Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Síða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Síða 13
fellsbæ, þar sem Ásgeir er að smíða litla þriggja sæta flugvél, ásamt þremur öðrum, Höskuldi Ólafssyni, Árna Frey Sigurðssyni og Sigurði Pétri Ólafssyni. „Ef ég á að vera alveg heiðarlegur þá eru þeir aðallega að smíða vélina. Ég er miklu liprari í kjaftinum en hönd- unum; en er duglegur að hvetja þá til dáða.“ Fyrirmyndin er hin fræga TF- KAK, „Kakan“, sem er við hlið nýju vélarinnar í skýlinu en hún var smíð- uð árið 1945. Nýja vélin hefur þegar hlotið einkennisstafina TF-NAM til heiðurs öðru heimili Ásgeirs, Nami- bíu. „Gárungarnir vilja að vísu breyta því í TF-SAM eftir að Sam- herjamálið kom upp þarna niður frá,“ segir hann og glottir. Athygli vekur prúðbúinn örygg- isvörður úr pappa sem stendur vakt- ina í skýlinu, í flugstjórabúningi og með alvæpni. „Þetta er Pepe,“ segir Ásgeir. „Ég tók hann einu sinni heim með mér frá Mexíkóborg.“ Mynd af þeim félögum saman get- ur að líta á forsíðu blaðsins. Atvinnuflugmannsferli Ásgeirs lauk við slysið 2009 en hann hefur haldið einkaflugmannsskírteini sínu við og hlakkar til að fljúga nýju vél- inni, hvort sem það verður á þessu ári eða því næsta. Vélin verður með handbremsu ásamt hælabremsum til að auðvelda honum að fljúga henni. „Hún verður líka með fatl- aðramerki, þannig að ég kem til með að geta lagt henni hvar sem er.“ Hann brosir. Genginn í Stubba- vinafélagið Á leiðinni til baka úr Mosfells- bænum berst talið að framtíðinni sem Ásgeir horfir til björtum aug- um. Hann gerir ráð fyrir að dveljast til skiptis á Íslandi, í Lúxemborg og Namibíu, líkt og hann hefur gert síðustu ár. Næsta markmið er að aðlagast gervifætinum betur, þann- ig að hann geti sleppt hækjunum, og svo langar hann að fá sér reiðhjól til að stunda líkamsrækt. „Ætli ég hlaupi mikið á fjöll úr þessu,“ segir hann. Sund er önnur leið til hreyfingar og það reiknar hann með að stunda á Grensási. „Ég á örugglega eftir að verða eins og grár köttur þar eftir að formlegri endurhæfingu lýkur enda andrúmsloftið einstakt. Það eru þarna karlar eins og ég sem hittast reglulega – ég held að þeir kalli sig Stubbavinafélagið, eða eitthvað því um líkt.“ Nema hvað? ’Þetta er bara eitt afþessum verkefnumsem maður þarf að takastá við í lífinu. Í mínum huga er þetta 50% lík- amlegt og 50% andlegt. Ásgeir á þorrablóti í Lúxemborg um síðustu helgi. Fóturinn rétt eftir skurðaðgerðina. Ásgeir á spítalanum í Lúxemborg eftir aðgerðina í nóvember. Sárið ljóta á hælnum á Ásgeiri. 16.2. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 dagar 17.-19. febrúar í Lyfjum & heilsu Kringlunni af öllum LA MER vörum. Sérfræðingur verður í versluninni og veitir ráðgjöf. 15% afsláttur LA MER

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.