Fold, brotnaði fljótlega við
notkun. Og talað var um að Mot-
orola Razr frá Lenovo sé með end-
ingarlitla rafhlöðu og erfiðar „hjar-
ir“.
Nýjasta afurð Samsung er Ga-
laxy Z Flip, sem settur var á mark-
að á þriðjudaginn, og virðist hann
vera mikið betri en sá fyrri. Hann
kostar tæpar 180 þúsund krónur í
Bandaríkjunum, sem þykir ansi
dýrt fyrir snjallsíma.
Sumar gerðir þessara nýju síma
hafa tvo skjái, eins og Galaxy Fold
og Mate X frá Huawei. Þeir virka
þannig að þegar þú opnar hann
færðu einn stóran skjá en þegar þú
lokar ertu með annan þeim megin;
snertiskjá sem hægt er að skrifa á.
Hinar gerðirnar, Samsung Z Flip
og Motorola Razr, opna í venjuleg-
an snertiskjá. Þegar honum er lok-
að er þar lítill skjár, eins konar
gluggi, þar sem hægt er að sjá til-
kynningar.
Einnig er von á stærri gerðum
slíkra samanbrjótanlegra tækja,
eins ThinkPad X1 Fold, sem kemur
á markað síðar á árinu og er áætlað
verð rúmlega 300 þúsund krónur í
Bandaríkjunum. Hægt er að stilla
honum upp sem borðtölvu en brjóta
hann svo saman eins og bók.
Munu slá í gegn
Þótt kosturinn sé að fá stærri skjá í
litlu tæki eru samt sem áður aug-
ljósir gallar. Brotið, eða „hjarirnar“
getur verið viðkvæmt. Skjárinn á
þessum símum er ekki eins harður
og því rispast hann mun auðveldar
en á hefðbundnum snjallsímum.
Tíminn á líka eftir að leiða í ljós
hversu vel síminn þolir að vera
stöðugt opnaður og lokað.
Þorsteinn Þorsteinsson, fyrrver-
andi umboðsmaður Nokia á Íslandi
hefur tröllatrú á þessum nýju sím-
um. „Mér finnst þetta brillíant. Ég
var einmitt með þeim fyrstu til að
flytja inn samlokusíma fyrir tuttugu
árum,“ segir hann.
„Eitt stærsta vandamálið við
snjallsíma í dag er hversu við-
kvæmir þeir eru ef þeir detta og
geta þá skjáirnir brotnað eða risp-
ast. Ef þeir eru alveg lokaðir eru
þeir betur varðir sem er algjör
snilld. En ókosturinn er auðvitað
hvað þeir eru rosalegir dýrir; þeir
munu örugglega aldrei kosta hér
undir tvö hundruð þúsundum.
Framleiðendur eru að stíga sín
fyrstu skref við gerð þessara síma
og það gekk ekki nógu vel í fyrra en
það gengur betur í ár. Ég held að
árið 2021 munum við sjá samloku-
snjallsíma frá öllum símaframleið-
endum. Ég held að þeir muni slá í
gegn, ég er alveg viss um það.“
Unga fólkið er spennt fyrir
nýja Z Flip-samloku-
snjallsímanum frá Samsung.
AFP
Á markað eru komnir
nýir símar sem hægt er
að brjóta saman. Skipt-
ar skoðanir eru um
ágæti þeirra en mögu-
lega eru þeir framtíðin í
snjallsímum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Nýr Samsung-
samlokusími.
HEIMURINN
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Ný svefnsófa sending
osvald svefnsófi kr. 199.800
recast svefnsófi kr. 149.900
Eluma svefnsófi kr. 259.800