Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Side 18
Hvaða vörur eru í snyrtibudd-
unni sem þú gætir ekki verið án?
„Ég er mikið fiðrildi þegar kemur
að snyrtibuddunni. Ég er förð-
unarfræðingur og á frek-
ar mikið af vörum, en
það sem ég er alltaf
með í buddunni er Es-
tée Lauder Double
Wear-farðinn og YSL
Instant Moisture
Glow primerinn!
Svo var ég að fá
maskara frá Mac
sem er æðislegur. Einnig myndi ég vilja hafa
rauðan varalit og augnlínufarða. Þá væri ég
nokkuð góð!“
Áttu þér uppáhaldsförðunarvörur?
„Mac hefur alltaf verið það sem ég leita í.
Þau eiga allt sem þarf. Á seinni árum hef ég
einnig verið mjög hrifin af Estée Lauder og
YSL. Mér finnst gaman að prófa nýjar vörur
og þegar ég fór aðeins yfir förðunarboxið fyrir
viðtalið fann ég allt að eitt hundrað mismun-
andi merki. Allt frá Gosh í Chanel.“
Hvað keyptir þú þér síðast tengt fatnaði?
„Ég keypti mér síðast fjólubleikan kjól frá
Asos og var í honum á afmælinu mínu í janúar.
Hann var keyptur á útsölu í stund-
arbrjálæði, en hann er gjörsamlega
truflaður! Mig langar að vera í hon-
um alla daga.“
Hvaða skótegund heldur þú
mest upp á?
„Ég á tvenna skó frá merki sem
heitir Lamoda og fæst það á Asos til
dæmis. Mjög töff og öðruvísi skór
myndi ég segja. Þeir vinna allavega
mjög vel á móti krúttlegum kjólum!
Annars á ég heilt safn af hvítum
skóm sem bíða eftir sumrinu!“
Áttu uppáhaldsverslanir í borg-
inni?
„Ég verð að viðurkenna að ég
versla nánast allt á netinu, það er auð-
veldast fyrir mig, einstæða móður í vinnu og alls-
konar verkefnum. Verslanirnar sem ég fer helst
í hér á landi eru Zara og Gallerí 17.“
Hver er uppáhaldsmorgunmaturinn þinn?
„Ég borða ekki morgunmat, því ég fasta yf-
irleitt frá átta á kvöldin til tólf daginn eftir. En
um helgar finnst mér æðislegt að fá mér
„brunch“ hjá mömmu og stjúppabba með syni
mínum.“
Hvert er slagorð þitt fyrir árið 2020?
„Að standa með sjálfri mér.“
Hverju tengdu útliti og heilsu hefurþú mestan áhuga á? „Ég hef náttúrlega mestan áhuga á
alls konar hári, hvort sem það eru brúð-
argreiðslur, fallegir litir og klippingar eða tískan
í dag. Seinustu mánuði hefur fókusinn aðallega
verið á dansgreiðslum þar sem við vinkonurnar
– Sara Scime og Theodóra Mjöll sáum um hárið í
Allir geta dansað á Stöð 2. Eitt stærsta og
skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í.
Einnig hef ég mikinn áhuga á heilbrigðu hári og
húð, það er eitt sem mér finnst standa gríð-
arlega mikið upp úr í hártískunni núna. Fyrir ut-
an það þá hef ég ótrúlega mikinn áhuga á húð-
flúri en ég skarta þó nokkrum svoleiðis á
líkamanum og flest eru þau eftir vin minn Hauk
Færseth sem er einn af þeim bestu hér á landi.
Svo er heimilið mitt líka eitt af mínum uppá-
halds tísku áhugamálum. Ég elska að breyta
og gera fínt þar.“
Hvaða hárvörum ertu hrifnust af?
„Á stofunni vinn ég með Davines og Label
M sem eru mjög ólíkar vörur, en virka vel sam-
an! Í myndatökum og í sjónvarpi hef ég notað
mest Label M en þau eru líka einn stærsti
styrktaraðili London Fashion Week til dæmis.
Gríðarlega mikið úrval af vörum fyrir allar
tegundir af hári.
Ég sjálf nota sjampó og næringu fyrir við-
kvæmt hár frá Davines og blæs mig upp úr Li-
quid Spell-froðunni þeirra, en ég er gjör-
samlega háð henni þessa dagana!“
Hvað húðvörur notarðu að stað-
aldri?
„Í nóvember ákvað ég að taka alveg
húðrútínuna mína í gegn og fara alla leið
í Skin Regimen. Ég nota Cleansing
Cream til þess að ná af mér farða og sef
með Night Detox kremið. Einu sinni í
viku skrúbba ég mig létt með Enzymatic
Powder, blandað í annaðhvort hreinsi-
kremið eða vatn. Svo nota ég C-Vítamín
Booster og Tripeptide Cream alla morgna.
Þessar vörur hafa gjörsamlega breytt öllu.
Það er meiri gljái í húðinni, hún hefur
miklu sléttari áferð og mig líður eins og ég
sé alltaf 100% hrein áður en ég fer að sofa.
Þeir sem þekkja mig hvað best vita að ég
er algjör brúnkukremsfíkill og hef prófað
allskonar, en þessa dagana er Marc Inbane i
miklu uppáhaldi og ég reyni að setja ann-
aðhvort froðuna eða spreyið aðeins yfir lík-
amann einu sinni í viku, sérstaklega núna í
skammdeginu.“
Hvað finnst þér áhugavert tengt
heilsunni?
„Mér finnst áhugavert hversu meðvitað fólk
er orðið þegar kemur að heilsunni. Þá bæði
tengt líkama og sál. Að mínu mati er mikilvægt
að hafa þessi atriði í lagi.
Almenningur er orðinn opnari um andlegu
hliðina, sem er fyrir mér mikilvægasti hlutinn.
Ég fer sem dæmi reglulega til sálfræðings og
stunda líkamsrækt sem styrkir mig einnig
andlega. Það er áhugavert að finna hversu
mikið þetta tvennt hangir saman.“
Með yfir 100
mismunandi
förðunarmerki í
töskunni
Karlotta segir mikil-
vægt að huga að hrein-
leika húðarinnar.
Sjampó og næring
fyrir viðkvæmt hár
frá Davines.
Karlotta H. Margrétardóttir, hársnyrtir og förðunarfræðingur,
á yfir 100 tegundir af förðunarvörum í töskunni sinni. Hún
leggur áherslu á að hreinsa húðina vel og segir einn hluta þess
að líta vel út vera að huga að andlegri og líkamlegri heilsu líka.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Liquid Spell frá
Davines.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Karlotta er mikið fyrir
skóna frá Lamoda.
Karlotta í
kjól frá Asos.
Double
Wear frá
Estée Lauder.
Karlotta notar Skin
Regimen vörurnar til
að hreinsa húðina.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020
LÍFSSTÍLL