Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.02.2020, Blaðsíða 18
Hvaða vörur eru í snyrtibudd- unni sem þú gætir ekki verið án? „Ég er mikið fiðrildi þegar kemur að snyrtibuddunni. Ég er förð- unarfræðingur og á frek- ar mikið af vörum, en það sem ég er alltaf með í buddunni er Es- tée Lauder Double Wear-farðinn og YSL Instant Moisture Glow primerinn! Svo var ég að fá maskara frá Mac sem er æðislegur. Einnig myndi ég vilja hafa rauðan varalit og augnlínufarða. Þá væri ég nokkuð góð!“ Áttu þér uppáhaldsförðunarvörur? „Mac hefur alltaf verið það sem ég leita í. Þau eiga allt sem þarf. Á seinni árum hef ég einnig verið mjög hrifin af Estée Lauder og YSL. Mér finnst gaman að prófa nýjar vörur og þegar ég fór aðeins yfir förðunarboxið fyrir viðtalið fann ég allt að eitt hundrað mismun- andi merki. Allt frá Gosh í Chanel.“ Hvað keyptir þú þér síðast tengt fatnaði? „Ég keypti mér síðast fjólubleikan kjól frá Asos og var í honum á afmælinu mínu í janúar. Hann var keyptur á útsölu í stund- arbrjálæði, en hann er gjörsamlega truflaður! Mig langar að vera í hon- um alla daga.“ Hvaða skótegund heldur þú mest upp á? „Ég á tvenna skó frá merki sem heitir Lamoda og fæst það á Asos til dæmis. Mjög töff og öðruvísi skór myndi ég segja. Þeir vinna allavega mjög vel á móti krúttlegum kjólum! Annars á ég heilt safn af hvítum skóm sem bíða eftir sumrinu!“ Áttu uppáhaldsverslanir í borg- inni? „Ég verð að viðurkenna að ég versla nánast allt á netinu, það er auð- veldast fyrir mig, einstæða móður í vinnu og alls- konar verkefnum. Verslanirnar sem ég fer helst í hér á landi eru Zara og Gallerí 17.“ Hver er uppáhaldsmorgunmaturinn þinn? „Ég borða ekki morgunmat, því ég fasta yf- irleitt frá átta á kvöldin til tólf daginn eftir. En um helgar finnst mér æðislegt að fá mér „brunch“ hjá mömmu og stjúppabba með syni mínum.“ Hvert er slagorð þitt fyrir árið 2020? „Að standa með sjálfri mér.“ Hverju tengdu útliti og heilsu hefurþú mestan áhuga á? „Ég hef náttúrlega mestan áhuga á alls konar hári, hvort sem það eru brúð- argreiðslur, fallegir litir og klippingar eða tískan í dag. Seinustu mánuði hefur fókusinn aðallega verið á dansgreiðslum þar sem við vinkonurnar – Sara Scime og Theodóra Mjöll sáum um hárið í Allir geta dansað á Stöð 2. Eitt stærsta og skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í. Einnig hef ég mikinn áhuga á heilbrigðu hári og húð, það er eitt sem mér finnst standa gríð- arlega mikið upp úr í hártískunni núna. Fyrir ut- an það þá hef ég ótrúlega mikinn áhuga á húð- flúri en ég skarta þó nokkrum svoleiðis á líkamanum og flest eru þau eftir vin minn Hauk Færseth sem er einn af þeim bestu hér á landi. Svo er heimilið mitt líka eitt af mínum uppá- halds tísku áhugamálum. Ég elska að breyta og gera fínt þar.“ Hvaða hárvörum ertu hrifnust af? „Á stofunni vinn ég með Davines og Label M sem eru mjög ólíkar vörur, en virka vel sam- an! Í myndatökum og í sjónvarpi hef ég notað mest Label M en þau eru líka einn stærsti styrktaraðili London Fashion Week til dæmis. Gríðarlega mikið úrval af vörum fyrir allar tegundir af hári. Ég sjálf nota sjampó og næringu fyrir við- kvæmt hár frá Davines og blæs mig upp úr Li- quid Spell-froðunni þeirra, en ég er gjör- samlega háð henni þessa dagana!“ Hvað húðvörur notarðu að stað- aldri? „Í nóvember ákvað ég að taka alveg húðrútínuna mína í gegn og fara alla leið í Skin Regimen. Ég nota Cleansing Cream til þess að ná af mér farða og sef með Night Detox kremið. Einu sinni í viku skrúbba ég mig létt með Enzymatic Powder, blandað í annaðhvort hreinsi- kremið eða vatn. Svo nota ég C-Vítamín Booster og Tripeptide Cream alla morgna. Þessar vörur hafa gjörsamlega breytt öllu. Það er meiri gljái í húðinni, hún hefur miklu sléttari áferð og mig líður eins og ég sé alltaf 100% hrein áður en ég fer að sofa. Þeir sem þekkja mig hvað best vita að ég er algjör brúnkukremsfíkill og hef prófað allskonar, en þessa dagana er Marc Inbane i miklu uppáhaldi og ég reyni að setja ann- aðhvort froðuna eða spreyið aðeins yfir lík- amann einu sinni í viku, sérstaklega núna í skammdeginu.“ Hvað finnst þér áhugavert tengt heilsunni? „Mér finnst áhugavert hversu meðvitað fólk er orðið þegar kemur að heilsunni. Þá bæði tengt líkama og sál. Að mínu mati er mikilvægt að hafa þessi atriði í lagi. Almenningur er orðinn opnari um andlegu hliðina, sem er fyrir mér mikilvægasti hlutinn. Ég fer sem dæmi reglulega til sálfræðings og stunda líkamsrækt sem styrkir mig einnig andlega. Það er áhugavert að finna hversu mikið þetta tvennt hangir saman.“ Með yfir 100 mismunandi förðunarmerki í töskunni Karlotta segir mikil- vægt að huga að hrein- leika húðarinnar. Sjampó og næring fyrir viðkvæmt hár frá Davines. Karlotta H. Margrétardóttir, hársnyrtir og förðunarfræðingur, á yfir 100 tegundir af förðunarvörum í töskunni sinni. Hún leggur áherslu á að hreinsa húðina vel og segir einn hluta þess að líta vel út vera að huga að andlegri og líkamlegri heilsu líka. Elínrós Líndal elinros@mbl.is Liquid Spell frá Davines. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Karlotta er mikið fyrir skóna frá Lamoda. Karlotta í kjól frá Asos. Double Wear frá Estée Lauder. Karlotta notar Skin Regimen vörurnar til að hreinsa húðina. 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.2. 2020 LÍFSSTÍLL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.