Morgunblaðið - 09.03.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MARS 2020
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000
www.itr.is
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þrjú félög sóttu um að halda lands-
mót hestamanna eftir fjögur ár, árið
2024, þegar Landssamband hesta-
mannafélaga (LH) auglýsti móts-
haldið. Lárus Ástmar Hannesson,
formaður LH, reiknar með að
fundað verði með fulltrúum umsækj-
enda í þessum mánuði og í kjölfarið
verði einn staður valinn og skrifað
undir viljayfirlýsingu um að halda
mótið þar.
Félögin sem sóttu um eru hesta-
mannafélagið Fákur með Víðidal
sem mótssvæði, hestamannafélögin
á Suðurlandi í nafni Rangárbakka
með Rangárbakka sem mótsstað og
hestamannafélagið Skagfirðingur
með Hóla í Hjaltadal sem móts-
svæði.
Lengst liðið frá Hólamóti
Lárus Ástmar segir að litið hafi
verið til þess að skipta mótunum á
milli landshluta. Af þeim þremur
sem sækja um verður styst frá því
að landsmót var haldið á Rangár-
bökkum því mótið verður haldið þar
í sumar. Mótið var haldið í Víðidal
2018 en ef litið er á höfuðborgar-
svæðið sem eina heild líða aðeins tvö
ár frá mótinu hjá Spretti á Kjólavöll-
um því þar verður mótið haldið 2022.
Lengst verður liðið frá móti í Skaga-
firði en landsmót var haldið á Hólum
á árinu 2016.
Þetta á LH eftir að fara yfir og
gera síðan viljayfirlýsingu við þann
útvalda. Lárus segir að samningar
LH og mótshaldara séu komnir í
gott form og hafi verið frá því að
Fáksmenn héldu mótið síðast í Víði-
dal. Mótshaldari annist um rekstur-
inn en greiði gjald til LH. Það skapi
stemningu í félögunum að vita að ef
hagnaður verði af mótshaldinu renni
hann til félagsins sjálfs.
Landsmótið á Rangárvöllum við
Hellu verður haldið dagana 6. til 12.
júlí í sumar. Forsala aðgöngumiða
stendur yfir. Lárus veit ekki betur
en undirbúningur gangi vel.
Hann hefur enga trú á því að kór-
ónuveiran setji strik í reikning móts-
haldsins. „Ég er svo bjartsýnn. Það
hafa orðið nokkrir alvarlegir atburð-
ir á þessu ári en lífið heldur áfram.“
Þrjú sækja um landsmót 2024
Mótssvæðin á Hólum, Víðidal og
Rangárbökkum eru boðin fram
Morgunblaðið/hag
Rangárbakkar Landsmót hestamanna voru haldin á Rangárbökkum á Hellu
á árunum 2008 og 2014. Mótin þar hafa ávallt verið vel sótt.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
„Það er klárlega verið að herða að
flugeldasölum með þessum tillögum,“
segir Þór Þorsteinsson, formaður
Slysavarna-
félagsins Lands-
bjargar, í samtali
við Morgunblaðið
um tillögur starfs-
hóps um hvernig
megi draga úr nei-
kvæðum áhrifum
mengunar frá
flugeldum, sem
gaf út skýrslu sína
fyrir helgi. Eins
og Morgunblaðið greindi frá er þar
m.a. lagt til að sölutími skotelda verði
styttur og sala verði aðeins heimil á
tímabilinu frá og með 30. til og með
31. desember og 6. janúar. Einnig
lögðu fulltrúar heilbrigðisráðuneytis
og umhverfis- og auðlindaráðuneytis
sérstaklega fram tillögu um að árið
2030 yrði hætt almennri notkun skot-
elda í flokki 3, sem Þór útskýrir að
séu skottertur og flugeldar. „Það sem
við förum út að leika okkur með.“
„Hryggjarstykkið“
„Við erum svolítið uggandi yfir
þessari þróun sem er að eiga sér stað.
Þetta skiptir okkur alveg ofboðslega
miklu máli. Þetta er hryggjarstykkið í
fjármögnun okkar,“ segir hann um
flugeldasöluna og segir hana hafa átt
undir högg að sækja síðastliðin ár.
Um tillögur um að banna skotelda í
flokki 3 segir hann: „Þá er í rauninni
allt farið.“
Aðspurður segir hann að verði til-
lögurnar samþykktar muni sífellt
færri björgunarsveitir nýta sér flug-
eldasölu sem fjármögnun. „Við höfum
og erum alltaf að leita nýrra leiða til
að fjármagna starfsemi okkar en við
höfum ekki fundið neitt sem kemur í
staðinn fyrir flugeldasöluna.“
Væri upphafið að endalokunum
Í ofannefndri skýrslu er enn frem-
ur lagt til að skipaður verði starfs-
hópur til að koma með tillögur um
fjármögnun björgunarsveita. „Það er
mín skoðun að ef björgunarsveitir
færu á fjárlög væri það upphafið að
endalokum björgunarsveitanna. Við
erum sjálfboðaliðasamtök og ef við
erum komin að stærstum hluta á fjár-
lög kippir það öllum grundvelli undan
sjálfboðaliðastarfinu,“ segir Þór. Þá
segir hann björgunarsveitirnar háðar
almenningi og áliti hans og starfa
samkvæmt því. „Við þurfum að haga
okkur þannig að við séum með al-
menning með okkur í liði. Við viljum
vera á þessum góða stað þar sem við
erum hvort öðru háð. Almenningur
getur ekki án okkar verið og við get-
um ekki án hans verið. Þar viljum við
vera.“
Þór segist þó fagna öllum tilögum
sem vita að auknu eftirliti. „Við höfum
alltaf verið með okkar á hreinu og
höfum verið í fararbroddi þegar kem-
ur að öryggi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskylduferð Þór segir að björgunarsveitirnar séu sífellt að leita nýrra
leiða við að fjármagna reksturinn en ekkert komi í stað flugeldasölunnar.
Ekkert kemur
í stað flugelda
„Verið að herða að flugeldasölum“
Landsbjörg er uggandi
Þór Þorsteinsson
Þær virtust ansi rólegar, gæsirnar sem nutu froststill-
unnar í Garðabæ á dögunum. Skammt frá var par á
göngu enda margir iðnir við útiveru þegar vel viðrar. Í
dag, mánudag, má gera ráð fyrir austan 10-15 m/s á
höfuðborgarsvæðinu og dálitlum éljum síðdegis. Frost
verður 0 til 4 stig og heldur kaldara í nótt.
Morgunblaðið/Eggert
Menn og dýr nutu sín í froststillu